Morgunblaðið - 02.10.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 02.10.2002, Síða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði m.a. í ræðu sinni við setningu Alþingis, 128. löggjafarþings, í gær að breytt hlutföll auðs og áhrifa settu í æ ríkari mæli svip á samfélagið. Hann kom inn á þetta mál með því að vísa til þess að Alþingi hefði að undanförnu unnið að því að draga úr umsvifum hins opinbera og liðka fyrir leikreglum markaðar og samkeppni. „Líkt og í mörgum nágrannalöndum hefur ver- ið leitast við að draga úr mætti almannavaldsins og vísað til þess að löggjöfin skuli einkum miðast við að ákvarða leikvöll atvinnulífsins. Að öðru leyti muni úrslitin á markaðstorgi og alþjóða- straumar í efnahagsmálum ráða för. Þessar nýju leikreglur kunna að eiga þátt í breyttum hlut- föllum auðs og áhrifa sem í æ ríkari mæli setja svip á samfélagið og gætu smátt og smátt skapað ástand sem hæpið er að samrýmist því sem upp- haflega var ætlun þeirra sem lögin settu,“ sagði forseti Íslands m.a. í ræðu sinni. Græðgi og miskunnarleysi Ólafur Ragnar sagði að við hefðum að und- anförnu orðið vitni að því að prestar hefðu í kirkjum landsins fellt þunga dóma um að auðsöfn- un, græðgi og miskunnarleysi setti í vaxandi mæli svip á samfélagið. „Og áhrifamenn á Alþingi hafa einnig í sumarræðum kveðið fast að orði um þró- unina. Verða þau ummæli væntanlega efniviður í vetrarannir.“ Síðan sagði Ólafur Ragnar: „Frjáls markaður og lýðræðislegt samfélag eru samnefnari þeirrar skipunar sem flestir telja hið besta form sem völ er á. En þessi tvíþætta þjóðfélagssýn er fléttuð úr mörgum ólíkum þáttum og vandasamt að ná því jafnvægi sem að er stefnt. Atburðarásin á markaðstorgi kann að leiða til slíkrar samþjöppunar auðs og eigna að veruleg áhrif hafi á hið lýðræðislega vald sem byggja ber á jöfnum rétti allra einstaklinga. Sé fjármagni veitt ótæpilega inn í íslenska hversdagsveröld kann að verða mikið flóð, þjóðfélagið orðið ólgu- sjór þar sem hefðbundnar hömlur fara á flot og völd og áhrif verða af öðrum toga en samstaða var um hér áður fyrr. Skilin milli markaðar og stjórn- mála eru sjaldan eins skýr í veruleika og í kenn- ingunni.“ Í gegnum breytingaskeið Ólafur Ragnar sagði að við Íslendingar gengj- um nú í gegnum breytingaskeið sem að hluta væri knúið áfram með ákvörðunum Alþingis en sækti einnig efnivið í hið opna alþjóðlega hagkerfi sem við yrðum í vaxandi mæli hluti af. „Ærið margt sem þessu fylgir eru framfaraspor sem í senn auka velferð landsins og hagsæld fjölskyldnanna, bæta kjör og veita nýju fólki tækifæri til að sýna hvað í því býr. En við sjáum einnig blikur á lofti sem vekja spurningar um hvernig við varðveitum áfram ýmsa grunnþætti sem gefið hafa íslensku samfélagi sérstakt gildi, jafnræði og samheldni.“ Þá sagði Ólafur: „Við höfum notið þess að hér hefur þróast opið og lýðræðislegt þjóðfélag þar sem viðunandi jafnvægi hefur ríkt þegar til lengd- ar lætur og hvorki óhóflegur auður né annarleg áhrif hafa skákað þeim rétti sem umboðið frá fólki veitir. Hér hefur ríkt samstaða um samfélagsgerð sem við höfum talið þjóna best hagsmunum lands og þjóðar, verið á vissan hátt grundvöllur að sjálfsvitund okkar Íslendinga. Er þessi samfélagsgerð nú að breytast? Er veruleikinn sem okkur birtist í samræmi við anda laganna sem veittu hinum nýju leikreglum form- legt gildi? Slíkum spurningum er á engan hátt auðvelt að svara en þær munu brenna á hverjum þeim sem býður sig fram sem fulltrúi fólksins.“ Mikið í húfi Ólafur Ragnar sagði að Alþingi væri kjarninn í lýðræðisskipan Íslendinga og að þar ætti að ríkja sá eindregni vilji sem endurspeglaði þjóðarhug. „Það er mikið í húfi að okkur takist að nýta í anda íslenskra hefða þau tækifæri sem breytingarnar fela í sér en ekki síður að ávaxta vel arfleifðina sem fyrri kynslóðir færðu okkur og byggja á ár- angrinum sem orðið hefur fræðimönnum tilefni til að álykta um atorkuna sem býr í smærri ríkjum. Sú ábyrgð sem á Alþingi hvílir er því áfram mik- il.“ Að lokum óskaði Ólafur Ragnar alþingismönn- um velfarnaðar í vandasömum verkefnum á kom- andi vetri og bað þingheim að rísa úr sætum og minnast fósturjarðarinnar. Breytt hlutföll auðs og áhrifa setja í æ ríkari mæli svip á samfélagið Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í ræðu við þingsetningu ALÞINGI Íslendinga, 128. löggjaf- arþing, var sett í gær að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Halldór Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, var á þingsetning- arfundi endurkjörinn forseti Al- þingis. Í ávarpi sínu sagði Halldór m.a. að þingstörfum lyki um miðj- an mars eða um átta vikum fyrir áætlaðan kjördag, 10. maí. Í máli hans kom einnig fram að óhjákvæmilegt væri að ráðast í umfangsmiklar endurbætur og við- hald á Alþingishúsinu til þess að það skemmdist ekki. Unnið væri að áætlun um þá framkvæmd. Þá sagði hann að koma ætti fyrir lyftu milli annarrar og þriðju hæðar þinghússins til þess að fatlaðir gætu komist á áheyrendapallanna. Eins og fyrr sagði hófst þing- setningin með guðsþjónustu og predikaði sr. Sigurður Sigurðar- son, vígslubiskup í Skálholti, og þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, Karli Sigurbjörnssyni. Að guðsþjónustu lokinni gengu forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, ráðherrar, þingmenn og aðrir gestir til þinghússins. Þar setti forseti Íslands þingið og að því búnu tók starfsaldursforseti þings- ins, Páll Pétursson félagsmálaráð- herra, við fundarstjórn. Bauð hann þingmenn velkomna til starfa. Síðan fór fram kjör forseta Al- þingis og var Halldór Blöndal einn í kjöri. Í leynilegri atkvæða- greiðslu fékk hann 45 atkvæði en 15 greiddu ekki atkvæði. Eftir ávarp Halldórs Blöndal var þing- setningarfundi frestað til kl. 16. Á meðan héldu þingflokkarnir fundi. Heildarútgáfa á verkum Snorra Sturlusonar Halldór Blöndal hóf ávarp sitt m.a. á því að þakka alþingismönn- um það traust sem þeir sýndu sér með kjörinu. Síðan vék hann orð- um sínum að nýrri þjónustubygg- ingu Alþingis, sem tekin var form- lega í notkun í síðustu viku. „Fæst þar langþráð úrbót í húsnæðis- málum Alþingis.“ Skýrði hann frá því að almenningi hefði gefist kostur á að ganga um skálann og þinghúsið sl. laugardag og að þar hefðu margir lýst ánægju með hversu vel hefði tekist til um fram- kvæmdina. Halldór skýrði einnig frá því að ráðist hefði verið í nauðsynlegar breytingar á fyrstu og annarri hæð þinghússins til þess að teng- ing þess við skálann væri sem greiðust og nýttist sem best. „Í næsta áfanga er óhjákvæmilegt að ráðast í umfangsmiklar endur- bætur og viðhald á Alþingishúsinu til þess að það skemmist ekki og er unnið að áætlun um þá fram- kvæmd. Síðan liggja fyrir marg- víslegar endurbætur aðrar sem ekki eru eins aðkallandi en sem meðal annars miða að því að færa salarkynni til upprunalegs horfs. Jafnframt liggur fyrir að koma fyrir lyftu milli annarrar og þriðju hæðar til þess að fatlaðir geti komist á áheyrendapallana.“ Halldór sagði einnig frá því að á þessu ári hefði Alþingi veitt styrk til þess að kosta myndskreytingu á heildarútgáfu á verkum Snorra Sturlusonar. „Vel hefur verið stað- ið að verki. Verður efnt til kynn- ingarfundar á útgáfunni í Skál- anum á fimmtudag þar sem úrval mynda úr bókum Snorra-Eddu, Eglu og Heimskringlu verður til sýnis.“ Eftir að forseti hafði lokið máli sínu var þingfundi eins og áður sagði frestað til kl. 16. Á fram- haldsfundinum var fjárlögum út- býtt og m.a. kosið um fjóra vara- forseta þingsins. Guðmundur Árni Stefánsson, Samfylkingu, var end- urkjörinn 1. varaforseti þingsins, Guðjón Guðmundsson, Sjálfstæð- isflokki, var endurkjörinn 2. vara- forseti, Ísólfur Gylfi Pálmason, Framsóknarflokki, verður áfram 3. varaforseti og Árni Steinar Jó- hannesson, Vinstri grænum, verð- ur áfram fjórði varaforseti. Í lok fundarins var einnig geng- ið frá kjöri í fastanefndir og al- þjóðanefndir Alþingis og síðan hlutað um sæti þingmanna. Alþingi Íslendinga, 128. löggjafarþing, sett í gær Þingi verður frestað í mars vegna kosninga Morgunblaðið/Árni Sæberg Að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni gengu forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, vígslubiskup í Skálholti, þingmenn og aðrir gestir fylktu liði til þinghússins eins og venja er við þingsetningu. ÞINGKOSNINGAR og kosningar til forsætisráðs Bosníu og Hers- egóvínu fara fram laugardaginn 5. október næstkomandi og mun utan- ríkisráðuneytið senda þrjá Íslend- inga til kosningaeftirlits á vegum Ör- yggis- og samvinnustofnunar Evr- ópu (ÖSE), sem hefur eftirlit með kosningunum. Þeir eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismað- ur, Ástríður Sif Erlingsdóttir, for- stöðumaður rannsóknaþjónustu Há- skóla Íslands, og Emil Breki Hreggviðsson, varafastafulltrúi Ís- lands hjá ÖSE. Um 300 alþjóðlegir eftirlitsmenn á vegum ÖSE munu hafa eftirlit með kosningunum. Þátttaka Íslands í kosningaeftirlitinu er liður í auknu framlagi utanríkisráðuneytisins til uppbyggingar- og friðarstarfs á Balkanskaga, sem fram fer á vegum ÖSE, Sameinuðu þjóðanna og NATO. Nánari upplýsingar um þingkosningarnar í Bosníu og Hers- egóvínu má finna á heimasíðu ÖSE á slóðinni www.osce.org. Þrír íslenskir eftirlitsmenn í Bosníu- Hersegóvínu KONUR og yngra fólk eru al- mennt jákvæðari gagnvart inn- flytjendum en karlar og eldra fólk. Þetta kemur fram í könnun Gallup þar sem viðhorf til innflytjenda og afstöðu til fjölgunar þeirra o.fl. voru könnuð. Hátt í helmingur fóks á aldrinum 16 til 24 ára er já- kvæður gagnvart því að útlend- ingum fjölgi en aðeins um 37% þeirra sem eru 55–75 ára. Þá eru þeir sem eru tekjuhæstir og hafa mesta menntun almennt jákvæðari gagnvart fjölgun útlendinga en aðrir hópar. Mikill meirihluti þjóðarinnar, eða um 86%, er hins vegar sam- mála um að skylda eigi útlendinga, sem setjast að hér, til þess að læra íslensku. Meirihluti fólks, eða 58%, segist vera jákvæður gagnvart því að börn þeirra myndu giftast út- lendingum en 12% neikvæð. Hringt var í 2.476 manns úr þjóð- skrá 29. ágúst til 25. september, svarhlutfall var 70% og vikmörk eru 1–3%. Konur og yngra fólk jákvæðari gagnvart inn- flytjendum Í AÐALSKIPULAGI er gert ráð fyrir lóð fyrir Kvennaskólann á fyll- ingu sunnarlega við Ánanaust og kannaðir hafa verið möguleikar á nýrri lóð fyrir Menntaskólann við Sund í austurhluta Laugardals. Þetta kom fram í svari borgar- stjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, við fyrirspurn Björns Bjarnasonar, oddvita sjálfstæðis- manna, á fundi borgarráðs í gær. Fyrir liggur tillaga að endurskoð- uðu deiliskipulagi í austurhluta Laugardalsins þar sem m.a. er gert ráð fyrir lóð handa MS og verður hugmyndin kynnt í hverfaráðum á næstunni. Borgarstjóri sagði að stjórnendur Kvennaskólans hefðu lagt ríka áherslu á að vera nær miðbænum en erfitt væri að koma fyrir viðbygg- ingum á því svæði. Sú hugmynd hefði komið fram að koma Kvenna- skólanum fyrir á svæði Vals við Hlíð- arenda og væri hún til nánari skoð- unar hjá skipulagsyfirvöldum. MS í Laug- ardalinn ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.