Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 54
ÚTGÁFUGLEÐI Bents og 7bergs
var haldin á Vídalín á fimmtudags-
kvöldið og fögnuðu margir nýju
plötunni, sem ber nafnið Góða
ferð, með þeim. Ennfremur var
frumsýnt myndband við lagið „Má
ég sparka“. Var því vel tekið og
klöppuðu gestir mjög og hlógu að
ýmsustu atriðum í myndbandinu,
sem verður án efa sýnt í sjónvarpi
innan tíðar. Myndbandið gerði
Bjarni Helgason en þess má geta
að hann gerði einnig myndbandið
við lagið „Brighter“ með Ensími.
Hljómsveitin Bent og 7berg
samanstendur af Ágústi Bent og
Erni Tönsberg, sem jafnframt
stofnuðu hljómsveitina, auk
Tryggva og Ernie Mondeyano en
þeir sjá um útsetningar, hljóð- og
lagasmíðar og loks verður getið
plötusnúðsins DJ Paranoya.
Viðstaddir fengu að hlýða á plöt-
una og voru margir úr hipp hopp-
heimi Íslands mættir til að fagna
útgáfunni.
Til viðbótar slæddust inn nokkr-
ir pilsklæddir Skotar, sem eru
staddir hérlendis vegna
landsleikjarins í knatt-
spyrnu við Íslendinga.
Tóku þeir þátt í fögnuð-
inum og hófu kappsöng
að hætti knattspyrnu-
kappa við nokkra rapp-
ara, sem höfðu greinilega
einnig áhuga á fótbolta.
Endaði það allt í vinsemd
og voru Skotarnir
ánægðir með að finna
baráttuandann í landan-
um. Þeir vissu e.t.v. ekki
hverju var verið að fagna en fannst
þetta áreiðanlega hafa verið góð
ferð.
Bent og
7berg
óskað
góðrar
ferðar
ingarun@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Erna Tönsberg, Fjóla
Dögg Helgadóttir, Björg
Arnardóttir og Begga
Einars nutu tónlistar-
innar.
7Berg, Bent, DJ Paranoya og Tryggvi, en
fimmti liðsmaðurinn, Ernie Mondeyano, var
fjarstaddur þar sem hann er í Japan.
Morgunblaðið/Jim Smart
54 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
Frá John Woo leikstjóra Face Off og MI:2
Sannsöguleg stórmynd um mögnuð stríðsátök.
Missið ekki af þessari!
Nicholas Cage hefur aldrei verið betri!
Sýnd kl. 4 með ísl. tali.
Sýnd kl. 8 og 10.50. B.i. 16.
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
5.30, 8 og 10.30.
1/2Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
„DREPFYNDIN“
ÞÞ. FBL
Yfir 15.000 manns!
Maðurinn sem getur ekki
lifað án hennar leyfir henni
ekki að lifa án hans. Hvernig
flýrðu þann sem þekkir þig
best? Magnaður spennutryllir í
anda Sleeping With the Enemy.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
Sýnd 5.15, 8 og 10.40. B.i. 14.
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Ný Tegund Töffara
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. .
Sýnd 5.50. B.i. 14.Sýnd kl. 8.
1/2Kvikmyndir.is
„DREP
FYNDIN“
ÞÞ. FBL
Yfir 15.000 manns!
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 16. Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Maðurinn sem getur ekki
lifað án hennar leyfir henni
ekki að lifa án hans. Hvernig
flýrðu þann sem þekkir þig
best? Magnaður spennutryllir í
anda Sleeping With the Enemy.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Ný Tegund Töffara
antíska gamanmyndin Brown Sug-
ar með hjartaknúsaranum Taye
Diggs og skutlunni Sanaa Lathan.
Hasarmyndin The Transporter
með Jason Stratham úr Lock, Stock
& Two Smoking Barrels og Snatch
fór í fjórða sætið en Luc Besson
skrifaði handritið að þessari. White
RED DRAGON, fjórða kvikmyndin
sem gerð er eftir sögum Thomas
Harris um mannætuna Hannibal
Lecter, hélt toppsæti bandaríska
bíólistans aðra vikuna í röð. Mynd-
in hefur hlotið góða dóma gagnrýn-
enda vestra sem flestir segja hana
mun betri en síðustu mynd sem bar
nafn mannætunnar og var leikstýrt
af Ridley Scott. En þrátt fyrir að
hún héldi toppsætinu þá féll að-
sóknin um 52% og framleiðendur
höfðu vafalítið búist við meiri
tekjum í kassann eftir aðra sýning-
arhelgi en rétt rúmum 62 millj-
ónum dala og virðist nú loku fyrir
það skotið að hún nái inn jafnmiklu
í kassann og tvær síðustu myndir,
Silence of the Lambs og Hannibal.
Þess má geta að Red Dragon verð-
ur frumsýnd hér á landi um næstu
helgi, tveimur vikum á undan
Sweet Home Alabama, gamanmynd
með Reese Witherspoon sem hélt
öðru sætinu vestra eftir 3 vikur.
Fimm nýjar myndir eru meðal
þeirra tíu tekjuhæstu. Efst fór róm-
Oleander er drama um stúlku sem
þvælist milli stofnana eftir að móð-
ir hennar er fangelsuð fyrir
ástríðuglæp og Knockaround Guys
er glæpagrínmynd með Vin Diesel,
Seth Green og Brian Piper, mynd
sem lengi hefur beðið útgáfu, að-
allega vegna slæmrar útreiðar hjá
gagnrýnendum.
Önnur mynd sem leið um helgina
fyrir neikvæð viðbrögð gagnrýn-
enda er Swept Away, nýja
Madonnu-myndin, sem gerð var af
karlinum hennar, Guy Ritchie.
Skemmst er frá því að segja að
gagnrýnendur hafa hakkað mynd-
ina og ekki síst frammistöðu
Madonnu í sig. Myndin var frum-
sýnd í tæplega 200 kvikmyndasöl-
um og óvíst er hversu miklu meiri
útbreiðslan verður eftir þessar
köldu kveðjur.
Hannibal hámar í
sig áhorfendur
!
"
#$%
& #
'()*
'+)'
'')'
,)-
(),
().
/)(
/)/
/).
+).
*0)-
1/).
'')'
,)-
'/1)+
0().
/)(
/)/
/).
*/)+
Nýja Madonnu-myndin fær dræmar viðtökur í bíóhúsum vestra
Reuters
Gagnrýnendur eru ekki par hrifnir
af frammistöðu Madonnu og
Adriano Giannini í Swept Away.
skarpi@mbl.is
HLJÓMALIND og Tutl munu í vik-
unni standa fyrir kynningu á fær-
eyskri tónlist. Dagana 16. til 26.
október verður haldin svokölluð
Fairwaves-hátíð, sem er útúrsnún-
ingur úr tónlistarhátíðinni Airwav-
es. Á Fairwaves munu popp-, rokk-
og þjóðlagatónlistarmenn frá Fær-
eyjum leika, þau Hanus G. Jóhan-
sen, Eivör Pálsdóttir, Kári Sverr-
isson og hljómsveitirnar Clickhaze
og Krít.
Hátíðin byrjar miðvikudaginn 16.
október í gamla Austurbæjarbíói.
Hanus G. Jóhansen, eitt athyglis-
verðasta söngvaskáld eyjanna, mun
leika en einnig Eivör Pálsdóttir, sem
hiklaust er efnilegasti tónlistarmað-
ur Færeyja í dag. Hún verður
dyggilega studd nýrri hljómsveit,
sem skipuð verður íslenskum tón-
listarmönnum. Síðast en ekki síst
mun Kári Sverrisson, aðalliðsmaður
þjóðlagasveitarinnar Enekk, koma
fram en sú sveit er ein áhrifamesta
og virtasta sveit Færeyja frá upp-
hafi. Með honum verður Mikael
Blak, bassaleikari. Þessir tónleikar
hefjast kl. 21 og er forsala í Hljóma-
lind, Laugavegi 21. Miðaverð er
1.500 kr.
Laugardaginn 19. október, kl. 15,
mun svo rokksveitin Clickhaze halda
sínu fyrstu tónleika hérlendis ásamt
þeim Tróndi Enni og Rúni Eystur-
tíð. Söngkona Clickhaze er áður-
nefnd Eivör en sveitin mun vera
frambærilegasta rokksveit Færey-
inga um þessar mundir. Verða þeir
haldnir í Smáralind kl. 15.
Um kvöldið eða öllu heldur um
nóttina verður svo efnt til „leyni-
legra“ tónleika á Grand Rokk þar
sem hljómsveitirnar Clickhaze og
Krít kveðja sér hljóðs. Krít þessi
spilar hart og áleitið rokk og er ein
áhugaverðasta sveitin af yngri kyn-
slóð nú í Færeyjum.
Viku síðar, eða laugardaginn 26.
október, verða svo stórtónleikar í
Austubæjarbíói með Clickhaze og
Krít og verða þeir auglýstir nánar
síðar.
Í nóvember koma svo þungarokk-
ararnir góðkunnu í Tý til landsins en
stefnt er að frekari heimsóknum
færeyskra sveita til landsins, allt
fram að jólum.
Stutt er síðan pönksveitin 200%
lék hér og jafnframt fór okkar ís-
lenska Úlpa út til Færeyja að spila
fyrir nokkru. Færeyska flóðbylgjan
gengur því fram og til baka um
þessar mundir!
Að lokum má geta þess að í októ-
ber verða færeyskir diskar á 15% af-
slætti í Hljómalind.
Færeyska rokksveitin Clickhaze.
Fairwaves – færeyska bylgjan 2002
Veljum færeyskt
arnart@mbl.is