Morgunblaðið - 16.11.2002, Síða 48

Morgunblaðið - 16.11.2002, Síða 48
UMRÆÐAN 48 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HINN 7. janúar 2001 var undirrit- aður kjarasamningur fyrir fram- haldsskóla milli fjármálaráðherra og Kennarasambands Íslands að aflok- inni langri og erfiðri kjaradeilu. Meðal meginmarkmiða kjarasamn- ingsins má telja samkomulag um að endurskoða skipan starfa og stjórn- kerfi framhaldsskóla, að einfalda kjarasamning og að endurskipu- leggja störf kennara og stjórnenda. Tekið var upp nýtt launakerfi, fyrstu skref tekin inn í dreifistýrt kjaraum- hverfi og ný reglugerð um starfslið gefin út sem endurspeglar ásetning um að mæta breyttu starfsumhverfi framhaldsskóla. Endurskipulagning á innra starfi framhaldsskóla Mikil bjartsýni fylgdi hinum nýja kjarasamningi á leið og trú á að nú væri lag að ná framhaldsskólunum upp úr djúpu hjólfari viðvarandi fjárskorts og vonlausrar samkeppn- isstöðu um starfskrafta vel mennt- aðra kennara. Þessi bjartsýni byggðist á árangri af sjálfri kjara- samningagerðinni og ekki síður á yf- irlýsingu fjármálaráðherra, Geirs H. Haarde, og þáverandi menntamála- ráðherra, Björns Bjarnasonar, um vilja til að styrkja stöðu framhalds- skólans. Í samræmi við þetta var nokkurt fé veitt til endurskipulagningar á innra starfi og faglegri stjórnun í framhaldsskólum á fjárlögum síð- asta árs. Í samstarfsnefndum fram- haldsskólanna hefur verið unnið af krafti og áhuga að því að endur- skipuleggja störf og viðfangsefni til að laga skólastarfið á hverjum stað að þörfum nemendahópsins og breyttum kröfum, m.a. vegna nýrrar námskrár og nýrra möguleika á sviði upplýsingatækni. Vanáætlaður rektrarkostnaður undirrót vandans Nái óbreyttar tillögur í fjárlaga- frumvarpinu 2003 fram að ganga þá er þetta starf í uppnámi. Samkvæmt mati menntamálaráðuneytisins á út- gjaldahorfum framhaldsskólastigs- ins, Reiknilíkan fyrir skiptingu fjár- framlaga til framhaldsskóla; Um störf endurskoðunarhóps; Reykja- vík 2002, fyrir árið 2003 sem byggist á meginlínum endurskoðaðs reikni- líkans fyrir kennslu og rekstrar- kostnað framhaldsskóla þurfa fjár- framlög til framhaldsskólanna að aukast um 400–600 milljónir króna m.a. til að mæta áætlaðri nemenda- fjölgun, þörf á auknu fé til tækja- kaupa og fé í almennan rekstur. Til samanburðar skal þess getið að í fjárlagafrumvarpi 2003 er með góð- um vilja hægt að tala um 64 milljóna króna aukningu. Langvarandi vanáætlun um fjár- þörf til að reka framhaldsskólana hefur skapað þann vanda sem birtist árvisst í viðvarandi og vaxandi rekstrarhalla margra framhalds- skóla. Menntamálaráðuneytið hefur birt samanburð á útgjöldum fram- haldsskóla og fjárheimildum þeirra yfir árabilið 1992–2001. Reiknilíkan fyrir skiptingu fjárframlaga til fram- haldsskóla bls. 3 Af þeim samanburði má ráða að nokkur hundruð milljónir vantar jafnan til þess að endar nái saman. Endurbætur á reiknilíkani í skugga viðvarandi hallarekstrar Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu byggjast fjárveitingar til framhalds- skóla og skipting þeirra á einstaka framhaldsskóla á endurskoðuðu reiknilíkani fyrir kennslu- og rekstr- arkostnað framhaldsskóla. Mikið starf hefur verið unnið undanfarin ár við endurbætur á þessu líkani. Markmið vinnunnar hefur verið að skilgreina og leysa vanda sem m.a. hefur komið fram í því að nýir og stórir verknámsskólar hafa komið illa út úr reiknilíkani, meðalstórir og litlir skólar úti á landsbyggðinni eiga í vandræðum með að halda óbreyttu námsframboði, brottfall er mikið þar sem skólar þjóna allri breidd nem- endahópsins og starfsmannaþörf í heimavistarskólum virðist vanáætl- uð. Þessi vandi verður þó aldrei leyst- ur nema nýtt fé fáist til. Fjárveit- ingar á fjárlögum til framhaldsskóla hafa árvisst verið lægri en raunveru- legur rekstrarkostnaður endur- speglar og því er ekki hægt að nota þá aðferð að skipta óbreyttri upp- hæð með nýjum hætti milli fram- haldsskóla. Skóli A er látinn greiða fyrir umbætur á málefnum skóla B án þess að nokkur rök standi til þess að álíta skóla A aflögufæran. Fjár- lagafrumvarpið 2003 endurspeglar því alls ekki viðleitni til raunhæfra fjárveitinga til framhaldsskóla og boðar því áframhaldandi og vaxandi vanda framhaldsskólakerfisins. Fjárlagafrumvarpið áfall fyrir framfarastarf framhaldsskóla Fjárlagafrumvarpið boðar aukinn hallarekstur og stöðnun í nýbreytn- istarfi í framhaldsskólum. Sé til við- bótar því unnið með of lága áætlun um nemendafjölda hlýtur það að leiða til þess að fjöldi nemenda er leitar skólavistar komi að lokuðum dyrum framhaldsskólanna. Miklu skiptir að ráðherrar í rík- isstjórn og þingmenn á Alþingi komi til hjálpar framhaldsskólanum við afgreiðslu fjárlaga á Alþingi. Það væri hörmulegt ef það skref sem tekið var með breyttum kjarasamn- ingum og endurskipulagningu í starfsemi framhaldsskóla er þeim fylgdu hefði allt verið til einskis. Mikið vantar upp á að stjórnvöld standi við sitt og styrki stöðu fram- haldsskólans til frambúðar. Áfall fyrir fram- haldsskólana Eftir Elnu Katrínu Jónsdóttur „Fjárlaga- frumvarpið boðar auk- inn halla- rekstur og stöðnun í nýbreytni- starfi í framhalds- skólum.“ Höfundur er formaður Félags framhaldsskólakennara. UM langan aldur hafa skopmynd- ir Sigmunds í Morgunblaðinu verið eitt umtalaðasta skemmtiefni blaðs- ins og oft hefur teiknaranum tekist í myndum sínum að bregða upp hár- beittri ádeilu á þau málefni sem hæst ber á líðandi stund. Mörgum mönn- um og málefnum hefur brugðið fyrir í þessum spéspegli samtímans og oft hefur höfundurinn hitt naglann á höfuðið. Óvinurinn fundinn Undanfarið er þó engu líkara en teiknarinn hafi hitt sjálfan sig í höf- uðið í stað naglans, því málefnunum sem hann beinir athygli sinni að hef- ur heldur fækkað og nú er engu lík- ara en að Óvinurinn sjálfur sé fund- inn. Svo virðist sem Lúsífer sjálfur hafi ummyndast og birtist teiknar- anum sem stjórnkerfi fiskveiða á Ís- landi, kvótakerfið! Ég hef ekki fyrr en nú nennt að elta ólar við allt það sem Sigmund hefur teiknað til að koma höggi á okkur útvegsbændur og forystusveit okkar. Það er t.d. engu líkara en hon- um sé sérstaklega uppsigað við for- mann LÍÚ og er mér nær að kalla það einelti af Sigmunds hálfu. Út- vegsbændum virðist hann kenna um nær allt sem miður fer í þjóðfélag- inu. Það er merkilegt að okkur skuli ekki kennt um uppsagnirnar hjá DeCode um daginn! Með myndum sínum hefur Sigmund afflutt stað- reyndir varðandi kvótakerfið, að því er virðist til að vega að okkur sem störfum í þessari atvinnugrein. Er honum ekkert heilagt í þessum mála- rekstri sínum. „Leyndar afleiðingar kvótakerfisins“ 9. nóvember sl. birtist enn ein myndin eftir Sigmund af þessum toga. Á myndinni eru þau Jóhannes í Bónus og Margrét Frímannsdóttir í „Bónusrútunni“ sem gengur á milli Selfoss, Stokkseyrar og Eyrarbakka og textinn er þessi: „Leyndar afleið- ingar kvótakerfisins eru að opinber- ast hverjar af annarri þessa dagana. Kibba, kibba, komið þið greyin.“ Mér sýnist að hinar meintu leyndu afleiðingar kvótakerfisins sem teikn- arinn gerir þarna að umtalsefni séu svo leyndar að enginn annar en hann sjálfur átti sig á samhenginu. A.m.k. geri ég það ekki. Kvótakerfið, bankinn og Bónus Á Eyrarbakka er rótgróið fisk- vinnslu- og útgerðarfyrirtæki. Á Stokkseyri er útgerð og vinnsla þótt í smáum stíl sé. Það sem verður Sig- mund að yrkisefni í umræddri mynd er að verslun virðist ekki bera sig lengur á þessum stöðum og verslanir á Selfossi farnar að aka íbúum þorp- anna þangað svo þeir megi versla þar. Þarft framtak hjá þeim. En fleira hefur gerst í þessum þorpum. Mér skilst að útlit sé fyrir að Ís- landspóstur leggi af starfsemi sína þar og Landsbankinn hefur dregið úr sinni. Hvernig hægt er að kenna kvótakerfinu um þetta er mér hulin ráðgáta. Á fyrri hluta 20. aldar voru öflug verslunar- og þjónustufyrirtæki á Eyrarbakka sem þjónustuðu Suður- land og ekki er það vegna kvótakerf- isins sem þau hættu starfsemi. Þar má fyrst og fremst um „kenna“ breyttum aðstæðum, þéttbýlismynd- un á SV-horninu og höfninni í Reykjavík, sem varð aðal inn- og út- flutningshöfn landsmanna. Margvíslegar skyldur Í atvinnurekstri þarf að huga að því að starfsemin beri sig. Varla hefðu verslanir í þorpunum hætt ella. Sama er að segja um banka- þjónustu og póstþjónustu. Það er engum greiði gerður með því að halda áfram óarðbærum rekstri. Þetta er nokkuð sem við útvegs- bændur þekkjum af eigin raun. Okk- ur er uppálagt að gera út með sem hagkvæmustum hætti, að fækka skipum og veiða þá fáu fiska sem okkur er leyft að veiða með eins litlum tilkostnaði og mögulegt er. Þetta hlýtur vinur minn, Eyjamað- urinn hann Sigmund, að skilja. Það hefur enginn hag af því að sækja tak- markaðan sjávarafla með fleiri skip- um og starfsfólki en þörf er á. Slíkt leiðir aðeins til ófarnaðar, gjaldþrota og atvinnumissis þeirra sem við greinina starfa. Kvótinn vex en fólki fækkar Hér í Vestmannaeyjum hefur fólki fækkað um nokkur hundruð á síð- asta einum og hálfum áratug. Sama á við t.d. í Neskaupstað og fleiri dæmi má nefna. Ekki getur það verið kvótakerfinu að kenna, því aflaheim- ildir hafa vaxið á báðum stöðum. Ég hygg að í þessum tilvikum sé skýringanna á flutningi fólks að leita víða og ástæðurnar geti verið marg- víslegar. Þar má m.a. nefna fé- lagslegar, atvinnulegar, heilsufars- legar og menntunarlegar orsakir. Tilflutningur á aflaheimildum á sér yfirleitt stað í tengslum við hag- ræðingu í atvinnurekstrinum sem er oft forsenda þess að fyrirtækin geti greitt hærri laun. Tilfærsla aflaheimilda hefur oft stutt við byggð í landinu, þótt fólki fjölgi ekki endilega þótt kvótastaðan batni. Öllu gamni fylgir nokkur alvara Nú langar mig til að biðja hann Sigmund að staldra aðeins við áður en hann teiknar næstu skopmynd þar sem kvótakerfið og (mis)skiln- ingur hans á eðli þess gefur tóninn. Það eru nefnilega fjölbreyttar ástæður fyrir byggðaþróun í landinu og kvótakerfið er alls ekki sú eina og heldur ekki sú mikilvægasta. Þótt skopmyndateiknarinn sé fullur and- úðar á þessu stjórnkerfi má hann alls ekki tapa sér algerlega í gríninu. Öllu gamni fylgir nokkur alvara. Hann má heldur ekki einblína svo á þetta einstaka mál að fátt annað komist að. Það er nefnilega þannig að þegar allt kemur til alls er ekki betra að „veifa röngu tré en öngvu“. Skopmyndateiknari á villigötum Eftir Magnús Kristinsson „Þótt skop- myndateikn- arinn sé full- ur andúðar á þessu stjórnkerfi má hann alls ekki tapa sér algerlega í gríninu.“ Höfundur er formaður Útvegs- bændafélags Vestmannaeyja. TÍU dögum fyrir borgarstjórn- arkosningarnar í vor efndu íbúa- samtök Grafarvogs til fundar um borgarmálin í Rimaskóla með for- ystumönnum D-lista, F-lista og R- lista. Hátt á þriðja hundrað manns mættu á þennan fjölsóttasta fund allrar kosningabaráttunnar, sem vitnar um áhuga Grafarvogsbúa fyrir málefnum hverfisins. Á fundinum kom fram mikil óánægja hjá íbúum í Rimahverfi með deiliskipulag fyrirhugaðrar byggðar á svonefndri Landssímalóð við Sóleyjarrima og krafa um að skipulaginu yrði breytt í samráði við íbúa hverfisins. Gagnrýnin beindist einkum að þéttleika og hæð byggðarinnar og auknu um- ferðarálagi og hafði áður komið fram á kynningarfundi um skipu- lagið í aprílmánuði sl. Í framhaldi af þessu var stofnaður samráðs- hópur, sem í sátu fulltrúar frá Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkur og umferðardeild Um- hverfis- og tæknisviðs borgarinnar auk fulltrúa íbúa í Rimahverfi og verktaka. Eins og fram kemur í grein Em- ils Arnar Kristjánssonar, íbúa við Smárarima, í Morgunblaðinu 9. nóvember sl. telja íbúar í Rima- hverfi að ekki hafi verið haft nægi- legt samráð við þá við gerð tillögu að breyttu deiliskipulagi á Lands- símalóðinni. Emil, sem sat í áð- urnefndum samráðshópi, tekur raunar svo sterkt til orða að segja samráð „nánast ekkert við mótun fyrirliggjandi tillögu“. Hljómþýtt tal fulltrúa R-listans um hverfalýðræði verður harla fá- nýtt þegar komið er í bakið á íbú- um Rimahverfis við skipulag Landssímalóðarinnar. En það er ekki nóg með að R-listinn hafi hundsað íbúana í þessu máli. Und- irritaður, sem er áheyrnarfulltrúi F-listans í skipulags- og bygging- arnefnd, var ekki látinn vita af opn- um fundi með íbúum í Rimahverfi um tillögu að breyttu deiliskipulagi Landssímalóðarinnar, sem haldinn var í Rimaskóla, 22. október sl. Þetta eru afleit vinnubrögð, því brýnt er fyrir kjörna fulltrúa Reyk- víkinga að heyra álit umbjóðenda sinna á fundum sem þessum. Fjar- vera mín á kynningarfundinum í Rimaskóla felur í sér röng skilaboð til Grafarvogsbúa, en ég hef látið mig málefni þeirra mjög varða. Hún er enn ein staðfestingin á því hvernig R-listinn hefur klúðrað lýð- ræðislegum vinnubrögðum í mál- efnum Landssímalóðarinnar. Á fundi skipulags- og bygging- arnefndar Reykjavíkur 30. október sl. voru málefni Landssímalóðar- innar tekin fyrir og lögð fram drög að fundargerð kynningarfundarins í Rimaskóla 22. október sl. Þar kom fram, að íbúar Rimahverfis hafa verulegar áhyggjur af umferð- arþunga í hinu nýja skipulagi og telja byggðina enn of þétta og há- reista. Á áðurnefndum fundi skipulags- og byggingarnefndar lögðu fulltrú- ar Sjálfstæðisflokksins fram tillögu um að breytt tillaga að deiliskipu- lagi Landssímalóðarinnar „verði send í auglýsingu og kynnt fyrir íbúum og hagsmunaaðilum“. Und- irritaður lagði fram svohljóðandi bókun á fundinum: „Ég tek undir tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að ný deiliskipulagstillaga verði auglýst. Ég tel að ekki hafi verið haft nóg samráð við íbúa varðandi þessa tillögu og gagnrýni að fulltrúi F-listans í skipulags- og bygging- arnefnd var ekki látinn vita af opn- um fundi með íbúum um skipulag á Landssímalóðinni, sem haldinn var í Rimaskóla 22. október sl.“ Lýðræðinu klúðrað á Lands- símalóðinni Eftir Ólaf F. Magnússon Höfundur er læknir og borgarfulltrúi. „Hljómþýtt tal R-listans um virkt hverfalýð- ræði verður harla fánýtt þegar verk- in tala.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.