Morgunblaðið - 30.10.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Bæjarar úr leik
í Meistaradeildinni / B4
Rússar skelltu Íslendingum
á Heimsbikarmótinu / B1
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag www.mb l . i s
Morgunblaðinu
í dag fylgir
tímaritið Lifun.
Tímaritinu
verður dreift
um allt land.
Morgunblaðinu
í dag fylgir
auglýsingablað
stúdenta.
Tímaritinu
verður dreift
um allt land.
sem ekki sé hægt að sinna þeim
vegna þess að kvótinn sé að klárast
þótt öll aðstaða og mannafli séu fyrir
hendi til þess að koma fólkinu til
heilsu á ný.
Magnús segir að þetta ástand ýti
undir svokallaða utankvótamóttöku,
þ.e. margir þeirra sjúklinga sem sjái
fram á það að bíða þrjá mánuði eftir
viðtali og skoðun kjósi að fá hana
miklu fyrr og greiða sjálfir fyrir hana
án þátttöku Tryggingastofnunar.
Þannig séu menn í reynd að koma á
tvöföldu kerfi í heilbrigðisþjónust-
unni sem sé alveg þvert á yfirlýst
markmið stjórnvalda.
Magnús segir að núverandi kerfi
með persónulegum afslætti sé til þess
fallið að drepa niður afköst: „Menn
eru komnir í um það bil hálfa vinnu
þegar þeir þurfa að veita 13% afslátt,
þegar menn eru farnir að nálgast
fulla vinnu er afslátturinn kominn í
25% og svo í rúmlega fullri vinnu
ÞAÐ ER víðar en hjá barnalækna-
vaktinni sem draga þarf úr þjónustu
við sjúklinga vegna þess að eininga-
kvóti ársins er uppurinn eða stefnir í
það. Svipað ástand ríkir nú hjá bækl-
unarlæknum á læknastöðinni í Álfta-
mýri en þar eru læknar komnir í þá
stöðu að þurfa að draga verulega úr
þjónustu, setja menn á biðlista eða
taka utan kvóta þá sjúklinga sem ekki
vilja bíða en þá greiða sjúklingar
sjálfir fyrir þjónustuna án þátttöku
Tryggingastofnunar.
Margir af þeim sjúklingum sem
bæklunarlæknarnir gera aðgerðir á
eru óvinnufærir og nýtast því ekki
þjóðfélaginu á meðan þeir bíða eftir
lækisþjónustu.
Magnús Páll Albertsson, handa-
skurðlæknir á læknastöðinni í Álfta-
mýri, segir blasa við að lítil hag-
kvæmni sé í því fyrir þjóðfélagið að
vísa sjúklingum frá eða láta þá bíða
aukalega í einn til þrjá mánuði þar
lenda menn í 80% afslætti og þá er
læknirinn í raun farinn að greiða fyrir
að þjónusta sjúklingana.“
Kvótinn óháður starfshlutfalli
Magnús segir að kvótinn sé alger-
lega óháður því hvort menn eru í fullu
starfi á eigin stofum, eins og margir
læknanna í Álftamýrinni, eða aðeins í
hlutastarfi meðfram störfum á spítöl-
unum. „Það eru því allir settir undir
sama hatt og við erum ekki mjög sátt-
ir við það svo ekki sé dýpra í árinni
tekið.
Það er síðan heildarkvóti á bækl-
unarlækna, líkt og á barnalæknavakt-
inni, þannig að við erum í alveg ná-
kvæmlega sömu sporum og þeir.“
Magnús segir að heildarkvótinn sé
ákveðinn af Tryggingastofnun og
stofnunin segi að miðað við það sem
liðið er af árinu stefni í að menn fari
fram úr heildarkvótanum og því séu
skorin 5% af kvótanum næstu fjóra
mánuðina. „Við neyðumst því til þess
að draga saman umsvifin. Þetta geng-
ur jafnt yfir alla bæklunarlækna, það
er því klippt sama prósenta af öllum,
hvort sem þeir eru inni á spítala eða í
fullri vinnu á stofu úti í bæ.“
Magnús segir að aðrar stofnanir
geti ekki sinnt þeim sjúklingum sem
læknar í Álftamýrinni þurfi mögulega
að vísa frá. „Við erum í bæklunarað-
gerðum og það er enginn annar stað-
ur sem kemst nálægt okkur í afköst-
um, við gerum á fjórða þúsund
aðgerðir á ári og það er auðvitað eng-
inn staður í kerfinu sem getur hýst
þann fjölda.“
Magnús segir að fjórir eða fimm af
bæklunarlæknunum og tveir svæf-
ingarlæknar vinni alfarið á stofunni
og hvergi annars en hinir séu í mis-
mikilli vinnu á spítölunum. En það er
sama kvóti á okkur, alveg burt séð frá
því hvort við störfum 150%, 100% eða
60% á stofunni.“
Bæklunarlæknar þurfa að draga úr þjónustu vegna erfiðrar „kvótastöðu“
Ýtir undir „utankvóta-
þjónustu“ hjá læknum
LEIKIRNIR breytast með breyttum
árstíðum og þeir sem stunda ísknatt-
leik og skautahlaup kætast þegar
vötnin leggur í fyrstu frostunum.
Þessir drengir voru að leikjum í
fjúkinu á Rauðavatni og eltu pökkinn
með knatttré í höndum – vonandi
stilltari í skapinu en Egill forðum.Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vetrar-
leikir
VETURINN minnti rækilega á sig
í gærdag í Reykjavík og nágrenni
með hálku og fjölda umferðar-
óhappa í kjölfarið. Aðeins minni-
háttar meiðsl urðu á fólki en eigna-
tjón var töluvert og í einhverjum
tilvikum þurfti að draga bíla af slys-
stað.
Í höfuðborginni var tilkynnt um
23 árekstra til lögreglu í gær og má
rekja marga þeirra til hálku.
Í Kópavogi urðu sjö umferðar-
óhöpp frá því í gærmorgun og þar
til kl. 21 í gærkvöldi. Í Hafnarfirði
urðu þau fimm. Í einu tilviki var
maður fluttur á slysadeild en um
minniháttar höfuðáverka reyndist
að ræða. Landsbyggðin slapp ekki
alveg við umferðaróhöpp sem rekja
má til hálku. Tveir bílar fóru út af á
Reykjanesi í gær. Annar um kl. 17 á
Grindavíkurvegi og hinn um kl. 9 á
Garðvegi og valt sá. Minniháttar
slys urðu á ökumönnunum sem voru
einir í bílum sínum. Bílarnir
skemmdust hins vegar töluvert.
Fyrsti vetrardagur var síðastlið-
inn laugardag og ætlar Vetur kon-
ungur því greinilega ekki að láta
bíða eftir sér að þessu sinni. Það er
hins vegar ekki fyrr en á föstudag-
inn, 1. nóvember, sem eigendur bif-
reiða mega setja nagladekkin undir.
Fjöldi óhappa í hálkunni
76 ÁRA karlmaður, sem fannst slas-
aður í fjörunni við Borgarnes í gær-
morgun, lést á Sjúkrahúsinu á Akra-
nesi um hádegisbil í gær. Lögregla
telur ljóst að maðurinn hafi hrasað og
fallið um fimm metra niður í fjöruna
þar sem hann fannst.
Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi
höfðu aðstandendur mannsins sam-
band við lögreglu á áttunda tímanum í
gærmorgun og óskuðu eftir því að
lögregla grennslaðist fyrir um hann.
Síðast var þá vitað um ferðir hans
skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt en
hann var þá á gangi um Borgarnes.
Þegar maðurinn fannst ekki var kall-
að á björgunarsveitir Slysavarna-
félagsins Landsbjargar um klukkan
9.30. Valgeir Elíasson, upplýsinga-
fulltrúi Landsbjargar, segir að Björg-
unarsveitin Brák hafi þegar hafið leit
innanbæjar auk þess sem björgunar-
sveitarmenn fóru á slöngubáti með-
fram strandlengjunni.
Erfið leitarskilyrði
Um hálftíma síðar fundu þeir
manninn í fjörunni neðan við Böðv-
arsgötu, á austanverðu Borgarnesi.
Var hann mjög kaldur og slasaður
þegar að var komið. Mikil hálka var í
fjörunni og áttu björgunarsveitar-
menn í erfiðleikum með að fóta sig og
tók þá talsverðan tíma að koma
manninum upp úr fjörunni þar sem
yfir flughála kletta var að fara. Mað-
urinn var fluttur á Sjúkrahúsið á
Akranesi þar sem hann lést stuttu
síðar. Hann lætur eftir sig eiginkonu
og uppkomin börn.
Karlmaður fannst kaldur og
meiddur í fjörunni við Borgarnes
Lést á sjúkra-
húsi stuttu síðar
LIÐ Englands sigraði lið Ís-
lands með minnsta mögulega
mun, 2½-1½, í fjórðu umferð Ól-
ympíumótsins í Bled í Slóveníu í
gær en þess ber að geta að Eng-
lendingar eru með sjötta sterk-
asta lið mótsins en lið Íslands er
í 43. sæti. Hannes Hlífar Stef-
ánsson (2.566) gerði sér lítið fyr-
ir og sigraði fjórða stigahæsta
skákmann heims, Michael
Adams (2.745) á 1. borði og mun
þetta vera næststigahæsti skák-
maður sem Íslendingur hefur
sigrað.
Önnur úrslit urðu þau að Nig-
el Short vann Helga Áss Grét-
arsson, Helgi Ólafsson og
Jonathan Speelman gerðu jafn-
tefli en Luke. McShane vann
Þröst Þórhallsson. Íslensku
stúlkurnar töpuðu 1-2 fyrir
Tyrkjum. Harpa vann örugg-
lega á fyrsta borði, en Aldís Rún
og Anna Björg töpuðu.
Íslenska karlaliðið er nú með
níu vinninga af sextán mögu-
legum og mæta Egyptum í dag
en stúlkurnar tefla við frænkur
sínar í Noregi.
Bragi Kristjánsson liðsstjóri
segir að íslenska liðið hafi ekki
haft lánið með sér gegn Eng-
lendingunum, Þröstur og Helgi
Áss hafi báðir leikið mjög illa af
sér. „Við erum óánægðir með að
hafa tapað gegn Englendingum
og raunar einnig gegn Armen-
um þótt auðvitað verði að horfa
til þess að þessar þjóðir eru með
gríðarlega sterk lið. Íslenska
sveitin hefur teflt og barist mjög
vel en það hefur svona rétt vant-
að herslumuninn.“
Hannes
lagði
Adams
Ólympíuskákmótið