Morgunblaðið - 15.10.2002, Side 26
ERLENT
26 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GEORGE Pell erkibiskup,
æðsti maður kaþólsku kirkj-
unnar í Ástralíu, var í gær
hreinsaður af
ásökun um að
hafa misnotað
ellefu ára dreng
kynferðislega
fyrir þrjátíu ár-
um. Alec South-
well, fyrrverandi
dómari sem
rannsakaði mál-
ið, sagði að ekkert hefði komið
fram sem staðfesti ásökunina.
Hann dró einnig trúverðug-
leika kærandans í efa, sagði að
hann hefði oft komist í kast við
lögin, meðal annars verið
dæmdur í fangelsi fyrir fíkni-
efnasmygl.
Hægrimenn
juku fylgi sitt
HÆGRIFLOKKURINN Nýtt
lýðræði, sem er í stjórnarand-
stöðu í Grikklandi, jók fylgi sitt
í borgarstjóra-
og héraðsstjóra-
kosningum á
sunnudag.
Hægriöfgamenn
sóttu einnig í sig
veðrið og einn
þeirra, Giorgos
Karatzaferis,
sem hefur verið
sakaður um gyð-
ingahatur, fékk 13,6% at-
kvæðanna í héraðsstjórakosn-
ingum í Stór-Aþenu. Er þetta
mesta kjörfylgi hægriöfga-
manns í Grikklandi í 20 ár.
Dora Bakoyannis, borgar-
stjóraefni Nýs Lýðræðis í
Aþenu, fékk 47,5% atkvæðanna
og er talin nær örugg um sigur
í síðari umferð kosninganna á
sunnudaginn kemur og að
verða fyrsta konan til að gegna
embættinu.
Þrátt fyrir fylgisaukningu
hægrimanna telja stjórnmála-
skýrendur að þeir hafi ekki
fengið nógu mikið fylgi til að
knýja fram þingkosningar í
Grikklandi eins og þeir höfðu
stefnt að.
Falwell biðst
afsökunar
BANDARÍSKI sjónvarpspre-
dikarinn Jerry Falwell hefur
beðist afsökunar á því að hafa
kallað Múhameð spámann
hryðjuverkamann. Hann sagði
í afsökunarbeiðni á laugardag
að hann hefði ekki ætlað að
sýna „heiðarlegum og lög-
hlýðnum múslímum óvirð-
ingu“.
Ummæli Falwells vöktu
mikla reiði meðal múslíma og
leiddu til óeirða á Indlandi sem
kostuðu tíu manns lífið. Klerk-
ur í Íran hvatti til þess að pre-
dikarinn yrði ráðinn af dögum.
Skilaði millj-
ón úr sorpinu
HEIMILISLAUS Þjóðverji
fann 12.000 evrur, andvirði
milljónar króna, í reiðufé í
sorpfötu í bænum Siegen og af-
henti lögreglunni peningana.
Maðurinn fann seðlana, per-
sónuskilríki og bankabók í
sorpfötu við strætisvagnabið-
skýli þegar hann var að leita að
matvælum. Lögreglan sagði að
komið hefði í ljós að geðveill
maður hefði fleygt peningun-
um og heimilislausi maðurinn
hefði fengið fundarlaun.
STUTT
Erkibiskup
hreinsaður
Giorgos
Karatzaferis
George Pell
FERÐAMENN flúðu í gær unn-
vörpum eyjuna Balí í Indónesíu-
eyjaklasanum, en öflug bílsprengja
sem sprakk á laugardag við fjöl-
sóttan næturklúbb syðst á eynni
varð að minnsta kosti 188 manns að
bana og særði ríflega 300.
Yfir 2.000 ferðamenn nýttu sér á
sunnudaginn og í gær aukaferðir
sem flugfélög og ferðaskrifstofur
buðu upp á til að koma sér heim á
leið fyrr en þeir annars ætluðu.
Verð á hlutabréfum í Indónesíu
lækkaði um meira en 10 prósentu-
stig í gær og óttast heimamenn að
óttinn við frekari hryðjuverk fæli
erlendar fjárfestingar frá landinu.
Indónesía er fjölmennasta músl-
imaríki heims, en íbúar Balí eru
flestir hindúar.
Margir Ástralar meðal
hinna látnu
Mörg fórnarlambanna voru Ástr-
alar og ferðamenn frá ýmsum öðr-
um löndum, þ.á m. Bretlandi,
Þýzkalandi, Kanada, Svíþjóð, Sviss,
Suður-Afríku og Bandaríkjunum.
Mörg líkin eru svo illa brunnin að
beita þarf DNA-erfðaefnisgreiningu
til að bera kennsl á þau.
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á
sprengjutilræðunum en grunur hef-
ur beinst að al-Qaeda og tengdum
samtökum, sem kalla sig Jemaah
Islamiyah. Al-Qaeda hefur sótt í sig
veðrið síðastliðnar vikur og hefur
það orðið til þess að Bandaríkja-
stjórn hefur gefið út nýja viðvörun
um hryðjuverkaógn, öryggisráð-
stafanir við sendiráð Bandaríkjanna
verið efldar og nokkrum ræðisskrif-
stofum lokað.
„Verk
hugleysingja“
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, fór fremstur í flokki er-
lendra ráðamanna sem fordæmdu
hryðjuverkin. Sagði Bush tilræðið
vera „verk hugleysingja“ sem ætlað
væri að skapa ótta og glundroða og
bauð Indónesum aðstoð banda-
rískra sérfræðinga við rannsókn
árásarinnar. Ástralskir rannsóknar-
lögreglumenn voru komnir til Balí
strax í gær til að aðstoða við rann-
sóknina. Menn frá bandarísku al-
ríkislögreglunni FBI og brezku
rannsóknarlögreglunni Scotland
Yard voru einnig væntanlegir til
Indónesíu í gær.
Yfirmaður lögreglunnar í
Indónesíu, Da’i Bachtiar, segir
árásina vera verstu hryðjuverk í
sögu landsins.
Megawati Sukarnoputri, forseti
Indónesíu, fór með flugvél til Balí
í gær og grét þegar hún skoðaði
rústir næturklúbbsins á Kuta-
ströndinni, sem er vinsæll ferða-
mannastaður. Hún hét samstarfi
við aðrar þjóðir í baráttunni gegn
hryðjuverkum.
Öryggismálayfirvöld í Indónesíu
hafa lýst yfir ýtrasta viðbragðsstigi
og segir Susilo Bambang Yudhyono
öryggismálaráðherra að hugsanleg
skotmörk hryðjuverkamanna á borð
við olíu- og gasvinnslustöðvar verði
vernduð. Samt sem áður var í gær
lítið um sjáanlega aukningu á ör-
yggisgæzlu á Balí, hvort sem var á
götum úti eða á flugvellinum.
Stjórnvöld margra landa
vara við ferðum til Balí
Mahathir Mohamad, forsætisráð-
herra Malasíu, sem eins og Indó-
nesía er mjög háð ferðamennsku
um gjaldeyristekjur, hvatti ferða-
menn til að líta ekki á Suðaustur-
Asíu sem hryðjuverkamannabæli
vegna árásanna.
Stjórnvöld í Bretlandi, Dan-
mörku, Finnlandi, Portúgal, Grikk-
landi, Svíþjóð, Ítalíu og Taílandi og
fleiri löndum hafa varað borgara
sína við að ferðast til Balí. Margar
ferðaskrifstofur á Vesturlöndum
hafa hætt við ferðir þangað. Jap-
anskar ferðaskrifstofur sögðu þó
ekkert hafa verið afpantað hjá sér;
Japanir létu tilræðin á Balí ekki
kollvarpa orlofsferðaáformum sín-
um.
Ferðamenn flýja
unnvörpum frá Balí
Reuters
Vettvangur tilræðisins á Kuta-ströndinni á eyjunni Balí. Öflug sprengja sprakk við fjölsóttan næturklúbb.
188 manns biðu
bana í skæðasta
hryðjuverki í
sögu Indónesíu
Kuta á Balí, Bangkok, Washington. AP, AFP.
Áströlsk kona við sjúkrabeð slasaðs vinar á sjúkrahúsi þar sem hlúð var
að sárum margra þeirra sem særðust í tilræðinu á laugardaginn. Margir
þeirra sem komust lífs af hlutu alvarleg brunasár.
&'()*+,*+-(./-$0
!
" # $% !
&' $
" ( )
"()
*
+ !
!
"
#$$
% &
'
(
, !(
-
. " $ '
# / * 0 / 1 , )
)*
&+
,
#
-+, ,