Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 20
LANDIÐ
20 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Húsgögn
Sérpantanir
SUÐURNES
ÞÓ að mikið hafi rignt
í haust koma oft falleg-
ir og bjartir dagar á
milli og þá er loftið og
jörðin hrein og tær eft-
ir alla þessa vætu.
Dyrhólaey er þekkt
fyrir sérstakt landslag
en þó sérstaklega fyrir
gatið og fuglalífið. Úr
Reynishverfi í Mýrdal
lítur Dyrhólaey allt
öðruvísi út og margir
myndu ekki þekkja
hana frá þessu sjónar-
horni.
Skin á
milli
skúra
Fagridalur
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Dyrhólaey speglast fallega í Dyrhólaósi.
SUNNUDAGINN 6. október sl. var
haldið upp á þrjátíu ára vígsluaf-
mæli Þykkvabæjarkirkju. Biskup Ís-
lands, Karl Sigurbjörnsson, prédik-
aði við hátíðarmessu og eftir
prédikunina kallaði hann til sín og
ávarpaði öll börn sem komu til mess-
unnar.
Kirkjukór Odda- og Þykkva-
bæjarkirkna leiddi söng, einsöngv-
ari var Gísli Stefánsson og org-
elleikari var Nína María Morávek.
Auk þess lék dóttir Nínu, Írena
Steindórsdóttir, á þverflautu.
Að messu lokinni héldu kirkju-
gestir til íþróttahúss Þykkbæinga
þar sem kvenfélagið Sigurvon bauð
upp á veglegar kaffiveitingar. Þar
tók séra Sigurður Jónsson sókn-
arprestur til máls og rakti sögu
kirkjunnar í stuttu máli.
Fyrir þrjátíu árum
Í tölu séra Sigurðar Jónssonar
kom fram að í Þykkvabæ var áður
fyrr kirkja sem nú er löngu horfin,
Hábæjarkirkja, sem reist var 1914
og var hún fyrsta steinsteypta guðs-
hús á Suðurlandi. Áður höfðu
Þykkbæingar sótt Háfskirkju en
hennar mun getið í heimildum allt
frá því um 1200.
Hafist var handa við byggingu
hinnar nýju kirkju 15. ágúst 1967
eftir uppdrætti Ragnars Emilssonar
arkitekts og henni lokið sumarið
1972. Sóknarnefnd hafði með hönd-
um framkvæmdir við bygginguna
undir forystu Árna Sæmundssonar
en lagði safnaðarfólk einnig á sig
mikla vinnu við smíðina og fjár-
öflun. Þáverandi biskup Íslands,
Sigurbjörn Einarsson, vígði svo
kirkjuna hinn 8. október 1972. Í
ræðu sinni fór séra Sigurður orðum
um gjafir sem kirkjunni hafa verið
færðar. Má meðal annars nefna fös-
tuhökul sem kvenfélagið Sigurvon
gaf en félagsmenn hafa staðið
dyggilega vörð um velferð kirkj-
unnar. Auk hökulsins hefur félagið
gefið sjö steinda glugga eftir Bene-
dikt Gunnarsson myndlistarmann
sem prýða norðurhlið kirkjunnar.
Síðastliðið vor var kirkjunni enn
færð vegleg gjöf en það eru tíu há-
tíðarstólar sem ætlaðir eru til notk-
unar við sérstök hátíðleg tækifæri
eins og brúðkaup og fermingar.
Gefendur stólanna voru afkom-
endur Markúsar Guðmundssonar og
Katrínar Guðmundsdóttur frá Dísu-
koti.
Í turni kirkjunnar eru tvær klukk-
ur sem áður fyrr hljómuðu í Háfs-
kirkju og er ártalið 1787 að finna á
annarri en hin er talin nokkru eldri.
Nú hefur verið komið fyrir raf-
stýrðum hringibúnaði í turninum.
Nokkrar viðgerðir hafa farið
fram á byggingunni í gegnum árin,
m.a. á turni og þaki og í jarðskjálft-
unum í júní 2000 urðu miklar
skemmdir á gólfi hennar. Í kjölfarið
var lagt á gólfið eikarparket sem
reyndist verulega gallað og mynd-
uðust nokkrar skemmdir í múrhúð-
un í veggjum vegna þrýstings frá
efninu og bólgnaði gólfið upp á
nokkrum stöðum. Ekki hefur enn
verið ráðist í að skipta aftur um
gólfefni og bíður það verkefni betri
tíma.
Prestarnir
Séra Sveinn Ögmundsson þjónaði
Hábæjarsókn sem nú heitir Þykkva-
bæjarsókn frá 1931 til ársins 1969
en áður var sókninni þjónað frá
Kálfholti. 1969 tók séra Magnús
Runólfsson við og þjónaði til dauða-
dags árið 1972. Séra Ólafur Jens
Sigurðsson tók við sókninni 1972 til
1973, séra Kristján Róbertsson til
1978 og séra Auður Eir Vilhjálms-
dóttir til 1998 en þetta var fyrsta
prestakallið á Íslandi þar sem kona
var skipuð til prestþjónustu.
Prestakallið var lagt niður í árs-
lok 1998 og var Þykkvabæjarsókn
þá lögð til Oddaprestakalls þar sem
séra Sigurður Jónsson þjónar.
Að lokum sagði séra Sigurður frá
samstarfi Þykkvabæjarsóknar og
nágrannasókn Oddakirkju. Má
nefna æskulýðs- og kórastarfið en
organistinn, Nína María Morávek,
stjórnar bæði stúlknakórnum Heklu
og sameinuðum kórum Odda- og
Þykkvabæjarkirkna.
Þrjátíu ára vígsluafmæli
Þykkvabæjarkirkju
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Við hátíðarmessu í Þykkvabæjarkirkju voru sr. Sváfnir Sveinbjarnarson,
fyrrverandi prófastur, sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi sókn-
arprestur, sr. Sigurður Jónsson, sóknarprestur, Karl Sigurbjörnsson, bisk-
up Íslands, og sr. Halldóra J. Þorvarðardóttir, prófastur.
Hella
NÝLEGA tók á annan tug skák-
manna í Taflfélagi Ólafsvíkur sig til
og færði Eygló Egilsdóttur blómvönd
sem þakklætisvott fyrir að hafa hýst
þá þegar þeir hafa komið saman á
hverjum sunnudegi sl. fimm ár til að
tefla. Hefur oft verið mikið fjör á Hót-
el Höfða þegar þessir hressu skák-
menn hafa hist þar til að gera sér
dagamun og njóta skáklistarinnar.
Eygló hefur átt og rekið Hótel
Höfða undanfarin ár en hún hverfur
nú til annarra starfa.
Skákmenn
á Ólafsvík
Morgunblaðið/ Alfons
Ólafsvík
FRAMKVÆMDIR við íbúðir fyrir
aldraða á lóð hjúkrunarheimilisins
Garðvangs í Garði hófust í fyrra-
kvöld með því að tveir eldri borgarar
tóku fyrstu skóflustunguna.
Í ávarpi við þessa athöfn rakti
Ingimundur Þ. Guðnason, oddviti
Gerðahrepps, aðdragandann að
byggingu íbúða aldraðra og undir-
búning. Sagði hann frá því að land-
eigendur hefðu gefið lóðina á árinu
1976 fyrir elliheimili í Gerðahreppi.
Bergþóra Ólafsdóttir og Ármann
Eydal, eldri borgarar sem búa í ná-
grenninu og hafa lýst áhuga á að fá
aðstöðu í nýja húsinu, tóku fyrstu
skóflustunguna og þar með hófust
framkvæmdir. Með þeim á myndinni
eru Ingimundur oddviti og Sigurður
Jónsson sveitarstjóri. Sigurður læt-
ur þess getið að á meðan athöfnin fór
fram hafi stytt upp og gert besta
veður. Eftir athöfnina hafi hins veg-
ar aftur byrjað að rigna og á himni
birtist tvöfaldur regnbogi, sem eldri
borgararnir hafi talið sýna að æðri
máttarvöld væru hliðholl þessari
framkvæmd.
Áætlað er að íbúðirnar, tíu talsins í
tveimur raðhúsum, verði tilbúnar í
nóvember á næsta ári en gengur hef-
ur verið frá samningi við Húsagerð-
ina ehf. í Keflavík um að annast
byggingu þeirra. Starfandi er bygg-
ingarnefnd skipuð þeim Ólafi Kjart-
anssyni sem er formaður, Sigurði
Ingvarssyni og Eiríki Her-
mannssyni. Hún áformar að halda
kynningarfund og auglýsa síðan eftir
umsóknum um íbúðirnar.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Tvöfaldur regnbogi
yfir íbúðum aldraðra
Garður
NEMENDUR fimmta bekkjar í
Njarðvíkurskóla fóru á dögunum
ásamt kennurum niður á höfn í
Keflavík til að skoða víkingaskipið
Íslending sem þar liggur. Ferðin
var námsferð í tengslum við sam-
félagsfræði um landnám Íslands.
Gunnar Marel Eggertsson skip-
stjóri tók á móti hópunum og sagði
frá skipinu, ferðum landnáms-
manna og þeirri för sem Íslend-
ingur fór vestur um haf á árinu
2000. Nemendur voru mjög áhuga-
samir og ánægðir með að fá að
skoða skipið.
Skoða vík-
ingaskipið
Njarðvík
HEILBRIGÐISNEFND á
Suðurnesjum og Samtök fé-
lagsmiðstöðva á Suðurnesjum
hafa ákveðið að taka upp við-
ræður um áframhaldandi sam-
vinnu um átak gegn tóbakssölu
unglinga yngri en 18 ára.
Samstarf Heilbrigðiseftirlits
Suðurnesja og SamSuð hófst á
árinu 2000 og í greinargerð sem
framkvæmdastjóri HES lagði
fyrir heilbrigðisnefndina á dög-
unum kom fram að samstarfið
hafi skilað miklum árangri.
Hlutfall staða sem seldu ung-
lingum tóbak hafi farið úr 65% í
mars árið 2000 niður í 24% í
desember sama ár. Þá veiti ný
tóbaksvarnarlög heilbrigðis-
nefnd skýra heimild til að
stöðva tóbakssölu hjá þeim sem
gerast ítrekað sekir um að selja
ungmennum tóbak og skapi
það forsendur til að ná enn
betri árangri.
Ræða sam-
eiginlegt
átak gegn
tóbakssölu
til ung-
menna
Reykjanes