Morgunblaðið - 30.10.2002, Page 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss kemur og fer í dag.
Dettifoss, Skógafoss,
Frank og Eldborg koma
í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa,
s. 551 4349, opin mið-
vikud. kl. 14–17. Flóa-
markaður, fataúthlutun
og fatamóttaka opin ann-
an og fjórða hvern mið-
vikud. í mánuði kl. 14–17,
s. 552 5277.
Mannamót
Eldri borgarar. Sameig-
inlegur fundur með fé-
lögum eldri borgara í
Hafnarfirði, Bessa-
staðahreppi, Garðabæ
og Kópavogi verður í
Kirkjuhvoli, Garðabæ,
laugard. 2. nóv. kl. 14.
Alþingismönnum
Reykjaneskjördæmis
hefur verið boðið á fund-
inn. Félögin hvetja eldri
borgara til að mæta á
fundinn.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofa, kl. 13
spilað, kl. 10–16 pútt.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
12 glerlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–10.30
Búnaðarbankinn, kl. 13–
16.30 spiladagur, brids/
vist, kl. 13–16 glerlist.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
e.h.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 10–10.45 leik-
fimi, kl.14.30–15 banka-
þjónusta, kl. 14.40 ferð í
Bónus.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9 silki-
málun, kl. 13–16 körfu-
gerð, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 11–11.30
leikfimi, kl. 13.30 banka-
þjónusta Búnaðarbanka.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Á morgun,
fimmtudag, verður
Bandalag kvenna með
skemmtun kl. 20. Söng-
ur, grín og gaman, kaffi-
veitingar og dans. Allir
velkomnir.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, mosaik, gifs
og íslenskir steinar og
postulínsmálun.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 9.30 hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna, kl 13.30
enska, byrjendur.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kynning frá
Lyfju verður í Garða-
bergi 4. nóv. kl. 14. Ath.
breytt dagsetning. Leik-
húsferð í Borgarleik-
húsið að sjá Kryddlegin
hjörtu 2. nóv. Skráning í
s. 820 8571 e.h.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–16.
Skrifstofan í Gullsmára 9
opin í dag kl. 16.30–18.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tréskurð-
ur kl. 9, myndlist kl. 10–
16, Línudans kl. 11, gler-
skurður kl. 13, pílukast
kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
lokuð vegna breytinga í
Glæsibæ. Miðvikud.:
Göngu-Hrólfar ganga
frá Hlemmi kl. 9.45.
Söngfélag FEB, kóræf-
ing kl. 17. Línudans-
kennsla kl. 19.15.Al-
mennur félagsfundur
Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
verður í Ásgarði fimm-
tud. 31. okt. kl. 17. Fund-
arefni: Skattlagning
ávöxtunarhluta lífeyr-
isgreiðslna, íslenska rík-
inu stefnt. Önnur mál.
Allt áhugafólk um mál-
efni aldraðra velkomið.
Baldvin Tryggvason
verður með fjár-
málaráðgjöf 7. nóv.
panta þarf tíma. Árshá-
tíð FEB verður í Ásgarði
föstud. 15. nóv. Uppl. á
skrifstofu FEB, s.
588 2111.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum, Selið,
Vallarbraut 4, Njarðvík.
Kl. 14 félagsvist alla mið-
vikudaga.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–167.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, kl. 13.30
kóræfing. „Kynslóðir
saman í Breiðholti,“ á
morgun kl. 13.15 fé-
lagsvist í samstarfi við
Seljaskóla. Verðlaun.
Allir velkomnir. Föstu-
daginn 1. nóv. dans-
leikur, hljómsveit Hjör-
dísar Geirs spilar. Uppl. í
síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 9.30
boccia, kl. 10.45 hæg
leikfimi, kl. 13 félagsvist,
kl. 15.15 söngur Guðrún
Lilja leikur undir á gítar.
Kl. 15–16 viðtalstími
FEBK, kl. 16 hring-
dansar, kl. 17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10
ganga, kl. 9.05 leikfimi
kl. 9.55 stólaleikfimi, kl.
13 keramikmálun.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
kl. 13 brids, bútasaumur,
harðangur og klaustur.
Laugard. 2. nóv. kl. 13
verður hinn árlegi basar,
margt fallegra muna
eins og prjónavörur,
bútasaumur, dúkkur,
rekaviður og margt
fleira til jólagjafa. Kaffi-
veitingar. Allir velkomn-
ir. Fimmtud. 31. okt. kl.
20 verður farið í Þjóð-
leikhúsið að sjá Veisluna
eftir Thomas Vinterberg
og Mogens Rukow.
Skráning á skrifstofu
eða í s. 587 2888.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
föndur og jóga, kl. 10
jóga, kl. 13 danskennsla
framhaldshópur, kl. 14
línudans, kl. 15 frjáls
dans og teiknun og mál-
un.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmud: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500. Kl. 10 fundur í
Miðgarði. Gestur Stefán
Jón Hafstein borg-
arfulltrúi. Miðvikud. 6.
nóv. bjóða Korpúlfarnir
upp á hálfs dags ferð að
Fræðslusetrinu í Sand-
gerði og Bátasafni Gríms
Karlssonar í Keflavík.
Skráning á fundinum í
dag og hjá Þráni í s.
5454 500 í síðasta lagi
mánud. 4. nóv.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa, kl.
9–12 tréskurður, kl. 10–
11 samverustund, kl. 13–
13.30 banki, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9.15–16
myndmennt, kl. 10.30–
11.30 jóga, kl. 12.15
verslunarferð í Bónus,
kl. 13–14 spurt og spjall-
að, kl. 13–16 tréskurður.
Föstud. 1. nóv. kl.15
kemur Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir alþing-
ismaður í heimsókn.
Landsbanki Íslands veit-
ir almenna bankaþjón-
ustu föstud. 1. nóv. kl.
13.30–14. Lyfjafræð-
ingur veitir lyfjaráðgjöf
og mælir blóðþrýsting
mánud. 4. nóv.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 10 morgunstund, bók-
band og bútasaumur, kl.
13 handmennt og kóræf-
ing, kl. 13.30 bókband,
kl. 14.10 verslunarferð.
Hana-nú, Kópavogi.
Námskeiðið í Leiklist-
arsögu er í dag 30. októ-
ber kl. 17–18.30 í Gjá-
bakka. Spjallkvöld er kl.
20–21.30 í kvöld í Gjá-
bakka. Smári Pálsson
taugasálfræðingur á
Landakoti svarar m.a.
spurningunni: Hvað er
eðlileg gleymska og hvað
ekki? Allir velkomnir.
Háteigskirkja eldri
borgara, kl. 11 samvera,
fyrirbænastund og stutt
messa í kirkjunni, allir
velkomnir, súpa í Setr-
inu kl. 12, brids kl. 13.
Starf aldraðra í Bú-
staðakirkju. Föndur,
gáta, spil og helgistund.
Gestur Þorvaldur Hall-
dórsson. Munið bílaþjón-
ustuna: Sigrún, s.
553 0048 og 864 1448
kirkjuverðir, s. 553 8500.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra, Hátúni 12, kl. 19.30
félagsvist.
Vinahjálp, brids spilað á
Hótel Sögu í dag kl.
13.30.
Öldungaráð Hauka.
Fundur verður á Ásvöll-
um í kvöld kl. 20.
Rangæingar – Skaftfell-
ingar. Fyrsta spilakvöld
vetrarins verður í kvöld
kl. 20, í Skaftfellingabúð,
Laugavegi 178. Kaffi-
veitingar.
Húnvetningafélagið í
Reykjavík. Sunnud. 3.
nóv. er árlegur kirkju-
og kaffisöludagur félags-
ins.
Í dag er miðvikudagur 30. október,
303. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Hann veitti sálum vorum lífið og lét
oss eigi verða valta á fótum.
(Sálm. 66, 9.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 stygg, 4 kasta, 7 þjóð-
höfðingja, 8 guggin, 9
greinir, 11 eyðimörk, 13
fugl, 14 endurtekið, 15
heit, 17 nóa, 20 ílát, 22
malda í móinn, 23 með
öndina í h álsinum, 24
dreg í efa, 25 digri.
LÓÐRÉTT:
1 verða færri, 2 léreftið, 3
tanga, 4 lögur, 5 kuskið, 6
korns, 10 skjálfa, 12 tók,
13 heiður, 15 skyggnist
til veðurs, 16 blauðan, 18
lærdómssetur, 19 náði í,
20 biðji um, 21 tala.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 himinhvel, 8 féllu, 9 álfta, 10 Níl, 11 sárin, 13
mæður, 15 úrann, 18 staka, 21 enn, 22 starf, 23 útlit, 24
limaburði.
Lóðrétt: 2 illur, 3 Iðunn, 4 hjálm, 5 erfið, 6 ofns, 7 maur,
12 inn, 14 ætt, 15 únsa, 16 ataði, 17 nefna, 18 snúru, 19
aflið, 20 atti.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
UNDANFARIN fjögur sunnu-dagskvöld hefur ríkissjónvarp-
ið sýnt þætti úr sögu flugs á Íslandi.
Hefur þar mátt sjá gamlar og nýjar
myndir, kvikmyndir og búta héðan
og þaðan. Einnig hefur verið skotið
inn stuttum viðtölum eða frásögnum
margra úr hópi frumherja flugsins.
Víkverja finnst þetta hafa verið
áhugaverðir þættir og fróðlegir.
Þarna hafa komið fram margir frum-
herjanna sem nú eru gengnir enda
flugsaga Íslands orðin það gömul að
þeir sem tóku þátt í henni fyrstir eru
óðum að safnast til feðra sinna. Það
var því löngu tímabært að fá svona
yfirlit yfir söguna okkur yngri til
fróðleiks og áminningar.
Auk myndanna og viðtala hefur
verið fluttur ágætur texti með þess-
ari heimildarmynd. Hefur það verið
áheyrilegt og ekki ástæða til að ætla
annað en hér hafi verið vandað vel til
heimildaöflunar. Og Víkverji er líka
á því að vel hafi verið komist frá erf-
iðum köflum, svo sem frásögnum af
slysum í flugsögunni, sem urðu að
fylgja með í mynd sem þessari.
Víkverji leiðir hugann að því í
framhaldi af þessum þáttum hvort
við séum að týna niður merkilegum
heimildum og efni úr atvinnusög-
unni. Hefur þess verið gætt nægi-
lega að halda þessu öllu til haga?
Ekki veit hann gjörla svar við þessu.
Hitt veit hann að verið er að rita
sögu bíla á Íslandi. Verður þess brátt
minnst að 100 ár eru liðin frá komu
fyrsta bílsins til landsins. Af því til-
efni hafa ráðandi menn í bílgreininni
ráðið skrásetjara til að safna þessari
sögu saman. Er Víkverji illa svikinn
ef ekki má vænta fróðlegrar og
skemmtilegrar bókar um þetta efni
eins vel og stofnað er til verksins.
x x x
ENN leiðir þetta hugann víðar ognú að sögunni almennt. Víkverji
hefur nú ekki beint verið þekktur að
því að hafa gaman af sögu. Reyndi
löngum að gleyma sér í sögutímum í
MH yfir öðrum bókum en mann-
kynssögu eða Íslandssögu. Ekki var
þar við kennara að sakast, sem voru
áreiðanlega hver öðrum hæfari í
starfi sínu, heldur varð efnið einfald-
lega ekki til þess að kveikja með Vík-
verja neina skemmtan. Eftir því sem
árin hafa liðið gerir Víkverji sér þó
grein fyrir þýðingu þess að varðveita
söguna og vita helst meira en örlítið í
þeim efnum. Hann hefur þó látið öðr-
um þennan málaflokk eftir að mestu.
Lætur hann sér nægja að vita að ein-
hvern tímann gæti áhuginn kviknað
og veit þá líka að þá verður næsta
auðvelt að leita fanga ef hann vill
bæta við þá harla litlu þekkingu sem
hann hefur á þessu sviði.
x x x
AÐ lokum er ekki nema eðlilegtað minnast á veturinn sem nú
er að dembast yfir okkur. Og þá fer
að styttast í jólin með öllum sínum
hasar og tilboðum. Og ekki má
gleyma jólahlaðborðunum. Við
hrökkvum í annan gír yfir veturinn,
klæðum okkur öðruvísi, sinnum öðr-
um hugðarefnum, annarri afþrey-
ingu og jafnvel öðrum störfum en að
sumrinu.
Þannig hefur allt sinn tíma og hver
árstími sín verkefni og sína skemmt-
an. Eftir að við hættum að hlakka til
jólanna kemur að því að bíða eftir
þorramatnum og síðan góugleði og
úr því fer vorið að koma með útivist
og orlofi á ný.
Garðheimar – þakkir
ÉG vil endilega koma þökk-
um til starfsfólks Garð-
heima og þá sérstaklega
hennar Helgu Hauksdóttur
garðyrkjufræðings.
Ég hafði keypt hjá þeim
fræ í bréfi seinasta vor og
reynt að koma þeim upp en
tókst ekki betur en svo að
upp kom arfi. Ég hafði sam-
band við Helgu í gegnum
tölvupóst og sendi henni
myndir af plöntunni og hún
fræddi mig um það að þetta
væri arfi. Þau í Garðheim-
um áttu svo til fjórar svona
plöntur og var ein strax
tekin frá fyrir mig. Þegar
ég kem svo til að sækja
plöntuna þá þarf ég ekki
einu sinni að borga fyrir
hana því þau gáfu mér
plöntuna.
Ég mun beina mínum
viðskiptum til þeirra í
framtíðinni.
Ragnhildur.
Föður leitað
MIG langar til að finna ein-
hvern þann sem gæti lumað
á upplýsingum sem gæti
leitt okkur hjónin á slóð
föðurfólks mannsins míns.
Maðurinn minn er þýsk-
ur í föðurætt og hét faðir
hans Gerhard Eggers, f. 2.
júlí 1921. Gerhard kom til
Íslands 1949 og fór héðan
1955. Við hjónin hófum leit
að honum 1974–5. Hófst sú
leit í þýska sendiráðinu.
Hvorugt okkar talaði þýsku
og fór samtalið fram á
ensku og bar lítinn árang-
ur. Ekki þótti þeim hjá
sendiráðinu þetta mál
heyra undir þá.
Lítið gerðist á næstu ár-
um í leitinni. Loks komst ég
í kringum 1990 í samband
við þann ágæta mann
Franz E. Siemsen, ræðis-
mann. Hófust þá bréfa-
skriftir á milli okkar sem
leiddi okkur að Þjóðverja í
Reykjavík sem reyndist
hjálplegur. Hans upplýs-
ingar voru þær að Gerhard
hefði flutt til Ástralíu. Lík-
lega til Perth. Ég hef reynt
að fá upplýsingar frá Ástr-
alíu án árangurs. Eflaust
ekki leitað á réttum stöð-
um. Það sem vakti þó mesta
undrun mína í samtalinu
við Þjóðverjann hér heima
var að Gerhard hefði ekki
aðeins eignast dreng, sem
nú er eiginmaður minn,
heldur hefði hann einnig
eignast barn með danskri
stúlku sem enginn virðist
muna nafnið á. Eftir mikla
eftirgrennslan kom þó upp
nafnið Anne Lise, sem er
ekki endilega rétt og að
hún hafi unnið um tíma við
hárgreiðslu og búið í vest-
urbænum. Þessi danska
stúlka mun hafa eignast
barnið að sumri til líklega á
árunum 1952–1954. Hvort
hún fór með það úr landi,
býr hér enn eða ættleiddi
það, veit kannski einhver.
Allar upplýsingar og/eða
aðstoð við nánari eftir-
grennslan á afdrifum þessa
barns og/eða Gerhards eru
vel þegnar.
Ásta Óla Halldórsdóttir.
S. 555-1586, 891-7290.
astaola@simnet.is
Góð þjónusta
MARGRÉT vill taka undir
orð Ingibjargar um veit-
ingastaðinn Oro í Austur-
stræti í Velvakanda nýlega.
Hún fór þangað með fjöl-
skyldu sinni um daginn og
fékk mjög góðan mat og
virkilega góða þjónustu.
Staðurinn er líka jafnhlý-
legur og starfsfólkið.
Dýrahald
Cosmo
er týnd
GRÁBRÖNDÓTT læða
með hvíta sokka, ómerkt en
með svarta hálsól með
steinum, týndist sl. föstu-
dag í nágrenni Laugaveg-
ar. Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi samband í
síma 694 7079.
Læða fæst gefins
VEGNA flutnings óskar
rúmlega 1 árs gömul, ynd-
isleg, blíð og góð læða eftir
nýju heimili. Aðeins gott
heimili kemur til greina.
Uppl. í síma 866 1550.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
UM daginn þegar ég var
að hlusta á Guðberg
Bergsson lesa skáldsögu
sína Hjartað býr enn í
helli sínum, í Ríkisútvarp-
inu, sögu sem ég vil helst
ekki missa af, rifjaðist
það allt í einu upp fyrir
mér að hann hefði verið
nemandi minn í gamla
Kennaraskólanum við
Laufásveg. En þar kenndi
ég ensku. Einhverju sinni
bað ég hann að beygja
fyrir mig óreglulega sögn
en í staðinn fyrir að gera
tilraun til þess að svara
eins og aðrir nemendur
mínir gerðu sagði hann
upp í opið geðið á mér,
kennara sínum, að sig
varðaði alls ekki um
hvernig hún beygðist.
Þetta kom svo flatt upp á
mig að ég varð alveg orð-
laus. Ég hefði auðvitað
átt að lemja hann leiftur-
snöggt í hausinn en höf-
uðhögg tíðkuðust ekki í
þá daga. Þau voru ekki
innleidd fyrr en löngu
seinna með fullkomnari
kennsluháttum í Versl-
unarskóla Íslands en þar
var að verki ungur, rögg-
samur og róttækur kenn-
ari.
Halldór Þorsteinsson.
Enskunám Guðbergs
Bergssonar