Morgunblaðið - 16.11.2002, Page 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 23
!!" !#" $
$ "
!
! "
" #
"
$
%
& "
#
$%
&
'
($
)&
(
" *&
"
) *
" +
"
+ + #
, + " , "
* "
"
-
# -.
" ,
-. / "
*
(" & 0 +$
./*
$
& 1
"
& 23
+
$
'
0 - 1
/
# " + /
4!
/
OPIÐ HÚS - BRÆÐRABORGARSTÍGUR 20
Mikið endurnýjað timburhús sem byggt var 1905 við Bræðraborgarstíg
20. Íbúðin, sem er á annarri hæð í tvíbýlishúsi, er með tveimur rúmgóðum
svefnherbergjum auk stofu og eldhúss og baðherbergis. Í
kjallara er herbergi auk þvottahúss og geymslu. Húsið
stendur á eignarlóð.
Páll sölufulltrúi Remax/Þingholt, s. 864 0500,
sýnir íbúðina í dag á mill kl. 14 og 16
Páll
Höskuldsson
864-0500
Heimilisfang:
Bræðraborgarstígur 20.
Byggingarár: 1905
Opið hús: kl. 14-16.
Frekari upplýsingar:
www.thingholt.is
Sigurbjörn
Skarphéðinsson
lögg. fasteignasali
ALEXANDER Lúkasjenkó forseta
og öðrum æðstu embættismönnum
Hvíta-Rússlands verður bannað að
ferðast til aðildarríkja Evrópusam-
bandsins, að sögn embættismanna í
Brussel í gær.
Heimildarmennirnir sögðu að á
tveggja daga fundi utanríkisráð-
herra ESB-ríkjanna, sem hefst á
mánudag, yrði tekin fyrir tillaga um
bann við því að veita Lúkasjenkó
vegabréfsáritanir.
Lúkasjenkó hefur verið kallaður
„síðasti einræðisherra Evrópu“ og
stjórn hans hefur verið sökuð um
gróf mannréttindabrot. Sú ákvörðun
hennar að vísa fulltrúa Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE,
úr landi hefur einnig verið gagnrýnd.
Heimildarmennirnir sögðu að
„mikil samstaða“ væri meðal leið-
toga ESB-ríkjanna um bannið. Það á
að ná til 52 embættismanna, ráð-
herra, aðstoðarráðherra, embættis-
manna forsetaskrifstofunnar, yfir-
manna ríkissjónvarpsins og æðstu
dómara, auk forsetans. Undanþágur
verða þó veittar vegna funda í ESB-
löndunum á vegum alþjóðlegra sam-
taka.
ESB áformar ferða-
bann á Lúkasjenkó
Brussel. AFP.
ÓTTAST var að yfir 150
manns hefðu fallið í gær er
maóistar gerðu árásir í tveim-
ur héruðum í Nepal og kröfð-
ust þess að stjórnvöld sættist á
samningaviðræður. Um þrjú
þúsund uppreisnarmenn úr
röðum maóista réðust til inn-
göngu í aðsetur stjórnarinnar í
Jumla-héraði og brutu þar og
brömluðu og báru eld að hús-
um áður en þeir voru hraktir á
brott, að sögn lögreglu. Hinir
föllnu voru lögreglumenn, her-
menn og óbreyttir borgarar,
ásamt nokkrum tugum upp-
reisnarmanna. Erfitt hefur
verið að fá fréttir af mannfall-
inu staðfestar þar sem síma-
samband við Jumla var að
mestu rofið. Maóistarnir hafa
barist gegn stjórnvöldum í
Nepal síðan 1996 og hafa á
sínu valdi að minnsta kosti sex
af 75 héruðum landsins. Hafa
yfir 7.100 manns fallið í átök-
um þeirra við lögreglu og
stjórnarherinn.
Pakistani
tekinn af lífi
PAKISTANSKUR ríkisborg-
ari, Mir Aimal Kasi, var tekinn
af lífi í Bandaríkjunum á
fimmtudagskvöldið, en hann
hafði verið dæmdur til dauða
fyrir að myrða tvo starfsmenn
bandarísku leyniþjónustunnar
(CIA) 1993. Skaut hann þá til
bana með sjálfvirkum riffli
fyrir utan höfuðstöðvar CIA í
Virginíuríki. Þrír aðrir særð-
ust í skotárásinni. Fjölskylda
Kasis og pakistönsk stjórnvöld
höfðu farið fram á að hann yrði
náðaður af mannúðarástæð-
um. Ströng öryggisgæsla var
við fangelsið þar sem aftakan
fór fram, en bandarísk yfirvöld
óttast að herskáir islamistar
láti til skarar skríða vegna af-
tökunnar.
Hótanir frá
Al-Aqsa
AL-AQSA-herdeildirnar,
vopnaður armur Fatah-sam-
taka Yassers Arafats, leiðtoga
Palestínumanna, lýstu því yfir
í gær að þær myndu halda
áfram sjálfsmorðssprengjutil-
ræðum í Ísrael, og höfðuðu þar
með fyrri yfirlýsingu Fatah
um að slíkum tilræðum yrði
hætt. Í yfirlýsingunni sagði að
tilræðum yrði haldið áfram
uns hernámi palestínskra
landsvæða yrði aflétt.
Bann fyrir
koss
BANNAÐ er að beita dómara
ofbeldi á knattspyrnuvöllunum
en hollenskur leikmaður hefur
komist að því að ástúðlegra
viðmót getur einnig komið
mönnum í vandræði. Martin
Bennink, leikmaður áhuga-
mannafélagsins Wilhelm-
inaschool í bænum Hengelo,
var settur í tveggja mánaða
leikbann vegna þess að hann
hrifsaði í dómarann og kyssti
hann. Leikmaðurinn hafði þá
verið sendur út af fyrir að and-
mæla ákvörðunum dómarans
of harðlega. Bennink var sett-
ur í bann fyrir að „beita dóm-
arann líkamlegu ofbeldi og
sýna honum óvirðingu“.
STUTT
Yfir 150
taldir
hafa fallið