Morgunblaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 22
Reuters
Pelosi fagnar kjöri sínu ásamt Gephardt.
NANCY Pelosi, fulltrúadeildar-
þingmaður bandarískra demókrata
frá Kaliforníu, var á fimmtudaginn
kjörin leiðtogi flokksins í fulltrúa-
deildinni, þar sem demókratar eru
í minnihluta. Er Pelosi fyrsta kon-
an í sögu Bandaríkjanna sem gegn-
ir slíku embætti. Hún er 62 ára og
er í hópi frjálslyndra demókrata.
Hún tekur við af Richard Gep-
hardt, sem er í hópi miðjumanna í
flokknum.
„Þetta er gífurlegur heiður,“
sagði Pelosi við fréttamenn
skömmu eftir að hún hafði verið
kjörin með 137 atkvæðum gegn 29.
Mótframbjóðandi hennar var Har-
old Ford, þingmaður frá Tenn-
essee, sem lýsti sig miðjumann.
Pelosi hefur í 15 ár verið þing-
maður fyrir San Francisco, og í
fyrra var hún valin í það hlutverk
að sjá um að þingmenn demókrata
í fulltrúadeildinni mæti í atkvæða-
greiðslur og haldi sig við flokkslín-
una. Hún hefur verið fremst í
flokki demókrata í andstöðu við
stjórn George W. Bush forseta í
málum á borð við Írak, viðskipti við
Kínverja og uppbyggingu hins nýja
heimavarnarráðuneytis.
Hún er ættuð frá Baltimore, úr
stórri ítalsk-bandarískri fjölskyldu
sem hefur gegnt stóru hlutverki í
stjórnmálum. Bæði faðir hennar og
bróðir hafa verið borgarstjórar í
Baltimore. Hún er sögð eiga sér
marga bandamenn í forystu Demó-
krataflokksins, en hefur sætt gagn-
rýni fyrir frjálslyndar skoðanir sín-
ar.
Stjórnmálaafskipti hennar hóf-
ust í San Francisco í byrjun níunda
áratugarins. Þá hafði hún verið
húsmóðir til fjölda ára, gift kaup-
sýslumanni og alið upp fimm börn.
Fréttaskýrendur segja að það ætti
að koma flokknum til góða að hún
er kona, en demókratar hafa
löngum reitt sig á atkvæði frá kon-
um. Þá sé ljóst, að Pelosi vilji auka
bilið á milli Demókrataflokksins og
Repúblíkanaflokksins í utanríkis-,
efnahags-, mennta- og heilbrigðis-
málum.
Pelosi bíður það verkefni að end-
urskilgreina flokkinn í kjölfar ósig-
urs hans í kosningunum 5. nóv-
ember. Hún kvaðst myndu standa
við hlið Bush forseta í baráttu hans
gegn hryðjuverkastarfsemi, en
sagði að Demókrataflokkurinn
myndi ekki beygja sig er kæmi að
mismunandi viðhorfum til efna-
hagsmála.
Demókratar, sagði hún, yrðu að
koma sér saman um árangursríka
efnahagsstefnu, og „hún verður ná-
kvæmlega í miðjunni“, sagði Pelosi.
Andstæðingar hennar í leiðtoga-
kjörinu höfðu haldið því fram að
hún væri of vinstrisinnuð til að
höfða til miðjusinnaðra kjósenda.
Gagnrýnd fyr-
ir frjálslyndi
Washington. AFP.
Kona í fyrsta sinn þingflokksfor-
maður bandarískra demókrata
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
ÁBYRGÐ ÁREIÐANLEIKI
AP
Kristina (fyrir miðju) var valin ungfrú Prísund en Inga (t.v.) lenti í öðru
sæti og Tatjana í þriðja í fyrstu fegurðarsamkeppninni meðal kvenfanga.
KRISTINA, sem afplánar nú fjög-
urra ára fangelsisdóm, var valin
ungfrú Prísund í fyrstu fegurð-
arsamkeppni kvenfanga í Litháen
sem fór fram á bak við lás og slá.
„Ég trúi þessu ekki enn, þetta er
allt eins og draumur,“ sagði Krist-
ina. „Ég vona að þetta breyti lífi
mínu til hins betra.“
Kristina – smávaxin og fíngerð
stúlka með sítt og dökkt hár – hef-
ur verið í fangelsi í tvö ár. Hún var
á meðal átta kvenna á aldrinum
19–31 árs sem tóku þátt í fegurð-
arsamkeppninni í eina kvenna-
fangelsi Litháens.
Skipuleggjendur samkeppninnar
lögðu blátt bann við því að skýrt
yrði frá þeim glæpum sem Kristina
og hinar fegurðardísirnar voru
dæmdar fyrir. Litháísk einkasjón-
varpsstöð sýndi samkeppnina í
gærkvöldi.
Konurnar komu fram í baðfötum
og brúðar- og viðhafnarkjólum,
sem þekktur litháískur tískuhönn-
uður var fenginn til að hanna.
Kristina fékk andvirði 100.000
króna í verðlaun. Inga, sem hélt
upp á 31 árs afmæli sitt daginn
sem samkeppnin fór fram, varð í
öðru sæti og fékk andvirði 60.000
króna. Tatjana, 25 ára, náði þriðja
sætinu og varð 25.000 krónum rík-
ari.
Þær fá þó ekki verðlaunaféð fyrr
en þær hafa afplánað fangelsis-
dómana.
„Þetta er í annað sinn sem ég tek
þátt í fegurðarsamkeppni, í fyrra
skiptið var ég 17 ára, en þetta var
öðruvísi,“ sagði Inga og gleðitárin
streymdu af hvörmunum.
Hennar bíður nú fimm ára vist í
fangelsinu.
Ungfrú Prísund Evrópu?
Konurnar þurftu ekki að vinna á
saumastofu fangelsins vikuna fyrir
samkeppnina til að þær gætu und-
irbúið sig. Um 100 kvenfangar
fylgdust með keppninni.
Stjórnandi samkeppninnar, Ar-
unas Valinskas, bræðir nú með sér
hvort hann eigi að efna til stærri
fegurðarsamkeppni meðal fanga.
„Þetta er fyrsta fegurðarsam-
keppnin af þessu tagi í heiminum,
en ef til vill ekki sú síðasta. Við
höfum þegar verið beðnir um að
renna huganum til ungfrú Prísund-
ar Evrópu.“
Ungfrú Prísund krýnd
Vilnius. AFP.
ÓTTAST er að Argentína fái ekki
fleiri lán frá alþjóðlegum fjármála-
stofnunum eftir að hafa lent í van-
skilum með lán frá Alþjóðabankan-
um í fyrradag. Þetta torveldar
tilraunir Argentínustjórnar til að fá
nýtt lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um, IMF, sem er síðasta hálmstrá
landsins þar sem það lenti í van-
skilum við aðra lánardrottna sína í
fyrra.
Argentína greiddi aðeins 79 millj-
ónir dala (6,7 milljarða króna) í
vexti af láni að andvirði 805 millj-
óna dala (68 milljarða króna).
Landið hefur mikla þörf fyrir nýtt
lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
og Roberto Lavagna, efnahags-
málaráðherra Argentínu, sagði að
lánið frá Alþjóðabankanum yrði
ekki endurgreitt fyrr en samkomu-
lag næðist við IMF.
Þetta varð til þess að aðalhluta-
bréfavísitala Argentínu lækkaði
strax um 3,25%.
Anne Krueger, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri IMF, sagði eftir við-
ræður við Lavagna í Washington að
stjórn sjóðsins hygðist leggja til að
fallist yrði á beiðni Argentínu-
stjórnar um greiðslufrest vegna
láns að andvirði 140 milljónir dala
(11,9 milljarðar króna) sem á að
gjaldfalla á föstudaginn kemur.
Skuldir Argentínu við IMF nema
alls 14 milljörðum dala (1.200 millj-
örðum króna) og þar af gjaldfalla
6,5 milljarðar dala (550 milljarðar
króna) á næstu þremur mánuðum.
Hefur reitt sig á
Alþjóðabankann
Samkvæmt reglum Alþjóða-
bankans verða vanskil Argentínu
sjálfkrafa til þess að hann getur
ekki veitt landinu fleiri lán eða
vaxtaívilnanir. Eftir 30 daga stöðv-
ar bankinn einnig greiðslur vegna
lána sem þegar hefur verið samið
um.
Argentína hefur reitt sig á lán frá
Alþjóðabankanum til að endur-
skipuleggja hagkerfið og fjármagna
brýn félagsleg verkefni eftir að
hafa lent í vanskilum í desember í
fyrra með erlend lán að andvirði 95
milljarðar dala (8.000 milljarðar
króna). Voru það mestu vanskil
sjálfstæðs ríkis í sögunni.
Argentínumenn ganga nú í gegn-
um mestu efnahagskreppu í sögu
landsins og búist er við að efnahag-
urinn dragist saman um 11,5% í ár.
Meira en helmingur landsmanna
lifir undir fátæktarmörkum og
fjórðungur þeirra er án atvinnu.
IMF er nú síðasta
hálmstrá Argentínu
Buenos Aires. AFP, AP.
BRESKI barnamorðinginn Myra
Hindley lést í sjúkrahúsi í Bretlandi í
gær af fylgikvillum hjartaáfalls sem
hún fékk fyrir
tveimur vikum.
Hindley og unn-
usti hennar, Ian
Brady, voru
dæmd í lífstíðar-
fangelsi árið 1966
fyrir morð á
tveimur börnum
og einum unglingi
en síðar játaði
Hindley að þau
hefðu myrt tvö börn til viðbótar.
Hún var sextug.
Öll voru börnin beitt kynferðis-
legu ofbeldi áður en þau voru myrt.
Þau voru tíu, tólf og sextán ára en
upp komst um glæpina er Hindley og
Brady myrtu fimmta fórnarlamb
sitt, sem var sautján ára, fyrir fram-
an mág Hindleys.
Barnamorð-
ingi látinn
London. AFP.
Myra Hindley