Morgunblaðið - 16.11.2002, Síða 25
Þessi stefnubreyting er varlega
orðuð, með það að markmiði að gera
flokknum kleift þegar fram líða
stundir að vera málsvari allra skap-
andi afla í kínversku samfélagi, allra
þátta framsækinnar menningar og
breiddarinnar í íbúasamsetningu
Kína.
Og reyndar sátu strax á þessu ný-
afstaðna flokksþingi fulltrúar hins
einkarekna atvinnulífs, sem fyrst var
heimilað í Kína árið 1979. Fyrir þann
tíma var hvers kyns einkarekstur
skilgreindur sem afturhald, and-sós-
íalískt athæfi og þaðan af verra.
Þannig er það nú í höndum hinnar
nýju flokksforystu að hrinda mark-
miðum flokksstefnunnar í fram-
kvæmd, þar á meðal að fjórfalda skuli
lífskjör í landinu á næstu 18 árum.
Það var ákveðið með tilliti til þess að
tekizt hefur að fjórfalda lífskjörin á
síðustu 22 árum.
Auk Hu Jintao eiga nú sæti í æðstu
stjórn flokksins Wu Bangguo, sem er
sextugur, Wen Jiabao, 59 ára, Jia
Quinglin, 62 ára, Zeng Quinghong, 62
ára, Huang Ju, 63 ára, Wu Guangzh-
eng, 63 ára, Li Changchun, 58 ára, og
Luo Gan, 66 ára.
Allt bendir til, að það verði hinn
sextugi Wu Bagguo sem í marz veljist
til að verða arftaki núverandi for-
sætisráðherra, Zhu Rongjis, sem er
73 ára. Hinir framkvæmdanefndar-
meðlimirnir verða annaðhvort vara-
forsætisráðherrar með ábyrgð hver á
sínu sviði eða fá hver sitt ráðuneytið í
nýrri ríkisstjórn, sem þingið kýs
formlega. Einn þeirra mun fá stöðu
þingforseta og annar sem formaður
Ráðgjafarþings kínverskrar alþýðu,
sem ekki er löggjafarsamkunda held-
ur gegnir ráðgefandi hlutverki við
þingið og ríkisstjórnina. Þar sitja
einnig fulltrúar ýmissa hagsmuna-
hópa og annarra stjórnmálaflokka
Kína, sem ekki eiga fulltrúa á löggjaf-
arþinginu.
HU Jintao, sem er 59 ára að aldri,
er fyrsti leiðtogi Kína sem hóf
framaferil sinn í kommúnista-
flokknum eftir að kommúnistar
voru komnir til valda, sem gerðist
árið 1949.
Samkvæmt opinberum upplýs-
ingum um ævi hans fæddist hann í
Anhui-héraði í austurhluta Kína
og gekk í flokkinn árið 1964, þegar
menningarbyltingin svokallaða
stóð sem hæst. Þá var hann nemi í
verkfræði vatnsaflsvirkjana við
Quinghua-háskóla í Peking.
Eftir að námi lauk vann hann
sig upp í ráðuneyti vatnsverndar
og -orku. Þessi bakgrunnur, sem
hann á sameiginlegan með fyrr-
verandi forsætisráðherranum Li
Peng – „slátraranum frá Peking“
– gerir hann líklegan til að vilja
halda áfram með aðrar eins risa-
framkvæmdir og hina umdeildu
Þriggja gljúfra-virkjun.
Flokksferill Hus hófst fyrir al-
vöru eftir að Deng Xiaoping varð
áhrifamesti maður flokksins í lok
áttunda áratugarins. Meðal emb-
ætta sem Hu hefur gegnt er að
fara fyrir flokksdeild kommún-
istaflokksins í Tíbet og Guizhou. Í
Tíbet sýndi hann tilhneigingu til
að sýna hörku, t.d. með því að
bregðast við mótmælum af hálfu
aðskilnaðarsinna með því að setja
herlög. Þær aðgerðir eru álitnar
hafa rutt veginn fyrir því að álíka
harkalegum aðferðum var beitt til
að binda enda á mótmæli á Torgi
hins himneska friðar árið 1989.
Hu sneri aftur til Peking árið
1992, er Deng kallaði hann til setu
í fastanefnd stjórnmálanefndar
flokksins. Þar voru honum fengin
lykilverkefni á borð við að hafa
umsjón með því hverjir veldust í
forystuembætti á lægri flokks-
stigum og með hugmyndafræði-
legri þjálfun þeirra. Að hann skuli
hafa innleitt námskeið um mark-
aðshagfræði og góða stjórnunar-
hætti hefur leitt til tilgátna um að
hann sé umbótasinni inn við bein-
ið.
En hann hefur ætíð verið
flokkslínunni trúr. „Hann hefur
leikið hlutverk „krónprins“ af
snilld,“ hefur BBC eftir stjórn-
málaskýranda. „Hann hefur ekki
tekið neitt skref á röngum tíma –
mestmegnis vegna þess að hann
hefur engin skref stigið.“
Er Hu umbótasinni
inn við beinið?
Hu Jintao
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 25