Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. LÁRÉTT: 1 vandræðaleg, 8 mikið af einhverju, 9 logið, 10 væn, 11 kaggi, 13 endur- tekið, 15 flösku, 18 öflug, 21 hlemmur, 22 áreita, 23 gömul, 24 dæmafátt. LÓÐRÉTT: 2 angan, 3 toga, 4 lita blóði, 5 eru í vafa, 6 vangá, 7 mikill, 12 ekki gamall, 14 lengdareining, 15 gróður, 16 ráfa, 17 lina á, 18 fiskur, 19 fóðrunar, 20 slunginn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 bráka, 4 hemja, 7 atóms, 8 óefni, 9 afl, 11 aðan, 13 hann, 14 ýkinn, 15 þjór, 17 étur, 20 kar, 22 kúgun, 23 úlfum, 24 agnar, 25 tjara. Lóðrétt: 1 Braga, 2 ámóta, 3 ausa, 4 hjól, 5 mafía, 6 ar- inn, 10 feita, 12 nýr, 13 hné, 15 þekja, 16 ólgan, 18 tyfta, 19 remma, 20 knýr, 21 rúmt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Taiko Maru, Jo Elm og Mána- foss koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Wil- son Leith kemur í dag. Selfoss kom til Straumsvíkur í gær. Haukur fór í gær. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun þriðjudaga kl. 17–18. Mannamót Aflagrandi 40. Dans- námskeið hefst í dag hjá Sigvalda kl. 11, nám- skeiðið er ætlað byrj- endum. Á morgun verð- ur verslunarferð í Hagkaup í Skeifunni, skráning í afgreiðslu, sími 562 2571. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 9– 12.30 bókband og öskju- gerð, kl. 9.30 dans, kl. 9.30–10.30 Íslandsbanki, kl. 13–16.30 opnar handavinnu og smíða- stofur, kl. 10–16 pútt. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8.30– 14.30 böðun, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–11.30 sund, kl. 13–16 leirlist, kl. 14– 15 dans. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið er opið mánu- og fimmtu- daga. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagar úr Akranesfélaginu koma í heimsókn laugard. 26. okt. Húsið opnað kl 19. Skráning sem fyrst á þátttökulista sem eru í félagsheimilunum. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–11 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið, Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9–16 vefnaður, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 op- in vinnustofa, tréskurð- ur, kl. 10 leikfimi, kl. 12.40 verslunarferð í Bónus, kl. 13.15–13.45 bókabíllinn, hárgreiðslu- stofan opin 9–14. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 11 leik- fimi, kl. 13 föndur og handavinna. Kl. 14.45 söngstund í borðsal. Félagsstarf aldraðra í Garðabæ. Fimmtud. 17. okt. leikhúsferð – Veisl- an í Þjóðleikhúsinu kl. 20, skráning hafin. Námskeið í skyndihjálp 18. og 21. okt. og 25. og 28. okt. Skráning í s. 820 8571 kl. 14–15 virka daga. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Handa- vinna og brids kl. 13.30, púttað á Hrafnistuvelli kl. 14–16. Á morgun tré- skurður kl. 9, myndlist kl. 10–16 línudans kl. 11, glerskurður kl 13, pílu- kast kl. 13.30. Dans- leikur föstud. 18. okt. kl. 20.30. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Allir vel- komnir. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er lokuð vegna breytinga í Glæsibæ. Þriðjud: Skák kl. 13 og alkort spilað kl. 13.30. Miðvikud: Göngu- Hrólfar ganga frá Hlemmi kl. 9.45. Söng- félag FEB, kóræfing kl. 17. Línudanskennsla kl. 19.15. Fræðslunefnd FEB verður með fræðslu- og kynningar- ferð á Reykjalund 16. okt. Þátttaka tilkynnist skrifstofu FEB. Skemmtun í Ásgarði, Glæsibæ, föstud. 18. okt. kl. 20. Silfurlínan er op- in á mánu- og miðviku- dögum kl. 10–12. Skrif- stofa félagsins er flutt í Faxafen 12, s. 588 2111. Gerðuberg, félagsstarf. Í dag perlusaumur, glerskurður og þrívídd- armyndir, fjölbreytt vetrardagskrá í boði. Veitingar í Kaffi bergi. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 glerlist, handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum kl. 10–17, kl. 14 þriðjudags- ganga og boccia, kl. 17.15 kínversk leikfimi. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 ganga, handavinnustofan opin kl. 13–16, leiðbeinandi á staðnum, kl. 17 línu- dans. Fjölþjóðlegt mál- þing um félagslega stöðu aldraða í mismun- andi samfélögum verður haldið í félagsheimilinu Gullsmára, þriðjud. 22. október kl. 13.15. Skrán- ing fyrir 21, okt. í s. 564 5260. Hraunbær 105. Kl. 9 postlínsmálun og gler- skurður, kl. 10 boccia, kl. 11, leikfimi, kl. 12.15 verslunaferð, kl. 13 myndlist og hárgreiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og boccia, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 helgistund. Fótaaðgerð- ir, hársnyrting. Allir velkomnir. Sviðaveisla verður haldin föstud. 18. okt. Húsið opnað kl. 18.30. Jóhannes Krist- jánsson eftirherma skemmtir og Elsa Har- aldsdóttir heldur uppi fjöri og stjórnar fjölda- söng. Skráning á skrif- stofunni og í s. 588 9335. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Vatnsleikfimi í Grafar- vogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Þrá- inn. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 10–11 boccia, kl. 9–17 hár- greiðsla, kl. 14–15 jóga. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9. 15–16 bútasaumur, kl. 9.15– 15.30 alm. handavinna, kl. 13–16 frjáls spil, brids tvímenningur. Þriðjud. 19. nóv. kemur hjúkrunarfræðingur og mælir beinþéttni. Lyfja- fræðingur fer yfir lyfja- notkun. Fræðsla um lyf, vítamín, steinefni og fleira. Panta þarf tíma í viðtal. Keramiknám- skeið byrjar föstud. 18. okt. kl. 13–16. Kennsla í postulínsmálun byrjar þriðjud. 22. okt. Skrán- ing á námskeið í síma 562 7077. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður og morgun- stund, kl. 10 fótaaðgerð- ir og leikfimi, kl. 13 handmennt m.a. mosaík, kl. 14 félagsvist. Háteigskirkja, eldri borgarar. Á morgun, miðvikudag, kl. 11 sam- vera, fyrirbænastund og stutt messa í kirkjunni, allir velkomnir, súpa í Setrinu kl. 12, spil kl. 13. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl. 11. Sjálfsbjörg félag fatl- aðra, Hátúni 12, kl. 20 bingó. Karlakórinn Kátir karl- ar, æfingar á þriðjud. kl. 13 í Félags- og þjón- ustumiðstöðinni Árskóg- um 4. Söngstjóri Úlrik Ólason. Tekið við pönt- unum í söng í s. 553 5979, Jón, s. 551 8857 Guðjón eða s. 553 2725 Stefán. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svar- að í s. 552 6644 á fund- artíma. ITC deildin Fífa í Kópa- vogi fundur á morgun miðvikud. kl. 20.15, í Safnaðarheimili Hjalla- kirkju, Álfaheiði 17 Kópavogi. Allir vel- komnir. Uppl. í s. 554 2045. ITC-deildin Irpa, fund- ur í kvöld kl. 20 í Hvera- fold 3–5, 2. hæð. Allir velkomnir. Uppl. í s. 554 4417, Marteinn Steinar. Kvenfélagið Seltjörn, Seltjarnarnesi, fundur miðvikud. 16. okt. í safn- aðarheimili Seltjarnar- neskirkju kl. 20.30. Flutt verður ferðasaga. Kaffiveitingar. Þjóðdansafélag Reykja- víkur. Opið hús í kvöld kl. 20.30 í ÞR-salnum, Álfabakka 14A, Dans- aðir gömlu dansarnir. Í dag er þriðjudagur 15. október, 288. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“ (Jóh. 20.) Víkverji skrifar... VÍKVERJI brá sér í betri skónaum helgina og lék landsleik í knattspyrnu. Ekki var það nú svo gott að Atli Eðvaldsson hafi „séð ljós- ið“ og valið hann í lið sitt, heldur tók- ust hér á íslenskir og skoskir blaða- menn, en stór sveit slíkra manna fylgdi skoska landsliðinu til Íslands. Skoska liðið var skemmtilegt, þó margir leikmanna hafi vaxið örlítið fram frá því þeir voru upp á sitt besta. Einn af þeim var enginn annar en Alan Rough, sem um árabil var landsliðsmarkvörður Skota, þ.e. hins raunverulega landsliðs. „Roughy“ lék í fremstu víglínu um helgina – hvar annars staðar? – en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn þrátt fyrir að vera allur af vilja gerður. Víkverja þykir það mikill heiður að mæta þessum kappa á velli, en Rough var meðal annars markvörður Skota á heimsbikarmótinu á Spáni 1982. Lék þar frægan leik gegn einu skemmtilegasta knattspyrnuliði seinni tíma, Brasilíu. Víkverji gleym- ir aldrei draumamarki Davids Nar- eys bakvarðar snemma leiks og taumlausri gleði Skotanna. En síðan seig á ógæfuhliðina. Zico, Sókrates, Eder og félagar tóku leikinn í sínar hendur og röðuðu mörkum á aum- ingja Rough. 4:1 var staðan orðin áð- ur en dómarinn frá Kosta Ríka batt enda á þjáningar Skotanna með loka- flautinu. Rough er því vondu vanur og virtist óbugaður er hann gekk af velli í Laugardalnum eftir 5:1 tap um helgina. Eftir leikinn gaf Víkverji sig á tal við nokkra Skota og bar landsleikinn, sem þá stóð fyrir dyrum, fljótt á góma. Víkverji hafði orð á því að margt hefði breyst í skoskri knatt- spyrnu á liðnum árum, nú orðið þekkti hann varla nokkurn mann í landsliðinu. „Þekkir þú engan,“ svör- uðu Skotarnir fullir samúðar. „Það er ekki skrýtið, lagsi. Við þekkjum eng- an sjálfir!“ Þá var mikið hlegið. Dagar Dalglish, Souness, Strach- an og manna af þeirri stærðargráðu eru bersýnilega liðnir. Skosku blaðamennirnir óttuðust Eið Smára Guðjohnsen mest. Öfund- uðu Íslendinga af honum. „Við eigum engan slíkan mann,“ sögðu þeir súr- ir. „Hvað er að ykkur,“ gall þó í ein- um. „Við eigum Stevie Crawford. Hann leikur með...“ Síðan kom stutt þögn meðan hann hugsaði málið. „Dunfermline.“ Enn hlógu Skotarn- ir. „U is í?“ spurðu þeir rammskosk- um rómi. Víkverji fékk á tilfinn- inguna að þetta væri sambærilegt við það að helsta hetja íslenska lands- liðsins héti Stefán Kristjánsson og léki með Kormáki á Hvammstanga. Með fullri virðingu fyrir því ágæta félagi. Samt unnu Skotar leikinn. Auð- veldlega. x x x VÍKVERJI gat um það nýverið aðEnglandsmeistarar Arsenal tefldu fram níu svörtum leikmönnum í stórsigri á Leeds United, sem er ný- mæli í ensku knattspyrnunni. Síðast- liðið laugardagskvöld sá Víkverji annað frábært fótboltalið, franska landsliðið, rúlla Slóvenum upp, 5:0, með níu svarta menn innanborðs. Þar kom að því að „Les Bleus“, eða Blámennirnir, stóðu undir nafni. Annars er þetta eftirtektarverð þróun. Svartir menn hafa lengi borið ægishjálm yfir hvíta í körfuknattleik. Spurning hvort nú sé komið að knatt- spyrnunni. Með betri fyrirvara ÉG VIL koma á framfæri óánægju minni með fram- kvæmd mótmælafunda vegna Kárahnjúkavirkjun- ar. Ég hef misst af fundum sem ég hefði gjarnan viljað vera stödd á en hef ekki komist þar sem fundirnir eru auglýstir með svo stutt- um fyrirvara. Geta ekki forsvarsmenn þessara mót- mælafunda auglýst fundina með betri fyrirvara svo al- menningur geti mætt, því þessum framkvæmdum verður að mótmæla. G.S.K. Hver á myndina? ÞESSI mynd, ásamt nokkrum öðrum, fannst fyrir utan Félagsþjón- ustuna Bólstaðarhlíð 43 í Reykjavík fyrir tæpum mánuði. Kannist einhver við að eiga myndirnar má hann vitja þeirra á staðnum eða í síma 568-5052. Fyrirspurn NÝLEGA birtist í Velvak- anda fyrirspurn um verð á strætisvagnamiðum fyrir eldri borgara. Spurt var hvernig stæði á því að eldri borgara þurfa að borga 1.600 kr. fyrir 20 miða en öryrkjar þurfi aðeins að borga 1.000 krónur. Vil ég hvetja þá sem málið varðar að svara þessu fljótlega. Eldi borgari. María og bréfið HALLA, sem býr í Hrísmóum 1, fékk bréf stíl- að á Höllu Guðmundsdótt- ur frá Maríu sem líklega býr í Hafnarfirði því bréfið var sett í póst í Hafnarfirði. Þessi María er beðin að hringja í Höllu í síma 565 9446. Tapað/fundið Bíllyklar í óskilum BÍLLYKLAR fundust á Ásvallagötu 10. október. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is ÉG MÁ til með að biðja fyr- ir leiðréttingu á vinsam- legri ábendingu sem birtist í Velvakanda miðvikudag- inn 9. október. Ólafur Lár- usson ritar um skýringu á orðunum bráðræði og ráð- leysu. Valdimar Ásmunds- son, ritstjóri Fjallkon- unnar, faðir Héðins Valdimarssonar, viðhafði þessi ummæli að ekki væri von á góðu í bæ sem byrjaði í bráðræði og endaði í ráð- leysu og átti þá við Reykja- víkurbæ. Bráðræði, sem áður stóð á Bráðræðisholti, er nú flutt suður í Kópavog (húsið). Bærinn Ráðleysa var reistur af Agli Diðriks- syni og stóð á Laugavegi 40. Hann flutti nafnið með sér úr austursveitum og nefndi hús sitt Ráðleysu. Egill þessi var faðir Sveins Egilssonar, bílakaup- manns, og Jóns Egilssonar. Það er ekki rétt að þessi bær hafi staðið við Rauð- ará. Laugavegur 40 er rétt staðsetning. Mig langar til þess að biðja Velvakanda að færa Ingveldi Ólafsdóttur sem sér um þátt á mánudögum í Ríkisútvarpinu bestu þakk- ir fyrir þátt hennar sl. mánudag. Hún kann vel til verka í dagskrárgerð. Enn- fremur Gunnari Kvaran sellóleikara sem kom fram í þættinum. Þetta var góð fyrirmynd öðrum dag- skrárgerðarmönnum. Pétur Pétursson, þulur. Bráðræði og Ráðleysa Upplýsingar í síma552 1601. Barnapeysa í óskilum LÍTIL handprjónuð barna- peysa á u.þ.b. 1 árs telpu fannst í Elliðaárdalnum fyrir u.þ.b. mánuði. Upp- lýsingar í síma 587 9767. Kvenmannsúr týndist GULL kvenmannsúr með svartri kringlóttri skífu týndist 8. október í Kópa- vogi, sennilega nálægt sundlauginni. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 554 5639 og 867 1126. Stálarmband týndist SVOKALLAÐ vinaarm- band týndist í Ásbyrgi eða á Hótel Borg laugardaginn 5. okt. sl. Gylltir skraut- munir prýða armbandið m.a. upphafsstafirnir K og S. Skilvís finnandi hafi samband í síma 699 1756. Fundarlaun í boði. Ljósgrá regnkápa tekin í misgripum SÁ SEM tók ljósgráa regn- kápu með hettu (merki: Maura) að kvöldi 1. okt. sl. vestur í Odda, húsi Háskóla Íslands, er beðinn um að skila henni strax á sama stað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.