Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 39 ✝ Aðalheiður EsterGuðmundsdóttir fæddist 20. nóvem- ber 1923 á Sigurstöð- um á Akranesi. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 8. október síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Krist- ín Jónsdóttir, f. 10. ágúst 1881, d. 3. mars 1966, og Guðmundur Guðmundsson, f. 4. september 1884, d. 24. júlí 1938. Ester var yngst af 12 systk- inum. Alsystkini voru Rósa, f. 15. ágúst 1908, Sigríður, f. 4. febrúar 1910, Halldór, f. 19. maí 1911, Sigurrós, f. 22. júní 1912, Guðmundur, f. 19. september 1913, Jónmundur, f. 3. september 1915, Gréta, f. 24. mars 1917, Júlíana, f. 30. júlí 1918, og Petrea, f. 24. nóv- ember 1921. Hálfsystkini Esterar, börn Kristínar og fyrri eiginmanns hennar Sigurðar Jónssonar, voru Ástríður Þórey, f. 7. september 1899, og Valdimar, f. 17. apríl 1904. Eftirlifandi systkini Esterar eru: Sigríður, Gréta, Júlíana og Petrea. Hinn 26. desember 1941 giftist Ester Ragnari Leóssyni, f. 26. des- ember 1920. Foreldrar hans voru Málfríður Bjarnadóttir, f. 20. októ- ber 1896, d. 15. júní 1986, og Leó Eyjólfsson, f. 10. nóvember 1895, d. september 1973, maki Hjördís Sig- urðardóttir, f. 3. nóvember 1977. Börn þeirra eru Lúísa Heiður, f. 15. október 1999, og Helgi Reyr, f. 1. september 2002. b) Ester Sigríður, f. 27. apríl 1976, maki Magnús Sig- urðsson, f. 6. október 1974, sonur þeirra er Sigurður Arnar, f. 30. júní 1999. c) Ragnheiður, f. 7. febr- úar 1980. 4) Guðríður Birna, f. 11. janúar 1956, maki Kristinn Eiríks- son, f. 12. maí 1956. Börn þeirra eru a) Aðalheiður, f. 16. ágúst 1976, sambýlismaður Starkaður Örn Arnarson, f. 16. ágúst 1972. b) Haukur, f. 8. apríl 1984. 5) Leó, f. 23. nóvember 1964, maki Halldóra Sigríður Gylfadóttir, f. 8. mars 1968. Börn þeirra eru a) Ragnar, f. 20. mars 1991, b) Maren, f. 18. apríl 1994, c) Guðfinnur Þór, f. 18. maí 1999. Dóttir Leós og Sigurlínar Þóru Þorbergsdóttur, f. 13. febr- úar 1966, er Elín María, f. 29. maí 1984. Ester ólst upp í foreldrahúsum á Sigurstöðum á Akranesi þar til hún giftist Ragnari Leóssyni. Ester og Ragnar bjuggu allan sinn búskap á Akranesi. Síðustu árin bjuggu þau á Dalbraut 23. Ester var húsmóðir en auk þess starfaði hún við sím- vörslu og verslunarstörf. Ester var virkur félagi í Oddfellowreglunni. Útför Esterar verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. 12. febrúar 1958. Börn Esterar og Ragnars eru fimm. Þau eru: 1) Fríða, f. 17. nóvember 1942, maki Ásgeir Rafn Guðmundsson, f. 18. maí 1942. Börn þeirra eru a) Ragn- heiður, f. 12. október 1961, maki Michael Wahl Andersen, f. 13. september 1955. Fyrri maki Ragnheiðar var Hlynur Sigurdórsson, f. 16. maí 1961. Börn Ragnheiðar og Hlyns eru Arnar Dór, f. 25. ágúst 1979, Ásgerður, f. 29. júlí 1989, og Freyr, f. 24. júní 1994. Sonur Michaels er Sune Wahl And- ersen, f. 11. febrúar 1981. b) Pálína, f. 5. janúar 1965, maki Þorgeir Jós- efsson, f. 2. júní 1959. Börn þeirra eru Jósef Halldór, f. 11.12. 1995, Þóra Björk, f. 11.12. 1995, og Svana, f. 11.12. 1995. Dóttir Þor- geirs er Bergþóra, f. 6. nóvember 1987. c) Ásgeir, f. 5. janúar 1965, maki Ásthildur Helga Sölvadóttir, f. 14. desember 1967. Börn þeirra eru Sölvi Páll, f. 18. apríl 1987, Fríða, f. 26. maí 1988, og Heiður, f. 19. júní 1997. 2) Kristín, f . 30. júlí 1945. 3) Aðalheiður Ragna, f. 15. apríl 1950, maki Helgi Þröstur Guðnason, f. 8. júní 1945. Börn þeirra eru a) Guðni Steinar, f. 26. Elsku mamma. Nú þegar þú hefur kvatt eftir erfið veikindi þökkum við þér fyrir allt það sem þú hefur verið okkur öllum, fjölskyldunni þinni. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Sofðu rótt elsku mamma, börnin þín, Fríða, Kristín, Ragna, Birna og Leó. Hún amma Ester hefur kvatt þennan heim. Þótt við, sem nú kveðjum hana, höfum lengi vitað að hverju stefndi var kveðjustundin ótrúlega sár. Það er einfaldlega svo erfitt að hugsa sér lífið og tilveruna án hennar ömmu. Hún amma okkar var alveg ein- stök kona. Ákaflega hlý og um- hyggjusöm, gamansöm og skemmtileg og alltaf boðin og búin að hjálpa og hlusta. Hún hafði eitt- hvað það til að bera sem gerði það að verkum að öllum leið vel í návist hennar. Aldrei hallmælti amma nokkrum manni, heldur tókst henni alltaf að sjá það besta í öllum. Þeir sem kynntust ömmu sóttu í návist hennar og minnti eldhúsið þeirra ömmu og afa oft á tíðum á félagsheimili, svo gestkvæmt var þar. Amma hafði alltaf heitt á könnunni og fannst aumt ef hún ætti ekki minnst tvær sortir af heimabökuðu. Ömmu heimsótti maður ekki af skyldurækni heldur vegna þess að það var svo gott og gaman að koma til hennar. Fjölskyldur ömmu og afa eru ná- tengdur hópur og er það ekki síst ömmu að þakka. Í kringum hana urðu margar fjölskylduhefðir til. Á sunnudögum dúkaði hún amma borð og setti á tertu, ef ske kynni að einhverjir litu inn, enda oftast „messufært“ hjá henni. Við drukk- um saman bollukaffi á bolludaginn, við tókum slátur saman og héldum heilmiklar sláturveislur í kjölfarið, við bökuðum laufabrauð, við hitt- umst hjá ömmu og afa á aðfanga- dagskvöld og á afmælum afa á ann- an í jólum hélt hún stórveislur og svona mætti lengi telja. Þessum siðum hélt hún uppi alla tíð, þrátt fyrir að síðustu ár hennar hafi verið henni erfið vegna veikinda. Hún kvartaði aldrei þótt hún hafi án efa oft verið mikið kvalin. Amma var stolt af fólkinu sínu og hafði það á orði, þegar einhverjum úr fjöl- skyldunni var hrósað, „hvernig má nú annað vera, þetta er fólkið mitt“. Við erum þakklát fyrir að hafa átt elsku ömmu okkar að og kveðj- um hana með söknuði og trega. Ragnheiður, Pálína og Ásgeir. Hún amma Ester er farin. Hún amma okkar var líklega ein sú besta manneskja sem við höfum þekkt. Konur eins og hún eru vand- fundnar, henni var ekki illa við neinn mann og dró alltaf fram það besta í öllum. Þegar maður kom í heimsókn til hennar, sem alltaf var af löngun en ekki skyldu, langaði mann helst ekkert að fara heim. Hún var alltaf í góðu skapi og kvartaði aldrei, sama hvað var að. Henni þótti vænt um sitt fólk og alltaf var mjög gest- kvæmt hjá henni og afa. Það verður tómlegt að koma á Dalbrautina hér eftir. Lífið verður ekki samt án hennar. Við vonum svo sannarlega að hún hafi það gott þar sem hún er núna, hún á það svo sannarlega skilið. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur öllum elsku amma. Elsku afi, við vonumst til að geta létt þér stundirnar á einhvern hátt á þessum erfiðu tímum. Þú veist að þú ert alltaf velkominn til okkar. Sölvi Páll, Fríða Sól og Heiður. Í örfáum orðum langar okkur að minnast ömmu Esterar. Við munum eftir henni sem já- kvæðri og lífsglaðri konu sem tók alltaf á móti okkur með opinn faðm- inn tilbúin að hlusta á allt það sem við höfðum að segja. Þegar komið var til ömmu og afa á Dalbrautina var alltaf einhver nýkominn í heim- sókn eða á leiðinni út. Með þessu móti hélt hún fjölskyldunni sinni saman og kunnum við henni miklar þakkir fyrir það. Heima hjá ömmu Ester og afa Ragnari var oft slegið á létta strengi og munum við eftir ömmu með bros á vör, hún var sí- fellt hlæjandi. Þær voru ófáar normalbrauðssneiðarnar sem við borðuðum hjá ömmu, pönnsurnar, bollurnar og allar hinar kræsing- arnar sem amma Ester framreiddi af minnsta tilefni. Amma Ester sagði oft hluti sem koma til með að fylgja fjölskyld- unni lengi. Sagði hún gjarnan að það kæmi sér ekki á óvart hvað við værum öll falleg, „enda ekki skrítið komin af svona fallegu fólki“. Nú hefur þessi yndislega kona kvatt þennan veraldlega heim. En hún mun ávallt lifa í minningu okk- ur sem sú frábæra kona sem hún var. Nú verður amma Ester að segja brandara einhverjum öðrum en okkur. Þakka þér fyrir að hafa verið til og gætt lífi okkar ljósi. Haukur, Aðalheiður og Starkaður. Elsku amma Ester. Okkur langar að kveðja þig að sinni, þó að við vitum að þú verðir alltaf hjá okkur og þakka þér fyrir allar góðu og skemmtilegu stund- irnar sem við áttum með þér og afa á Dalbrautinni. Okkur fannst alltaf svo gott að koma til þín. Þegar við vorum búin snemma í skólanum var gott að koma við hjá ömmu og fá smá í svanginn, taka í spil eða bara spjalla. Þú tókst alltaf á móti okkur opnum örmum svo mjúk, hlý og góð. Elsku amma takk fyrir allt. Guð geymi þig Ragnar, Maren og Guðfinnur Þór. Elsku amma, þá er komið að kveðjustundinni, en það er svo sárt að kveðja þótt við vitum að þér líð- ur betur núna og ert laus við sárs- aukann. Við verðum að hugga okk- ur við allar þær yndislegu minningar sem við varðveitum í huga okkar. Þú varst einstök kona sem tókst á ótrúlegan hátt að halda allri fjöl- skyldunni svo þétt saman. Þér fannst svo gaman að hafa alla sam- ankomna í kringum þig. Það var sama hvort það var sláturveisla, bolluveisla, afmæli, jól eða bara venjulegur sunnudagur, það var alltaf svo gaman og mikið fjör og borðið svignaði undan kræsingum. Elsku amma, það var alltaf svo gott að vera í návist þinni enda varstu svo hlý og kát kona og gafst endalaust af þér. Þú hugsaðir alltaf fyrst um aðra og aldrei mátti minn- ast á heilsu þína, það var alltaf allt í lagi með þig. Eldhúsið var sá staður á heimili ykkar afa og Kiddýjar sem var mest notaður og þar var oft þröngt setinn bekkurinn og mikið spjallað og hlegið. Þegar við vorum yngri leið varla sá dagur að við kæmum ekki með mömmu í heimsókn og þótt við værum orðin eldri var oft skroppið í heimsókn til ömmu. Það mátti aldrei bara koma í dyrnar því áður en maður vissi af var borðið orðið fullt af kökum. Það var alveg sama hvenær litið var inn, alltaf vorum við jafn velkomin og vel tekið á móti okkur. Elsku amma, við eigum þér svo ótalmargt að þakka og höfum lært svo margt af þér. Þú varst okkur góð fyrirmynd og þín verður sárt saknað. Við vitum að það verður vel tekið á móti þér og við skulum gæta afa vel fyrir þig. Þegar hjartað grætur vegna þess sem það hefur misst, hlær andinn, vegna þess sem hann hefur hreppt. (Höf. ók.) Elsku amma takk fyrir allt. Guð veri með þér. Guðni, Ester og Ragnheiður. Elsku amma Ester. Pabbi hringdi í mig þriðjudaginn 8. október og sagði mér að þú værir dáin. Mig langaði ekki til að trúa því, það var mjög erfitt að heyra þetta. Svo fór ég að hugsa og þá sá ég að þetta væri örugglega miklu betra fyrir þig, nú líður þér miklu betur. Ég kom að heimsækja þig helgina áður á sjúkrahúsið og mér fannst mjög erfitt að sjá þig svona veika. Mig langar að þakka þér fyrir allar góðu stundirnar okkar saman. Það var alltaf svo gott að koma til þín og vera hjá þér. Þú varst besta amma í heimi. Það er svo margt sem mig langar að segja við þig en þetta er bara allt svo erfitt núna. Ég er að reyna að muna allar góðu stundirnar í staðinn fyrir að vera bara sorgmædd. Ég ætla að halda áfram að muna eftir þér þótt þú sért farin frá mér, ég veit að þú verður alltaf með mér. Við mamma höfum kveikt á kerti til að minnast þín og ætlum alltaf að gera það á afmælisdaginn þinn. Takk fyrir allt elsku amma. Þín Elín María Leósdóttir. Vegir skiptast – allt fer ýmsar leiðir, inn á fyrirheitsins lönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. (Einar Ben.) Þannig kveður eitt af skáldum okkar látinn vin. Þessar ljóðlínur komu okkur í hug er dauðinn rétti hönd sína að þessu sinni. Þessi hönd finnst okkur ýmist snögg og harkaleg eða mild og friðandi þegar hún kemur eftir langvarandi sjúk- dómsstríð sem engin mannleg hönd fær bætt. Það er trú okkar að þann- ig hafi það verið með hana Ester, þessa hugljúfu og elskulegu konu. Að höndin sem leiddi hana inn á „fyrirheitsins lönd“ hafi verið henni kærkomin. Það er sárt að kveðja en vina- skilnaður er sá af örþráðum lífsins sem ekki verður umflúinn. En það er gott að muna hana Ester og allar samverustundir með henni, svo margar ótaldar gleðistundir og að hafa fengið að fylgja henni á lífsins göngu árin öll. Sjá hana vaxa í hverju verki, spinna sinn lífsþráð sjálfri sér og ástvinum sínum og samferðamönnum til heilla og blessunar. Og allra helst finnum við hugrekkið, kærleikann og ástina sem hún umvafði eiginmann sinn og börnin öll. Nú þegar komið er að leiðarlok- um koma upp í hugann orð úr sálmi Davíðs, konungs: „Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar.“ Heill og blessun, friður og farsæld veri með ykkur öllum, ástvinum hinnar mætu konu, um ókomna tíð. Við kveðjum hana með þökk og virðingu og biðjum henni blessunar á nýjum leiðum. Friður sé með sál hennar. Bjarnfríður og Hallbera Leósdætur. AÐALHEIÐUR ESTER GUÐMUNDSDÓTTIR Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG PÉTURSDÓTTIR, Efstalandi 6, Reykjavík, lést laugardaginn 12. október. Jón Þorsteinsson, Þorsteinn Jónsson, Elva Andrésdóttir, Elínborg Jónsdóttir, Franklín Georgsson, Erna Jónsdóttir, Sveinn Sveinsson, Pétur Jónsson, Sigrún Sigurðardóttir, Jón Ragnar Jónsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA VILHJÁLMSDÓTTIR, frá Sólbakka, Grindavík, síðast til heimilis í Víðihlíð, heimili aldraðra í Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnu- daginn 13. október. Sigurður Garðarsson, Brynhildur Vilhjálmsdóttir, Ingibjörg Garðarsdóttir, Jóhanna Garðarsdóttir, Gestur Ragnarsson, Kristinn Garðarsson, Svava Gunnlaugsdóttir, Ester Garðarsdóttir, Gísli Ófeigsson, Eygló Garðarsdóttir, Hafsteinn Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.