Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Rúmteppi frá kr. 5.600
Z-brautir og
gluggatjöld
Faxafen 14
108 Reykjavík
sími 525 8200
Fax 525 8201
Veffang www.z.is
Netfang z@z.is
Alþjóðleg vika – fjölþjóðlegt málþing
Félagsleg staða
aldraðra er ekki
skilgreind
Félagsstarfsemieldri borgara íKópavogsbæ þykir
vera mjög blómleg og þar
hefur verið fitjað upp á
mörgu og margvíslegu
síðustu árin. Á næstunni
eru miklir hlutir á dag-
skrá, uppákomur með al-
þjóðlegum keim. Í for-
svari fyrir þá atburði er
Sigurbjörg Björgvins-
dóttir, forstöðumaður Fé-
lagsstarfs aldraðra í
Kópavogi, og svaraði hún
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins þegar
eftir því var leitað.
– Það er verið að tala
um alþjóðlega viku og
fjölþjóðlegt málþing …
„Já, Ísland er hluti af
alþjóðasamfélaginu og
Kópavogur er hluti af Ís-
landi. Í Kópavogi býr fólk
frá a.m.k. 47 þjóðlöndum. Það
fer vel á því að boða til fjöl-
þjóðlegs málþings um félagslega
stöðu aldraðra í tengslum við Al-
þjóðaviku, sem verður sett 18.
október og stendur til 24. októ-
ber. Ég veit ekki til að þing með
þessum áherslum hafi verið
haldið hérlendis áður. Íslenskt
samfélag hefur ekki skilgreint
félagslega stöðu aldraðra. Ungir
eru að mennta sig. Manndóms-
árin verða til að viðhalda stofn-
inum og sinna launavinnu. En
svo koma aldraðir. Hvaða hlut-
verk ætlar samfélagið þeim?
Málþingið verður haldið í Fé-
lagsheimilinu Gullsmára, Gull-
smára 13, í Kópavogi 22. október
og hefst klukkan 13.15. Fyrirles-
arar frá Ghana, Mexíkó, Íslandi,
Póllandi og Víetnam flytja erindi
á íslensku. Söngur frá Japan.
Umræða þingsins höfðar til
allra, lærðra og leikra. Því eru
allir boðnir velkomnir á meðan
húsrúm leyfir. Skrá þarf þátt-
töku í síma 564 5260 í síðasta
lagi fyrir hádegi 21. október og
er þátttökugjald 500 krónur.
Innifalið er kaffi og þinggögn.“
– Hvernig hefur verið staðið
að undirbúningi þingsins?
„Undirbúningur hefur verið í
samráði við starfsmann alþjóða-
viku og fræðslustjóra Alþjóða-
húss. Í byrjun september hóf
samhentur hópur eldra fólks
ásamt forstöðumanni að skipu-
leggja þingið. Þessi hópur hefur
unnið vel og er lýsandi dæmi um
að aldur skiptir ekki máli heldur
færni og heilsa.“
– Hverjar verða áherslurnar á
málþinginu?
„Áherslur þingsins verða fé-
lagsleg staða eldra fólks í mis-
munandi menningarkimum. Með
félagslegri stöðu er átt við stöðu
innan samfélagsins, stöðu innan
fjölskyldunnar, möguleikum
eldra fólks í samfélagslegum
ákvörðunum o.fl. Fé-
lagsleg staða liggur
meðal annars í við-
horfum til hópa. Við-
horfin endurspegla
virðingu sem viðkom-
andi er talinn eiga og virðing
hefur umtalsverð áhrif á hvaða
umbun er talin sanngjörn til
handa hverjum og einum.“
– Hver er tilgangurinn með
vikunni og málþinginu?
„Alþjóðaviku er ætlað að und-
irstrika að Kópavogsbær vill að
allir íbúar njóti þess að búa í
Kópavogi og að Kópavogur fái
notið hæfileika íbúanna hvort
sem þeir eru íslenskir eða er-
lendir, aldraðir eða ungir. Mál-
þinginu er ætlað að varpa ljósi á
félagslega stöðu aldraðra í ólík-
um samfélögum.“
– Þið eruð með sérlega blóm-
legt eldriborgarastarf í Kópa-
vogi, hverju má búast við að þið
takið uppá næst?
„Já, vissulega er starfsemin
blómleg. Það er fyrst og fremst
vegna þátttöku fólksins, því fé-
lagsstarf er fyrst og fremst þátt-
takendurnir. Næst á dagskrá er
fjölþjóðleg ganga frá Gjábakka
og Gullsmára að Smáralind 19.
október. Svo er dansdagur í Gjá-
bakka 24. október þar sem dans-
arar frá Jamaíka, Malaga, Bras-
ilíu og Íslandi sýna ýmsa dansa
auk þess sem flutt verður
fræðsluerindi sem heitir Dans-
inn í tímans rás. Þessi verkefni
eru einnig í tengslum við Al-
þjóðaviku. Síðan eru fjölskyldu-
dagar, Laxnessdagur og margt
fleira.
Svo get ég bætt einu við. Ég
er að byrja að vinna
svo skemmtilegt verk-
efni sem er BA-rit-
gerð mín í félagsfræði.
Verkefninu er ætlað
að skilgreina Kópa-
vogsmódelið. Hverju það hefur
skilað þátttakendum, aðstand-
endum, Kópavogsbæ, heilbrigð-
iskerfinu og fleira. Reynt verður
að koma þessari hugmynda- og
aðferðafræði í aðgengilegt fyr-
irlestrarform með ýmsum gögn-
um svo sem glærum, vettvangs-
myndum o.fl. Ég vinn þetta í
samráði við tvo öldrunarsálfræð-
inga.“
Sigurbjörg Björgvinsdóttir
Sigurbjörg Björgvinsdóttir
fæddist í Fljótum í Skagafirði 1.
nóvember 1941. Hún útskrifaðist
úr Kvennaskólanum í Reykjavík
1959 og lauk stúdentsprófi frá
öldungadeild Menntaskólans við
Hamrahlíð 1989. Stundaði nám
við félagsvísindadeild HÍ þar til
hún tók við starfi forstöðumanns
Gjábakka 1993. Forstöðumaður
Félagsstarfs aldraðra frá 1999 er
það varð sérdeild innan félags-
sviðs Kópavogsbæjar. Sigur-
björg hefur lokið mörgum nám-
skeiðum við HÍ og er nú að ljúka
jógakennaranámi. Stundaði áður
margvísleg störf innan heimilis
og utan. Eiginmaður hennar er
Haukur Hannibalsson, fyrrver-
andi starfsmaður Delta, þau eiga
fimm börn, fimm tengdabörn og
níu barnabörn.
Kópavogs-
módelið
skilgreint
Það er enginn orðinn óhultur fyrir hryðjuverkum lengur.
TJALDUR SH kom til Akureyrar í
síðustu viku með tæp 60 tonn af
frosinni grálúðu eftir tveggja vikna
veiðiferð fyrir austan og norðan
land. Aflaverðmætið er um 15 millj-
ónir króna, að sögn Gunnars Gunn-
arssonar útgerðarstjóra.
Tjaldur veiðir grálúðuna í net og
er eina skipið hérlendis sem það
gerir, að sögn Gunnars. Hann sagði
menn hafa gefist upp á að veiða
grálúðuna á línu, þar sem búrhvalir
og háhyrningar hafa jafnan hreins-
að alla beitu af línunni. „Háhyrn-
ingurinn er skæður fyrir austan og
búrhvalurinn fyrir vestan.“ Gunnar
sagði að menn hefðu því farið að
prófa netaveiðar, líkt og Norðmenn
og Færeyingar. „Það tekur tíma að
læra á þetta, hvar best sé að stunda
veiðarnar og fleira en þetta er farið
að ganga alveg ágætlega,“ sagði
Gunnar. Tjaldur hélt til veiðanna á
ný fyrir helgina.
Tjaldur
veiðir grá-
lúðu í net
Morgunblaðið/Kristján
Gunnar Gunnarsson, útgerðarstjóri Tjalds, við stæðu af frosinni grálúðu.