Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 52
KVIKMYNDIR
52 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
DILBERT
mbl.is
SATT að segja hafði ég litla hug-
mynd um hvað biði mín er ég tölti í
haustblíðunni í Laugarásbíó til að sjá
Orange County. Vissi þó að við sögu
koma þrjú afkvæmi stórra nafna í
Hollywood; Colin Tomssonar Hanks
sem fer með aðalhlutverkið ásamt
Schuyler Sissyardóttur Spacek og
Jake, sem fetar í fótspor föður síns,
Lawrence Kasdan, sem gerði á tíma-
bili nokkrar af athyglisverðustu
myndum kvikmyndaborgarinnar
(Body Heat, The Big Chill, Silverado,
Grand Canyon). Hvarflaði að mér að
um væri að ræða enn eina heilalausa
unglingamyndina, gerða í ofanálag af
mömmustelpum og pabbastrákum.
En biðin var ekki löng eftir jákvæðum
táknum því bæði byrjar myndin á
bráðskemmtilegu atriði og brúnin
léttist enn frekar þegar titlarnir
runnu yfir tjaldið og í ljós kom að eng-
inn annar en Mike White skrifar
handritið. Þá geta menn verið vissir
um óvænt, fyndin og frumleg efnis-
tök.
White átti handritið að Chuck and
Buck, einum af óvæntustu glaðning-
um síðustu Kvikmyndahátíðar. Þar
fjallaði hann á kíminn og manneskju-
legan hátt um flóknar unglingaástir,
sama er uppi á teningnum í Orange
County en að þessu sinni eru ung-
mennin gagnkynhneigð.
Aðalpersónan er Shaun Brumder
(Colin Hanks), skynsamur strákur í
strandbæ í Kaliforníu. Hann er að
ljúka menntaskólanámi en eyðir meiri
tíma á brimbrettum með galgopunum
vinum sínum en við námið. Uns hann
sér framtíðina ljúkast upp í líki skáld-
sögu í fjörusandinum sem hrífur hann
og hvetur til dáða. Shaun ákveður að
gerast rithöfundur, leggur brettinu
og sest við skriftir þrátt fyrir úrtölur
þöngulhausanna vina sinna og dæma-
laust dáðlausrar fjölskyldu en hvattur
af Ashley (Schuyler Fisk), kærust-
unni. Svo Shaun mannar sig í að
skrifa höfundi bókarinnar, Marecus
Skinner, söguprófessor við Stanford-
háskólann, og sækir um nám við
þessa virtu menntastofnun því hann
telur sig verða að yfirgefa krumma-
skuðið ef hann eigi að ná árangri á rit-
höfundarferlinum.
Ekki tekst betur til en svo að skóla-
ráðgjafinn (Lily Tomlin) í Orange
County sendir háskólanum einkunnir
eins aulans og illa horfir fyrir skáldi
framtíðar. Leggjast nú allir á eitt;
kærastan, dóphausinn Lance (Jack
Black), bróðir hans og léttrugluð
móðirin (Catherine O’Hara), en í sem
skemmstu máli gera fæstir nokkuð af
viti og nánast rústa framtíðaráform-
um Shauns. Sem kemst þó eitt af-
drifaríkt kvöld til Stanford og kynnist
Skinner, sem hefur lesið handritið og
hvetur unga manninn til dáða og
bendir á að menn geta bjargað sér
hvar sem er ef viljinn er fyrir hendi.
Sjálfsagt er að flokka Orange
County undir „unglingamynd“, þótt
hún eigi fátt skylt með þeim aragrúa
aulamynda sem almennt falla undir
skilgreininguna. Kostirnir eru snjöll
þroskasaga sem heldur dampi frá
upphafi uns White lokar atburða-
rásinni á rökréttu og naglföstu loka-
atriði. Framvindan er þétt, hlýleg,
vitsmunaleg og bráðfyndin í senn. Að-
al- sem aukapersónurnar óvenjulit-
ríkar og vel leiknar af betur saman
settum og hressilegri leikhópi en sést
hefur lengi. Persónurnar skiptast í þá
sárafáu sem eru færir til þess að
styðja við bakið á pilti, sem er fyrst og
fremst kærastan, sem Schuyler leik-
ur af af næmi, og rugludallana, ut-
angátta vini og brettafélaga. Þar fer
Lance bróðir hans í fararbroddi, sem
Jack Black, einn besti gamanleikari af
yngri kynslóðinni, gerir óborganleg
skil í hverju drepfyndnu atriði á eftir
öðru. Þá er O’Hara, lítið þekkt leik-
kona (en kemur svo kunnuglega fyrir
sjónir að maður er helst á því að hún
eigi tvífara hér uppi á klakanum),
hreint afbragð sem ölkær móðir pilt-
anna með gaskennt heilabú.
Hverri stórstjörnunni á fætur ann-
arri bregður fyrir í vel skrifuðum
aukahlutverkum, sem gerir þau enn
magnaðri og mikilsverðari; John Lit-
hgow, Lily Tomlin, Harold Ramis,
Kevin Kline, Gary Marshall, Chevy
Chase, Mike White, jafnvel Ben Still-
er bregður alls óvænt fyrir. Allt þetta
frábæra fólk tryggir óvenju notalega
skemmtun og Colin og Schuyler valda
ekki vonbrigðum heldur, bæði njóta
góðs af ofgnótt hæfileika sinna mikils-
metnu foreldra og Jake Kasdan getur
orðið föðurbetrungur ef hann hefur
betra úthald en karl faðir hans.
Tvísýn bíóferð varð því fyrsta
flokks skemmtun. Bráðfyndin sýn á
breiðan og marglitan hóp persóna,
sem líkt og atburðarásin nýtur
ómældra hæfileika White sem er að
þessu sinni hlýr, „streit“, mannlegur
og skemmtilega kvikindislegur. Sum
atriðin minna á Capra, önnur á Farr-
elly-bræður. Óhætt að hvetja alla ald-
urshópa að drífa sig í Laugarásinn og
njóta þeirrar óvenjuheilsteyptu
skemmtunar sem skilur við mann í
ósviknu sólskinsskapi.
Heima er best
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó
Leikstjóri: Jake Kasdan. Handrit: Mike
White. Kvikmyndatökustjóri: Greg
Gardner. Tónlist: Michael Andrews. Aðal-
leikendur: Colin Hanks, Jack Black,
Schuyler Fisk, Catherine O’Hara, John
Lithgow, Lily Tomlin, Harold Ramis, Kevin
Kline, Gary Marshall, Chevy Chase, Mike
White, Ben Stiller. Sýningartími: 90 mín.
Paramount. Bandaríkin 2002.
ORANGE COUNTY Jack Black gerir hlutverki sínu í
Orange County „óborganleg skil í
hverju drepfyndnu atriðinu á eftir
öðru“.
Sæbjörn Valdimarsson
ÞEIR sem muna Sleeping With
the Enemy geta sparað sér ferð á
Enough. En þar sem meðalaldur bíó-
gesta er einhvers staðar í kringum
tvítugt þarf nýja myndin hennar
Jennifer Lopez sjálfsagt ekki að líða
aðsóknarlega fyrir eftiröpunina.
Enough þjáist hinsvegar af
hugmyndasnauðu handriti sem end-
ar í algjöru skipbroti heilbrigðrar
skynsemi; flatri leikstjórn frá hendi
hins mistæka Michaels Apted (Coal
Miner’s Daughter, Extreme Meas-
ures) og síðast en ekki síst er leik-
urinn slæmur.
Slim (Lopez) er gengilbeina sem
fellur kylliflöt fyrir Mitch (Bill
Campbell), og fyrr en varir eru þau
búin að láta pússa sig saman. Allt
gengur einsog í draumi. Ofaná glæsi-
mennskuna reynist Mitch forríkur
og þau eignast dótturina Gracie
(Tessa Allen). Því miður er þjófur í
Paradís. Mitch er nefnilega snar-
geggjað varmenni inn við beinið en
það kemur ekki í ljós fyrr en að
nokkrum árum liðnum og lýsir sér
fyrst í ótryggð. Það er aðeins upp-
hafið. Síðan hefst andlegt og líkam-
legt heimilisofbeldi, Slim stingur
kauða af ásamt dótturinni og þær
fara huldu höfði um landið. Mitch er
vanur að fá það sem hann vill svo
fröken Slim grípur til örþrifaráða
þegar henni er ljóst að þær mæðgur
geta hvergi falist fyrir illyrminu.
Það vantar spennuna og þegar
hún loks er mælanleg í lokaatriðinu
þá skaðar hana fljótfærnisleg at-
burðarás þegar konan úr Sleeping...
fer skyndilega að líkjast karakter-
unum sem Stallone, Schwarzen-
egger og félagar eru jafnan orðaðir
við. Enginn heilvita maður fer fram á
trúverðugleika í myndum sem þess-
ari en fásinnan má ekki kæfa tak-
markaða vitglóruna og götin mega
ekki vera það stór að myndirnar
hreinlega leki niður um þau.
Í lokaatriði Enough bregður
Jennifer Lopez sér skyndilega í skó
Stallone og Schwarzenegger að
sögn Sæbjörns Valdimarssonar.
Rocky og óvinurinn
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Michael Apted. Handrit:
Nicholas Kazan. Kvikmyndatökustjóri:
Rogier Stoffers. Tónlist: David Arnold.
Aðalleikendur: Jennifer Lopez, Bill Camp-
bell, Tessa Allen, Juliette Lewis, Noah
Wyle, Fred Ward. 115 mín. Columbia.
Bandaríkin 2002.
ENOUGH Sæbjörn Valdimarsson
ÁSKRIFTARKORT VERTU MEÐ Í VETUR
7 sýningar á 10.500 og ýmis fríðindi innifalin.
10 miða kort á 16.400. Frjáls notkun
Nýja sviðið - Komið á kortið! 4 miðar á 6.000
Stóra svið
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Frumsýning fö 25/10 kl 20 - UPPSELT
2. sýn su 27/10 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 20. okt kl 14, Su 27. okt kl 14
KRYDDLEGIN HJÖRTU
e. Laura Esquivel
Lau 19. okt kl 20 Lau 26. okt kl 20
ATH: Fáar sýningar eftir
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Fö 18/10 kl. 20, Lau 19/10 kl. 20,
Fi 24/10 kl 20, Fö 25/10 kl 20, Lau 26/10 kl 20
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorvald Þorsteinsson
Su 20/10 kl 20, Síðasta sýning
15:15 TÓNLEIKAR
Lau 19/10 Karólína Eiríksdóttir - CAPUT
Nýja sviðið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fö 18. okt kl. 20 - Aukasýning
Fi 24/10 kl 20 - Næst síðasta sýning
Fi 31/10 kl 20 - Síðasta sýning
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Lau 19/10 kl. 21 Örfá sæti
Lau 19/10 kl. 23 Aukasýning Uppselt
Sun20/10 kl. 21 Örfá sæti
Mið23/10 kl. 21 Aukasýning Uppselt
Fim24/10 kl. 21 Örfá sæti
Sun27/10 kl. 21 Uppselt
Fös 1/11 kl. 21 Uppselt
Fös 1/11 kl. 23 Laus sæti
Lau 2/11 kl. 21 Uppselt
Lau 2/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Fös 8/11 kl. 21 Uppselt
Fös 8/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Lau 9/11 kl. 21 Uppselt
Lau 9/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Fös 15/11 kl. 21 Laus sæti
Lau 16/11 kl. 21 Laus sæti
Fös 22/11 kl. 21 Laus sæti
Grettissaga
föstudags- og laugardagskvöld
Grettissaga
saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu
fös 18. okt. kl. 20, lau 19. okt. kl. 20, fös 25. okt. kl. 20, lau 26. okt. kl. 20, fös
1. nóv. kl. 20, lau 2. nóv. kl. 20
Sellófon
eftir Björk Jakobsdóttur
þri 15. okt. uppselt, mið 16. okt, uppselt, fim 17. okt. uppselt, sun 20 okt. uppselt,
þri 22. okt. uppselt, mið 23. okt. uppselt, sun 27. okt. uppselt, þri 29. okt. uppselt,
mið 30. okt. uppselt, sun. 3. nóv. uppselt, mið. 6. nóv. nokkur sæti, sun 10. nóv.
örfá sæti.
Hamlet
eftir William Shakespeare.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
Sýn. lau. 19. okt. kl. 19 uppselt
Aukasýningar fös. 25. okt. kl. 20
nokkur sæti
lau. 2. nóv. kl. 19 laus sæti
lau. 9. nóv. kl. 19 laus sæti
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is
í Loftkastalanum kl. 20
Miðasala:
552 3000
„Sprenghlægileg“
„drepfyndin“
„frábær skemmtun“
sun. 13
kl. 20,fös. 18/10
Miðnætursýning
kl. 23,
lokasýning