Morgunblaðið - 16.11.2002, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 31
Byggingaraðili: Hrauntún ehf.
Upplýsingar í símum 896 1606 og 557 7060
3ja og 4ra herb. íbúðir á góðum stað við Hamravík. Vel skipulagð-
ar með fallegu útsýni. Þessi íbúð er dæmi um 4ra herb. íbúð sem
hentar vel fyrir fólk sem er að minnka við sig þar sem hægt er að
hafa stofu allt að 45 fm.
Víkurhverfi
3ja og 4ra
herb. íbúðir
KRISTINN Sigmundsson syngur í Meistara-
söngvurunum frá Nürnberg í Konunglegu óp-
erunni í Covent Garden um þessar mundir.
Frumsýning var á þriðjudag, og í gærkvöldi
söng hann aðra sýningu. Í dag er hann hins
vegar á leiðinni til Íslands til að syngja hlut-
verk Don Basilios í Rakaranum í Sevilla í Ís-
lensku óperunni. Áður en hann heldur utan, til
að syngja í þriðju sýningu á Meistarasöngv-
urunum, ætlar hann þó að bæta um betur og
halda tónleika með Jónasi Ingimundarsyni í
Salnum á mánudagskvöldið. Á dögunum hélt
hann svo masterklassnámskeið fyrir íslenska
söngnemendur í London. Það sem eftir lifir
mánaðarins verður hann í háloftunum í ferðum
milli Íslands og Englands; lendir til að syngja
sitt á hvað í musterum sönglistarinnar, Covent
Garden og Gamla bíói. En hvernig gekk frum-
sýningin á Meistarasöngvurnum?
„Það gekk mjög vel, og það var mikil og al-
menn ánægja í salnum.“
Í dag er Kristinn svo á leiðinni heim, til að
syngja hlutverk sem hann hefur margsinnis
tekist á hendur.
„Ég er búinn að syngja Don Basilio út um
allt, í París, Genf og Hamborg. Ég söng svo
líka Fígaró á sínum tíma. Ég hlakka óneitan-
lega til, – ég hef alltaf gaman af því að syngja
þetta hlutverk, – það er mikill húmor í því og
skemmtilegheit. Don Basilo er tækifærissinni,
og ekkert allt of greindur, en svona einn af
þessu fólki sem hefur svo ranga sjálfsmynd:
hann heldur að hann sé svo klár, en er það ekki,
og svo er hann óvandur að meðulum. Sam-
skiptin við dr. Bartolo eru líka alltaf spes –
jújú, ég hef alltaf haft alveg rosalega gaman af
þessu.“
„Þekkir blæbrigðin í hverju orði“
Kristni líst mjög vel á unga fólkið sem syng-
ur með honum í Íslensku óperunni. „Þarna er
fólk sem ég veit að á eftir að standa sig mjög
vel og vaxa við hverja raun. Ég er líka sér-
staklega ánægður með leikstjórann, Ingólf
Níels Árnason. Það er ánægjulegt að við skul-
um nú eiga mann sem er búinn að sérmennta
sig í óperuleikstjórn. Ég var á nokkrum æfing-
um með honum í haust, og leist verulega vel á
það sem ég sá, enda maðurinn altalandi á
ítölsku og þekkir blæbrigðin í hverju einasta
orði. Það kemur fram í því sem hann gerir.“
Kristinn segir að það sé allur gangur á því
hvort ungu söngvararnir leiti til hans með ráð
og stuðning, en oft geri þeir það þó. „Ég gerði
það nú ekki mikið sjálfur þegar ég var að byrja.
Hins vegar lærði ég heilmikið af því að fylgjast
með vinnubrögðum þeirra eldri. Mér er það
sérstaklega minnisstætt þegar ég var að
syngja í Rakaranum heima og hafði við hliðina
á mér menn eins og Guðmund Jónsson, Kristin
Hallsson og Jón Sigurbjörnsson, gamla proffa
sem ég lærði gífurlega mikið af. Ég er ekki frá
því að minn Basilio hafi litast svolítið af Jóni
Sigurbjörnssyni.“
„Maður lærir af því að
leiðbeina öðrum“
Á miðvikudag voru Kristinn og Jónas með
eins dags masterklass fyrir íslensku söngnem-
ana í London. Átta krakkar mættu á námskeið-
ið, sem stóð frá morgni og langt fram á kvöld.
„Ég sé ekki annað en að krakkarnir hefðu
gaman af þessu, – ég hafði að minnsta kosti gíf-
urlega gaman af þessu. Það er svo merkilegt,
að maður lærir sjálfur heilmikið af því að leið-
beina öðrum. Það var þarna fólk, sem virkilega
á erindi í sönglistina, en þau eru að vísu mis-
langt á veg komin. Ég held að það sé engu að
kvíða með framtíðina, því framboðið af söngv-
urum er mikið.“
Sú törn sem framundan er hjá Kristni er
ströng, því hann syngur til skiptis Pogner í
Covent Garden og Basilio hér. Þetta er að
minnsta kosti ekki starf fyrir flughrædda. „Það
á nú eftir að koma í ljós hvernig þetta gengur.
Ég passa mig nú á því að hvíla mig vel á milli.
Ég þarf að vísu að fljúga heim til Íslands á sýn-
ingardögum, en það er ekki svo mikið mál,
enda hlutverkið ekki svo erfitt fyrir mig. Ég
passa mig hins vegar á því að vera alltaf kom-
inn út aftur deginum fyrir sýningu svo ég sé vel
úthvíldur; – það hlutverk er svolítið meira mál.
Annars er þetta alveg sami hluturinn og ég set
mig ekkert í öðruvísi stellingar úti en hér. Ég
er að syngja fyrir fólk, og þá skiptir ytri um-
gjörðin engu máli; hvort ég er að syngja í
gömlu bíóhúsi í Reykjavík eða konunglegu óp-
eruhúsi í London, það skiptir mig engu máli.
Auðvitað er meira gaman að syngja í fallegu,
stóru húsi sem hentar því sem maður er að
gera, en fyrst og síðast er maður að syngja fyr-
ir fólk, og það skiptir máli.“
Á mánudagskvöldið halda þeir Kristinn og
Jónas tónleika í Salnum og er efnisskráin mjög
fjölbreytt. „Ég kalla þetta Everybody’s Fav-
ourite – eða Uppáhaldslögin. Þetta eru íslensk
lög og amerísk, antikaríur og slagarar; – þetta
eru allt lög sem ég hef haft góða tilfinningu af
að flytja fyrir tónleikagesti og lög sem mér hef-
ur þótt vænt um. Þetta er efni sem við Jónas
höfum verið með gegnum árin á tónleikum, –
þó ekki endilega öll í einu. Aðalatriðið var bara
að taka til, eins og rithöfundarnir gera þegar
þeir eru að skrifa sig frá einhverju; – koma
þessum lögum frá. Það segir allt að titillinn er
Uppáhaldslögin.“
„Ekki þar með sagt að tenórar hafi
einkarétt á Hamraborginni“
Á Uppáhaldslögunum má finna mörg uppá-
haldslög þjóðarinnar eins og Hamraborgina,
Rósina, Nótt og Fögur sem forðum, allt lög
sem standa Íslendingum nærri hjarta. Hamra-
borgin hefur reyndar einkum verið talin ein-
kennislag tenóra. „Hamraborgin hefur alltaf
heillað mig, bæði lag og ljóð. Fyrir um tíu til
fimmtán árum tókum við Jónas upp nokkur lög
við ljóð eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi,
og Hamraborgin var á meðal þeirra. Það er
rétt að Hamraborgin hefur verið eins konar
einkennislag tenóranna, en það er ekki þar
með sagt að þeir hafi einkarétt á því. Það sakar
heldur ekki að geta þess, að túlkun okkar á
Hamraborginni er nokkuð önnur en heyrst
hefur áður.“
Þarna eru líka nokkrar þekktar aríur eins og
Lungi dal caro bene og Danza fanciulla gentile
en einnig lög eins og Danny Boy og Ol’ man
River.
„Danny Boy og Ol’ Man river eru bæði mjög
góð lög. Þau eru mjög sterk tilfinningalega.
Það finnst mér alltaf mestu máli skipta, þegar
ég syng, að flutningurinn hafi áhrif á hlust-
endur tilfinningalega.“
Tónleikar Kristins og Jónasar Ingimund-
arsonar í Salnum á mánudagskvöld hefjast kl.
20.
Kristinn Sigmundsson syngur í Covent Garden, Íslensku óperunni, Salnum og á plötu
„Hefur litast svo-
lítið af Jóni Sigur-
björnssyni“
Ljósmynd/Clive Barda
Meistarasöngvarinn Pogner og Eva dóttir
hans. Kristinn Sigmundsson og Amanda
Roocroft í hlutverkum sínum í Konunglegu
óperunni í Covent Garden.
begga@mbl.is
Listasafn Reykjavíkur
– Kjarvalsstöðum
Tveimur sýningum lýkur á sunnu-
dag: byggingarlistarsýningunni Úti
er ekki inni – inni er ekki úti, þar sem
líkön og ljósmyndir eftir þrjá arki-
tekta eru til sýnis og sýningunni
Arne Jacobsen – Hönnun í hundrað
ár þar sem til sýnis eru kunnustu af-
rek meistarans á sviði húsgagna- og
húsbúnaðarhönnunar.
Leiðsögn um sýningarnar á Kjar-
valsstöðum er alla sunnudaga kl. 15.
Martin Bigum á verk á næstu sýn-
ingu á Kjarvalsstöðum, hún verður
opnuð laugardaginn 30. nóvember.
Listasafn ASÍ
Sýningu Önnu Þóru Karlsdóttir
Rjóður/Clear-cuts lýkur á sunnudag.
Á sýningunni eru flókaskúlptúrar.
Listasafn ASÍ er opið daglega,
nema mánudaga, kl. 14-18.
Sýningum lýkur
MARGRÉT Jónsdóttir leirlistakona
opnar sýningu í Slunkaríki í dag kl.
16. Þar sýnir hún nytjahluti og litla
skúlptúra.
Margrét stundaði nám í Kunst-
handværker-skolen í Kolding í Dan-
mörku. Hún hefur um margra ára
skeið unnið að list sinni á Akureyri
og tekið þátt í fjölda samsýninga og
haldið nokkrar einkasýningar.
Slunkaríki er opið kl. 16-18 frá
fimmtudegi til sunnudags.
Nytjalist
í Slunkaríki
SLAGVERKSHÓPURINN Benda
heldur tónleika í tónleikaröðinni
15:15 í Borgarleikhúsinu kl. 15.15 í
dag. Benda skipa Eggert Pálsson,
Steef van Oosterhout og Pétur
Grétarsson. Fastur aukameðlimur
er Snorri Sigfús Birgisson, píanó-
leikari og tónskáld, sem nýlokið hef-
ur frumsömdu verki fyrir hópinn.
„Þetta nýja verk Snorra – Caput
Konsert nr 2 – er þannig uppbyggt
að þrír þættir þess eru samdir fyrir
slagverk og píanó og verða þeir
þættir frumfluttir á tónleikum í
dag. Í janúar verður síðan verkið í
heild sinni frumflutt ásamt Caput-
hópnum,“ segir Pétur Grétarsson.
Annar gestur Bendu á tónleik-
unum verður Eiríkur Örn Pálsson
trompetleikari sem mun leika með í
verki Péturs Grétarssonar L’oops
frá 1995, sem var frumflutt í Borg-
arleikhúsinu 1996, en hefur nú verið
aðlagað hljóðfæraskipan dagsins.
Þá verða flutt tvö verk eftir John
Cage: Amores frá 1943, fyrir slag-
verk og sérútbúið píanó Living
Room Music frá 1940 og fyrir hús-
gögn og hversdagslega hluti.
Benda hefur nýlokið við hljóð-
upptökur fyrir RÚV og fyrirhug-
aðir eru tónleikar í samvinnu við
Caput.
Benda tók þátt í flutningi Les
Noces eftir Igor Stravinsky ásamt
öðrum íslenskum tónlistarmönnum
og ítölskum kollegum þeirra á
Listahátíð í Reykjavík sl. vor og aft-
ur fyrr í þessum mánuði á Festival
Musica 900 í Trento á Ítalíu.
Morgunblaðið/Golli
Bendahópurinn ásamt gestaleikurum: Eggert Pálsson, Steef van Ooster-
hout, Pétur Grétarsson, Snorri Sigfús Birgisson og Eiríkur Örn Pálsson.
Verk fyrir húsgögn
♦ ♦ ♦