Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 41 an og vonandi um ókomna framtíð. Þær voru ekki ófáar veislurnar sem fjölskylda mín varð aðnjótandi á glæsilegu heimili þeirra hjóna Ingu og Hanna og var það ekki síst hans frábæru eiginkonu að þakka. Þau voru höfðingjar heim að sækja. Í veru okkar í Ólafsvík, er spannaði einn ára- tug og tveimur árum betur, kom sá tími að Hanni byggði nýtt verslunar- hús og fékk ég tækifæri til að standa að byggingu þess. Öll þau samskipti sem við Hanni áttum voru fádæma góð. Við flesta stóráfanga fram- kvæmdanna var blásið til fagnaðar þar sem nágrannar, vinir og vanda- menn nutu góðs af og þá var hvergi slegið af og menn kunnu þá að njóta góðra samverustunda. Ógleymanlegar eru veiðiferðirnar sem við og vinir okkar fórum saman í Fróðá og tæki það heila bók að rifja upp þá atburði sem við upplifðum þar saman. Og alltaf var glatt á hjalla. Ég vil þakka Hanna vini mínum fyrir þá vináttu sem hann og fjöl- skylda hans sýndu mér og mínum. Börnum þeirra hjóna svo og öðrum aðstandendum bið ég blessunar Guðs. Þráinn Þorvaldsson. Við vorum systkin. Áttum sömu móðurina. En örlögin höguðu því þannig til, að við ólumst ekki upp saman, því miður.Við guldum þess bæði alla tíð, þó að við byggjum við gott atlæti, hvort á sínum stað. Heima var mynd af honum, falleg- um ljósum dreng, í matrósarfötum. Ég man að ég hugsaði oft þegar ég var lítil, hvað gaman væri að hafa bróður sinn hjá sér til þess að leika við. En leiðir okkar lágu ekki saman að neinu ráði fyrr en ég var komin á fullorðinsár. Hann kom hingað til Ólafsvíkur eftir að hafa unnið nokkur ár við verslunarrekstur í Reykjavík til þess að stofna sína eigin verslun hér. Með eljusemi og dugnaði kom hann upp versluninni Hvammi hér á staðn- um. Fljótlega fór ég að vinna hjá hon- um, og í höndum hans varð verslunin bæði stór og falleg, og þjónaði okkur Ólsurum bæði til sjós og lands í yfir 30 ár. Mamma og hann voru mjög lík, bæði í útliti og í lund. Hann var hörkuduglegur, vildi hafa allt í röð og reglu og lagði ríka áherslu á að við værum hrein og snyrtileg og sýndum kúnnunum þjónustulund. Ég var hon- um ekki alltaf sammála um vinnuað- ferðir, en hann var trúr sinni samfær- ingu og við vissum alltaf hvar við höfðum hann. Þess vegna fannst mér hann góður yfirmaður. Ég vann hjá honum í versluninni tíu ár. Það var mikill skóli sem ég hef búið að síðan. Hann var mikill höfðingi heim að sækja og hafði gaman af að veita vel, og naut þar aðstoðar sinnar ágætu konu Ingibjargar Gunnlaugsdóttur, sem bjó honum og börnum þeirra af- skaplega smekklegt og fallegt heimili. Þau urðu fyrir miklu áfalli þegar þau misstu elsta son sinn, Baldur Þór. Sjálf átti ég son á sama reki og skildi þess vegna þeim mun betur hvað sorgin var þeim öllum mikil. Enginn verður samur við svo mikið áfall. En nú er Hanni allur, en minningin lifir um bróður og vin. Blessuð sé minning hans. Bið algóðan Guð að vera með börnum hans og fjölskyldu. Ester Gunnarsdóttir. Leið mig eftir lífsins vegi, ljúfi Jesú, heim til þín. Gæfubraut að ganga ég megi, grýtt þó virðist leiðin mín Þolinmæði í þraut mér kenndu þá má koma hvað sem vill. Helgan anda af himni sendu hjartans krafti þínu fyllt. (H. B.) Kæri vinur, hvíl í friði. Megi englarnir varðveita þig. Sigrún. HINSTA KVEÐJA stundaði þessa íþrótt sér til gamans. Sundlaugarnar stundaði hann dag- lega, áður en vinnudagur hófst, og þekkti hann orðið marga sundlaug- argesti. Hann kíkti oft við hjá okkur eftir laugarferð á sunnudagsmorgni og voru þá heimsmálin rædd. Ég er þakklátur fyrir þessar heimsóknir. Vinstrimaður var hann, enda alinn upp í því andrúmslofti á Norðfirði. Hann var orðinn mikill áhugamaður um trjárækt og ræktun á landi þeirra, sem er í landi fjölskyldu okkar við Minni-Borg. Eins naut hann þess að vera í bústað sem við eigum fimm fjölskyldur saman á Laugarvatni og eigum við margar góðar minningar þaðan. Við Inga sendum Kristrúnu og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Guðmundur Jónsson. Sigurþór skákfélagi okkar er allur, aðeins 63 ára gamall. Við í klúbbnum hörmum fráfall hans, sem bar að svo óvænt og fyr- irvaralaust. Fyrir tveimur árum gekk Sigurþór til liðs við okkur fé- laga. Upphaflega stofnuðum við nokkrir vinir, þá búsettir í Þránd- heimi, þennan skákklúbb. Við til- komu Sigurþórs lifnaði klúbburinn verulega við. Hann kom á ákveðnum reglum sem farið var eftir. Nú voru vinningar skráðir og fylgst með ár- angri. Þetta var hressileg breyting, því að metnaður er líka til góðs. Hann kunni líka að taka tapi enda er það forsenda þess að vera góður skák- maður. Sigurþór tefldi strax djarflega til vinnings og jók fjölda sóknarskáka verulega. Við urðum að reyna okkur upp á nýtt og höfðum gaman af. Langoftast var Sigurþór efstur í klúbbnum og var vel að sigrinum kominn. Ekki dugði að stúdera stíl Sigurþórs, hann hélt sínu eftir sem áður. Framfarir urðu merkjanlegar hjá nokkrum klúbbfélögum og er óhætt að þakka þær framfarir Sig- urþór. Í einkalífi var Sigurþór hamingju- maður, átti góða konu sem virti skoð- anir hans og var ávallt boðin og búin að styðja hann í öllum hans áformum. Hún kunni þá einstöku list í þeirra sambúð að koma sínum tillögum há- vaðalaust á framfæri. Þau hjón voru vinmörg og oft var setinn bekkurinn á heimilinu. Þá var ýmist verið að tefla eða spila brids. Vinir barnanna og ekki síst yngsta sonarins, Stefáns Loga, voru tíðir gestir við spila- eða skákborðið. Við félagar í skákklúbbnum kveðj- um góðan mann og þökkum Sigur- þóri skemmtilega samveru. Eigin- konu og allri fjölskyldu hans vottum við innilega samúð. Mikill söknuður ríkir hjá foreldrum mínum og systk- inum við fráfall Sigurþórs. Gagn- kvæm vinátta var milli heimilanna og heimsóknir tíðar. Megi fjölskylda hans fá uppörvun og styrk við þennan mikla missi. Stefán Einarsson. Við svo óvænt og ótímabært fráfall vinar okkar Sigurþórs Sigurðssonar verður manni orðs vant og fátt um svör við lífsins ráðgátum. Það eina sem mildar áfallið eru margar og góðar samverustundir með honum og Kristrúnu föðursystur minni. Ég minnist brúðkaupsveislu þeirra sem ég, á barnsaldri, var viðstaddur ásamt foreldrum mínum og man að mér leist alveg ágætlega á eiginmann minnar kæru frænku. Mér fannst líka talsverður ljómi yfir því þegar hann, nokkru síðar, fór til Sviss og var þar við nám og störf varðandi undirbúning að starfsemi Álversins í Straumsvík. Síðar áttum við Reynir bróðir minn af og til athvarf hjá þeim í Bogahlíðinni og var ósjaldan boðið í mat eða kaffi eða spjall eða allt í senn. Til að byrja með var stundum sest að tafli, en skákirnar stóðu yfirleitt stutt yfir, – skák og mát – og þá fór ekki hjá því að kökurnar hennar Kristrún- ar væru langvænlegasti leikurinn í stöðu gestsins. Síðustu tvo áratugina höfum við Anna Björg átt margar góðar stundir með þeim hjónum, oft- ast í sumarbústaðnum á Laugar- vatni, sem við eigum saman ásamt þremur föðursystrum mínum, en líka á heimilum beggja sem og á ýmsum ferðalögum, þar sem við höfum notið ríkulega návistar þeirra og rausnar í bland við bridge, golf, veiði og veit- ingar. Við erum því rík af minningum um góðan vin og félaga, sem við þökkum um leið og við sendum Krist- rúnu, börnunum og Kiddu hlýjar ósk- ir. Samúðarkveðjur frá Reyni í Upp- sölum og Guðmundi í Kaliforníu. Stefán Magnús Böðvarsson. Okkur systkinin langar til að senda þér kveðju, kæri Sigurþór. Andlát þitt var mjög sviplegt og minnir okk- ur á hvað lífið er stutt og að við ætt- um að reyna að njóta hverrar mínútu sem við höfum hér á jörðu. Það er svo stutt síðan við Einar vorum annað- hvort bæði eða í sitt hvoru lagi að gista hjá ykkur hjónum í Bogahlíð- inni. Einsi lék sér við Sigga og við Ragnheiður lékum okkur saman og óhætt er að segja að við vorum mjög samrýnd frændsystkini. Þegar við fengum þessar sorglegu fréttir um að þú værir farinn til himnaföðurins varð okkur strax hugsað til þess hversu mikið þú fylltir líf okkar í æsku, varst mjög duglegur við að sjá okkur fyrir einhverri skemmtun t.d. spila við okkur, fara í sund og í fótbolta með strákunum. Ekki má gleyma öllum áramótun- um sem þessar tvær fjölskyldur eyddu saman, þær minningar eru okkur mjög dýrmætar. Við vitum líka að þó að sambandið á milli okkar frændsystkinanna hafi minkað eftir að við urðum eldri, þá fylgdust þið Kristrún með okkur úr fjarlægð af áhuga og væntumþykju enda áttuð þið líka mikið í okkur Sævarlandsbörnunum. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Elsku Kristrún, Ragnheiður, Siggi og Stefán Logi, við systkinin sendum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar innilegustu samúðarkveðjur og megi góður guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Ólöf Ragnheiður Einarsdóttir og Einar Einarsson. við Nýbýlaveg, Kópavogi Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ÞÓRA EIRÍKSDÓTTIR, Sléttuvegi 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtudaginn 17. október kl. 13.30. Kristín Jónsdóttir, Gylfi Guðjónsson, Jón Torfi Gylfason, Hjalti Gylfason. Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, EIRÍKS J. B. EIRÍKSSONAR fyrrverandi prentara, Blöndubakka 1, Reykjavík, fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 16. október kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlaga afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarfélög. Rósa Pálsdóttir, Eiríkur Páll Eiríksson, Guðrún Jónasdóttir, Hrafnkell Eiríksson, Sigríður Árnadóttir, Herdís Eiríksdóttir, Brynjar Eiríksson. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður míns, tengdaföður, afa og systursonar, TÓMASAR ÍSFELD, Skólavegi 25, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við Sigurjóni Ingvars- syni skipstjóra og áhöfninni á Heimaey VE, Björgunarfélaginu í Vestmannaeyjum, starfsfólki sjúkrahússins í Vest- mannaeyjum, áhöfn TF-LÍF og starfsfólki á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Stefán Ísfeld, Kristín Sveinsdóttir, Bjarki Stefánsson, Arnar Stefánsson, Hrafnhildur Tómasdóttir. Hjartans þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur og fjöskyldum okkar samúð og hlýhug við andlát og útför DAGBJARGAR ÞÓRARINSDÓTTUR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Stigahlíð 14, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun og hlýhug. Ásgeir Þ. Ásgeirsson, Guðrún Erlendsdóttir, Bjarni S. Ásgeirsson, Sigríður Friðriksdóttir, Sólveig Á. Ásgeirsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Jóhanna Steindórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir. amma og langamma, ANNA HJÁLMARSDÓTTIR, Rofabæ 47, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti föstudaginn 11. október, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 22. október kl. 13.30. Kristín Árnadóttir, Einar Esrason, Einar Árnason, Ásta Bjarnadóttir, Sigurgeir Árnason, Marnhild H. Kambsenni, Jón Örn Árnason, Jóna L. Arnardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.