Morgunblaðið - 30.10.2002, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 27
Páll Magnússon aðstoðarmaður
viðskiptaráðherra, Una María Ósk-
arsdóttir uppeldis- og menntunar-
fræðingur, Egill Arnar Sigurþórs-
son nemi, Hildur Helga Gísladóttir
og Gestur Valgarðsson verkfræð-
ingur.
Framsóknarmenn í Reykjavík
áforma að halda kjördæmisþing í
kvöld þar sem fyrirhugað er að
taka ákvörðun um fyrirkomulag við
uppstillingu á framboðslista flokks-
ins. Alþingismennirnir Halldór Ás-
grímsson, Jónína Bjartmarz og
Ólafur Örn Haraldsson hafa lýst yf-
ir framboði í Reykjavík.
Í Norðvesturkjördæmi ætlar
Framsóknarflokkurinn að viðhafa
sömu aðferð og notuð var í Suðvest-
urkjördæmi, þ.e. að kjósa milli
frambjóðenda á tvöföldu kjördæm-
isþingi. Kosning fer fram 16. nóv-
ember. Átta bjóða sig fram, Árni
Gunnarsson framkvæmdastjói, El-
ín Líndal bóndi, Herdís Sæmund-
ardóttir framhaldsskólakennari,
Kristinn H. Gunnarsson alþingis-
maður, Magnús Stefánsson alþing-
ismaður, Páll Pétursson alþingis-
maður, Ragna Ívarsdóttir og
Þorvaldur T. Jónsson bóndi og bæj-
arfulltrúi.
Framsóknarflokkurinn í Norð-
austurkjördæmi hefur boðað til
tvöfalds kjördæmisþings 11. jan-
úar, en þar verður kosið milli fram-
bjóðenda. Framboðsfrestur rennur
út 1. desember nk. Þegar hafa fjór-
ir lýst yfir framboði, Birkir Jón
Jónsson, aðstoðarmaður félags-
málaráðherra, Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra, Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra og Þórarinn Sveinsson
fráfarandi formaður kjördæmis-
sambandsins.
Í Suðurkjördæmi verða efstu
menn á lista Framsóknarflokksins
kosnir á kjördæmisþingi sem fram
fer í janúar. Þrír alþingismenn hafa
gefið kost á sér, Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra, Hjálmar
Árnason og Ísólfur Gylfi Pálmason.
Vinstrihreyfingin
með uppstillingu
Flest bendir til þess að Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð mun
ekki viðhafa prófkjör í neinu kjör-
dæmi. Þegar hefur verið ákveðið að
viðhafa uppstillingu í Suðvestur-
kjördæmi, í Norðausturkjördæmi
og í Suðurkjördæmi. Í Reykjavík
voru framboðsmál til umfjöllunar á
fundi í gærkvöldi. Flokkurinn
stefnir að því að ljúka uppstillingu á
lista í öllum kjördæmum fyrir ára-
mót.
Allir þingmenn Vinstrihreyfing-
arinnar, Jón Bjarnason, Kolbrún
Halldórsdóttir, Steingrímur J. Sig-
fússon, Þuríður Backman og Ög-
mundur Jónasson, óska eftir endur-
kjöri.
Frjálslyndi flokkurinn er að
hefja undirbúning framboðs
Frjálslyndi flokkurinn er að
hefja undirbúning að framboðsmál-
um. Flokkurinn verður með sam-
ráðsfund 9. nóvember þar sem
framboðsmál verða til umræðu.
Ljóst er að viðhöfð verður uppstill-
ing í öllum kjördæmum, en ólíklegt
er að framboðslistar verði kynntir
fyrr en um áramót. Sverrir Her-
mannsson, formaður flokksins,
sækist ekki eftir endurkjöri, en
Margrét Sverrisdóttir, varaþing-
maður, ætlar að bjóða sig fram í
Reykjavík. Þá mun Guðjón Arnar
Kristjánsson alþingismaður bjóða
sig fram í Norðvesturkjördæmi.
Í Suðurkjördæmi eru átta í kjöri,
en þau eru Björgvin G. Sigurðsson
varaþingmaður, Jóhann Geirdal
bæjarfulltrúi, Jón Gunnarsson
framkvæmdastjóri, Lúðvík Berg-
vinsson alþingismaður, Margrét
Frímannsdóttir alþingismaður,
Sigríður Jóhannesdóttir alþingis-
maður, Unnur Kristjánsdóttir
kennari og séra Önundur Björns-
son sóknarprestur.
Í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjördæmi eru ellefu í
kjöri en þau eru Ásgeir Friðgeirs-
son blaðamaður, Bragi J. Sigur-
vinsson, Guðmundur Árni Stefáns-
son alþingismaður, Jón Kr.
Óskarsson, Jónas Sigurðsson,
Katrín Júlíusdóttir, Rannveig Guð-
mundsdóttir alþingismaður, Stefán
Bergmann dósent, Valdimar Leó
Friðriksson, Þorlákur Oddsson,
Þórunn Sveinbjarnardóttir alþing-
ismaður.
Framsóknarmenn láta kjósa
á kjördæmisþingum
Nokkuð misjafnt er hversu langt
framsóknarmenn eru komnir í und-
irbúningi á vali á framboðslistum í
einstökum kjördæmum. Í einu
kjördæmi, Suðvesturkjördæmi, er
búið að velja menn í efstu sæti, en
það var gert á tvöföldu kjördæm-
isþingi sem haldið var um síðustu
helgi. Í sex efstu sætum verða Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðherra,
a tilkynnt
uðurkjör-
vember. Í
örskránni
Reykjavík
fylkingar-
n fram á
sameigin-
k, en þar
ru Ágúst
anemi og
ra jafnað-
iður Jó-
ur, Birgir
ri, Bryn-
gismaður,
alþingis-
dsson ráð-
raborgar-
ðarsdóttir
Magnús-
anna Sig-
r, Mörður
ur, Sigrún
tónlistar-
héðinsson
eru sjö í
ecil Har-
ðarson al-
Möller al-
ánsdóttir,
sjúkraliði,
ennari og
ögmaður.
listans.
!
!
&'
ófkjör
haldin
mber
Morgunblaðið/Sverrir
kassa í alþingiskosningunum 1999.
efni. Tilboðið stendur skólunum til
boða, þeim að kostnaðarlausu, og
er ætlað að auka áhuga nemenda á
raungreinum.
Að verkefninu standa, auk
RALA, Hafrannsóknastofnun, Iðn-
tæknistofnun, Náttúrufræðistofn-
un, Orkustofnun, Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins, Veðurstofa
Íslands og Veiðimálastofnun.
frá október til desember og ber
heitið: Vísindamaður að láni. Verk-
efnið er haldið í tengslum við Vís-
indadaga 2002 sem fram fara í skól-
um, fyrirtækjum og stofnunum
víðsvegar um landið 1.–11. nóv-
ember nk. Unglingadeildir grunn-
skóla geta valið um fimmtán vís-
indamenn sem koma í skólann og
varpa ljósi á afmarkað viðfangs-
NEMENDUR í níundabekk í náttúrufræðivalií Laugalækjarskólabrugðu sér í gervi vís-
indamanna í kennslustund í fyrra-
dag þegar þau rannsökuðu rót lúp-
ínunnar og fræddust um
næringarþörf hennar. Krakkarnir
nutu aðstoðar Sigríðar Dalmanns-
dóttur, plöntulífeðlisfræðings hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
og þegar að var komið voru þau að
bisa við að skera í rætur plönt-
unnar og leita eftir rótarhnýðum.
Borðum hafði verið ýtt saman,
svartir ruslapokar breiddir yfir og
ofan á var haugur af lúpínurótum
sem Sigríður hafði grafið upp fyrr
um morguninn. Hún og kennarinn,
Kristín Elva Viðarsdóttir, aðstoð-
uðu nemendur við rannsóknarvinn-
una.
Andri Már Eyþórsson, 14 ára,
var upptekinn við að leita að rót-
arhnýðum en gaf sér þó tíma til að
svara fáeinum spurningum. Að-
spurður sagði hann að þetta væri
áhugavert þó að vissulega væri
þetta frábrugðið því að læra um
mannslíkamann eins og mestur tími
hefði farið í í náttúruvali fram að
þessu. Vinir hans samsinntu þessu,
þetta væri kannski ekki „sexí“ en
skemmtilegt.
Valdís Nína Gylfadóttir, 14 ára,
sagði að rannsóknarvinnan væri
skemmtileg tilbreyting frá hefð-
bundnu námi og það væri gaman að
fá að rannsaka plönturnar í stað
þess að lesa bara um þær í bókum.
Hún og vinkonur hennar gátu þó
ekki varist hlátri, enda ábyggilega
ekki á hverjum degi sem þær eru
spurðar hvort það sé gaman að
skera í rætur.
Á eftir brugðu krakkarnir á leik
og fóru nokkur upp að töflu og
reyndu að líkja eftir niturbindingu í
andrúmslofti með því að færa hana
í leikrænan búning og léku atóm.
Fá vísindamann að láni
Heimsókn Sigríðar Dalmanns-
dóttur í Laugalækjarskóla er hluti
af samstarfsverkefni nokkurra
rannsóknarstofnana sem stendur
Nemendur fengu vísindamann í heimsókn
Skáru í rótarhnýði
og léku atóm
Andri Már fær hér tilsögn frá Sigríði Dalmannsdóttur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nemarnir voru áhugasamir þegar þeir leituðu að rótarhnýðum í lúpínu.
HEILDARGREIÐSLURúr ábyrgðarsjóði launavegna gjaldþrota fyrir-tækja voru rúmlega 354
milljónir króna á árinu 2001. Áætlað
er að þessar greiðslur verði um 600
milljónir króna á þessu ári. Þetta
kemur fram í skriflegu svari Páls
Péturssonar félagsmálaráðherra
við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, þingmanns Samfylkingar-
innar.
Svarinu var dreift á Alþingi í gær.
Þess má geta að heildargreiðslur úr
sjóðnum voru tæpar 173 milljónir
kr. árið 2000, um 214 milljónir árið
1999 og tæplega 138 milljónir árið
1998. Ráðherra segir í svarinu að of
mikið sé um það að vinnuveitendur
reyni of lengi að halda áfram rekstri
þótt ekki séu fyrir hendi fjármunir
til að standa skil á launum og launa-
tengdum gjöldum.
Í svarinu kemur einnig fram að
174 fyrirtæki hafi orðið gjaldþrota á
fyrstu níu mánuðum þessa árs og
haft launakröfur er lentu á ábyrgð-
arsjóði launa, flest þessara fyrir-
tækja voru verslanir eða fyrirtæki
með viðgerðarþjónustu. Þá voru
þau áhrif að kröfuhöfum stoðar al-
mennt ekki að gefa upp hærri laun
en þeir eiga raunverulega að fá
greidd. Almennt má því segja að
ekki sé mikið um að kröfuhafar
reyni að misnota sjóðinn.“ Er því
síðan bætt við að slík misnotkun
varði þungum sektum, auk þess
sem hún geti varðað við almenn
hegningarlög.
Ráðherra segir þó að síðustu,
eins og áður kom fram, að of mikið
sé um það að vinnnuveitendur reyni
of lengi að halda áfram rekstri þótt
ekki séu fyrir hendi fjármunir til að
standa skil á launum og launatengd-
um gjöldum. „Í mörgum tilvikum er
þá einnig um að ræða vanskil á
vörslusköttum og er ávallt nokkuð
um að slík háttsemi sæti lögreglu-
rannsókn og ákæru, að frumkvæði
skattayfirvalda, skiptastjóra þrota-
bús eða einstakra kröfuhafa.“ Segir
að síðustu að í nýju frumvarpi til
laga um ábyrgðarsjóð launa, sem
lagt verði fram á yfirstandandi
þingi, verði reynt að sníða helstu
vankanta af gildandi lögum, meðal
annars til að hindra misnotkun á
þeim.
mörg þessara fyrirtækja með hótel-
eða veitingahúsarekstur eða með
byggingastarfsemi og mannvirkja-
gerð. Alls 209 fyrirtæki, sem höfðu
launakröfur er lentu á ábyrgðar-
sjóði launa, urðu gjaldþrota á síð-
asta ári, 141 árið 2000 og 86 árið
1999.
Misnotkun varðar
þungum sektum
Jóhanna spyr ráðherra að því
hvort hann telji að um misnotkun á
sjóðnum sé að ræða. „Ef svo er, í
hverju felst hún og hvernig hyggst
ráðherra bregðast við?“ spyr hún. Í
svari sínu segir ráðherra erfitt að
svara spurningunni með nokkurri
vissu. „Starfsmenn sjóðsins yfirfara
lýstar kröfur af nákvæmni og einnig
er aflað umsagnar skiptastjóra við-
komandi þrotabús um réttmæti
krafna auk þess sem launamenn
njóta í flestum tilvikum aðstoðar
starfsmanna stéttarfélaga við
kröfugerð sína.“ Síðan segir ráð-
herra: „Fullyrða má að fátítt er að
lýst sé vísvitandi röngum kröfum.
Jafnframt hafa reglur 2. mgr. 5. gr.
laga nr. 53/1993, um hámark krafna,
Ráðherra svarar fyrirspurn um ábyrgðarsjóð launa
Áætlaðar greiðslur
um 600 milljónir