Morgunblaðið - 16.11.2002, Qupperneq 27
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 27
BRYNJUMÓT í íshokkí stendur nú
yfir í Skautahöllinni á Akureyri.
Þátttakendur eru um 250 talsins, 13
ára og yngri, og koma frá þremur fé-
lögum, Skautafélagi Akureyrar,
Skautafélagi Reykjavíkur og Birnin-
um. Sigurður Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Skautafélags Akur-
eyrar sagði að hátt í 400 gestir væru
í bænum vegna mótsins, en Brynj-
umótið er einn stærsti viðburðurinn í
skautaíþróttum á Akureyri. Það hef-
ur verið haldið árlega undanfarin ár
og þátttakendum fjölgar sífellt að
sögn Sigurðar. Alls verða leiknir um
40 leikir, en mótinu lýkur um hádegi
á morgun, sunnudag. „Þetta er mjög
skemmtilegt mót og það er alltaf að
vaxa,“ sagði Sigurður.
Meistaraflokkar SA og SR leika í
dag, laugardag kl. 17 og má búast við
hörkuleik.
Um 250 kepp-
endur á
Brynjumóti
Fjórir nemendur á fyrsta ári í Fag-
urlistadeild Myndlistaskólans á
Akureyri hafa sett upp innsetning-
arverk á Ráðhústorgi, en það heitir
„Þetta reddast allt.“ Það sam-
anstendur af 150 hvítum blöðrum
sem bundnar eru á bekkina um-
hverfis torgið, en í miðju þess er
hvítplöstuð heyrúlla með textanum
„Þetta reddast allt.“
Tilgangur þessarar uppákomu er
fyrst og fremst að virkja nemendur í
listnámi bæjarins í að færa sköpun
sína út fyrir sín hefðbundnu mörk
sem og að fá nánari tengsl við bæj-
arlífið og vekja fólk til umhugsunar,
segir í frétt frá nemunum.
Í DAG
Kvenfélag Akureyrarkirkju heldur
árlegan kökubasar og kaffisamsæti
eftir messu á morgun, sunnudaginn
17. nóvember, en messan hefst kl.
14.00. Á kökubasarnum verða til
sölu girnilegar og gómsætar kökur á
góðu verði, auk þess sem seldir
verða lukkupakkar. Ágóði af bas-
arnum rennur til styrktar starfi Ak-
ureyrarkirkju.
Á MORGUN
Vinstri grænir á Akureyri efna til
opins fundar um orkumál og fyr-
irhugaðar breytingar á rekstr-
arformi Norðurorku næstkomandi
mánudag, 18. nóvember. Fundurinn
verður í Deiglunni og hefst kl. 20:00.
Stutt framsöguerindi flytja Árni
Steinar Jóhannsson, alþingismaður,
Kristín Sigfúsdóttir, fulltrúi VG í
stjórn Norðurorku og Páll Tóm-
asson, stjórnarformaður Norður-
orku.
Á NÆSTUNNI
Aglow, kristileg samtök kvenna,
halda fund næstkomandi mánudags-
kvöld, 18. nóvember, kl. 20 í fé-
lagsmiðstöðinni í Víðilundi 22.
Ræðumaður kvöldsins verður Anna
Höskuldsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur. Fjölbreyttur söngur, fyr-
irbænaþjónusta og kaffihlaðborð.
FJÓRÐA og síðasta lota heilsurækt-
arátaksins „Fjölskyldan saman,
gaman!“ verður á laugardag, 16. nóv-
ember og verður dagskráin að venju
fjölbreytt.
Íþróttafélagið Akur kynnir borð-
tennis, boccia og bogfimi í íþrótta-
húsinu Bjargi við Bugðusíðu auk
þess að kynna starfsemi sína. Ung-
mennafélag Akureyrar býður upp á
frjálsar íþróttir, leiki, ratleik og
fleira á Akureyrarvelli frá 12 til 14
og Júdódeild KA kynnir júdó í KA-
heimilinu frá kl. 13 til 14. Skíðafélag
Akureyrar verður með kennslu í
skíðagöngu fyrir alla fjölskylduna
við þjónustuhúsið í Kjarnaskógi frá
13 til 15 og í Golfbæ, sem er á Bjargi
mun Golfklúbbur Akureyrar bjóða
upp á kynningu og kennslu í golfi frá
kl. 13 til 16.
Fjölskyldan
saman, gaman
STARFSMENN Skógræktarfélags
Eyfirðinga eru nýlega byrjaðir að
höggva jólatré, en þeir áætla að
höggva um 300 tré í reitum sínum
fyrir þessi jól.
Hallgrímur Indriðason, fram-
kvæmdastjóri félagsins, sagði að
síðustu ár hefðu hátt í þrjú þús-
und tré verið seld á Akureyri, en
félagið fær töluvert af trjám frá
Suðurlandi auk þess sem tré eru
flutt inn.
Í gær voru þeir Hallgrímur og
Kjartan Einarsson að höggva
stafafuru á Þelamörk, hún var
gróðursett í kringum 1985 og
hafa hæstu trén náð allt að
þriggja metra hæð. Hallgrímur
sagði að mest eftirspurn væri að
jafnaði eftir norðmannsþin, enda
tréð mjög barrheldið. „Fyrir þá
sem vilja eitthvað öðruvísi bend-
um við á stafafuruna, sem er
mjög skemmtilegur valkostur,
hún er bæði barrheldin og ilmar
einstaklega vel og lengi, nánast
öll jólin,“ sagði Hallgrímur. Blá-
greni er einnig vinsælt tré, en
það höggva þeir í reit sínum að
Miðhálsstöðum.
Ráðgert er að hefja sölu jóla-
trjáa í Kjarna síðustu dagana í
nóvember, en aukin áhersla hefur
verið lögð á að selja ýmsar afurð-
ir skógarins sem tengjast jólum
þar einnig, skreyti- og föndurefni
ýmiskonar.
„Tíðin lofar góðu til skóg-
arhöggs,“ sagði Hallgrímur. „En
við stefnum að því að ljúka þessu
verki í lok næstu viku.“
Morgunblaðið/Kristján
Hallgrímur Indriðason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, og Kjartan Einarsson, starfsmaður fé-
lagsins, voru að fella stafafuru í reit félagsins á Þelamörk.
Byrjað að
höggva
jólatrén
LÁGMYND af Jónasi
Hallgrímssyni var afhjúp-
uð á Sal Menntaskólans á
Akureyri í gær, en þá var
minnst Dags íslenskrar
tungu. Halldór Blöndal,
forseti Alþingis, afhjúpaði
myndina en hana gerði
Kristinn E. Hrafnsson
myndlistarmaður.
Við athöfn á Sal sagði
Tryggi Gíslason skóla-
meistari frá Jónasi Hall-
grímssyni frá Hrauni í
Öxnadal, en hann fæddist
16. nóvember og hefur
dagurinn verið helgaður
minningu hans síðustu ár. Tryggvi
sagði einnig frá ljóðum Jónasar, en í
tilefni dagsins var gefið út kverið Ís-
land, ljóð Jónasar sem Tryggvi valdi.
Með þessu er verið að gera
Menntaskólann að Akureyri að skóla
Jónasar Hallgrímssonar, en með því
er átt við að skólinn vill leggja sér-
staka rækt við íslensku og náttúru-
vísindi, eins og nefnt er í lögum um
Menntaskólann á Akureyri frá árinu
1930. Hugðarefni Jónasar voru ís-
lenska og náttúruvísindi.
„Jónas Hallgrímsson er meðal
fremstu náttúrufræðinga Íslendinga
fyrr og síðar og hafa störf hans sem
náttúrfræðingur ein skipað honum á
bekk meðal kunnustu Íslendinga
þótt ekkert annað hefði til komið. En
lengst verður Jónasar Hallgríms-
sonar minnst vegna ljóða hans, en
segja má að Jónas Hallgrímsson sé
fyrsta nútímaskáld Íslendinga. Ljóð
hans eru flest eins og þau væru ort í
gær,“ sagði Tryggvi. „Þau höfða enn
sterkt til allra þeirra sem unna ljóð-
um og fögru máli og má mikið af
þeim læra.“
Halldór Blöndal sagði það mikinn
heiður fyrir sig að fá að afhjúpa lág-
myndina af Jónasi. „Mér finnst hún
hafa tekist frábærlega vel,“ sagði
hann og bætti við að íslensk tunga
hefði ekki betur verið kennd í fram-
haldsskólum á Íslandi en í Mennta-
skólanum á Akureyri.
Morgunblaðið/Kristján
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, afhjúpaði
lágmynd af Jónasi Hallgrímssyni í húsnæði
Menntaskólans á Akureyri.
Lágmynd af Jónasi
afhjúpuð á Sal MA
STRANDGATA 3, AKUREYRI
Til leigu eða sölu
er verslunarpláss í miðbæ Akureyrar.
Húsnæðið er 258,6 fm að stærð.
Hentar vel fyrir veitingarekstur af ýmsu tagi.
Upplýsingar í síma 893 0040.
Frábært að
versla og a
llar
helstu versla
nirnar, góð
ir veitingast
aðir,
einstök gest
risni og írsk
pöbbastemn
ing.
Risa jólaskrú
ðganga, han
dverksmark
aður
og sjávarútv
egssýning.
Tvö afbragð
s hótel, íslen
sk fararstjór
n,
skoðunarfer
ðir og um 3
klst
beint flug m
eð Atlanta.
Orlofsávísu
n VR
gildir 5000,
- kr
símar: 562 9950 og 587 6000 • Hesthálsi 10,
netfang: info@vesttravel.is • www.vesttravel.is
VESTFJAR‹ALEI‹
SELJUM SÍ
ÐUSTU 15
SÆTIN!
LAUGARDA
GINN 16. N
ÓV. VERÐU
R OPIÐ Á N
ÝJA
STAÐNUM
Á HESTHÁ
LSI 10 - Kl.
10:00 - 14
:00
VERIÐ VEL
KOMIN ÞA
Ð VERÐUR
HEITT Á K
ÖNNUNNI
!