Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI
14 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Meirapróf
Námskeið til aukinna ökuréttinda
hefst föstudaginn 4. október.
Innritun og upplýsingar Hreiðar Gíslason, s. 892 0228
Kristinn Örn Jónsson, s. 892 9166
Ökuskólinn á Akureyri
SUÐURNES
SKIPULAGSSTOFNUN hefur fellt
úrskurð um mat á umhverfisáhrifum
vegna jarðhitanýtingar utan iðnað-
arsvæða á Reykjanesi í Reykja-
nesbæ og Grindavíkurbæ. Í úrskurð-
inum er lagst gegn framkvæmdum
við borholu 3 í 3. áfanga en með
ákveðnum skilyrðum er fallist á
framkvæmdir við þrjár holur í 2.
áfanga og borholur 1 og 2 í 3. áfanga,
eins og þeim er lýst í framlögðum
gögnum framkvæmdaraðila, Hita-
veitu Suðurnesja. Frestur til að
kæra úrskurðinn til umhverfisráð-
herra rennur út 6. nóvember næst-
komandi.
Hitaveita Suðurnesja áformar
borun þriggja niðurdælingarhola í 2.
áfanga og þriggja hola til tilrauna og
vinnslu í 3. áfanga, ásamt lagningu
leiðslna frá holum inn á iðnaðar-
svæði og til sjávar. Skilyrðin sem
Skipulagsstofnun setur fyrir 2.
áfanga og holum 1 og 2 í 3. áfanga
eru þrenns konar. Í fyrsta lagi að
tryggt verði að stærð og vatnsborð
svonefnds Gráa lóns verði óbreytt. Í
öðru lagi að affallsvatn sem til falli á
meðan á borun og prófunum hola í 3.
áfanga standi verði leitt í Gráa lónið.
Í þriðja lagi verði tryggt að ekki
myndist útfellingar eða tjarnir
vegna affallsvatns við borun og próf-
un hola í 2. áfanga. Umhverfisáhrif
vegna 1. áfanga í könnun á jarðhita á
Reykjanes hafa þegar verið metin.
Matsskýrsla vegna 2. og 3. áfanga
framkvæmdanna var lögð fram í
sumar. Umsagnir bárust frá tíu að-
ilum, þ.á m. Reykjanesbæ, Grinda-
víkurbæ, iðnaðarráðuneytinu og
nokkrum öðrum stofnunum. Engar
athugasemdir bárust Skipulags-
stofnun á kynningartíma. Áætlað er
að framkvæmdir við 2. og 3. áfanga
taki þrjú eða fjögur ár og að bortími
verði þar af um eitt ár. Óvissa er um
upphaf framkvæmdatíma þar sem
hann veltur á því hvenær hægt verð-
ur að ráðast í 1. áfanga. Holurnar í 2.
áfanga eru við Sýrfell og Langa-
hrygg en í 3. áfanga eru þær við
Miðahól, Kísilhól og Vatnsfell.
Skipulagsstofnun telur ljóst að
hola 3 í 3. áfanga, sem er sunnan við
Vatnsfell, muni hafa verulega meiri
áhrif en aðrar holur í þeim áfanga
vegna staðsetningar sinnar. Veruleg
áhrif muni hljótast á landslag og
upplifun fólks á lítt röskuðu svæði,
sem hefur jarðfræðilega sérstöðu og
mikla þýðingu fyrir ferðaþjónustu
árið um kring. Áhrifin verði óaftur-
kræf og ekki hægt að fyrirbyggja
þau eða bæta úr með mótvægisað-
gerðum.
Fallist á fimm
borholur af sex
Reykjanes
ÞORSTEINN EA, fjölveiðiskip
Samherja hf., hefur legið við
bryggju á Akureyri frá því um
miðjan september vegna bilunar.
Þorsteinn var við síldveiðar á Nor-
egsmiðum í sumar og varð fyrir því
óhappi á dögunum að tapa þar
botnstykki. Fyrir vikið komst sjór í
skipið og þurfti að sigla því til hafn-
ar til viðgerðar. Að sögn Kristjáns
Vilhelmssonar útgerðarstjóra Sam-
herja þurfti m.a. að setja nýtt botn-
stykki, hreinsa upp sjó og þurka
nokkra mótora sem höfðu blotnað.
Viðgerð er að ljúka og sagði Krist-
ján ráðgert að skipið héldi til síld-
veiða á heimamiðum fyrir helgi.
Þorsteinn EA landaði alls um 4.500
tonnum af síld í Noregi í sumar í
samtals 6 löndunum.
Morgunblaðið/Kristján
Þorsteinn EA er stórt og öflugt skip og það er löng leið frá bryggju og
fram í stefni skipsins. Því var gert gat á byrðing skipsins, rétt ofan við
hliðarskrúfuna að framan, á meðan viðgerð fór fram. Hér eru starfs-
menn Slippstöðvarinnar að fara að loka gatinu.
Þorsteinn
EA á
veiðar
eftir við-
gerð
FRAMKVÆMDARÁÐ Akureyrar-
bæjar hefur samþykkt að ráðinn
verði ráðgjafi til að gera úttekt á
rekstri slökkviliðsins og skal því
verki vera lokið þann 15. nóvember
nk. Það var sviðsstjóri tækni- og
umhverfissviðs sem lagði til að gerð
yrði úttekt á rekstri slökkviliðsins.
Jakob Björnsson, formaður fram-
kvæmdaráðs, sagði að líkt og hjá
mörgum öðrum hefði starfsemi
slökkviliðsins þróast og að menn
vildu skoða hvort það fyrirkomulag
sem þar væri við lýði væri það eina
rétta.
„Rekstur slökkviliðsins er tiltölu-
lega kostnaðarsamur og það er orð-
ið nokkuð langt síðan reksturinn var
skoðaður af óháðum aðilum. Með
þessari skoðun viljum við kanna
hvort við erum að nýta þá fjármuni
sem til rekstursins fara á sem best-
an máta og jafnframt tryggja að
starfsemin sé þannig skipulögð að
hún skili sem bestum árangri og ör-
yggi fyrir bæjarbúa, sem er afar
mikilvægt,“ sagði Jakob.
Töluverðar breytingar hafa orðið
á starfsemi Slökkviliðs Akureyrar,
sem jafnframt sér um alla sjúkra-
flutninga. Akureyrarbær gerði
þjónustusamning við Flugmála-
stjórn undir lok ársins 2000 og tók
Slökkvilið Akureyrar yfir rekstur
Slökkviliðs Akureyrarflugvallar um
áramótin 2000 og 2001. Í kjölfarið
var stöðugildum slökkviliðsmanna á
flugvellinum fjölgað úr fjórum í sjö.
Jafnframt fjölgaði um einn slökkvi-
bíl í Slökkviliði Akureyrar við þessa
breytingu og í fyrrasumar bættist
nýr og glæsilegur slökkvibíll í flot-
ann og er hann staðsettur á flugvell-
inum. Þá er Slökkvilið Akureyrar
með þjónustusamning við Bruna-
varnir Eyjafjarðar og er með einn
bíl í þeirra eigu. Þá fékk slökkviliðið
afhentan nýjan „gamlan“ körfubíl í
sumar í staðinn fyrir annan eldri og
minni.
Eftir að Slökkvilið Akureyrar og
Slökkvilið Flugmálastjórnar á Ak-
ureyrarflugvelli voru sameinuð var
könnuð hagkvæmni þess að byggja
nýja sameiginlega slökkvistöð fyrir
bæði liðin við Akureyrarflugvöll en
kostnaður við slíka framkvæmd var
áætlaður um 250 milljónir króna.
Framkvæmdaráð samþykkti hins
vegar á fundi sínum sl. vor að ýta
hugmyndum um nýja slökkvistöð til
hliðar að sinni.
Úttekt gerð á
rekstri Slökkvi-
liðs Akureyrar
Námskeið Grunnnámskeið í vefvið-
móti og vefmyndavinnslu verður
haldið 14.–18. okt. næstkomandi við
Símenntun Háskólans á Akureyri.
Þar verða m.a. smíðaðar vefsíður
sem virka í öllum vöfrum, unnið með
myndvinnslu fyrir vefinn og leiðir til
að smíða grafík sem er létt í flutn-
ingi með notagildi og skýrt viðmót
að leiðarljósi. Þátttakendur vinna
við eigin vef og er áhersla lögð á
skipulögð vinnubrögð og sjálfsnám.
Kennari er Gunnar Grímsson við-
mótshönnuður.
Í DAG
Námskeið Á vegum Símenntunar
Háskólans á Akureyri verður nám-
skeið um verki og verkjameðferð
dagana 10.–12. okt. í fjarkennslu frá
EHÍ. Á námskeiðinu verður leitast
við að gefa innsýn í fræðin um verki
og verkjameðferð.
Fjallað verður m.a. um líffæra- og
lífeðlisfræði verkja, ýmsar leiðir í
verkjameðferð svo og sálfræðilega
þætti og félagslega aðlögun ein-
staklinga með verki. Fjöldi sérfræð-
inga á ýmsum sviðum kennir á nám-
skeiðinu.
Myndlist Gréta Berg myndlist-
armaður sýnir málverk sitt Óska-
steininn í Blómaskálanum Vín í
Eyjafjarðarsveit. Gestum gefst
kostur á að líta málvekið augum á af-
greiðslutíma blómaskálans.
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
telur í svarbréfi til Árna Sigfússon-
ar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, að
nauðsynlegt hafi verið að semja um
starfslok framkvæmdastjóra Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja, til að
ná fram „brýnum umbótum“ í
rekstri stofnunarinnar, eins og það
er orðað í bréfinu. Ekki hafi verið um
brottvikningu að ræða heldur sam-
komulag um starfslok. Fram kemur í
bréfinu að stofnunin hafi átt við mik-
inn rekstrarvanda að etja undanfar-
in ár. Ítrekaðar athuganir og úttekt-
ir hafi leitt í ljós að nauðsynlegt sé að
breyta og færa til betri vegar ýmsa
þætti í rekstrinum.
Bréfið er tilkomið vegna fyrir-
spurnar Guðbrands Einarssonar,
fulltrúa Samfylkingarinnar í bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar, um starfs-
lok framkvæmdastjórans. Árni Sig-
fússon hafði milligöngu um að svar
fékkst og var bréfið til umfjöllunar á
fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi.
43 milljóna króna halli
fyrstu sex mánuði ársins
Samkvæmt bréfinu er það til skoð-
unar í heilbrigðisráðuneytinu hvort
og að hve miklu leyti nauðsynlegt sé
að auka fjárveitingar til stofnunar-
innar. Rekstrarhalli fyrstu sex mán-
aða þessa árs var rúmar 43 milljónir
króna og í svarinu kemur fram að
hallinn frá árinu 1997 sé alls rúmar
55 milljónir kr. Aðeins var rekstr-
arafgangur eitt ár á því tímabili, eða
upp á tæpar 47 milljónir árið 1999,
og segir ráðuneytið það tilkomið
vegna sérstakrar fjárveitingar upp í
uppsafnaðan halla fyrri ára.
Í bréfinu segir jafnframt að á
miðju þessu ári hafi verið reiknað
með að taka í notkun 2. hæð D-álm-
unnar. Leggja á áherslu á að hæðin
verði tekin í notkun sem allra fyrst
en mikill halli á rekstrinum geri erf-
itt um vik að auka þjónustu stofn-
unarinnar.
Árni Sigfússon bæjarstjóri sagði
við Morgunblaðið að fátt hefði komið
sér á óvart í bréfi ráðuneytisins. Sér
hefði verið vel kunnugt um rekstr-
arvanda stofnunarinnar. Vandinn á
þessu ári yrði meiri en mörg und-
anfarin ár og á því þyrfti að taka sem
fyrst. Árni batt vonir við að nýr
framkvæmdastjóri, sem ráða ætti á
næstu vikum til starfa, myndi grípa
til einhverra aðgerða í samráði við
sitt samstarfsfólk. Vonaðist Árni til
þess að hægt yrði að nýta þau tæki-
færi og það húsnæði sem væru fyrir
hendi og vísaði hann þar einkum til
D-álmunnar. Þó væri ljóst að leysa
þyrfti rekstrarvandann áður en
þjónusta stofnunarinnar yrði aukin.
„Ástandið að verða
mjög alvarlegt“
Guðbrandur Einarsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að sam-
kvæmt bréfinu væri það ljóst að
framkvæmdastjórinn hefði verið
settur til hliðar vegna rekstrarvand-
ans. Einnig kæmi skýrt fram að
ástæða þess að ekki væri búið að
taka 2. hæð D-álmunnar í notkun
væri rekstrarvandinn en ekki skort-
ur á starfsfólki, eins og fram-
kvæmdastjórinn hefði gefið í skyn á
sínum tíma. Við þessu þyrftu sveit-
arfélögin að bregðast sem hefðu lagt
fram fjármagn til stofnunarinnar.
„Við erum hrædd við að dregið
verði úr þjónustu stofnunarinnar.
Læknarnir hafa sagt upp og munu
væntanlega ganga út um næstu
mánaðamót þannig að ástandið er að
verða mjög alvarlegt,“ sagði Guð-
brandur.
Heilbrigðisráðuneytið um vanda
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Starfslok fram-
kvæmdastjór-
ans nauðsynleg
Reykjanesbær
Skipulagsstofnun úrskurðar