Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ um stefnumótun kirkjunnar væru þrjú stefnumarkandi mál til af- greiðslu þingsins. Þetta væru starfsmannastefna þjóðkirkjunnar, ályktun um kirkju og skóla, og um öldrunarþjónustu sóknanna. Þjóðkirkjan að hefja ítarlega endurskoðun á starfi sínu Sólveig Pétursdóttir fjallaði í ávarpi sínu við setningu Kirkjuþings á sunnudag um stefnumótun kirkj- unnar. Hún sagði að í kjölfar setn- ingar þjóðkirkjulaganna 1997 og til að nota tilefnið, þegar þúsund ára kristnitöku var minnst árið 2000, hefði þjóðkirkjan einsett sér að hefja mjög ítarlega endurskoðun á öllu starfi sínu, og hafist handa við und- irbúning að þeirri vinnu, hvernig hún ætti að stefna inn í næstu öld. Á síð- asta ári var gengið frá skipuriti fyrir biskupsstofu með skilgreiningu á verkefnunum og hver bæri ábyrgð á þeim. Nú sé ætlunin að vinna áfram að stefnumótun samkvæmt hefð- bundnum aðferðum stjórnunarfræð- innar og með markvissum hætti með tilliti til stöðu þjóðkirkjunnar og hlutverks í nútímasamfélagi. Ráðherra vék einnig að viðræðum ríkisins og þjóðkirkjunnar um prestssetur og prestssetursjarðir og framtíðarskipan þeirra í eignarétt- arlegu tilliti. ,,Málið er þó komið á það stig að fulltrúar ríkissjóðs í við- ræðunum hafa lagt fram tilboð sem felur í sér afhendingu 84 prestssetra og prestssetursjarða til þjóðkirkj- unnar til fullrar eignar og umráða ásamt verulegri meðgjöf. Um það til- boð náðist ekki samkomulag,“ en ráðherra sagði viðræðum verða haldið áfram.. KARL Sigurbjörnsson, biskup Ís- lands, gerði samband ríkis og kirkju að umræðuefni í ávarpi sínu við setn- ingu Kirkjuþings sl. sunnudag. Bisk- up sagði að ekki vanti í raun mikið upp á að ríki og kirkja séu aðskilin. Nefna megi það skilnað að borði og sæng en sér sýndist sem kirkjan þurfi meðvitað að búa sig undir að til lögskilnaðar komi. Sólveig Pétursdóttir dóms- og kirkjumálaráðherra segir hafa verið fylgst með þeim viðhorfum sem end- urspeglast í skoðanakönnunum um aðskilnað ríkis og kirkju þótt um- ræður um fullan aðskilnað hafi ekki verið á dagskrá æðstu stjórnar rík- isins. Hún segir að eins og nú standi sakir muni ríkisvaldið ekki að fyrra bragði setja fullan aðskilnað ríkis og kirkju á dagskrá. Ef til fulls aðskiln- aðar komi þurfi hins vegar að gaum- gæfa marga þætti sem þjóðkirkjan hafi sinnt og önnur trúfélög ekki. „Ríki og kirkja hafa verið samofin á mörgum sviðum þjóðlífs um aldir, fyrst og fremst á sviði menningar og menntunar. En einnig á ýmsum öðr- um sviðum þannig að skil verða ekki gerð að fullu nema þættirnir í þessu samofna bandi verði raktir upp langt aftur í tímann,“ segir ráðherra. Sólveig segir kirkjuna hafa öðlast mikið sjálfstæði með lagabreyting- um sem gerðar hafi verið á undan- förnum árum og skipti þar mestu löggjöf frá 1997 um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Í tengslum við setningu kirkjulaganna frá 1997 hafi einnig verið gerður samningur um eignarmál kirkju- jarða. Ekki leiki vafi á því að kirkjan hafi fengið verulega aukið sjálfstæði til að skipuleggja starfsemina og stjórna eigin málum án þess að at- beini ríkisvaldsins kæmi þar til. Hún segir ekki óeðlilegt að þetta við- fangsefni sé því tekið til umfjöllunar af kirkjunni. „Ef þjóðkirkjan telur tímabært að stefna að aðskilnaði eða telur sig þurfa skýrari svör frá ríkisvaldinu samtímis því sem hún hyggst móta stefnu sína til framtíðar er rétt að hún komi skilaboðum þar að lútandi á framfæri við ríkið,“ segir hún. Biskup segir viðhorfsbreytingu vera til kirkjunnar ,,Enn leiðir þjóðarpúls Gallups í ljós að meirihluti þjóðarinnar er hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju. Sextíu og átta af hundraði svara þeirri spurningu játandi. Enda þótt enn einu sinni sé spurt án þess að þess sé getið hvað það hefði í för með sér þá verðum við að hlusta á þessi æðaslög samtíðarinnar og spyrja: Hvað merkir þetta? Hvað vill þjóðin með þessu svari?“ sagði biskup m.a. í erindi sínu. Hann benti á að prestar og sóknarnefndarmenn um land allt merktu viðhorfsbreytingu til kirkj- unnar, sem birtist í aukinni þátttöku í starfi, ekki síst af hálfu yngra fólks og ungra foreldra. Af þessu mætti ráða að þorri almennings svaraði spurningu Gallups með velferð kirkj- unnar í huga. Því næst sagði biskup: ,,Hér vant- ar í raun ekki mikið upp á að ríki og kirkja séu aðskilin. Nefna má það skilnað að borði og sæng. Mér sýnist sem kirkjan þurfi meðvitað að búa sig undir að til lögskilnaðar komi. En meginspurningin er: Á hvaða for- sendum? Stjórnarskrárákvæðið um þjóðkirkjuna hefur verið áminning um kristnar rætur íslenskrar menn- ingar og samfélags. Þjóðin má ekki gleyma þeim rótum jafnvel þótt breyting yrði enn á lögformlegri stöðu þjóðkirkjunnar.“ Karl Sigurbjörnsson sagði einnig í ávarpi sínu að hann teldi stefnumót- un vera eitt mikilvægasta viðfangs- efni kirkjuþings að þessu sinni. Jafn- framt ályktun um að hefjast handa Biskup Íslands ræddi samband ríkis og þjóðkirkjunnar við setningu Kirkjuþings Ráðherra segir skiln- að ekki á dagskrá Morgunblaðið/Golli Guðmundur K. Magnússon í ræðustóli á kirkjuþingi. Í baksýn sjást Karl Sigurbjörnsson biskup og Sigurður Guðmundsson vígslubiskup. MIKLAR rigningar hafa verið á Austurlandi síðustu daga og skömmu eftir hádegi á laugardag náði vatnshæð Lagarfljóts sögulegu hámarki. Þá mældist það 22,95 m.y.s. og er það um þriggja metra hækkun frá því sem venjulegt er á þessum árstíma. Á laugardag maraði hluti þjóð- vegar 1 við Lagarfljótsbrú í hálfu kafi og vatnaði upp undir brúargólf- ið. Var um tíma óttast að skemmdir yrðu á undirstöðum brúarinnar. Vatn flæddi inn á öryggissvæði og akstursbrautir Egilsstaðaflugvall- ar, sem var líkt og eyja, umflotinn vatni á alla vegu. Flugvél Flug- félags Íslands sem lenti á vellinum kl. 16 á sunnudag komst ekki upp að flugstöðvarbyggingunni, þar sem ríflega 20 cm djúpur vatnsáll lá á milli flugbrautar og flughlaðs. Voru farþegar fluttir á milli í rútu. Varnargarðar við Lagarfossvirkj- un voru hækkaðir um helgina, þar sem stöðvarhús var um tíma talið í hættu. Rennslislokur virkjunarinn- ar voru opnar en höfðu hvergi und- an og voru því eins og flöskuháls meðan vatn safnaðist upp í Fljótinu. Þegar mest gekk á var innrennslið í Löginn talið nema um 1.400 m3. Fljótsdalur líkastur firði Víða varð vatnsgangurinn til vandræða. Fljótsdalur líktist til að mynda mest orðið firði, en þar byrjað þó vatn að sjatna strax á laugardag. Bændur á Brekku í Fljótsdal þurftu að bjarga 13 graðhestum úr ógöngum neðan við Skriðuklaustur, þar sem vatn umlukti hrossin á alla vegu. Um tíma var vegurinn um Velli, við bæinn Strönd, metra undir vatni. Vitað er af minnsta kosti einu tilviki, þar sem vél í fólksbíl eyðilagðist eftir að honum hafði verið ekið í vatnselginn á sunnudag, en engar viðvörunarmerkingar voru fyrir hendi. Þá fóru yfir hundrað hektarar af túnum Egilsstaðabænda undir vatn og vegir og girðingar um allt Hérað hafa eitthvað spillst. Ferjan Lagarfljótsormurinn og öll hafnaraðstaða var umflotin vatni alla helgina og var á að líta sem skipið maraði á rúmsjó. Ekki mun um skemmdir að ræða og segja rekstraraðilar að það hafi sloppið til vegna þess að vindur var ekki mikill. Þó þarf að fylgjast með því að skipið og flotbryggjur leggist rétt, jafnóðum og vatnsborðið lækkar. Skriður féllu í Fagradal Veginum um Fagradal milli Reyðarfjarðar og Héraðs var lokað á laugardag vegna skriðufalla, en hann var opnaður aftur á sunnudag. Í stórflóðum sem urðu 12.–14. nóvember árið 1968 mældi vatnshæðarmælir við Lagarfljótsbrú 22,43 m.y.s., sem er 52 cm lægra en nú. Þá hafði kyngt niður logndrífu í sólarhring og gekk svo í suðaustan ausandi rigningarveður svo að vegir fóru í sundur og skemmdir urðu á mannvirkjum. Þá var vatnsmagn sem féll um Lagarfoss 970m3 á sólarhring. Vatnsmagnið nú er því töluvert meira en þá var. Mjög hefur sjatnað í Lagarfljóti og að mestu verið uppstytta og gott veður síðan á sunnudag. Vatnshæðin í Lagarfljóti var í sögulegu hámarki eftir úrhellisrigningu á Héraði um helgina Ljósmynd/Ingólfur Arnarson Egilsstaðaflugvöllur umflotinn en ekki lokaður flugumferð. Aka varð farþegum milli flugvélar og flugstöðvar. Þriggja metra hækkun á vatnsborðinu FLÓÐIÐ í Lagarfljóti getur að mati Árna Snorrasonar, forstöðumanns vatnamælingasviðs Orkustofnunar, bætt mat á afleiðingum Kárahnjúka- virkjunar. Starfsmenn stofnunarinn- ar hafa verið að skoða áhrif flóðsins og ætla m.a. að kortleggja útbreiðslu þess. Páll Jónsson hjá vatnamæl- ingasviði Orkustofnunar segir að hægt sé að nýta mælingar á flóðinu um helgina til að leggja mat á flóða- hættu á svæðinu. Árni Snorrason segir að umhverf- ismat Kárahnjúkavirkjunar hafi ver- ið gert í formi líkans. Gögnin sem starfsmenn Orkustofnunar safna um flóðin um helgina verða væntanlega notuð til að endurskoða líkanið og at- huga hvort þær athuganir sem not- aðar hafa verið vegna Kárahnjúka- virkjunar standist, eða hvort þar komi eitthvað nýtt fram. Þá ættu gögnin að bæta forsendur líkans- gerðar vegna Kárahnjúka. „Þetta ætti tvímælalaust að bæta matið á afleiðingum virkjunarinnar,“ segir Árni. Reiknað er með að með Kára- hnjúkavirkjun muni rennslið í Lag- arfljót aukast um 100 m3/sek. Sú tala ætti að vera nokkuð föst því gert er ráð fyrir að umframvatn renni í Hálslón þar sem það yrði geymt þar til þörf væri fyrir það. Heimir Sveinsson, yfirmaður virkjanadeildar RARIK, segir að þegar búið verði að virkja sé það klárt að flóðgusur verði minni úr Fljótsdalnum. „Þess vegna í tilfelli flóða gera þessir 100 rúmmetrar ekki neitt aukalega, þeir skipta ekki sköpum,“ segir Heimir. Hann segir einnig að seinni hluta sumars geti innrennslið verið 50–60 rúmmetrar líkt og Lagarfossvirkjun í Lagarfljóti þarf til að ná fullum afköstum. Heimir segir ennfremur að hjá RARIK sé verið að skoða það að byggja stærri virkjun við Lagarfossvirkjun. Orkustofnun kannar útbreiðslu flóðsins í Lagarfljóti Getur bætt mat á afleiðing- um Kárahnjúkavirkjunar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.