Morgunblaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 61
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 61 SUMARDAGINN fyrsta sl. sýndi Ríkissjónvarpið heimildamynd um garðinn Skrúð og þá miklu vinnu sem lögð var í að endurnýja garð- inn fyrir nokkrum árum. Myndin var kostuð af Ljósmyndavörum ehf. og gerð af Gísla Gestssyni. Í tilefni sýningarinnar var kallað eftir liðveislu Vestfirðinga, gamalla nemenda á Núpi, garðyrkju- og skógræktarmanna og þeirra sem hafa látið sér annt um garðinn. Alls söfnuðust um 700 þúsund krónur og hefur söfnunin því skilað góðum árangri. Upphæðin mun bætast við þann sjóð sem þegar er fyrir hendi og mun renna enn styrkari stoðum undir það viðhaldsstarf sem nauð- synlegt er að inna af hendi. „Fram- kvæmdasjóður Skrúðs vill koma á framfæri innilegum þökkum til allra þeirra sem lögðu sitt af mörk- um. Árangurinn sannar það enn og aftur að Skrúður á trygga bak- hjarla sem er annt um varðveislu garðsins,“ segir í fréttatilkynningu. Góður árangur í fjáröfl- unarátaki vegna Skrúðs ÁRVEKNI, Löggildingarstofa og Umferðarstofa hafa sent frá sér til- kynningu þar sem bent er á að ekki sé hægt að nota bandaríska barna- bílstóla með FMVSS merki, sem framleiddir hafa verið eftir 1. sept- ember 2002, hér á landi. Ástæðan mun vera sú að 1. september síðast- liðinn gengu í gildi í Bandaríkjunum nýjar reglur varðandi festingar FMVSS merktra barnabílstóla. Þar segir að allir barnabílstólar og bif- reiðir í Bandaríkjunum sem fram- leiddar eru eftir 1. september 2002 eigi að vera með sérstökum festing- um. Stólarnir eru með öðrum orðum sérstaklega framleiddir til notkunar fyrir bandarískar bifreiðir sem yfir- leitt hafa annars konar festingar en bílar hér á landi. „Mikilvægt er að neytendur átti sig á því að FMVSS merktir barna- bílstólar eru ekki lakari en aðrir barnabílstólar en þeir eru sérstak- lega framleiddir til notkunar fyrir bandarískar bifreiðir. Bifreiðir á Ís- landi eru almennt ekki með festing- arbúnað til að festa bandaríska barnabílstóla í bíla,“ segir í tilkynn- ingu frá fyrrgreindum aðilum. Upplýsingar um breytingarnar má nálgast á eftirfarandi vefslóð: http://www.nhtsa.dot.gov/cars/rules/ rulings/UCRA-OMB-J08/Final- Rule.html Athugasemd vegna banda- rískra bílstóla Basar í Ási Basar verður í fönd- urhúsinu á dvalarheimilinu Ási frumskógum 6a, Hveragerði, sunnu- daginn 17. nóvember nk. kl. 13–18, kaffi og vöfflur verða seldar á staðn- um. Jólastofa Soroptimistaklúbbs Ár- bæjar Jólastofa Soroptimistasystra er nú full af handgerðum munum, sem verða til sölu sunnudaginn 17. nóv. kl. 14–17 í sal Árbæjarskóla (gengið inn frá Rofabæ). Hægt verð- ur að kaupa sér kaffi og meðlæti á staðnum. Allur ágóði rennur til líkn- armála. Jólabasar kvennadeildar Rauða krossins Árlegi jólabasar kvenna- deildar Reykjavíkurdeildar RKÍ verður haldinn sunnudaginn 17. nóv- ember kl. 14 til 16 í Efstaleiti 9, húsi Rauða kross Íslands, innkeyrsla frá Efstaleiti. Á boðstólum verða handunnir munir sem tengdir eru jólunum og einnig heimabakaðar kökur. Allur ágóði rennur til Félags einstakra barna, sem er stuðningsfélag fyrir börn með sjaldgæfa sjúkdóma. Kvenna- deild Rauða krossins er ein öfl- ugasta sjálfboðadeild Rauða kross hreyfingarinnar hérlendis, en 36 ár eru síðan konur tóku höndum saman í nafni Rauða krossins og stofnuðu sérstaka deild til að sinna sjúkum og öldruðum. Sýnishorn af fönd- urvörum er til sýnis í glugga Snyrti- vöruverslunarinnar Hygeu, Lauga- vegi 23. Gönguferð í Mosfellsdal Sunnudaginn 17. nóvember 2002 efnir Ferðafélag Íslands til göngu- ferðar á Grímannsfell í Mosfellsdal ofan við Gljúfrastein Halldórs Lax- ness. Grímannsfell er 464 m hátt og hækkun á gönguleið er nálægt 200 metrum. Áætlaður göngutími er 4–5 klst. Brottför er frá BSÍ kl. 11 og komið við í Mörkinni 6. Þátttöku- gjald er 1.700 kr. fyrir félagsmenn og 1.900 kr. fyrir aðra. Fararstjóri í ferðinni er Eiríkur Þor- móðsson. Á MORGUN Baráttufundur á Grand Rokk Áttundi og síðasti upplýsinga- og baráttufundurinn um Kára- hnjúkavirkjun og Norðlingaöldu- veitu verður í dag, 16. nóvember. Sem fyrr en fundarstaður efri hæð Grand Rokk við Smiðjustíg. Að- gangur er ókeypis og öllum er frjálst að líta inn. Dagskráin hefst kl. 14.30. Ólafur Haukur Sím- onarson flytur ávarp, KK leikur nokkur lög og Þóroddur Þórodds- son, sérfræðingur á umhverfissviði Skipulagsstofnunnar, flytur erind- ið: Ferli mats á umhverfisáhrifum framkvæmda. Þá munu Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari flytja tónlist og loks talar Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi. Vélsleðasýning í Smáralind Landsamband íslenskra vélsleða- manna Rvík. stendur fyrir vélsleða- og útivistarsýningu helgina 16. og 17. nóvember. Sýningin verður haldin í Vetrargarðinum í Smára- lind og verður opnunartími frá kl. 11-18 á laugardeginum og 13-18 á sunnudeginum. Allar nýjustu teg- undirnar á vélsleðamarkaðinum ásamt ýmsum aukabúnaði verða til sýnis. Fatnaður, fjarskiptabúnaður, og staðsetningartæki í miklu úrvali ásamt jeppum, kerrum, mótor- hjólum o.fl. Ókeypis er á sýn- inguna. Í DAG Lára Margrét Ragnarsdóttir hefur opnað vefsíðu á slóðinni www.lara- margret.is vegna prófkjörs Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. Lára Margrét, sem sækist eftir fimmta sætinu í prófkjörinu, hyggst ekki opna sérstaka kosningaskrifstofu. Í fréttatilkynningu frá Láru Margréti segir að reynslan sýni að opnun kosningaskrifstofu ráði ekki úrslit- um um niðurstöður prófkjörs. Aftur á móti verði hægt að ná í hana í síma 551-3339 og 861-3298, auk þess sem hún mun vera við störf sín á Alþingi prófkjörsvikuna. Því geti kjósendur haft samband og óskað eftir viðtali. Kosningastjóri Láru Margrétar er Georg Haraldsson, sími 824-3674. Þakkar stuðninginn. Sr. Önundur Björnsson hefur sent til blaðsins eft- irfarandi þakkarávarp: „Að afloknu forvali Samfylking- arinnar í Suðurkjördæmi vil ég færa öllum þeim sem mig studdu og kusu einlægar þakkir. Í DAG STJÓRNMÁL sparaðu fé og fyrirhöfn Moggabúðin Íþróttataska, aðeins 2.400 kr. Moggabúðin Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.