Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 19
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 19 EINAR Guðberg Gunnarsson var á sunnudag gerður að fyrsta heið- ursfélaga Þroskahjálpar á Suð- urnesjum (ÞS), á 25 ára afmæl- ishátíð félagsins sem fram fór í félagsheimilinu Stapa í Njarðvík. Fram kom að Einar Guðberg hefur unnið framúrskarandi gott og fórn- fúst starf í þágu félagins. Hann var meðal annars fyrsti formaður þess og sat í stjórn þrettán fyrstu árin. Einar Guðberg er einn helsti hvatamaður að stofnun Þroska- hjálpar á Suðurnesjum og vann öt- ullega að því að koma félaginu á fót fyrir 25 árum. Einar Guðbergs sagði í þakk- arræðu sinni að margt hefði áunn- ist í málefnum fatlaðra en stærsti sigurinn væri sú breyting sem orðið hefði á viðhorfi til fatlaðra. „Ég gleymi því aldrei þegar ég fór með Val son min í bíó fyrir 25 árum. Þá hópaðist fólk í kringum okkur til að líta á þetta undur sem því þótti Val- ur vera. Í dag þekkist þetta ekki og þetta þykir mér stærsti sigurinn,“ sagði Einar Guðberg. Valur er nú 31 árs og Einar sagði að á þeim tíma sem Valur fæddist hafi foreldrum verið ráðlagt að senda börn sín til vistunar á Skála- túni. „Við foreldrar Vals fórum þangað í heimsókn með opnum huga og okkur var tekið vel, en við okkur blasti hrein martröð. Allur aðbúnaður var hræðilegur enda hælið þá rekið af miklum van- efnum. Í stórum skála voru klósett í röðum við einn vegginn, án skil- rúma og sturtur við annan, án hengja. Og í „geymslunni“ eins og við kölluðum hana, blöstu við okkur 44 andlit fatlaðra barna og við sem héldum að Valur væri sá eini með þessa tegund fötlunar. Hvaðan komu öll þessi börn? Leiðin heim var þrungin mar- traðakenndum hugsunum og við foreldrar Vals hétum því að þetta skyldi aldrei verða hlutskipti hans. Þegar við kynntumst svo foreldrum annarra fatlaðra barna á Suð- urnesjum, sem strengt höfðu sömu heit, fórum við að ræða um stofnun hagsmunafélags á Suðurnesjum. Eftir þrotlausa vinnu í nokkur ár var stofnfundurinn haldinn hér í Stapa 10. október 1977,“ sagði Ein- ar Guðberg um aðdragandann að stofnun félagins. Á afmælishátíðinni voru tveir velunnarar ÞS sæmdir gullmerki félagins fyrir gott og mikið starf. Er þetta í þriðja sinn sem gullmerki félagsins er afhent. Gullmerkið í ár hlutu Vilhjálmur Þorleifsson, sem ávallt hefur sýnt skjólstæðingum félagsins mikla virðingu og hefur í áraraðir unnið við hlið fatlaðs manns, Óskars Ívarssonar, í áhalda- húsi bæjarins. Þá var Valgerður Þorsteinsdóttir sæmd gullmerki fyrir fórnfúst starf í þágu félagins frá stofnun þess, en hún er móðir eins af skjólstæðingum ÞS, Helga Sæmundssonar. Þroskahjálp á Suðurnesjum bár- ust margar góðar gjafir í tilefni af- mælisins, en félagið hefur ávallt notið mikillar velvildar fyrirtækja, félagasamtaka og almennings á Suðurnesjum. „Breytt viðhorf til fatl- aðra stærsti sigurinn“ Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Það voru stoltir feðgar sem stigu á svið og tóku við fyrsta heiðurs- félagatitli Þroskahjálpar á Suðurnesjum. Vali og Einari Guðberg var vel fagnað af afmælisgestum. Njarðvík ÞRIGGJA skrokka hraðfiskibátur var kynntur fyrir sjómönnum og fleirum í Sandgerðishöfn um helgina. Er þarna um að ræða nýja hönnun hjá Plastverki ehf. Báturinn, sem hefur vinnuheitið Örninn, er af nýrri gerð, með einn aðalskrokk og og tvo aukaskrokka, sinn á hvorri síðu. Aukaskrokkarnir eru með sjálfstæð flot og ekki opnir inn í aðalskrokk bátsins. Örninn er 9,63 metra langur og mesta breidd hans er 3,50 metrar. Báturinn mælist 10 tonn og tekur ellefu 660 lítra fiskikör og fjögur 380 lítra í lest. Örninn er knúinn með 430 hestafla Cummings-vél og gengur 29 sjómílur, með 3 tonn í lest gengur hann 23 sjómílur. Bát- urinn er með fasta skrúfu og gír en skrúfuöxull liggur undir vél bátsins. Undir lestargólfi er 989 lítra olíu- tankur. Þá er hann með Berker- stýri sem gerir hann mjög lipran en báturinn hefur verið prófaður með vönum sjómönnum sem segja að hann sé mjög stöðugur og fari vel í sjó. Gústaf Ólafsson, eigandi Plast- verks, segir að báturinn sé mun rás- fastari en venjulegir hraðfiskibátar, stöðugri og reki minna. Þriggja skrokka fyrirkomulagið skili þessu og auðveldi þar með sjómönnum starfið. Brjóta upp mynstrið Báturinn var hannaður frá grunni af starfsfólki Plastverks. Gústaf hef- ur á orði að svona geri víst ekki óbrjálaðir menn en bætir því við að stundum þurfi að brjóta upp mynstrið til að fá framfarir. Hann segir að afar gaman hafi verið að fást við þetta verkefni en tekur fram að hönnun bátsins, þróun og smíði hafi kostað mikla fjármuni. Að hans sögn er báturinn enn óseldur en margir hafi sýnt honum áhuga. Gústaf segir að ef báturinn fái góðar viðtökur verði haldið áfram og fleiri bátar smíðaðir. Plastverk ehf. hefur margra ára reynslu af smíði og breytingum á plastbátum. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Örninn, nýr bátur frá Plastverki, prófaður á 29 mílna hraða við Sandgerði. Nýr þriggja skrokka hraðfiskibátur kynntur Sandgerði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.