Morgunblaðið - 16.11.2002, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 11
. s æ t i ð3
Sólveig Pétursdóttir
dóms- og
kirkjumálaráðherra
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík
22. og 23. nóvember 2002.
Kosningaskrifstofa
stuðningsmanna Sólveigar
er að Suðurlandsbraut 8,
Fálkahúsinu.
Allir hjartanlega velkomnir.
Stuðningsmenn.
Skrifstofan er opin virka daga frá
kl. 14:00 til 21:00 og um helgar frá
kl. 13:00 til 18:00.
Símar skrifstofunnar eru:
568 0582 og 568 0584
Faxnúmer er 568 0584
Stærsta töskuverslun landsins
Skólavörðustíg 7, sími 551 5814
Herra
kr. 2.800
Dömu
kr. 2.600
Þar sem hanskarnir fást
Er þér kalt?
SÚ STAÐREYND að íslensk
stjórnmál hafa þróast með þeim
hætti að Vinstrihreyfingin – grænt
framboð gengur einn flokka fram
undir merkjum vinstristefnu og um-
hverfisverndar leggur sérstakar
skyldur á herðar flokksins. Þetta
kom fram í ræðu formans Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs,
Steingríms J. Sigfússonar, á flokks-
ráðsfundi VG á Hótel Loftleiðum í
gær.
„Þar er engum öðrum til að
dreifa. Meðan aðrir kenna sig við
miðju eða þróun í átt til miðju
stjórnmálanna og suma dreymir um
helmingaskipti við Framsóknar-
flokkinn, þá höldum við uppi harðri
stjórnarandstöðu, gagnrýnum báða
stjórnarflokkana og viljum ger-
breytta stefnu, vinstristefnu, vel-
ferðarstjórn,“ sagði Steingrímur.
Sagðist hann með engu móti geta
séð hvernig slík velferðarstjórn gæti
orðið til nema í henni væri vinstri-
flokkur frekar en hann sæi hvernig
vinstrimenn yrðu sameinaðir í
miðjuflokki.
Gagnrýni á stjórnarflokkana
„Eðlilegir samherjar okkar í bar-
áttunni fyrir gerbreyttri stjórnar-
stefnu eru auðvitað hinir stjórnar-
andstöðuflokkarnir, Samfylkingin
og Frjálslyndi flokkurinn, þótt
stefna og áherslur séu ólíkar í ýms-
um málum. Vinstrihreyfingin – gænt
framboð er reiðubúin til samstilltrar
baráttu og við eigum í engum erf-
iðleikum með að bera okkur í munn
nöfn þessara flokka, Samfylkingin,
Frjálslyndi flokkurinn, heyriði
bara.“
Steingrímur sagði að stjórnarand-
staðan myndi aðeins ná árangri að
hún væri trúðverðugur valkostur við
þá stjórnarstefnu sem nú væri við
völd. Gilti það einu þótt úrslit kosn-
inga kynnu að gera það nauðsynlegt
að vinna með fleirum þótt ólíklegt
væri að hreinn meirihluti núverandi
stjórnarandstöðu ynnist.
Steingrímur sagði að vinstrigræn-
ir hefðu með margvíslegum hætti
teflt fram öðrum áherslum í atvinnu-
málum og öfugt við ríkisstjórnina
hefði VG tröllatrú á möguleikum,
getu og tækifærum innlendra aðila.
„Við leggjum áherslu á fjöl-
breytni, nýsköpun og smá og með-
alstór fyrirtæki og vöxt þeirra. Á
sjálfbæra þróun atvinnulífsins,“
sagði Steingrímur og bætti við: „Vit-
ið þið hvað Össur, Bakkavör, Marel,
Baugur, 3xStál, MT bílar, Ólafsfirði,
Sæplast, Samherji, Atlanta og
Kaupþing, svo nokkuð sé nefnt, eiga
sameiginlegt fyrir utan að vera fyr-
irtæki í vexti og sókn á erlendum
mörkuðum? Jú, þau voru yfirleitt
ekki til eða þá smáfyrirtæki með
einn eða nokkra starfsmenn fyrir
15–25 árum.“
Opið málþing í dag
Á fundinum í gær voru almennar
umræður um málefnahandbók sem
VG hyggst gefa út um stjórnmálin í
aðdraganda alþingiskosninganna.
Þá spunnust umræður um ályktanir
fundarins sem afgreiddar verða í
dag, s.s. á sviði velferðarmála, heil-
brigðismála, menntamála, húsnæð-
ismála og umhverfismála auk at-
vinnumála með fjölbreytni og
nýsköpun að leiðarljósi.
Í dag efna vinstrigrænir til opins
málþings undir yfirskriftinni Vel-
ferðarstjórn – velferðarsamfélag og
hefst þingið klukkan 14.
Vinstrigrænir vilja gerbreytta stjórnarstefnu
Stjórnarandstöðuflokk-
arnir eðlilegir samherjar
Morgunblaðið/Kristinn
Steingrímur sagði að vinstrigrænir
hefðu með margvíslegum hætti
teflt fram öðrum áherslum í at-
vinnumálum og hefðu tröllatrú á
möguleikum, getu og tækifærum
innlendra aðila.
GUÐJÓN Guðmundsson alþingis-
maður segir að Vilhjálmur Egilsson
verði að útskýra betur hvað hann
eigi við um að Guðjón og Sturla
Böðvarsson, samgönguráðherra,
verði að axla pólitíska ábyrgð á gerð-
um stuðningsmanna sinna í utan-
kjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir
prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norð-
vesturkjördæmi fyrir viku.
Guðjón ítrekar að hann hafi hvergi
komið nálægt hinni umdeildu utan-
kjörfundaratkvæðagreiðslu. „Ég hef
margsagt frá því áður að ég var á yf-
irreið yfir kjördæmið meðan þetta
átti sér stað og kom hvergi nálægt
þessu. Það eru hreinar línur.“ Eftir
að málið kom upp hafi hann rætt við
fólk sem tók þátt í að fara með utan-
kjörfundaratkvæði út í bæ. Greini-
legt væri að þarna hefði orðið hrap-
allegur misskilningur milli heima-
manna og þeirra sem sáu um fram-
kvæmd prófkjörsins. „Ef menn
hefðu verið að svindla hefðu þeir
ekki gert það fyrir opnum tjöldum.
Þetta eru auðvitað óskiljanleg mis-
tök sem ekki eiga að verða en urðu
samt,“ segir hann. Auk þess hafi öll-
um umdeildum atkvæðaseðlum verið
eytt áður en talning hófst og þetta
hafi því ekki haft áhrif á úrslit próf-
kjörsins. „Vilhjálmur verður að
sætta sig við það eins og ég, að hafa
ekki náð þeim árangri í prófkjörinu
sem stefnt var að,“ segir Guðjón.
Aðspurður um lausn á deilunum
segir Guðjón að fulltrúaráð Sjálf-
stæðisfélaganna á Akranesi muni
funda um málið eftir helgi og þar
verði e.t.v. lögð fram ályktun. Málið
sé þó í ákveðnum farvegi sem hafi
verið einróma samþykktur af stjórn
kjördæmisráðs og af kjörnefnd. „En
það vilja ekki allir sætta sig við það.
Svo verðum við bara að sjá til með
framhaldið,“ segir hann.
Kjörkassar ekki á ferðinni
Vilhjálmur Egilsson sagði m.a. við
Morgunblaðið í gær að í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Norðvestur-
kjördæmi hafi m.a. verið utankjör-
fundaratkvæðagreiðsla á rafmagns-
verkstæði HB og í Sementsverk-
smiðjunni á Akranesi. Karl Þórðar-
son, yfirmaður rafmagnsdeildar HB
á Akranesi, vísar þessum ummælum
á bug og segir að ekki hafi verið kos-
ið á verkstæðinu. Gylfi Þórðarson,
framkvæmdastjóri Sementsverk-
smiðjunnar, segir að einhverjir
starfsmenn verksmiðjunnar hafi
kosið í prófkjörinu, en það sé algjör
tilbúningur að kjörkassar hafi verið
á ferð í verksmiðjunni eða kosningar.
Guðjón Guðmundsson um gagnrýni Vilhjálms Egilssonar
Verður að útskýra málið betur
mbl.isFRÉTTIR