Morgunblaðið - 02.10.2002, Síða 47

Morgunblaðið - 02.10.2002, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 47 PUNKT PROJECT III á Kaffi Reykjavík Úlfar Ingi Haraldsson bassa, Ólafur Jónsson tenór sax og Matthías M.D Hemstock trommur kl. 20:30 kr. 1.500 Thoroddsen/ Fischer kvartett Björn Thoroddsen gítar, Jacob Fischer gítar, Dan Cassidy fiðlu og Jón Rafnsson bassa kl. 22:00 kr. 1.900 JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR www.ReykjavikJazz.com/ Sýnd kl. 6, 8 og 10. www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6. með íslensku tali. Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14. Ný Tegund Töffara Yfir 20.000 MANNS  HK DV „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“ FRÁ FRAMLEIÐENDUM BIG DADDY Hvað gerist þegar þú tekur smábæjargaurinn, gefur honum 40 milljarða dollara og sleppir honum lausum í stórborginni? Adam Sandler fer á kostum í geggjaðri gamanmynd! 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. Yfir 20.000 MANNS Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.10.  HK DV „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“ Sýnd kl. 7.30 boðssýning Nýjasta meistaraverk Pedro Almodovars 1/2HL MBL SG DV ÓHT Rás2 Sýnd kl. 6.20, 8.30 og 10.40. Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14. Hvað gerist þegar þú tekur smábæjargaurinn, gefur honum 40 milljarða dollara og sleppir honum lausum í stórborginni? Adam Sandler fer á kostum í geggjaðri gamanmynd! 1/2Kvikmyndir.is ADAM SANDLER WINONA RYDER Ný Tegund Töffara Hverfisgötu  551 9000 www.regnboginn.is FRÁ FRAMLEIÐENDUM BIG DADDYI I SÍÐ UST U S ÝNI NGA R! Sýnd kl. 5.50. Sýnd kl. 10.10. B. i. 14. Öryggi og heilsa sjómanna um borð í skipum Ráðstefna 3. október 2002 í Borgartúni Ráðstefnustjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir, formaður Siglingaráðs. 9:00-9:30 Afhending fundargagna. 9:30 Setning ráðstefnunnar, samgönguráðherra Sturla Böðvarsson. 9:40 Alþjóðlegar kröfur um menntun sjómanna, Helgi Jóhannesson frá Siglingastofnun Íslands. 10:00 Rannsóknir sjóslysa á Íslandi, Ingi Tryggvason, formaður Rannsóknarnefndar sjóslysa og Jón Arilíus Ingólfsson, framkvæmdastjóri Rannsóknarnefndar sjóslysa. 10:20 Kaffihlé. 10:50 Björgunaræfingar um borð í skipum, Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna. 11:10 Skyndiskoðanir úti á sjó, Einar H. Valsson, yfirstýrimaður, hjá Landhelgisgæslunni. 11:30 Rannsóknir á heyrn sjómanna, Einar Sindrason, háls-, nef- og eyrnalæknir hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. 11:50 Fyrirspurnir. 12:15 Hádegisverðarhlé, súpa og fiskréttur. 13:30 Mikilvægi brunavarna um borð, Örn Ólafsson, vélfræðingur segir frá eldsvoða um borð í skipi úti á sjó. 13:50 Krabbameinsvaldar í starfsumhverfi sjómanna, dr. Vilhjálmur Rafnsson. 14:10 Áhættumat um borð í skipum, Eyþór Ólafsson frá skipa- og gámarekstrardeild Eimskips/Ingimundur Valgeirsson frá Slysavarnaskóla sjómanna. 14:30 Kaffihlé. 15:00 Svefnvenjur og heilsa sjómanna, Lovísa Ólafsdóttir, iðjuþjálfi og framkvæmdastjóri Solarplexus ehf., heilbrigðis- og öryggisráðgjöf. 15:20 Sjómennska frá sjónarhorni aðstandenda, sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, sóknarprestur í Grindavík. 15:40 Fyrirspurnir. 16:00 Ráðstefnuslit. Léttar veitingar TÍMARITIÐ Sánd hefur stigið all- nokkur skrefin frá því það var fyrst gefið út fyrir rúmum þremur árum. Þá var það til húsa heima hjá ritstjóranum, Ingiberg Þór Þorsteinssyni, en núna má finna skrifstofur tímaritsins við Ingólfs- torg. Ingiberg upplýsir að um 60 manns komi að útgáfunni á ein- hvern hátt og 15 þeirra myndi kjarna blaðsins. Meðalaldur starfs- manna er um 25 ár og eru Ingi- berg og bróðir hans, Helgi Steinar, sem einnig stofnaði blaðið, yngstir. Ritstjórinn fagnar 17 ára afmæli um svipað leyti og betrumbætt Sánd lítur dagsins ljós. Á meðal nýrra efnisþátta í blaðinu er tíska, efnisflokkur undir yfirskriftinni „graffítí“ er fjallar um veggjakrot og umfjöllun um jaðarsport er á döfinni. Blaðið er ókeypis og er því dreift um allt land og líka í Fær- eyjum. „Við erum með umfjöllun um færeyska tónlist og menningu. Þetta er fyrsta skrefið okkar á stærri markað, smá tilraun, þó ég líti ekki á þetta sem neinn stökk- pall fyrir okkur þannig séð,“ segir Ingiberg sem bendir á að þetta sé einna helst gert í þeirri viðleitni að styrkja stoðirnar í samskiptum landanna tveggja. Hann vísar til þess að Færeyjaviðbótin sé komin til í kjölfar framtaks Hljómalindar, sem hefur flutt inn færeyska tón- listarmenn, nú síðast pönksveitina 200%. Þrátt fyrir að blaðið sé frítt og flestir vinni í sjálfboðavinnu við það virðist það ekki koma niður á gæðunum. Poppfræðingurinn Gunnar Hjálmarsson lofar tímarit- ið á heimasíðu sinni. Dr. Gunni sparar ekki stóru orðin og segir annað tónlistartímarit, Undirtóna, „ofvaxinn sjónvarpsvísi“ í sam- anburði en þess má geta að Dr. Gunni er sjálfur á lista yfir höf- unda efnis í Sánd. Ingiberg er ánægður með þau jákvæðu við- brögð, sem tímaritið hefur fengið. Hann bendir á að allt blaðið sé nú í lit og komið með kjöl, sem geri það eigulegra. Svefngenglar á forsíðu Stefnan er að íslenskar hljóm- sveitir prýði ávallt forsíðuna en á forsíðu septemberheftisins er Sig- ur Rós, eða öllu heldur einhvers konar svefngenglar, sem eru hugarfóstur hljómsveitarinnnar, og má jafnframt sjá víða um Reykjavíkurborg. Forsíðan er unn- in í samvinnu Ingibergs og Jóns Þórs Birgissonar úr Sigur Rós. Ingiberg segir að stefnan sé einnig að taka viðtöl við erlenda listamenn en í nýjasta heftinu er m.a. viðtal við bresku sveitina Coldplay. Ingiberg gleymir þó ekki óþekktum íslenskum hljóm- sveitum og sinnir þeim í blaðinu. Einnig er tímaritið komið í sam- starf við Núlleinn.is. „Fólk fer að sjá árangur af því á næstu vikum,“ segir Ingiberg. Stefnt er á að Sánd komi næst út í október. Hægt er að nálgast blað- ið í félagsmiðstöðvum, kvikmynda- húsum og tónlistarverslunum svo eitthvað sé nefnt. Tímaritið Sánd tekur breytingum Líka í Færeyjum Morgunblaðið/Kristinn Ingiberg Þór Þorsteinsson er ritstjóri tímaritsins Sánds.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.