Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 21
VIÐSKIPTI með hlutabréf námu
681 milljón króna í Kauphöll Íslands
í gær. Mest viðskipti voru með bréf
SÍF eða fyrir rúmar 232 milljónir
króna og hækkaði gengi félagins um
11,1%, úr 4,50 í 5.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á laugardag hafa mikil við-
skipti verið að undanförnu með
hlutabréf í SÍF hf. og hafa eign-
arhlutar Fjárfestingarfélagsins
Straums hf. og S-hópsins svokallaða
aukist umtalsvert. Fyrir helgi hafði
hlutabréfaeign Straums farið úr
tæpum 5% í rúmlega 13% frá því í
lok september og er Straumur sam-
kvæmt því annar stærsti hluthafinn
í SÍF. Burðarás er sem fyrr stærst-
ur samkvæmt hluthafalista föstu-
dagsins með ríflega 14% hlut, en að
auki er tæplega 2% hlutur, sem
skráður er á Íslandsbanka, í eigu
Burðaráss og á félagið því 16% í
SÍF. Fyrirtæki og sjóðir sem tengj-
ast S-hópnum svokallaða eiga stóra
hluti í SÍF og hafa verið að auka
hlut sinn. Samvinnulífeyrissjóðurinn
hefur aukið hlut sinn úr rúmum 5%
í rúm 7% og Ker hefur aukið hlut
sinn úr rúmlega 1% í yfir 6%. Fyrir
utan Samvinnulífeyrissjóðinn og
Ker má nefna að Mundill ehf., sem
er í eigu Samskipa, á nálægt 7% í
SÍF, Framleiðendur ehf., sem er fé-
lag fyrrverandi ÍS-aðila, á svipaðan
hlut, Vátryggingafélag Íslands hf. á
rúmlega 6%, Mastur ehf., sem teng-
ist S-hópnum, á 2% og Íshaf hf.,
sem er í eigu Kers, á rúmlega 1%.
Alls eiga þau fyrirtæki sem kennd
hafa verið við S-hópinn því að
minnsta kosti 36% í SÍF.
SÍF hækkar um 11,1%
ÁREIÐANLEIKAKÖNNUN Plast-
prents hf. á lettneska plastframleið-
andanum Unifleks er lokið og hefur
samningur um kaup Plastprents hf. á
öllu hlutafé Unifleks verið endanlega
staðfestur og öllum skilyrðum samn-
ingsins hefur nú verið fullnægt. Hinn
16. september sl. var birt tilkynning
um að Plastprent hf. hefði undirritað
samning um kaup á Unifleks. Þar
kom fram að gert væri ráð fyrir að
áreiðanleikakönnun vegna kaupanna
lyki í októbermánuði og að þá yrði
endanlega gengið frá viðskiptunum.
Plastprent með 74,5%
Gengið hefur verið frá fjármögnun
vegna kaupanna og jafnframt því hef-
ur verið gengið frá endurfjármögnun
á Unifleks. Nemur heildarfjármögn-
unin 3 milljónum Bandaríkjadala, þar
af nemur fjárfesting Plastprents hf.
600 þúsund dollurum sem fjármagn-
að er af Íslandsbanka en endurfjár-
mögnun Unifleks nemur 2,4 milljón-
um Bandaríkjadala sem fjármagnað
er af lettneskum banka. Jafnframt
því hefur Plastprent hf. gert samning
við Lev Fonarev, framkvæmdastjóra
Unifleks, um kauprétt hans á 25,5%
hlut í Unifleks innan 14 daga og mun
eignarhlutur Plastprents hf. í Uni-
fleks því verða 74,5%.
Unifleks og Plastprent munu
verða rekin sem aðskilin og sjálfstæð
fyrirtæki. Unifleks er í sambærilegri
starfsemi og Plastprent, hjá því
starfa nú um 180 manns og nemur
áætluð árleg velta þess um hálfum
milljarði króna. Unifleks er með sölu-
skrifstofur í Lettlandi, Litháen og
Eistlandi.
„Það er mat stjórnenda Plast-
prents hf. að þessi fjárfesting geti
styrkt félagið á ýmsan hátt, sérstak-
lega hvað varðar útrás félagsins á er-
lenda markaði en, jafnframt getur
samstarf félaganna skapað ýmsa
hagræðingarmöguleika. Stjórnendur
Plastprents hf. gera sér þó grein fyr-
ir því að um talsverða áhættufjárfest-
ingu er að ræða þar sem viðskipta-
umhverfi í Lettlandi er töluvert
frábrugðið því sem fyrirtækið á að
venjast hérlendis. Hafa mörg vest-
ræn fyrirtæki sem stofnað hafa til at-
vinnureksturs á þessum slóðum ekki
haft árangur sem erfiði,“ segir í til-
kynningu Plastprents til Kauphallar
Íslands.
Plastprent kaupir lettn-
eska fyrirtækið Uniflex
Alcoa lækkar
Minnkandi eftirspurn og aukið
framboð áls í heiminum
matsfyrirtækið Moody’s lækkað
mat á langtímaskuldum fyrir-
tækisins í A2, með vísan í
skuldastöðuna og óhagstætt ál-
verð.
Spurningin um
útflutning Kína
Kína tók í fyrra við af Banda-
ríkjunum sem mesti álframleið-
andi í heimi og þar er annar
mesti álmarkaður heims. Aukn-
ingin frá miðju ári 2001 fram á
mitt þetta ár var 25% samkvæmt
upplýsingum frá fjármálafyrir-
tækinu Salomon Smith Barney.
Annað fjármálafyrirtæki, Bear
Stearns, segir að á árunum 2002
til 2006 geti þróunin orðið sú að
Kína hætti að vera innflytjandi
áls en verði þess í stað útflytj-
andi og eins og áður hefur verið
skýrt frá var flutt út ál frá Kína
á fyrri hluta þessa árs.
Í greininni í Financial Times
er þó einnig tekið fram að efa-
semdir séu um tölur frá Kína, en
hagtölur þaðan hafa ekki alltaf
þótt áreiðanlegar. Fram-
kvæmdastjóri Alcoa segir að fyr-
irtækið muni frekar einbeita sér
að því sem það hafi stjórn á, eins
og að draga úr kostnaði, en að
velta vöngum yfir Kína. Þeir
sem greina fyrirtæki eru hins
vegar sagðir telja spurninguna
um Kína lykilatriði fyrir Alcoa.
HLUTABRÉF í álrisanum Alcoa
hafa lækkað um nær helming á
síðustu sex mánuðum, sem er
með mestu lækkun þeirra fyr-
irtækja sem mynda hina þekktu
Dow Jones Industrial Average-
vísitölu stórra bandarískra fyr-
irtækja. Í grein í Financial Tim-
es segir að þrennt muni ráða
mestu um framhaldið hjá Alcoa;
hvort eftirspurn muni taka við
sér, hvernig fyrirtækinu gangi
að greiða af lánum vegna yf-
irtöku fyrirtækja að jafnvirði um
700 milljarða íslenskra króna og
hvort Kína verði stór útflytjandi
áls.
Í Financial Times segir að
mikilvægir markaðir Alcoa, svo
sem flugvélamarkaðurinn, hafi
hrunið, og bílamarkaðurinn gæti
einnig reynst fyrirtækinu erfið-
ur, þó aukin álnotkun í bílum
ætti að vega upp á móti minni
framleiðslu þeirra. Fram kemur
að áhyggjur séu vegna mikilla
skulda sem myndast hafi í kjöl-
far yfirtöku fyrirtækja. Alcoa sé
enn á þeim buxunum að taka yfir
önnur fyrirtæki og er tilboð um
að ná meirihluta í Elkem í Nor-
egi nefnt sem dæmi, en Elkem
hafnaði reyndar tilboðinu í síð-
ustu viku. Í greininni segir að
Alcoa hafi gengið vel að vinna úr
yfirtökum og ná arðsemi út úr
þeim, en þrátt fyrir það hafi