Morgunblaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 29
ÁRBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 29 , Síðumúla 34 • 108 Reykjavík • Sími 533 3331 AFSLÁTTUR • Innrömmun Opið laugardag 11-16, sunnudag 13-16 20% speglar • 20% plaggöt • 20% ísl. grafík 16.-20. nóvember20% „ÞAÐ er mjög góð hreyfing á bygg- ingamarkaðnum á Suðurlandi. Það er mikið um lóðaúthlutanir á þétt- býlisstöðunum en ég geri ráð fyrir að í Hveragerði, á Selfossi, Eyrar- bakka og Stokkseyri sé búið að út- hluta lóðum fyrir 100 íbúðir á síð- astliðnum tveimur mánuðum. Þetta eru verkefni sem ekki er byrjað á enn. Síðan er heilmikið uppi í sveit- um, ég hef til dæmis orðið var við að tíu íbúðir á Laugarvatni eru í und- irbúningi og síðan er mikið um að vera á Hellu,“ sagði Ingvi Rafn Sig- urðsson, sölustjóri hjá BYKO á Suðurlandi, en hann fylgist mjög vel með allri hreyfingu varðandi lóðaút- hlutanir hjá sveitarfélögum enda er þar á ferðinni markhópur hans í starfinu. Ingvi Rafn kynnti starf- semi sína ásamt fleirum á bygg- ingadögum í síðustu viku hjá fast- eignasölunni Árborgum á Selfossi. Ingvi Rafn sem er við annan mann á söluskrifstofunni stendur daginn út og inn í tilboðsgerð fyrir fólk í leit að innréttingum og fyrir verktaka og húsbyggjendur í efnis- kaupum. „Við sendum stóran bíl á hverjum degi hingað austur með efni sem keyrt er til kaupandans. Um er að ræða allt sem til er hjá BYKO og þetta er mjög líflegt enda Suðurland góður markaður fyrir byggingarefni,“ sagði Ingvi Rafn. Parhúsalóðir vantar á Selfossi „Það vantar tilfinnanlega lóðir fyrir parhús á Selfossi,“ sagði Krist- ján Jónsson byggingaverktaki en hann var með einbýlishús í kynn- ingu á byggingardögum Árborga. „Ég hef alltaf selt vel þessi parhús sem ég hef verið með og hér er meiri eftirspurn eftir þeim. Þau eru ódýrari í byggingu og mjög þægi- legur kostur fyrir fólk en parhúsin koma næst því að vera í einbýli,“ sagði Kristján sem afhendir húsin á þremur byggingarstigum. „Ég fékk strax viðbrögð hjá fólki eftir að ég setti þessi hús á sölu,“ sagði Jón Albertsson hjá bygginga- félaginu Laska sem kynnti raðhús sem fyrirtækið er með í byggingu í Fosslandinu á Selfossi. Hann seldi strax eitt hús á fyrsta kynningar- degi fasteignasölunnar. „Það er fólk á öllum aldri sem spyr um þessi hús og greinilegt að það er mikil hreyf- ing í þá átt að fólk vill setjast að hér í þéttbýlisstöðunum í sýslunni. Sigurður Guðmundsson, sölu- maður hjá Árborgum, sagði við- brögð við byggingadögunum góðar og viðtökur mjög líflegar við öllum nýjum húsum og íbúðum sem kæmu á markaðinn. Sem dæmi um það nefndi hann að í 20 herbergja blokk sem væri í byggingu í Fosslandinu og rétt að skríða upp úr jörðinni væri nú þegar búið að selja 10 íbúð- ir og mikið spáð í þær sem eftir væru. Þannig mætti vel merkja mikinn áhuga fólks á búsetu á svæð- inu. Mikil hreyfing á bygginga- markaðnum Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Við kynningarborðið á byggingadögum Árborga. Kristján Jónsson byggingaverktaki, Sigurður Guðmundsson sölumaður, Ingvi Rafn Sigurðsson, sölustjóri BYKO á Suðurlandi, og Jón Albertsson hjá byggingafyrirtækinu Laska. Í dyrunum fyrir aftan er einn af viðskiptavinum dagsins. Selfoss LOKIÐ er nú röð fjögurra fyrir- lestra sem haldnir hafa verið í sam- vinnu Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri og Byggðasafns Ár- nesinga í tilefni af 150 ára afmæli skólans. Allir hafa þessir fyrirlestrar fjallað um skólamál, viðhorf í fortíð og reynt hefur verið að spá í framtíð- ina. Síðastur í röðinni var fyrirlestur sem bar heitið „þekking, frá skorti til offlæðis“, sem fluttur var af prófess- or Erni D. Jónssyni. Þessi fyrirlestrakvöld hafa mælst mjög vel fyrir hjá fólki og hafa að jafnaði verið vel sóttir. Standa þess- ar samkomur að jafnaði frá kl. 8.30 til 22.30, með stuttu kaffihléi. Eftir hlé eru jafnan fjörugar umræður til loka. Ljósmynd/Óskar Magnússon Örn D. Jónsson í ræðustól hússins. Fyrir- lestraröð í Húsinu Eyrarbakki „ÞEGAR svona er háttað þá veit enginn ókunnugur hvert hann á að beygja og hingað er alltaf að koma fólk annarstaðar frá. Það má alls ekki gleyma að setja upp götuskilt- in þegar gengið er frá svona nýju og glæsilegu umferðarmannvirki eins og þessu hringtorgi hér á Tryggvagötu, Langholti og Foss- heiði,“ segir Ólafur Ólafsson fyrr- verandi fulltrúi á bæjarskrifstofu Árborgar. „Ég var á Blönduósi í sumar og lenti þá í þessu að göturnar voru illa merktar og þá villist maður. Ef ekkert er merkt þá missa þeir þráð- inn sem eru ókunnugir og ruglast í ríminu,“ sagði Ólafur og benti á að í svona framkvæmdum ætti götu- merkingin að vera inni í verkinu og að það væri óþarfi og neyðarlegt að hana vantaði. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ólafur Ólafsson við hringtorgið. Munið að merkja Selfoss HÓTEL Ljósbrá hefur verið rekin af Smára Sæmundssyni og Þorvaldi Ásgeirssyni frá 15. september 2001. Eiginkona Smára er Guðríður Gísla- dóttir og eru þau hjón fastastarfs- menn hótelsins. Að sögn Smára er hótelið í raun tvískipt, þ.e. hótel sem hýst getur 14 manns og farfugla- heimili sem hýsir allt að 18 manns. Síðastliðið sumar voru gistinæturn- ar um 1700 og voru gestirnir að meg- inhluta erlendir ferðamenn. Nokkuð hefur verið um að innlendir og er- lendir hópar hafi komið og fyllt allt gistirými, þá eru haldnar veislur, sungið og dansað fram á kvöld. Hótel Örk vísar gestum á Hótel Ljósbrá þegar yfirfullt er á Örkinni. Hótel Ljósbrá hefur sett sér um- hverfisstefnu sem hljóðar svo: Hótel Ljósbrá ehf leggur áherslu á að starfsemi hótelsins hafi sem minnst skaðleg áhrif á ytra umhverfi sem og að starfsumhverfi sé eins og best verður á kosið. Hótel Ljósbrá ehf gætir þess í rekstri sínum að uppfylla allar kröf- ur laga og reglugerða um hollustu- vernd og verndun umhverfis. Hótel Ljósbrá ehf beinir viðskiptum sínum fyrst og fremst til aðila sem uppfylla sömu lágmarkskröfur. Hótel Ljósbrá ehf hefur sett sér eigin stefnumið og markmið í um- hverfismálum sem í mörgum grein- um ganga lengra en lög og reglur um umhverfismál og umhverfisvernd mæla fyrir um. Með umhverfisstefnu sinni skuldbindur Hótel Ljósbrá ehf sig til að vinna að því með kerfis- bundnum hætti að ná þeim mark- miðum sem fyrirtækið hefur sett sér varðandi umhverfisvernd. Unnið á Netinu Umhverfisstefnan og fram- kvæmdaáætlunin sem og endurskoð- un hennar er gerð í samstarfi við um- hverfisfyrirtækið BELUGA ehf og hefur hlotið viðurkenningu um að uppfylla kröfur BELUGA um um- hverfisstefnu. Beluga er nýtt fyrirtæki, stofnað sl. vor, sem sérhæfir sig í öllu því sem lýtur að umhverfismálum. Fyr- irtækið aðstoðar önnur fyrirtæki við að koma á metnaðarfullri umhverf- isstefnu sem jafnframt er markmið- atengd. Að sögn Úlfs Björnssonar talsmanns Beluga eru verkefni þess að stórum hluta unnin í gegnum net- ið. Í sumar hefur aðallega kynning- arstarfi verið sinnt, en núna er verk- efnastaða orðin allgóð og góðar horfur á enn fleiri verkefnum. Starfsmenn Beluga eru 6 – 8 og eru þeir staðsettir um allt land, sem er umhverfisvænt því með því sparast ferðakostnaður og ferðir. Heimasíða fyrirtækisins er bel- uga.is. Hótel Ljósbrá – um- hverfisstefnan vottuð Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Afhending vottunarinnar. Frá vinstri: Guðjón Ólafsson frá Beluga, Smári Sæmundsson, hótelstjóri Hótels Ljósbrár, og Úlfur Björnsson frá Beluga. Hveragerði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.