Morgunblaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 269. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 mbl.is Áform Michels Rætt við franska rithöfundinn Michel Houellebecq Lesbók 4 Í Covent Garden, Íslensku óperunni og Salnum Listir 31 Með tromp á hendi Áfram Haukar í Evrópuleik á Ásvöllum Íþróttir 1 BÓLUSETNING gegn heilahimnu- bólgu af C-stofni er hafin um land allt og hafa vel á annan tug þúsunda barna nú verið bólusett, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis. Hann segir að stefnt sé að því að búið verði að bólusetja öll börn fimm ára og yngri fyrir áramót. Öllum börnum, frá sex mánaða aldri til og með 18 ára aldurs, stend- ur til boða bólusetning gegn sjúk- dómnum, en alls eru milli 80 og 90 þúsund börn og unglingar á þessum aldri. Reiknað er með því að verkefn- inu ljúki næsta vor. Eftir það verður bólusetning við heilahimnubólgu tekin upp í ungbarnabólusetningu. Góð líftrygging „Við mælum með því að allir fari í þetta. Þetta er góð líftrygging,“ seg- ir Haraldur. „Það urðu smátafir í sendingu bóluefnis í nokkra daga. Það setti suma sem voru búnir að skipuleggja starfið í ákveðinn vanda en nú er þetta komið aftur í fullan gang.“ Alls hafa 40 þúsund skammt- ar verið sendir til landsins. Haraldur segir sjálfsagt að þeir sem eru orðnir 19 ára og eldri láti einnig bólusetja sig, en þeir þurfi að greiða rúmlega 4.000 krónur. Lík- urnar á að fullorðið fólk fái sjúkdóm- inn séu ekki miklar. „Við vonum að með því að bólusetja yngri en 19 ára getum við dregið úr líkum á smiti hjá þeim sem ekki hafa verið bólusettir, svo bakterían geti ekki dreift sér og borist frá manni til manns.“ Fimm ára og yngri bólusett á þessu ári Morgunblaðið/Ásdís „FRÚ forseti. 212,“ er senni- lega stysta ræðan ef ræðu skyldi kalla sem flutt hefur verið á Alþingi. Þessi orð lét Þorsteinn Pálsson, þáverandi dómsmálaráðherra, falla á Al- þingi í febrúar árið 1993, eftir að Guðni Ágústsson þingmað- ur hafði spurt hann að því hversu margir einstaklingar hefðu orðið gjaldþrota árið á undan. Þetta kemur m.a. fram á sögusýningu, sem nú stend- ur yfir í Alþingisskálanum, í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því Alþingi hóf að nota hljóðupptökur til að skrásetja ræður þingmanna. „Frú for- seti. 212“  Gott að hafa/10 BANDARÍSKIR embættismenn staðfestu í gærkvöld að tekist hefði að handsama einn af hæst settu for- ingjum al-Qaeda hryðjuverkasam- takanna, mann sem leitað væri í tengslum við árásirnar á Bandaríkin í fyrra. Þeir vildu ekki greina frá því um hvaða mann væri að ræða en tóku þó fram að ekki væri um Ayman al-Zawahiri, hægri hönd Osama bin Ladens, eða Khalid Shaikh Mo- hammed aðgerðastjóra að ræða. FBI varar við hryðjuverkum Fyrr um daginn hafði bandaríska alríkislögreglan, FBI, sent frá sér viðvörun um að hætta væri á að al- Qaeda kynni að fremja „stórbrotin hryðjuverk“ er hefðu „mikla, tákn- ræna merkingu“ í Bandaríkjunum. Í tilkynningu FBI kom fram að samkvæmt heimildum stofnunarinn- ar kunni al-Qaeda að skipuleggja næstu hryðjuverk sín „með tilliti til mikils, táknræns gildis, sem mests mannfalls, sem alvarlegastra afleið- inga fyrir bandarískt efnahagslíf og hámarks sálrænna áhrifa“. Ekki eru nema þrír dagar síðan fram komu gögn sem benda til að bin Laden sé enn á lífi. AP Öryggi hefur verið hert vegna við- vörunar FBI, að sögn Condoleezzu Rice þjóðaröryggisráðgjafa. Háttsettur al-Qaeda- liði hand- samaður Washington. AFP. TÓLF Ísraelar biðu bana og fimmtán til viðbótar særðust í fyrirsát palest- ínskra byssumanna í útjaðri borgar- innar Hebron á Vesturbakkanum í gærkvöld. Samtökin Íslamska Jíhad hafa lýst ábyrgð á verkinu á hendur sér en líklegt þykir að mjög verði nú þrýst á Ariel Sharon, forsætisráð- herra Ísraels, að svara árásinni með einhverjum hætti. Atburðurinn í gær átti sér stað um kl. 19.30 að staðartíma en byssu- mennirnir sátu fyrir ísraelskum landnemum þar sem þeir voru á leið heim frá bænastund við helgistað gyðinga og múslima í Hebron. Land- nemarnir, sem eru heittrúaðir gyð- ingar, ganga að helgistaðnum frá byggð sinni, Kiryat Arba, á hverjum föstudegi. Einum tilræðismanna banað Ísraelskir hermenn þustu þegar á vettvang fyrirsátarinnar frá bæki- stöðvum sínum í Kiryat Arba og hófu palestínsku byssumennirnir þá harða skothríð að þeim. Bardagar stóðu fram eftir kvöldi og varð það þess valdandi að það tók björgunarfólk hátt í klukkustund að koma hinum særðu til hjálpar. A.m.k. einn tilræð- ismannanna féll í bardögunum. Talsmaður ísraelska hersins sagði að bæði hermenn og óbreyttir borg- arar hefðu fallið í árásinni. Er vitað að a.m.k. þrír landnemar voru í þeirra hópi. Um er að ræða eina blóð- ugustu árásina af þessari tegund frá því að uppreisn Palestínumanna hófst fyrir rúmum tveimur árum. „Þetta er í annað skipti á einni viku sem saklausir borgarar eru myrtir af mikilli grimmd þar sem þeir eru ann- aðhvort sofandi í rúmum sínum eða á leið frá bænagjörð. Útilokað er að hægt sé að hefja pólitískar viðræður á meðan palestínskir hryðjuverka- menn halda áfram þessum árásum sínum,“ sagði Gilad Millo, talsmaður ísraelska utanríkisráðuneytisins. Skærur eru tíðar í Hebron á milli landnemanna og palestínskra íbúa borgarinnar. Landnemarnir telja um sex hundruð manns en um 120 þús- und Palestínumenn búa í Hebron. Tólf gyðingar féllu í fyrirsát í Hebron Palestínsku öfgasamtökin Íslamska Jíhad hafa lýst ábyrgð á ódæðinu á hendur sér Reuters Björgunarmenn flytja særðan Ísraela frá vettvangi tilræðisins í Hebron. Hebron, Jerúsalem. AP, AFP. Uppáhaldslög Kristins ÍRASKUR drengur bíður þess að faðir hans ljúki við bænirnar fyrir framan mosku í Bagdad í gær en heil- agur mánuður múslima, Ramadan, stendur nú yfir. Dagblöð í Írak sögðu í gær að Sameinuðu þjóðirnar yrðu rúnar trausti ef vopnaeftirlitsmenn SÞ, sem halda til Íraks á mánudag, sýndu ekki hlutleysi í starfi sínu. Reuters Beðið í Bagdad
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.