Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 11 Þrettán frambjóðendur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Frestur til að gefa kost á sér í próf- kjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík rann út laugardaginn 12. október sl. Eftirtaldir tilkynntu framboð sitt: Ágúst Ólafur Ágústsson, há- skólanemi og formaður Sambands ungra jafnaðarmanna, Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir alþing- ismaður, Birgir Dýrfjörð rafvirkja- meistari, Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður, Guðrún Ögmunds- dóttir alþingismaður, Einar Karl Haraldsson ráðgjafi, Helgi Hjörvar varaborgarfulltrúi, Hólmfríður Garðarsdóttir aðjúnkt, Jakob Frí- mann Magnússon, Jóhanna Sigurð- ardóttir alþingismaður, Mörður Árnason íslenskufræðingur, Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistar- kennara, og Össur Skarphéðinsson alþingismaður. Forval Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi Forval Samfylkingarinnar í Suð- vesturkjördæmi vegna alþingiskosn- inga 2003 fer fram 9. nóvember. Þessir einstaklingar hafa tilkynnt þátttöku í forvalinu: Ásgeir Frið- geirsson, Bragi J. Sigurvinsson, Guðmundur Árni Stefánsson, Jón Kr. Óskarsson, Jónas Sigurðsson, Katrín Júlíusdóttir, Rannveig Guð- mundsdóttir, Stefán Bergmann, Valdimar Leó Friðriksson, Þorlákur Oddsson og Þórunn Sveinbjarn- ardóttir. 10 í prófkjör Sjálfstæðis- flokksins í Norðvesturkjördæmi Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi kom saman til fundar í Borgarnesi föstudaginn 11. október sl. til að fara yfir framkomin framboð til prófkjörs sem fer fram í kjördæminu hinn 9. nóvember nk. Atkvæði geta greitt flokksbundnir sjálfstæðismenn og þeir sem skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við flokk- inn. Fram komu tíu framboð: Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar, Einar Kristinn Guðfinnsson alþing- ismaður, Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður, Guðjón Guðmunds- son alþingismaður, Jóhanna Pálma- dóttir bóndi, Jón Magnússon verk- fræðingur, Ragnheiður Hákonardóttir varaþingmaður, Skjöldur Orri Skjaldarson bóndi, Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra og Vilhjálmur Egilsson al- þingismaður. Kjörnefndin fagnar því að svo mörg framboð bárust í prófkjörið. Norð- vesturkjördæmi er það eina af þremur stóru landsbyggð- arkjördæmunum þar sem viðhaft er prófkjör við uppstillingu á fram- boðslista til alþingiskosninganna 2003, því er það fagnaðarefni að svo margir einstaklingar skuli gefa kost á sér til þess. Vænta má að á næstu vikum verði íbúar kjördæmisins mjög varir við þá kosningabaráttu sem í hönd fer. Formaður kjör- nefndar NV-kjördæmis er Jóhann Kjartansson í Borgarnesi og starfs- maður við undirbúning prófkjörsins er Valgarð S. Halldórsson. Halldór hylltur á aðalfundum framsóknarfélaganna í Reykjavík Aðalfundir Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis suður og Framsóknarfélags Reykjavík- urkjördæmis norður fóru fram á sunnu- dagskvöld. Fundirnir voru þeir fyrstu eftir að Halldór Ásgríms- son, formaður Fram- sóknarflokksins, varð við áskorunum um að bjóða sig fram í Reykjavík. Sótti hann báða fundina og var hylltur af flokksmönnum fyr- ir ákvörðun sína. Fram fóru hefð- bundin aðalfundarstörf og val á fulltrúum á kjördæmisþing sem haldin verða í lok mánaðarins. Nán- ari dagsetningar þinganna verða að öllum líkindum ákveðnar í dag. Í umræðum komu fram skiptar skoð- anir um hvernig framboðsmálum verður háttað en það kemur einmitt í hlut kjördæmaþinganna að ákveða hvort farið verði í prófkjör, stillt upp á lista eða farin einhver önnur leið. Í DAG STJÓRNMÁL GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð- herra segir að sú ákvörðun sín að fella úr gildi þá ákvörðun Skorra- dalshrepps að neyta forkaupsréttar á jörðinni Efstabæ í Skorradal sé byggð á lögfræðilegu mati. Niður- staða dómstóla sýni að sveitarstjórn- ir verði að fara varlega í að nýta þennan rétt. Í þessu máli hafi hreppsnefndin ekki sýnt fram á að hún geti ekki náð fram áherslum hreppsins í skipulagsmálum með öðrum úrræðum. Í Morgunblaðinu sl. laugardag gagnrýndi K. Hulda Guðmundsdótt- ir, skógarbóndi á Fitjum í Skorradal, þá ákvörðun landbúnaðarráðherra að fella úr gildi ákvörðun Skorra- dalshrepps að neyta forkaupsréttar á jörðinni Efstabæ í Skorradal. Jörð- ina keyptu tveir bændur sem áforma að nota hana til sauðfjárbeitar. Hulda segir að hreppsnefndin hafi viljað að jörðin sé nýtt til skógrækt- ar og hafi ákveðið að neyta forkaups- réttar þegar ekki náðist samkomu- lag við bændurna um nýtingu á jörðinni. Hreppsnefndin hafi notað forkaupsréttinn því að hún taldi að nýting jarðarinnar væri „andstæð hagsmunum sveitarfélagsins“. Eignarrétturinn nýtur friðhelgi Guðni sagði að hann hefði falið lög- fræðingi í landbúnaðarráðuneytinu að fara yfir þetta mál þegar það barst ráðuneytinu. Hann sagði að dómar hefðu fallið í málum sem þess- um. „Þeir segja manni að það er ekki vandalaust að ganga inn í kaupsamn- inga og rifta samningum sem tveir einstaklingar hafa gert. Margar sveitarstjórnir hafa farið illa út úr því og ákvörðunum þeirra hefur ver- ið hnekkt fyrir dómstólum. Þegar þetta mál kom inn á mitt borð snerist það ekki um það að velja mér vini eða óvini heldur að þetta sé unnið af þeirri fagmennsku að úr- skurðurinn standist.“ Guðni sagði að samkvæmt jarða- lögum hefðu sveitarstjórnir heimild til að neyta forkaupsréttar. Þær þyrftu hins vegar að færa fram mjög sterk rök fyrir því að nota þennan rétt og sýna fram á að ekki væri hægt að verja hagsmuni sveitarfé- lagsins með öðrum og vægari leiðum áður en svo íþygjandi ákvörðun væri tekin. „Það verður að sýna fram á að markmiðum jarðalaganna verði ekki náð nema með beitingu forkaups- réttar í ákveðnu tilviki, en það verð- ur jafnframt að gæta meðalhófs. Heimildir yfirvalda, hvort sem um er að ræða ríki eða sveitarfélög, til að ganga inn í frjálsa samninga milli lögaðila þarf að skoða mjög þröngt enda um hreint neyðarúrræði að ræða. Samkvæmt stjórnarskrá Ís- lands er eignarrétturinn friðhelgur. Hluti af friðhelgi eignarréttarins er að skerða ekki frelsi manna til við- skipta með fasteignir sem þeir eiga. Frjáls viðskipti eru hluti af þeim mannréttindum sem við búum við. Þegar gögn málsins voru skoðuð var það niðurstaðan að ekki væri efni til að fallast á neytingu forkaupsrétt- ar Skorradalshrepps í umræddu til- viki enda mætti ná fram áherslum hreppsins í skipulagsmálum með öðrum úrræðum sem sum hver eru tilgreind í lögum, s.s. lögum um af- réttarmál, fjallskil, girðingarlögum og lögum um búfjárhald.“ Ekki á að níðast á landi Hulda segir í grein sinni: „Hvern- ig rökstyður ráðherra að það sé þjóð- hagslega hagkvæmara að beita mörg hundruð fjár á land sem er að stórum hluta í tötrum en að stuðla að friðun þess og markvissri upp- græðslu til framtíðarnota?“ Guðni sagðist í störfum sínum hafa stutt alhliða búskap. Skógrækt hefði fengið góðan stuðning frá stjórnvöldum á seinni árum. Guðni sagðist einnig hafa beitt sér fyrir gæðastýringu í sauðfjárrækt, en hún gerði einmitt ráð fyrir að ekki væri níðst á landi. „Það er því algerlega út í hött að reyna að slá mig svo ómerki- legum höggum í þessu máli. Þetta er niðurstaða sem byggist á lögfræði- legri skoðun og við teljum að stand- ist skoðun dómstóla.“ Landbúnaðarráðherra um söluna á jörðinni Efstabæ í Skorradal Neyðarúrræði að ganga inn í frjálsa samninga SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð- isins bjargaði tveim mönnum úr sjávarháska eftir að bát þeirra hvolfdi í Nauthólsvíkinni á sunnu- dag. Maður í Kópavogi varð vitni að óhappinu og gerði Neyðarlínu að- vart. Tíu mínútum síðar var björg- unarbátur slökkviliðsins kominn mönnunum til bjargar þar sem þeir voru á kili skútunnar. Báturinn var dreginn til hafnar í Kópavogi. Mennirnir, sem eru um þrítugt, eru vanir siglingamenn og voru vel útbúnir. Eitthvert ólag kom á skút- una og því fór sem fór. Mennirnir voru á skemmtisiglingu þegar skút- unni hvolfdi um 500–700 m frá landi. Mönnunum varð ekki meint af volkinu en þeir urðu nokkuð kaldir. Bjargað úr sjáv- arháska nauðsynlegar viðgerðir á álmunni, aðallega á þakinu og á þeim skemmdum sem orðið hafa vegna þaklekans,“ sagði Guðmundur Ein- arsson, forstjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík. „Sú fjárveiting hefur ekki fengist og ástæðan er sú að ekki hefur fengist niðurstaða í við- ræðum milli ríkis og borgar um það hvort ríkið kaupi eignarhlut borg- arinnar í Heilsuverndarstöðinni. Á meðan hefur ríkið ekki viljað setja peninga í viðgerðir. Það gengur að okkar áliti fulllangt þegar það er farið að valda beinum skemmdum á húsnæðinu.“ Í ágúst á síðasta ári kom í ljós við reglubundið heilbrigðiseftirlit að hlutar húsnæðis Heilsuverndar- stöðvarinnar voru illa farnir vegna raka og leka. Í ljós kom t.d. að á barnadeild og lungna- og berkla- VIÐTALSHERBERGI og salerni á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg hefur verið lokað vegna rakaskemmda. Umhverfis- og heil- brigðisstofa Reykjavíkur fór fram á lokunina en hún er gerð eftir að forstöðumanni stöðvarinnar var ár- angurslaust gefinn lokafrestur til að leggja fram tímasetta fram- kvæmdaáætlun. Herbergjunum, sem eru í álmu þar sem Miðstöð heilsuverndar barna er m.a. til húsa, var lokað á fimmtudaginn í síðustu viku. Beðið um fjármagn í mörg ár „Ástæðan fyrir því að við urðum ekki við erindi Umhverfis- og heil- brigðisstofu er sú að við höfum ár- angurslaust barist fyrir því í nokk- ur ár að fá fjárveitingu til að gera deild eru rakaskemmdir útbreiddar og megn fúkkalykt á göngum. Heil- brigðisfulltúi sendi niðurstöður til Heilsuverndarstöðvarinnar og fór fram á úrbætur. Í júní á þessu ári barst Umhverf- is- og heilbrigðisstofu beiðni frá yf- irlækni barnadeildar Heilsuvernd- arstöðvarinnar og hjúkrunar- forstjóra þar sem bent var á að slysahætta væri af loftplötum sem væru að hrynja úr lofti eins viðtals- herbergisins og að starfsfólk fyndi fyrir óþægindum í öndunarfærum. Við eftirlit voru þessar ábendingar staðfestar. Bráðabirgðaviðgerð hafin „Ég býst við að hægt verði að gera við allar skemmdir, en það verður dýrara eftir því sem skemmdirnar verða meiri. Við höf- um aðeins fé til minniháttar bráða- birgðaviðgerða og notum til þess okkar eigin mannskap og tilkostn- aður er lítill. Það dugir kannski í vetur.“ Guðmundur sagði að bráða- birgðaviðgerð væri þegar hafin. „Ef lokunin stendur aðeins stutt yfir getum við lagað okkur að henni og hún hefur þá ekki mikil áhrif á starfsemina. En til lengri tíma væri þetta bagalegt, en okkur leyfist vonandi að opna herbergin aftur á næstu dögum. En meðan ekki er gert við aðalástæðuna fyrir þessum skemmdum mun þetta endurtaka sig.“ Guðmundur telur rakann ekki vera heilsuspillandi fyrir skjólstæð- inga Heilsuverndarstöðvarinnar, en að starfsfólkið verði vart við óþæg- indi. Hluta Heilsuverndarstöðvarinnar lokað vegna leka og rakaskemmda Loftplötur hrynja og starfs- fólk finnur fyrir óþægindum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.