Morgunblaðið - 30.10.2002, Side 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 23
RITIÐ Ísland á 20. öld er komið út
hjá Sögufélaginu. Bókin er tæpar
600 síður og er hún fyrsta yfirlits-
ritið í samfelldu máli um Íslands-
sögu nýliðinnar aldar. Í bókinni er
rakin saga þjóðar og samfélags og
sú gjörbreyting sem varð á högum
Íslendinga á 20. öldinni.
Sögufélagið kynnti ritið form-
lega í húsnæði félagsins við Fisch-
ersund en með útgáfunni minnist
félagið m.a. 100 ára afmælis síns.
Höfundur bókarinnar er Helgi
Skúli Kjartansson sagnfræðingur
og greinir hann þar frá merk-
isatburðum í sögu þjóðarinnar. Þar
er sjónarhornið vítt, fjallað er um
sögu stjórnkerfis og stjórnmála,
stefnur, flokka, forvígismenn og
viðfangsefni þeirra á hverjum tíma.
Rakin er saga efnahagslífs og at-
vinnuvega, einkum landbúnaðar og
sjávarútvegs. Fjallað er um lífskjör
og lifnaðarhætti, samskipti kynja,
stéttir og stöðuhópa, æsku og elli,
fjölskyldu, heimili og vinnustaði,
menntun, menningu, félagshreyf-
ingar og hugmyndastrauma.
Bókin er að sögn útgefenda hugs-
uð sem aðgengilegt yfirlitsrit fyrir
almenning sem jafnframt byggist á
nýjustu rannsóknum í sagnfræði.
Þar kveður að mörgu leyti við nýj-
an tón í sagnfræðilegri nálgun við
sögu 20. aldarinnar á Íslandi. Legg-
ur höfundur þar ekki síst áherslu á
að greina þróunarlínur í framvindu
sögunnar og heildareinkenni tíma-
bila, jafnframt því sem athyglinni
er mjög beint að tengslum Íslands
við umheiminn og farvegum áhrifa
umheims á þá nútímavæðingu sem
átti sér stað á Íslandi á nýliðinni
öld. Höfundur bókarinnar segist
ekki fylgja neinni ákveðinni fræða-
stefnu, þó svo að hann taki mið af
samtímastraumum í ritun sam-
tímasögu. „Ég hefði skrifað allt
aðra bók fyrir 15 eða 20 árum. Nú-
tíminn hefur nefnilega breyst svo
ört og gerir það söguna ennþá
meira spennandi. Hann hefur fært
manni ný sjónarhorn í smáu og
stóru, og leggur auðvitað mark á þá
sýn sem maður hefur á fortíð og
samtíð. Þessi Íslandssaga er tví-
mælalaust opnari en sú sem maður
hefði skrifað fyrir einhverjum ára-
tugum. Hún er skrifuð á tímum
hnattvæðingar og þróunar sem Ís-
lendingar eru samstiga í með öðr-
um þjóðum. Þetta samspil við um-
heiminn er sá veruleiki sem orðinn
er hvað mikilvægastur til skilnings
á nútímanum og kallar hann á að
fortíðin sé skýrð frá þeim sjón-
arhornum,“ segir Helgi Skúli.
Í ritstjórn bókarinnar sitja Guð-
mundur Jónsson, Guðjón Frið-
riksson og Gunnar Karlsson. Mynd-
ritstjórar eru Jóhann B. Jónsson og
Karólína Stefánsdóttir. Í bókinni
eru hundruð ljósmynda sem marg-
ar eru áður óbirtar. Þá eru í bók-
inni skrár og yfirlit. Ritið er sniðið
að ytri gerð að ritinu Íslandssaga til
okkar daga eftir Björn Þor-
steinsson og Bergstein Jónsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfundur, ritstjórar og útgefendur bókarinnar hjá Sögufélaginu: f.v.
Gunnar Karlsson, Guðmundur Jónsson, Loftur Guttormsson, Ragnheiður
Kristjánsdóttir, Ragnheiður Þorláksdóttir og Helgi Skúli Kjartansson.
Ný sjónarhorn í
smáu og stóru
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060