Morgunblaðið - 02.10.2002, Síða 27

Morgunblaðið - 02.10.2002, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 27 rinnar og na og um gat þess áfram en eginhlut- sér fyrir bættum ramt eigi ðherra til ðarörygg- hennar. ngarstofu erðarráðs enn Um- sem ver- ngarstof- forstjóri órðarson, rðarráðs, Umferð- óttir opn- æði Um- hún þess t af sér sem inn- ngar öku- rstofunni hafi verið skylt sem hlutafélagi að innheimta virðisaukaskatt af ýms- um gjöldum, en hann falli nú niður þegar starfsemin færist til ríkis- stofnunar. Að teknu tilliti til þess innskatts sem Skráningarstofan hafi getað nýtt sér leiði breytingin til lækkunar á þeim gjöldum sem áður hafi borið virðisaukaskatt. Sem dæmi má nefna að skráning vegna eigenda- skipta ökutækis kostar nú 2.130 kr., en var áður 2.300 kr. Skráning öku- tækis kostar 5.060 kr. en gjaldið var 5.475 kr. og skráningarmerki kostar 2.600 kr. en kostaði 2.815 kr. Dómsmálaráðherra gat þess að Umferðarstofa myndi halda úti öfl- ugri heimasíðu á netinu en þar er m.a. að finna upplýsingar á öku- tækjasviði, um umferðarfræðslu, ökuréttindi, slysaskrá, tölfræði og Umferðarstofu. Viðskiptavinum Umferðarstofu býðst að senda ýms- ar rafrænar umsóknir og tilkynn- ingar, t.d. tilkynningar um eigenda- skipti ökutækis og beiðni um afskráningu ökutækis. nast í Umferðarstofu Morgunblaðið/Kristinn óms- og kirkjumálaráðherra opnar nýja vef- agnars og Óli H. Þórðarson fylgjast með. rfjórðung urinn var nn að við hér á Ís- og vímu- l annarra ilvirkt og tekur á máls.“ u vanda- og vímu- gar vímu- öðrum mjög ungt ngar með daga SÁÁ ú á því að hvað fyrir mönnum ná tökum nað andlit ar. Áður fyrst og fremst menn á götunni sem ættu við þetta vandamál að stríða.“ Alls hafa 15.700 einstaklingar komið í áfengis- og vímuefnameð- ferð hjá SÁÁ frá því samtökin voru stofnuð og segist Þórarinn telja að aðstandendur sem hafi fengið stuðning og meðferð hljóti að vera um 20.000. SÁÁ rekur sjúkrahús á Vogi í Reykjavík, tvö endurhæfing- arheimili, annað í Vík á Kjalarnesi og hitt á Staðarfelli í Dölum. Hvort um sig tekur 30 sjúklinga þannig að 60 einstaklingar eru í endurhæfingu hverju sinni. Þá er göngudeild starf- rækt í Reykjavík og á Akureyri. Milli 12 og 13.000 einstaklingar heimsækja göngudeildina í Reykja- vík á hverju ári. Samtökin reka einnig tvö sambýli í Reykjavík og eitt á Akureyri. Segir Þórarinn að um 2.000 manns leiti til SÁÁ á ári og um 1.000 aðstandendur. „Áfengis- og vímuefnavandinn hefur breyst mjög mikið frá því SÁÁ var stofnað. Í fyrsta lagi hefur unga fólkið okkar og fólk með geð- ræn vandamál aukið vímuefna- neyslu sína. Við sjáum oft að fólk greinist með geðsjúkdóma í fyrsta skipti sem það leitar til okkar þann- ig að geðsjúkir einstaklingar eru gjarnan komnir mjög ungir í vímu- efnaneyslu.“ Afmælisfagnaðurinn hefst klukk- an 20.30 í kvöld, með hátíðarfundi í Háskólabíói þar sem borgarstjóri verður aðalræðumaður. Fagnaðin- um verður síðan framhaldið á föstu- dag þegar haldin verður árshátíð samtakanna í Broadway. „Þar mun- um við skemmta okkur ásamt öllum ráðstefnugestum. Þarna verða fulltrúar frá öllum hópum í SÁÁ,“ segir Þórarinn. afmælis samtakanna breyst un SÁÁ ið/Sverrir son TUTTUGASTA og áttundaágúst síðastliðinn varkveðinn upp dómur íHéraðsdómi Reykjavík- ur þar sem geðsjúkum manni var gefið að sök að hafa stolið í júní á þessu ári lambalæri að verðmæti 3.375 kr. í verslun í Reykjavík. Ákærði játaði skýlaust brot sitt en í nóvember á síðasta ári hafði hann verið dæmdur í 4 mánaða fangels- isrefsingu fyrir að stela matvöru að verðmæti 862 kr. Ákærði rauf skil- orð dómsins og var dæmdur til 3 mánaða fangelsisvistar sem hann afplánar nú í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Í síðustu viku birt- ist grein eftir systur mannsins í Morgunblaðinu undir heitinu Þjóð- félagslegt einelti? þar sem hún lýs- ir tæplega 20 ára sjúkrasögu hans, en hann greindist með geðklofa innan við tvítugt. Þá er þar lýst baráttu ættingja hans við „kerfið“, við að reyna að útvega honum með- ferðar- og vistunarúrræði sem hann bráðvantar. Í yfirlýsingu sem Geðhjálp sendir frá sér á dögunum kemur fram að 50 geðsjúkir ein- staklingar fái ekki þá lögboðnu þjónustu sem þeir eigi rétt á. Þar af séu yfir 20 manns í fangelsum og 30 til viðbótar heimilislausir. Sveinn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar, þekkir sögu þessa manns sem rakin var að ofan og segir að hann hafi um nokkurt skeið vanið komur sínar í húsnæði Geðhjálpar við Túngötu í Reykjavík. Þar hafi hann oft borð- að hádegismat og átt kost á, líkt og aðrir sem þangað leita, að taka þátt í dagskrá Geðhjálpar. Sökum eirð- arleysis sem stafar af sjúkdómi hans hafi hann hins vegar ekki tek- ið þátt í því starfi nema að tak- mörkuðu leyti. Sveinn segist hafa fengið hring- ingu frá Fangelsismálastofnun fyrr í þessum mánuði, eftir að Geðhjálp hafi vakið athygli á málinu, þar sem óskað hafi verið eftir því að hann yrði undir eftirliti Geðhjálpar á daginn meðan hann afplánaði dóm sinn. Daginn eftir heimsótti mað- urinn Geðhjálp með bréf sem hann hafði sjálfur skrifað upp á og und- irgekkst að hann myndi vera undir ströngu efitliti Geðhjálpar. Sveinn segist strax hafa bent fangelsis- málayfirvöldum á að það væri ekki hlutverk Geðhjálpar að hafa mann- inn undir eftirliti. „Hið opinbera ber ábyrgð á þessu og þeim ber að sinna þessum einstaklingi og reyndar á allt öðr- um stað en á bak við lás og slá. Þau úrræði eru hins vegar ekki fyrir hendi,“ segir Sveinn. Í nokkra daga stóð manninum til boða að nýta sér húsakynni Geðhjálpar en það fyr- irkomulag gekk ekki upp og að lok- um var hann vistaður aftur á Skóla- vörðustíg. Sveinn nefnir í þessu sambandi að mikil þörf sé á sértækri umönn- unarstofnun fyrir einstaklinga sem eru mjög veikir og eru úti í horni í þjóðfélaginu vegna sjúkdóms síns og að æskilegt sé að heilbrigðis- og félagsmálayfirvöld komi að rekstri slíkrar umönnunarstofnunar. Með sértækri umönn- unarstofnun væri með aðstoð lögreglu hægt að koma mjög veikum ein- staklingum í umsjá fag- fólks sem gæti komið þeim í bærilegra ástand, að sögn Sveins. Hann undirstrikar að mikilvægt sé að halda sértækri umönnunar- stofnun aðskilinni frá bráðamót- töku Landspítalans. Mjög veikir einstaklingar passi oft á tíðum ekki með öðru fólki sem leiti sér að- stoðar á bráðamóttöku og fæli í sumum tilvikum jafnvel fólk frá því að leita sér aðstoðar þegar það sjái mikið veikt fólk á þessum deildum. Hann segir það sammerkt með mörgum geðfötluðum einstakling- um að þeir vilji oft á tíðum ekki þiggja þá aðstoð sem þeim sé boð- in. „Það að hafa ekki afskipti af þessum einstaklingum gengur hins vegar ekki upp eins og dæmin sanna og bitnar bæði á sjúklingum og aðstandendum þeirra,“ segir Sveinn. Hann segir einnig þörf á því að setja á laggirnar hreyfanlegt teymi sem annist fólk sem er í eigin hús- næði en er oft og einatt ekki í stakk búið að sjá um sig sjálft. „Það er mjög algengt þegar fólk fer út af geðdeild að það hætti samhliða að taka lyfin sín og það leiðir ekki nema eitt af sér, menn fara bara aftur inn,“ segir hann. Hann segist álíta að með fær- anlegu teymi megi koma betur til móts við geðfatlaða einstaklinga sem séu oft á tíðum haldnir ákveð- inni fælni við að leita sér aðstoðar á geðdeildum. Þá segir Sveinn mikilvægt að stokkað verði upp í lögum um mál- efni geðfatlaðra og að meðal annars verði skoðað hvort hægt sé að skil- orðsbinda hluta af refsidómi gegn því að viðkomandi axli hluta ábyrgðarinnar og leiti sér aðstoðar við geðsjúkdóm sínum, taki inn lyf- in sín o.s.frv. Þá hefur Geðhjálp einnig horft til nauðungarvistarlag- anna sem Sveinn segir að brýnt sé að breyta. Þar þurfi faglegi geirinn að koma betur inn í til að hægt sé að grípa til nauðsynlegra úrræða áður en viðkomandi verður enn þá veikari. „Tilfinningalega séð er þetta oft á tíðum mjög erfitt sem leiðir af sér að aðstandendur grípa ekki til þess fyrr en allt of seint. Viðkomandi er þá orðinn bullandi veikur og allt komið í mikinn ófrið,“ segir Sveinn Magnússon. Jafnósakhæfir þegar um lítil brot er að ræða Erlendur Baldursson, afbrota- fræðingur hjá Fangelsismálastofn- un ríkisins, hélt erindi í Reykjavík- urakademíunni í apríl síðastliðnum á opnum fundi um meðferð og/eða refsingar, þar sem hann reyndi að lýsa bakgrunni síbrotamannsins. Fundurinn bar yfirskriftina Sekur eða sjúkur. Erlendur tók dæmi af umrædd- um dómi yfir manninum frá því í nóvember á síðasta ári. Hann segir að burtséð frá því hvort menn séu geðsjúkir eða ekki þá sé það spurn- ing hvort það eigi að dæma fólk í fangelsi fyrir minniháttar afbrot eins og í þessu tilviki. „Á að nota þyngstu refsingu þjóðfélagsins, sem er fangelsi, fyrir svona smá- muni. Á ekki frekar að nota slíka refsingu í alvarlegri málum?“ spyr Erlendur. Hann segist telja að í dómum þar sem um minniháttar afbrot sé að ræða og veikir einstaklingar eigi í hlut, líkt og í þessu tilviki, sé oft ekki gengið úr skugga um, með að- stoð geðrannsóknar, hvort viðkomandi sé sakhæfur eða ekki. Slík- ar rannsóknir séu frek- ar notaðar þegar um stærri mál sé að ræða. „Menn eru hins vegar alveg jafn- ósakhæfir þegar um lítil brot er að ræða eins og þegar stór brot eiga í hlut,“ segir Erlendur. Að sögn Tómasar Zoëga, yfir- læknis á geðdeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss, hefur tilfellum þar sem mjög veikir sjúklingar eiga í hlut sem ekki hafa fengið meðferðarúrræði við hæfi, fjölgað á undanförnum árum. Margir þess- ara sjúklinga eiga einnig við vímu- efnavanda að stríða sem gerir það að verkum að erfiðara er að leysa úr vandamálum þeirra en ella. Tómas segir að á allra síðustu ár- um hafi rúmum á geðdeildum Landspítalans fækkað, bæði á bráðadeildum og langdvalardeild- um. Hann segir að erfitt reynist oft á tíðum að finna húsnæði fyrir þessa einstaklinga sem sökum veikinda sinna hafist ekki við í því húsnæði sem þeim standi til boða. Engu að síður blasi við að vegna sparnaðar- aðgerða í heilbrigðisþjónustu sé heilbrigðiskerfið ekki eins vel í stakk búið að taka á vandanum og var fyrir nokkrum árum. Tómas segir að búið sé að loka deild sem var á Vífilsstöðum og þeir sjúklingar sem þar voru fluttir á aðrar deildir. Þá var móttöku- deild sem var á Kleppsspítala sam- einuð annarri deild á Landspítala. Einnig fækkaði rúmum við samein- ingu geðdeilda þegar geðdeild á Borgarspítalanum var lögð niður en þar hafði verið starfrækt bráða- móttaka fyrir geðsjúka. Þá hefur rýmum einnig fækkað sem geð- deild Landspítalans hefur haft yfir að ráða á Arnarholti. Tómas segir að alls hafi plássum því fækkað á undanförnum árum um nærri 40. Hann segir að veruleg þörf sé á úrræðum fyrir geðsjúka sem taki á þeirri óreglu sem fylgi þeim ein- staklingum sem eigi við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða. Óreglan verði oft til þess að þeir taki ekki inn lyfin sín og fylgi ekki eftir annarri meðferð sem þeir eigi að taka þátt í. „Það þarf að auka fjárveitingar bæði af hálfu ríkis og sveitarfélaga til þess að byggja upp vernduð heimili fyrir þennan hóp einstak- linga,“ segir Tómas. „En spítalinn getur ekki lokað sínum úrræðum nema eitthvað annað kerfi taki við í staðinn, það er alveg ljóst enda ekki hægt að sinna geðsjúkum annars staðar en á geðsjúkrahúsum,“ segir hann. Tómas minnir á að hann hafi veitt forystu starfshópi sem skilaði af sér skýrslu til heilbrigðisráð- herra 10. október árið 1998 þar sem meðal annars var lögð áhersla á að rúmum fyrir geðsjúka yrði ekki fækkað. „Eitt af þeim vandamálum sem við bentum á sérstaklega tengdust þeim sem voru langveikir vegna geðsjúkdóma. Við vorum þar með ákveðnar tillögur sem ekki hafa enn verið framkvæmdar,“ bendir hann á. „Ríkisstjórnin hefur nú sett geð- heilbrigðismál í forgang og það er því mikilvægt að hún gangi eftir því að svo verði,“ segir Tómas Zoëga. Sjaldgæft að mikið veikir ein- staklingar afpláni dóma Haraldur Dungal heimilislæknir segir að enginn sé í raun ánægður með hlutskipti sitt í máli geðsjúka mannsins sem afplánar nú dóm í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Harald- ur hefur í starfi sínu sem fangalæknir ásamt hjúkrunarfræðingi skoðað hann reglulega á meðan á afplánun hans hefur stað- ið. Í síðasta mánuði var hann færð- ur á geðdeild Landspítalans í tæp- ar tvær vikur. Þá var reynt að hafa hann í dagvistun hjá Geðhjálp eins og áður var nefnt. Hann segir að reynt sé eftir fremsta megni að veita honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda og að það sé mat sitt að honum hafi ekki versn- að á meðan hann hefur afplánað dóm sinn. Aðspurður hvort algengt sé að hann þurfi að hafa afskipti af geðsjúkum einstaklingum í afplán- un sem séu mikið veikir segir Har- aldur að í starfi sínu sem fanga- læknir sé það fremur sjaldgæft. Annað slagið komi þó upp tilvik þar sem sinna þurfi geðsjúkum sem hafi gerst brotlegir við lög líkt og í umræddu tilviki. Ellý Þorsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri ráðgjafarsviðs Fé- lagsþjónustunnar í Reykjavík, seg- ir að eðli málsins samkvæmt fái Félagsþjónustan líkt og önnur fé- lagsþjónusta inn á borð til sín erfið mál sem erfiðlega hafi gengið að leysa úr í öðrum „kerfum“ og stundum hjá Félagsþjónustunni einnig. Hún bendir á að töluverð um- ræða hafi spunnist í fjölmiðlum fyr- ir um ári um hóp sem hafði orðið útundan í kerfinu þar sem við sögu komu misnotendur á vímuefnum og áfengi og í sumum tilfellum fólk sem hefur átt við geðsjúkdóma að stríða. Að sögn Ellýjar gekk Fé- lagsþjónustan í kjölfarið til samn- inga við Samhjálp um rekstur hús- næðis fyrir 7–8 heimilislausa við Miklubraut sem opnað var á þessu ári. Hún bendir á að það húsnæði sé hins vegar ekki eingöngu ætlað þeim sem eiga við geðsjúkdóma að stríða. Þá er Félagsþjónustan með samning við Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra um búsetuþjón- ustu fyrir geðfatlaða sem Geðhjálp hafði með höndum áður. Sam- kvæmt honum er boðið upp á bú- setuúrræði fyrir allt að 35 einstak- linga. Félagsþjónustan býður einnig geðsjúkum einstaklingum upp á önnur búsetuúrræði og meðal ann- ars hefur Félagsþjónustan fram- leigt 11 íbúðir af Félagsbústöðum, svokölluð „vönduð heimili“ þar sem búa tveir til fjórir geðfatlaðir ein- staklingar saman, samtals 39 ein- staklingar. Þessa þjónustu hefur Félagsþjónustan starfrækt í sam- vinnu við Landspítalann. Þá fá margir stuðning eða ráðgjöf heim til sín, hvort sem um er að ræða heimaþjónustu, liðveislu eða rágjöf frá starfsmönnum Félagsþjónust- unnar. Ellý bendir á að til viðbótar hafi Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra yfirsýn yfir málaflokkinn og sé með önnur úrræði til viðbótar þessum. Samþykkt að bæta við þremur nýjum búsetuúrræðum Félagsmálaráð Reykjavíkur- borgar samþykkti á síðasta ári að setja á laggirnar þrjú búsetuúr- ræði. Eitt af þeim úrræðum er heimili sem Samhjálp rekur fyrir heimilislausa við Miklubraut en einnig var samþykkt að opna nýtt gistiskýli og heimili sem ætlað er þeim sem hafa farið oft í áfeng- ismeðferð og þurfa tíma til að fóta sig á ný í samfélaginu. Skilyrði fyr- ir því að fá inni á heimilinu er að viðkomandi einstaklingar séu búnir að taka á vímuefna- eða áfengis- vanda sínum. Sem fyrr segir er búið að opna eitt af þessum þremur úrræðum. Ellý segir að Félagsþjónustan hafi ákveðið strax í byrjun að heimilið á Miklubraut sé fyrst og fremst til að losa um gistiskýlið í Þingholts- stræti sem hafi verið notað mikið af sama fólkinu og hafi því í raun ver- ið orðið að varanlegum dvalarstað hjá hópi fólks. Af þessum sökum hafi þeir sem lengst hafi dvalið þar gengið fyrir þegar heimili Sam- hjálpar var opnað. Aðspurð hver sé al- gengur biðtími hjá geð- fötluðum og þeim sem hafa átt við áfengis- og vímuefnavanda að etja að fá lausn í húsnæðismálum á veg- um Félagsþjónustunnar segir Ellý að hann sé breytilegur og að reynt sé að meta hvert tilfelli fyrir sig og greiða fyrir úrlausn mála þar sem þörfin sé mjög aðkallandi. Þá blandist inn í að velja þurfi þannig úr að viðkomandi einstaklingur passi inn í þann hóp sem fyrir sé í tilteknu húsnæði á vegum Fé- lagsþjónustunnar sem getur á stundum reynst erfitt. Að sögn Ellýjar eru 28 manns á biðlista eftir búsetuþjónustu fyrir geðfatlaða, átta eftir búsetu á Miklubraut og 18 eftir búsetu í vernduðum heimilum. Ellý bendir á að sumir þessar einstaklinga hafi einhver búsetuúrræði. Hún bendir jafnframt á að þessir einstaklingar sæki beint um til Félagsþjónust- unnar en heildarlisti yfir umsækj- endur liggi hins vegar hjá Svæð- isskrifstofu um málefni fatlaðra. Meðferðarúrræði fyrir mikið geðfatlaða einstaklinga af skornum skammti Þörf á sér- tækri umönn- unarstofnun Reynt að meta hvert tilfelli fyrir sig Sakhæfi ekki alltaf kannað við minni brot

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.