Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 38
HESTAR 38 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ KOSTNAÐARÁÆTLUN fyrir byggingu reiðhallarinnar sem er að grunnfleti 25x50metrar hljóðaði upp á 37 milljónir króna og er þar fjármagnskostnaður þar meðtal- inn. Meginhluti byggingarkostnað- ar er greiddur með styrk frá Garðabæ upp á 26 milljónir. Þá var hesthús í eigu félagsins selt fyrir 4,5 milljónir króna en afganginn hyggjast Andvaramenn fjármagna með sölu á 40 hlutum í höllinni að upphæð 150 þúsund krónur hver þeirra. Hafa félagsmenn forkaups- rétt á hlutum sem veitir þeim for- gang að tímum í höllinni og fá þá 30% afslátt af leigugjaldi sem verður 3000 krónur tíminn. Stofn- að hefur verið einkahlutafélag um höllina sem heitir Kjóavellir ehf. sem verður að 5/6 hluta í eigu Andvara en að 1/6 í eigu einstakra félagsmanna eða annarra einstak- linga sem sýna eignaraðild áhuga. Hestamennskan í forgangi Í stjórn hlutafélagsins eru auk formanns, Hannesar Hjartasonar, þeir Sveinn Skúlason, Ársæll Haf- steinsson og Guðjón Árnason, Finnur Ingólfsson og Matthías G. Pétursson; munu þeir hafa umsjón með rekstri reiðhallarinnar eftir að hún verður tekin í notkun. Sögðu þeir að áhersla yrði lögð á greiðan aðgang hestamanna að reiðhöll- inni. Hér væri um reiðhöll að ræða og eðli málsins samkvæmt hlytu hestamenn að hafa forgang en það þýddi þó ekki að hún yrði ekki leigð til annarra nota hvort sem það yrði knattspyrna eða annað, tíminn leiddi það í ljós. Það er al- kunna að nokkurrar óánægju hef- ur gætt víða með hversu skertan aðgang hestamenn hafa að reið- höllum þar sem þær séu leigðar undir knattspyrnu og annað á þeim tímum sem hinn almenni hestamaður myndi helst nýta sér slíka aðstöðuna. Lagt upp með skuldlaust bú Stefnan er að engin skuld verði á höllinni þegar hún verður tilbúin til notkunar og muni það skapa þeim frjálsari hendur um notkun hennar. Reikna þeir félagar með að rekstrarkostnaður verði afar lít- ill. Ekki er fyrirhugað að ráða starfsmann sem hafi stöðugt eft- irlit heldur fá hestamenn sem leigja sér aðstöðu sérstakan sner- tilykil sem opnar fyrir þeim höllina og um leið verða þeir skráðir inn og ljós kvikna. Þegar þeir hafa lok- ið æfingu hreinsa þeir tað eftir hest sinn og skrá sig út með sner- tilyklinum. Á þennan máta á að verða hægt að fylgjast með notkun hvers og eins á höllinni. Telja þeir að sjálfsagt þurfi að greiða ein- hverjum fyrir eftirlit með höllinni en ekki verði um fastan starfskraft að ræða sem verður til staðar öll- um stundum meðan höllin er í notkun. Enginn mun fá frítt inn í höllina sögðu þeir félagar og þeir þar meðtaldir, sögðu þeir hlæj- andi. Hannes segir að þetta væru þær hugmyndir sem lagt væri upp með en síðan yrðu starfsemi og rekstur hallarinnar sniðin eftir reynslunni Gera þeir ráð fyrir að höllin verði tilbúin til notkunar innan tveggja vikna en formleg vígsla verði ekki fyrr en eftir áramótin næstu þegar allt verður komið í fullan gang í hverfinu. Yfirbyggt reiðgerði Reiðvöllur hallarinnar verður 22,5x50 metrar en gert er ráð fyrir 2,5 metra breiðri áhorfendaaðstöðu meðfram annarri langhlið. Tvær stórar hurðir eru á hvorum enda þannig að vel verður hægt að taka hesta til skeiðs í gegnum höllina. Engin salernisaðstaða verður í höllinni og sögðu þeir félagar að hér væri í raun um að ræða yf- irbyggt reiðgerði með rými fyrir áhorfendur. Steinsnar frá höllinni er félagsheimili Andvara og þar er snyrtiaðstaða auk möguleika á veitingasölu ef um þesskonar sam- komur væri að ræða að á því þyrfti að halda. Með tilkomu reiðhallar á svæði Andvara batnar aðstaðan enn frek- ar en talsverð uppbygging hefur átt sér stað á vallarsvæðinu. Til dæmis var uppgröftur fyrir grunni hallarinnar notaður í uppfyllingu fyrir nýjum hringvelli og áhorf- endaaðstöðu. Urðu mótsgestir á meistaramóti Andvara í september þess áþreifanlega varir þar sem hægt var orðið að leggja bílum hæfilega nærri núverandi völlum en það hefur lengi verið slæmur galli á svæðinu hversu fjarri völl- unum áhorfendur þurftu að vera. Á þessu hefur sem sagt orðið breyting og stefnir allt í að svæðið gæti orðið með þeim skemmtilegri þegar uppbyggingu verður lokið. Reiðhöllin eykur verðgildi hesthúsanna Ekki er að efa að tilkoma reið- hallar á Andvaravöllum mun ger- breyta allri aðstöðu. Sem dæmi má nefna að öll reiðkennsla barna og unglinga hefur farið fram í reiðhöll Gusts og var flutningur hrossanna kostaður af félaginu með sérstök- um styrk frá Garðabæ sem reynd- ar dugði ekki til eftir því er fram kemur í skýrslu stjórnar frá síð- asta aðalfundi félagsins sem hægt er að lesa á mjög góðri heimasíðu félagsins andvari.is. Þá lofar það góðu að tryggja eigi forgang hestamennskunnar að höllinni og vafalítið má ætla að tilkoma henn- ar auki verðmæti hesthúsa hverf- isins. Fyrir skömmu mátti sjá aug- lýsingu þar sem auglýst var sala á hesthúsi og tekið sérstaklega fram að húsið væri staðsett mjög nærri hinni nýju væntanlegu reiðhöll. Ætla má að mikil gróska verði í öllu námskeiðshaldi hjá Andvara í vetur og víst að margir hlakka mjög til að taka á hús. Eða eins og einn nefndarmanna Ársæll Haf- steinsson bætti við þegar hann gat þess að hægt yrði að nota höllina eftir tæpar tvær vikur „Það liggur við að mann langi bara að taka inn“. Morgunblaðið/Vakri Fjórir stjórnarmanna Kjóavalla ehf. framan við reiðhöllina sem er stálgrindarhús. Þeir eru frá vinstri talið Guðjón Árnason, Hannes Hjartarson, Ársæll Hafsteinsson og Sveinn Skúlason sem jafnframt er formaður Andvara. Á meistaramóti Andvara nutu áhorfendur meiri nærveru við vellina á upp- fyllingu úr reiðhallargrunninum sem hér má sjá í formi góðra bílastæða. Nýjar leiðir í rekstri og fjármögnun Tvær vikur eru í að ný og glæsileg reiðhöll Andvara í Garðabæ verði tekin í notkun. Farnar eru ótroðnar slóðir við fjármögnun og byggingu hallarinnar og komst Valdimar Kristinsson að því að svo yrði einnig um rekstur hennar, í spjalli við stjórnarmenn Kjóavalla ehf. REYR frá Dalbæ og Tjörvi frá Sunnuhvoli voru þau folöld sem mesta athygli vöktu á folaldasýn- ingunni á föstudagskvöldið í Ölf- ushöllinni þegar leiddar voru fram 22 mæður með afkvæmum sínum þetta árið. Að þessu sinni voru það brekkudómararnir sem réðu lögum og lofum og úrslitum keppninnar að sjálfsögðu. Engir misvitrir dóm- arar voru notaðir að þessu sinni til að kveða upp „umdeilda dóma byggða á næmu innsæi og faglegri þekkingu“. Það var sem sagt brekkan og brjóstvitið sem réð ferðinni að þessu sinni. Sigurvegarinn Reyr frá Dalbæ er undan Sjóla frá Dalbæ sem margir muna sjálfsagt eftir frá því í Gunn- arsholti í vor er hann stóð þar efst- ur af sex vetra hestum og eldri. Móðir Reyrs er Fóa frá Gegn- ishólaparti, dóttir Feykis frá Haf- steinsstöðum og eigandi Már Ólafs- son. Þótti mörgum Reyr bera af hvað sköpulagi viðkemur og það ásamt mjög svifamiklu brokki tryggði honum flest atkvæði úr brekkunni. Næstur honum og lítið síðri varð svo Tjörvi frá Sunnuhvoli sem er undan Töfra frá Kjart- ansstöðum og móðirin er Urður frá Sunnuhvoli sem er dóttir Þorra frá Þúfu og Sögu frá Litlu-Sandvík. Eigandi er Sigurður Sigurðsson. Tjörvi vakti hvað mesta athygli fyrir góðar töltrispur þegar móðir hans herti á sér og sá stutti hélt hann væri að tapa af henni. Esjar frá Fremri-Hálsi varð í þriðja sæti en hann er undan Roða frá Múla og Þokkadís frá Rifi en hún er komin út af Höfða-Gusti í föðurætt, eigandi Esjars er Ómar Rafnsson. Jöfn í fjórða til fimmta sæti urðu Hergeir frá Kjarnholtum I og Djásn frá Höfnum. Hergeir er undan Óði frá Brún og Lyftingu frá Kjarnholt- um I sem er dóttir Dags frá Kjarn- holtum I og Blíðu frá Gerðum, eig- andi er Magnús Einarsson. Djásn er undan Dyni frá Hvammi og Gerðu frá Úlfsstöðum sem er dóttir Blakks frá Úlfsstöðum. Eig- andi hennar er Kristín Jóhanns- dóttir. Djásn er að líkindum eitt fyrsta afkvæmi Dyns sem fram kemur fyrir almenningssjónir. Folaldasýningar þessar sem haldnar hafa verið í Ölfushöllinni hafa trekkt vel og ekki ætti það að draga úr ef brekkan fær ein og óskoruð að ráða úrslitum. Hér er fyrst og fremst um að ræða skemmtilegan leik en þó með alvar- legum undirtóni. Gaman verður að fylgjast með sér í lagi þeim hestfo- löldum sem fram koma á þessum sýningum og mun reynslan sýna hvort stóðhestar framtíðarinnar muni á þessum sýningum stíga sín fyrstu skref á framabrautinni. Hugsanlegur akkur af þátttöku í sýningu sem þessari á hjá ungum fola er fleiri hryssur til fyljunar á unglingsárum þeirra ef þeir ekki verða geltir. Má í þeim efnum nefna Kjarna frá Þjóðólfshaga sem sigr- aði fyrir nokkrum árum í sýningu sem þessari. Vakti hann þar nokkra athygli og í sumar voru hjá honum tveggja vetra gömlum, rétt tæpar 20 hryssur. Að vísu hefur ætterni hans sjálfsagt valdið miklu í þess- um efnum en faðir hans er Andvari frá Ey og móðir Kringla frá Kringlumýri. En vafalítið eru fol- aldasýningarnar komnar til að vera, bæði sem skemmtun og fróð- leikur. Folaldasýning í Ölfushöll Morgunblaðið/Vakri Reyr og Tjörvi gáfu góðan framtíðartón
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.