Morgunblaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 37
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 37
Verið velkomin á
Radison SAS Hótel Ísland,
Ármúla 9, 108 Reykjavík,
Sími 869 5450
Lau. 16. nóv. 9-21
Sun.17. nóv. 9-21
Mán. 18. nóv. 9-21
Mikið úrval af viðurkenndum efnum
innfluttum frá Englandi, Frakklandi og Ítalíu
Tökum við kreditkortum
Sendingarkostnaður og tryggingar innifaldar í verði
Herrar
2 jakkaföt
2 skyrtur
2 silkibindi
Aðeins
39.000
Dömur
2 dragtir
2 silkiblússur
2 silkislæður
Aðeins
39.000
Herrar
(fyrir athafnamanninn)
3 jakkaföt
3 skyrtur (silki/bómull)
3 silkibindi
Aðeins
65.000
Dömur
(fyrir athafnakonuna)
3 dragtir
3 silkiblússur
3 silkislæður
Aðeins
65.000
P
Gerum einnig tilboð
eftir þínum óskum
Klæðskera saumuð föt fyrir dömur og herra
„MAXIMUM AWARDED TAILOR 2001“
„GRAND SALE WINTER 2002“atricks
International Tailoring
KOSTAR MINNA
A‹EINS A‹ KEILUGRANDA 1,
200 METRA FRÁ JL HÚSINU
í lagerhúsnæ›i Krónunnar
OPI‹ VIRKA DAGA 12-18
OG 11-16 UM HELGAR
f
a
s
t
la
n
d
-
8
4
2
3 50%
afsláttur
LAGERSALA Á JÓLASKRAUTI, GJAFAVÖRU, VERKFÆRUM, BÚSÁHÖLDUM OG MÖRGU FLEIRA!
M
EÐ auknum fjölda
fólks sem er of þung-
ur vex fjöldi þeirra
sem fá sykursýki af
gerð 2. Árið 1985 var
áætlað að í heiminum væru 30 millj-
ónir manna með sykursýki. Árið 1995
var talan komin í 135 milljónir og árið
2000 í 177 milljónir. Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin áætlar að árið 2025
verði fjöldi fólks með sykursýki orðinn
300 milljónir. Sykursýki af gerð 2 á
eftir að verða þjóðfélaginu dýr baggi,
en það sem er enn verra er að hún
hefur í för með sér aðra sjúkdóma og
að fólk deyr fyrir aldur fram.
Forvarnir
Besta leiðin til að koma í veg fyrir að þessi spá rætist eru forvarnir, bæði til
að fækka þeim sem fá sykursýki og koma í veg fyrir fylgikvilla sjúkdómsins.
Ráðin eru í sjálfu sér einföld:
Haltu þyngdinni í skefjum.
Hreyfðu þig reglulega.
Borðaðu fjölbreyttan og hollan mat í hófi.
Einkenni
Einkenni sykursýki af gerð 2 geta verið lúmsk. Helstu einkennin eru:
Þorsti
Tíð þvaglát
Sjóntruflanir
Kláði í nára eða fótum
Þreyta
Hafðu samand við lækninn þinn ef þú hefur þessi einkenni og láttu mæla
blóðsykurinn.
Góð ráð fyrir sykursjúka
Fyrir þá sem þjást af sykursýki af gerð 2 er mikilvægt að hafa eftirfarandi
ráð í huga:
Margir eru of þungir og verða að grenna sig – hugsanlega þarf þá ekki lyf.
Hollur matur – lítil fita, grófmeti, grænmeti, forðast sykur og borða 5–6
máltíðir á dag.
Ekkert tóbak og áfengi í hófi.
Fylgjast með blóðþrýstingnum og blóðfitunni.
Hreyfa sig í að minnsta kosti hálftíma á dag.
Reglulegt eftirlit hjá lækninum þínum.
Vegna hættu á blóðrásartruflunum þarf að passa fæturna vel.
Fræðsluefni Samtaka sykursjúkra
Samtök sykursjúkra standa nú fyrir fræðsluherferð í því augnamiði að
vekja athygli fólks á því hvernig draga megi úr hættu á að fá sykursýki af
gerð 2 og minnka líkur á fylgikvillum sjúkdómsins. Samtökin hafa gefið út
fræðsluefni fyrir almenning og heilbrigðistarfsfólk sem nálgast má á heilsu-
gæslustöðvum, í apótekum og hjá Samtökum sykursjúkra.
Anna Björg Aradóttir hjúkrunarfræðingur
Frá Landlæknisembættinu
Heilsan í brennidepli
Lifðu lengur –
lifðu betur
Sykursýki er vaxandi vandamál.
Reglubundin hreyfing og hollt
mataræði dregur úr áhættu.
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is