Morgunblaðið - 02.10.2002, Síða 36

Morgunblaðið - 02.10.2002, Síða 36
HESTAR 36 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MARGIR stóðhestaeigendur eða umráðamenn leggja nú ofurkapp á að tryggja sem besta fyljun hjá hestum sínum og þar gegnir óm- skoðunin lykilhlutverki. Einn þátt- urinn í þessu er sá að farið er að lengja þann tíma sem hryssur eru hafðar hjá stóðhestum og eru nýleg dæmi um að hryssur hafi verið þar allt fram í desember. Með hækk- andi verði folatolla er lögð enn rík- ari áhersla á að fá sem besta fyljun og líka hitt þegar um er að ræða góðar hryssur er fjárhagstjónið mikið að sitja uppi með þær geldar. Með batnandi umhirðu eru þeir fleiri sem ekki setja fyrir sig að fá haustfolöld, þykir oft betri kostur en að vera með góða hryssu gelda. Keilir á góðri siglingu Fyljunarstaða Keilis frá Miðsitju lagaðist verulega eftir ómskoðun í síðustu viku og hefur hann nú fylj- að 46 hryssur af þeim 56 sem hafa verið leiddar undir hann og gerir það 82% fyljun. Af þessum 56 hryssum komu 53 til hans eftir landsmót og má því segja að Keilir hafi staðið í ströngu eftir landsmót og ekki er þessu enn lokið hjá hon- um en ómskoðað verður eftir rúma viku hjá honum og getur hans góða staða batnað enn frekar. Djáknar frá Hvammi fyljaði 90% af um það bil 30 hryssum. Forseti frá Vorsabæ, einn af hæst dæmdu hestum ársins, skilaði 93% fyljun á Hesti í Borgarfirði. 44 hryssur voru ómskoðaðar og reyndust þrjár vera geldar en sjö voru ekki ómskoðaðar. Býsna góð frammistaða hjá honum. Árangursrík heimsókn Forseta Af stóðhestaútgerð Hrossarækt- arsambands Vesturlands eru frek- ar góð tíðindi. Forseti var á þeirra vegum auk Þorra frá Þúfu en hann var í tæpum 70% og Hugi frá Haf- steinsstöðum fyljaði 10 hryssur af 15 sem gerir 67% fyljun. Dynur frá Hvammi stendur í stórræðum þar vestra, er sannanlega búinn að fylja 37 hryssur en á 14 eftir sem ennþá eru hjá honum. Sigbjörn Björnsson frá Lundum, sem hefur haft hönd í bagga með útgerðina á Dyn, segist þess alviss að hann af- greiði flestar þessara hryssna. Nokkuð sé um liðið síðan ómskoðað var og hann eigi rúma viku enn til stefnu fram að næstu ómskoðun. Af eignarhestum sambandsins er Eiður frá Oddhóli með hæsta pró- sentu, 84,2%, en hann var með 20 hryssur, 16 greindar með fyli og ein ekki skoðuð þannig er hugs- anlegt að talan gæti hækkað í 17. Skorri frá Gunnarsholti kemur næstur með 80%, 16 fyljaðar af 20. Gamli höfðinginn Kolfinnur frá Kjarnholtum er í 77,7% sem er ívið hærra en hann hefur skilað und- anfarin ár. Hamur frá Þórodds- stöðum skilaði Vestlendingum 71,42% fyljun og Oddur frá Selfossi fer nú í 62,5% en hefur verið í 50% undanfarin ár en nú var hann með 8 hryssur. Stígandi frá Sauðárkróki er rétt í 50% með 10 hryssur alls. Flygill frá Vestri-Leirárgörðum olli eiganda sínum, Marteini nokkr- um, vonbrigðum, skilaði rétt tæp- um 70% í 26 hryssna hópi norður í Skagafirði að loknu landsmóti. Sagðist Marteinn helst vilja hafa hestana í 75% til að brúnin færi að léttast á sér. Síðan fór Flygill í Dalina og var þar með 10 hryssur en ekki hefur enn verið ómskoðað út úr girðingunni. Ekki var ómskoðað nema að hluta frá Þóroddsstaðahestunum Þyrni, Hami og Galdri svo ekki munu liggja fyrir neinar niðurstöð- ur um þá hesta fyrr en næsta sum- ar. Huginn frá Haga stendur alltaf vel fyrir sínu, var í fyrra vel yfir 90% og er með mjög svipaða út- komu núna, 95%, á reyndar eftir að fylja tvær hryssur sem dvelja hjá honum um þessar mundir. Ef það tekst er hann kominn í 100% með 40 hryssur. Hér í tveimur greinum hafa ver- ið tíndir til ýmsir stóðhestar af handahófi og má ljóst vera að hjá flestum þeirra er árangur mjög góður. Dapurlegt hjá Hegra Þó er ein dapurleg undantekning frá þessum góðu tölum sem hér hafa verið birtar en það er hjá hin- um fagra gæðingi Hegra frá Glæsibæ. Enn sem komið er hefur ekki ein einasta hryssa verið greind með fyli hjá honum í sumar en ekki er öll von úti. Annar eig- enda hans, Ragnar Tómasson, sagði að vissulega væri þetta mikið áfall og nú væri allt komið í fullan gang við að reyna að finna hugs- anlegar ástæður fyrir þessu. Sagði Ragnar það reyndar þekkt að klár- inn hafi ekki fyljað fyrr en seinni part sumars og þá náð rétt ríflega 50% fyljun. Hann sagðist hafa tekið eftir því að Hegri hafi haldið eist- unum, sem eru mjög lítil, nánast al- veg uppi í kviði framan af en nú séu þau komin niður. Sagði hann spurningu hvort stress í kringum keppni valdi þessu en Ragnar keppti á Hegra framan af sumri. Bætti Ragnar því við að hann vildi ekki vera að pukrast með slíkar upplýsingar, það væri engum til góðs. Vakning um frjósemina Ekki er að efa að sú vakning um mikilvægi frjóseminnar hefur orðið til þess að farið er að fylgjast mun betur með tímgunarferlinu hjá hrossunum en gert var áður. Þá heyrir það orðið til algerrar und- antekningar að stóðhestar gleymist í girðingum og lendi í mikilli aflögn og eins og oft kom fyrir hér áður fyrr. Þá má einnig nefna að farið er að gaumgæfa mjög það atlæti sem hestarnir fá yfir veturinn. Eitt það nýjasta er að hafa mikið ljós hjá þeim með hækkandi sól en leitt er getum að því að slíkt örvi sæð- isframleiðslu og hestarnir fyrr til- búnir að vori. Einnig hefur verið nefnt að gott sé að byrja snemma að leiða hryssur til þeirra og leyfa þeim að tappa af eins og það er kallað en slíkt er talið örva gæði sæðisins. Að síðustu má geta orða Bjarna Marinóssonar í Skáney, en hann er formaður Hrossaræktar- sambands Vesturlands, er hann gat þess að Hugi frá Hafsteinsstöðum, sem hafi verið frekar tæpur í fylj- un, var sendur með einum poka af gulrótum þegar hann kom til Vest- lendinga. Morgunblaðið/Vakri Flygill frá Vestri-Leirárgörðum er með 70% fyljun í Skagafirði en ekki liggur fyrir hver frammistaða hans var í Dölunum. Knapi er Olil Amble. Keilir frá Miðsitju er í 82% og getur enn bætt við sig þótt ólíklegt sé að hann nái jafnhárri tölu og hann gerði í fyrra. Knapi er Vignir Jónasson. Lengri fengitími tryggir betri fyljun Ómskoðun hryssna hefur valdið straum- hvörfum í hrossaræktinni. Virðast flestir sammála um að stefna beri að markvissri skoðun til að tryggja betri fyljunarárangur hjá öllum betri stóðhestum landsins. Valdi- mar Kristinsson kynnti sér áfram stöðuna hjá nokkrum nafnkunnum stóðhestum. Dynur frá Hvammi hefur staðið í ströngu á Vesturlandi og verður fróð- legt að sjá hver lokaniðurstaðan verður hjá honum en hann er kominn í 72% fyljun. Knapi er Þórður Þorgeirsson. Töfri frá Kjartansstöðum hefur átt brösótt með fyljun í ár og er útkom- an talsvert lakari en í fyrra. Knapi er Jóhann R. Skúlason. ENN á nýjan taka Land- græðsla ríkisins og Garðyrkju- skólinn höndum saman og gangast fyrir námskeiði föstu- daginn 18. október nk. undir yf- irskriftinni kunnu „Hestur í góðum haga.“ Leiðbeinendur verða Ingimar Sveinsson, fyrr- verandi kennari á Hvanneyri, ásamt þeim landgræðslumönn- unum Birni Barkarsyni og Bjarna P. Maronssyni. Fjallað verður um fóðurþarfir og upp- eldi hrossa, nýtingu haglendis til hrossabeitar, mat á ástandi beitarlands, beitarskipulag og leiðir til að bæta land. Farið verður í skoðanaferðir þar sem áhersla verður lögð á mat á ástandi beitilands og meðferð þess. Námskeið þessi eru sér- staklega ætluð hestamönnum, búfjáreftirlitsmönnum og öðr- um starfsmönnum sveitarfé- laga sem sinna landnýtingar- málum. Skráning og nánari upplýsingar fást hjá endur- menntunarstjóra Garðyrkju- skólans í síma 480 4305 eða á www.reykir.is . Óhætt er að hvetja alla þá hestamenn sem hafa vilja og hug á að ganga vel um beitilönd að sækja þetta námskeið. Veru- leg hugarfarsbreyting hefur átt sér stað síðustu árin í meðferð hestamanna á beitlendum og ljóst að sú fræðsla og þar með talin námskeið undir þessari yf- irskrift hafa gert mikið gagn. En þótt vel miði má öllum ljóst vera að víða er pottur brotinn og sú viska og þekking sem ver- ið er að útbreiða í þessum efn- um hefur ekki náð eyrum allra. Námskeiðið hefst klukkan 10 og lýkur klukkan 16. Nám- skeiðsgjaldið er 4.000 krónur. Beitar- fræðsla fyrir hesta- menn Á VEGUM landsliðsnefndar Landssambands hestamanna- félaga hefur undanfarið verið unnið að undirbúningi að veg- legu happdrætti til styrktar ís- lenska landsliðinu í hestaíþrótt- um sem væntanlega tekur þátt í heimsmeistaramótinu í Dan- mörku næsta sumar. Happ- drætti þetta mun verða að stórum hluta sérsniðið fyrir hestamenn, það er að vinningar verða flestir hverjir á sviði hestamennskunnar í sinni víð- ustu mynd. Er þar að nefna folatolla hjá öllum fremstu stóðhestum landsins og þar á meðal hjá Orra frá Þúfu sem hefur hingað til verið „langdýrasti hestur- inn“. Folatollurinn hjá Orra kostar 350 þúsund krónur. Þá verður í vinning ferð á heims- meistaramótið og reiðtygi frá Jóni Sigurðssyni söðlasmið, einkatímar hjá fremstu reið- kennurum landsins, fóður ým- iskonar fyrir hesta, skeifur og ýmislegt fleira er gagnast hestamönnum. Áætlað er að heildarverðmæti vinninga verði yfir tvær milljónir en ekki er enn lokið við að safna vinning- um. Ljóst er að vinningar verða fjölmargir. Happ- drætti fyr- ir hesta- menn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.