Morgunblaðið - 15.10.2002, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 15.10.2002, Qupperneq 30
Það er allt í lagi að vera ímenntaskóla en ég vildióska að ég gæti sofiðlengur út á morgnana,“ segir Bergvin Oddsson þegar hann er spurður að því hvernig honum líki í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Hann segir þetta í hálfkæringi eins og til að draga úr alvarleika svarsins. Því í raun er það heilmikið mál fyrir blinda og sjónskerta að stunda nám í menntaskóla. Bergvin og félagi hans, Jón Hjalti Sigurðsson, eru í fámennum hópi blindra unglinga sem stunda slíkt nám hér á landi. Því miður hafa íslensk skólayfirvöld ekki skapað blindum og sjónskertum börnum þau skilyrði í grunnskóla að þau treysti sér í menntaskóla- nám. Undanfarin tuttugu ár hafa tíu blind börn reynt við nám í menntaskóla en gefist upp. Sjón- skertum gengur betur á þessum vettvangi. Það kemur fram í máli þeirra beggja að þeim líkar vel í MH en segja námið strembið. „Það er erf- iðara fyrir okkur að vera í námi í menntaskóla en þá sem hafa fulla sjón. Samt eru gerðar svipaðar kröfur til okkar námslega. Við er- um þó ákveðnir í að ljúka mennta- skólanámi,“ segja þeir einbeittir. „Það sem gerir okkur námið mögu- legt er að við fáum mjög góða þjón- ustu í skólanum,“ segir Hjalti en hann vill nota seinna nafnið sitt. „Sem dæmi um þá þjónustu sem við fáum er að nemendur sem eru í skólanum sitja hjá okkur í einstöku tímum og taka niður minnisatriði. Nemarnir fá greitt fyrir aðstoðina. Við erum með sérkennara í þeim greinum sem við teljum okkur þurfa eins og í stærðfærði og líf- fræði. Sérstakur kennslustjóri er starfandi innan MH fyrir fatlaða en nokkur hópur þeirra sækir skól- ann. Við námið notum við hljóðbækur og tölvu með talgervli sem les upp- hátt þær skipanir sem við gefum henni, án tölvunnar gætum við ekki stundað þetta nám.“ Fékk vírus í augun Það sem gerir þeim Hjalta og Bergvin menntaskólanámið auð- veldara er að þeir fæddust báðir með góða sjón og gátu notið hennar lengst af grunnskólans. Hjalti hef- ur verið að missa sjónina smám saman undanfarin tvö ár en hann er nú með 5% sjón. Hann er með hrörnunarsjúkdóm í augnbotnum og læknar hafa ekki enn fundið hver sjúkdómurinn er nákvæm- lega, þrátt fyrir rannsóknir í eitt og hálft ár. Bergvin missti sjónina þegar hann fékk vírus í augað fyrir rúmu ári. Hann fann fyrir vírusnum fyrst sem áblástri á vör en svo barst hann í augað. „Það er mjög sjald- gæft að fólk missi sjónina við þess- ar aðstæður,“ segir hann .„Mér er sagt að ég sé fyrsti Íslendingurinn í 26 ár til að missa sjónina á þennan hátt. Líkurnar á því eru þær sömu og að vinna 7-faldan lottóvinning. Nú trúi ég því að miði sé mögu- leiki,“ bætir hann við kaldhæðnis- lega. „Þó ég sé búin að missa sjón- ina sé ég móta fyrir hlutum og skynja hreyfingu.“ „Það eru mjög fáir blindir sem sjá ekki neitt,“ skýtur Hjalti inn í. „Ég fékk þennan vírus fyrst í annað augað árið 1999 og missti þá sjónina á því auga,“ heldur Bergvin áfram frásögn sinni. „Á Sjómanna- daginn í fyrra fór ég að finna til í hinu auganu. Ég var strax lagður inn á sjúkrahús. Nokkrum dögum síðar var ég sendur á sjúkrahús í London og þar hitti ég fyrir einn færasta augnsérfræðing í heimi. Þá var ég með 60% sjón á auganu. Á mánudeginum, viku eftir að ég byrjaði að finna til í auganu, missti ég sjónina alveg af sömu ástæðu og í fyrra skiptið.“ Þrátt fyrir þessa erfiðu reynslu eru þeir Bergvin og Hjalti í góðu jafnvægi. Þeir gera að gamni sínu og segja brandara úr daglegu lífi sínu sem varpa ljósi á nýjar kring- umstæður þeirra. Þeir segja frá at- burðum sem stundum virðast óyf- irstíganlegir en alltaf klára þeir slaginn. Þeir hafa líka fengið góða aðstoð frá Blindrafélaginu og Sjón- stöð Íslands. Það sem gerir þeim lífið eflaust auðveldara er að þeir hafa góða lund og eru félagslyndir. Enginn afsláttur á busuninni Í byrjun vetrarins gengu þeir í bekki MH ásamt hreyfihömluðum strák sem er líka í skólanum til að kynna sig fyrir krökkunum og brjóta þannig ísinn eins og þeir orða það. „Þetta var frábær reynsla,“ segir Hjalti. „Umræðurn- ar og spurningarnar sem við feng- um voru mjög góðar. Við Bergvin vorum meðal annars spurðir að því hvernig við gætum vitað hvar við ættum að fara úr strætó og hvort við ætluðum að fá okkur blindra- hund og hvort við gætum ekki not- að venjulegt prik í staðinn fyrir blindrastafinn? Þeim er greinilega skemmt við þessar spurningar. „Krakkarnir í MH eru mjög fínir. Þau koma og heilsa upp á okkur og ef við erum í einhverjum vandræðum koma þau okkur til aðstoðar.“ Þeir róma félagslífið í skólanum en busavígslan var með fyrstu við- burðunum sem þeir tóku þátt í eftir að þeir byrjuðu í skólanum. Hún fór fram í skólanum sjálfum og í Öskju- hlíðinni. „Það var rok og rigning þennan dag svo við ákváðum að sleppa því að fara í gönguna upp í Öskjuhlíð. Ég var samt busaður og fékk engan afslátt á vígslunni,“ segir Bergvin hlæjandi og hefur greinilega haft gaman af, enda ætt- aður frá Vestmannaeyjum þar sem menn láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna. „Ég var látinn borða há- karl og átti að skola honum niður með mysu en einhverju ógeðslegu gumsi hafði verið blandað saman við hana. Á eftir kastaði ég þessu öllu upp. Svo var skrifað busi á enn- ið á mér. Við fengum spjald sem sett var um hálsinn á okkur og þar var merkt við hvað var búið að gera við okkur.“ „Ég var alveg látinn í friði og stóð bara með kortið autt,“ segir Hjalti. „En ég fór á ballið um kvöld- ið og það var ágætt. Á leiðinni inn á skemmtistaðinn fór fram hefð- bundin áfengisleit. Þá komu dyra- verðirnir auga á hvíta stafinn og spurðu fullir grunsemdar hvað þetta væri, tóku stafinn í sundur og athuguðu hvort þar leyndust fíkni- efni. Það var mjög sérstök lífs- reynsla. Við fórum líka í busaferðina sem var farin til að þjappa nýnemunum saman. Tvær stelpur á launum fóru með okkur í ferðina, orðaðu þetta endilega svona í blaðinu,“ segir Hjalti og bætir við að ferðalagið hafi verið frábært. Ofverndun ekki góð Það hafa þó eins og áður segir komið tímar sem hafa verið erfiðari en aðrir. Þegar Bergvin kom heim til Vestmannaeyja eftir að sjónin var farin mætti hann mikilli velvild bæjarbúa. Gengist var fyrir söfnun fyrir hann og afraksturinn fór í að kaupa ýmis hjálpartæki til að auð- velda honum lífið. Bergvin fékk líka góða aðstoð við námið. Áður en hann byrjaði í tíunda bekk kom ráðgjafi frá Blindrafélaginu til Vestmannaeyja til að fræða kenn- ara og nemendur í skólanum um hagi hans. Þetta segir hann að hafi komið sér vel. Bergvin hafði lengi æft fótbolta og handbolta en skipti yfir í frjálsar íþróttir eftir að hann varð Til að auðvelda honum a íþróttirnar áfram var honu æfingarnar. „Sjálfur var ég un á þessum tíma og sa sem voru að spyrja mig gengi“ að ég myndi fá sjón eftir nokkrar vikur. Ég reiður og hótaði að kæra fyrir læknamistök. Ég byr að nota hvíta stafinn fyrr e á þessu ári. Ég ætlaði hel að vilja skrá mig í Blindr Þetta var auðvitað allt sam Við aðstæður sem þessa flestir í gegnum tímabil þeir neita að horfast í augu reyndir. Það er einfaldlega „Ég fékk hins vegar li við námið í tíunda bekk ve að ég var ekki búin að fá ingu á mínum augnsjúkd fór sífellt versnandi,“ seg sem er fæddur og uppalin um í Hrunamannahreppi bekkurinn reyndist mér þv námslega. Þótt kennarar boðnir og búnir til að aðs voru engin úrræði í kerfin skertir virðast því miður útundan. Það er fyrst núna sem átta mig á að ég er enda missa sjónina. Ég fékk vis un vegna þess að ég hef missa sjónina smám sama virkar kannski sem þver það er viss léttir að vera bú staðfestingu á sjónleysinu. Þegar kom í ljós að é verða blindur stóðu bæjar við bakið á mér.“ „Þegar maður verður fy áfalli finnur maður hverjir í raun,“ segir Bergvin dimmir yfir svip hans. reynast vel en svo eru þ hættu að umgangast mig e varð blindur. Það versta v vera blindur er þó að þurf háður öðru fólki. Ég hef al mjög sjálfstæður og vil áfram. Við erum núna að læra hvíta stafinn, sem gerir ok veldara að ferðast um. spurning um hvað maður v Blindir þu vera sýn Dagur hvíta stafsins er í dag. Blindir til að kynna baráttumál sín. Í hópi menntaskólanemar sem hafa svo málanna að leggja. Hildur Einarsdót aðdragandann að því að þeir mis þeir hafa tekist á við kring „Við viljum vera sjálfstæð segja þeir Jón Hjalti Sigur 30 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SJÚKDÓMSVÆTT SAMFÉLAG? Jóhann Ágúst Sigurðsson, prófess-or í heimilislækningum við Há-skóla Íslands, segir í einkar at- hyglisverðu viðtali í sunnudagsblaði Morgunblaðsins að „sjúkdómsvæðing“ sé orðin áberandi fyrirbæri í vestræn- um samfélögum: „Víða er komið að þeim mörkum að ekki verður meiri fjármunum bætt í heilbrigðisþjón- ustuna og í sumum tilfellum er hún jafnvel farin að gera meiri skaða en gagn sem er alvarlegur hlutur. Skað- semin er fólgin í að valda óþarfa áhyggjum og ónauðsynlegum inngrip- um. Ef stöðugt er verið með áróður eða upplýsingar um að hætta sé á hinu og þessu þá missir fólkið smám saman trúna á sjálft sig. Heilbrigt fólk í aukn- um mæli finnur sig þannig knúið til að leita til læknis til þess að ganga úr skugga um að það sé ekki haldið til- teknum sjúkdómi,“ segir Jóhann Ágúst. Hann bendir á að heilbrigðiskerfið þenjist út og fleiri leiti til læknis en áð- ur, lyfjaneyzla hafi aukizt mikið en samt líði fólki ekkert betur og fjarvist- um frá vinnu hafi fjölgað. Prófessorinn segir sjúkdómsvæð- inguna m.a. felast í því að félags- og samskiptavandamál séu flutt yfir í heilbrigðisgeirann. Þá beinist heil- brigðisþjónustan æ meir að einkenna- lausu fólki, t.d. með skimun eða kembi- leit að hugsanlegum áhættuþáttum hjá frískum einstaklingum. Sjúkdóma segir Jóhann Ágúst m.a. „búna til“ með því að senda fjölmiðlum upplýsingar um ástand eða sjúkdóm, sem áður hafi verið ómeðhöndlaður eða lítill gaumur gefinn. Algengi ástands- ins sé magnað upp og reynt að búa til þörf, sem ekki var áður fyrir hendi, en markmiðið sé að skapa ótta hjá al- menningi. Hann átelur að fjölmiðlar og stjórnmálamenn hafi ekki verið gagn- rýnir á faglegt innihald slíkra frétta. Niðurstaðan af þessu öllu er að mati Jóhanns Ágústs að því meiri áherzla, sem lögð er á að meðhöndla fríska ein- staklinga, þeim mun meiri hætta sé á að hinir veiku komist ekki að í kerfinu. „Afleiðingarnar verða þær að heil- brigðisþjónustan stendur ekki undir væntingum sem leiðir til vaxandi krafna um þjónustu og með tímanum vaxandi óánægju meðal almennings og fagfólks,“ segir hann. Þetta eru viðhorf, sem ekki hafa ver- ið áberandi í umræðum um vanda heil- brigðiskerfisins að undanförnu en eiga þar fullt erindi þótt eflaust verði þau umdeild. Þegar fé skortir til að sinna bráðveiku fólki og biðlistar eftir að- gerðum lengjast hlýtur forgangsröð- unin í kerfinu að koma til skoðunar. Það má ekki gleyma því að þrátt fyr- ir grundvallarmikilvægi heilbrigðis- kerfisins í velferðarþjóðfélagi hefur það kerfi tilhneigingu til að viðhalda sjálfu sér rétt eins og önnur kerfi og búa sér til ný verkefni. Líkt og Jóhann Ágúst bendir á tengjast heilbrigðis- kerfinu miklir peningalegir hagsmunir lyfjaiðnaðarins, framleiðenda lækn- ingatækja, lækna og stofnana. Vanda- mál almennings og stjórnmálamanna, sem taka ákvarðanir um fjárveitingar til heilbrigðiskerfisins, er oft og tíðum að þeir, sem ekki hafa sérfræðiþekk- ingu til að bera, hafa litlar forsendur til að meta hvað er nauðsynlegt og hvað óþarfi í kerfinu. Það er brýnt að þau sjónarmið, sem Jóhann Ágúst Sigurðsson hefur sett fram, fái vandlega umfjöllun hjá heil- brigðisstarfsfólki, stjórnmálamönnum og almenningi. Við getum ekki enda- laust haldið áfram að auka fjárveiting- ar til heilbrigðiskerfisins og við viljum að það hjálpi fyrst og fremst þeim, sem þurfa raunverulega á hjálp að halda. „Sjúkdómsvæðing“ samfélagsins vinn- ur auðvitað gegn þeim markmiðum. TILRÆÐI Á BALI Atburðir síðustu daga eru skelfilegáminning um að sigur hefur ekki unnist í baráttunni gegn hryðjuverk- um. Hátt í tvö hundruð manns létu líf- ið er öflug sprengja sprakk á vinsæl- um ferðamannastað á indónesísku eyjunni Bali um helgina. Fjölmargra er enn saknað og óttast er að tala lát- inna eigi eftir að hækka umtalsvert. Flest fórnarlömbin voru ferðamenn, þar á meðal Ástralar, Svíar, Banda- ríkjamenn, Frakkar og Þjóðverjar, auk fjölda innfæddra Bali-búa. Það vekur ugg að þetta var sjöunda sprengjutilræðið í þessum heimshluta á síðastliðnum þremur vikum. Yfir- völd í Indónesíu hafa þegar lýst því yf- ir að þau telji hryðjuverkasamtökin Al-Qaeda bera ábyrgð á tilræðinu. Margt bendir til að sú sé raunin þótt einnig sé hugsanlegt að Jemaah Isl- amiyah, samtök með tengsl við Al- Qaeda, er hafa það að markmiði að stofna íslamskt ríki í Suðaustur-Asíu, hafi verið þarna að verki. Meðal þess, sem þykir renna stoð- um undir þá kenningu að Al-Qaeda tengist tilræðinu, er að daginn sem sprengjan á Bali sprakk voru ná- kvæmlega tvö ár liðin frá því er liðs- menn Al-Qaeda sprengdu bandaríska herskipið USS Cole. Upptaka sem barst í hendur fjölmiðla í síðustu viku, þar sem Ayman al Zawahri, næstæðsti leiðtogi Al-Qaeda, hótar nýjum árás- um var sömuleiðis af mörgum sér- fræðingum talin til marks um að ný hermdarverk væru í uppsiglingu. Þá virðist sem árás á franskt olíu- flutningaskip við Jemen og skotárásir á bandaríska hermenn í Kúveit tengist einnig samtökunum. Á síðustu mánuðum hefur mikið verið um það fjallað að hætta væri á að Al-Qaeda væri að ná fótfestu í Indón- esíu. Jafnt Bandaríkin, sem nágranna- ríki Indónesíu, Ástralía, Singapúr og Malasía, hafa ítrekað lýst yfir áhyggj- um af því að Indónesíustjórn skuli ekki hafa gripið til aðgerða gegn sam- tökum á borð við Jemaah Islamiyah en vitað er að margir liðsmenn þeirra fengu þjálfun í búðum Al-Qaeda í Afg- anistan. Stjórn Megawati Sukarno- putri hefur hins vegar til þessa verið hikandi við að grípa til aðgerða. Hjá því verður hins vegar ekki kom- ist lengur að Indónesíustjórn taki á þessu máli af fyllstu hörku. Það má ekki gerast að hryðjuverkamenn nái fótfestu í Suðaustur-Asíu. Slíkt gæti ógnað stöðugleika í þessum heims- hluta. Baráttan við hryðjuverk er hins vegar langt í frá einskorðuð við Suð- austur-Asíu. Al-Qaeda hafa sýnt fram á það á undanförnum vikum og mán- uðum að þau hafa enn burði til að valda usla víða um heim. Hryðjuverk eru eitthvert mesta öryggisvandamál okkar tíma og ljóst er að það mun taka langan tíma að sigrast á þeirri ófreskju sem Al-Qaeda er. Tilræðið á Bali er hins vegar til marks um hversu hættulegt það væri að slá slöku við í þeirri baráttu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.