Morgunblaðið - 16.11.2002, Síða 35
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 35
MEÐALVERÐ á grænmeti hef-
ur lækkað um 33–66% sam-
kvæmt nýjustu verðkönnun
Samkeppnisstofnunar. Könn-
unin var gerð 7. nóvember síð-
astliðinn. Meðalverð á öllum
tegundum ávaxta hefur lækkað
í verslunum frá því 8. febrúar,
er fyrsta verðkönnun Sam-
keppnisstofnunar var gerð, og
á flestum tegundum af græn-
meti.
„Sem dæmi um grænmet-
istegundir sem hafa lækkað í
verði má nefna íslenska og inn-
flutta agúrku, ísbergssalat,
papriku (allir litir), blómkál, ís-
lenska tómata og blað- og rauð-
lauk sem og spergilkál og sell-
erí,“ segir Samkeppnisstofnun.
Hærra meðalverð á sumum
grænmetistegundum
Meðalverð á nokkrum græn-
metistegundum hefur þó hækk-
að á umræddu tímabilin, mest
skalottulaukur, gulrófur, perlu-
laukur og rauðar kartöflur,
eins og sjá má í meðfylgjandi
töflu. Sýnir hún verðþróun á
nokkrum algengum grænmet-
istegundum á fyrrgreindu
tímabili. Fyrsta verðkönnun
stofnunarinnar var gerð fyrir
afnám og lækkun tolla í 11
matvöruverslunum á höf-
uðborgarsvæðinu og er það
meðalverð lagt til grundvallar í
samanburðinum.
! "
" " " $ % %
$ %
&
' %
'
&
(# ) * +
%#
!
%#
,
& %
-%#
- ."
/% % /& /&
/&
/&
/&
%#
("0
(% ( 1
%
%
%
%
1 ! ! !% !
!
!
234/%
! % /& -
5 06
78/%
!
"
9::
22;
293
24;
9:;
24;
9<4
9=3
>2:
2;4
>=4
229
3>4
9=>
2>:
9=<
9?;32
34>
;<=
34>
399
;9<
@<<
2=@
;23
;<2
3;=
2>3
3<@
2;4
92;
>>@
9@<
@>
344
9=2
9><
22<
9;4
2>:
>4>
29:
@>
2>@
;3:
34>
;>2
3>2
>=9
>4@
24@
>@3
;92
>4=
939
@@3
==<
@9>
=@2
2<2
2=<
:3
9;3
94<
<<
:<
9><
<=
=<
9=<
<3
9:<
<3
><<
99<
<<
94<
:=4
2@<
2<<
2<<
92<
92<
9;<
9;<
2><
29<
2:<
9>4
2@<
223
99<
9>=
=<
;3
9><
<<
:<
92<
9;<
92<
9=<
9@<
2<
92<
9><
93<
9:<
9:<
23<
<<
:<
22<
93<
29<
9>>
3;<
:9@
>:<
;:<
23<
2;<
#
$
%
Meðalverð
grænmetis
lækkaði um
33–66% SEX ungir menn í eignar-haldsfélaginu Móðir mín ehf.
hafa opnað bar við Stjörnu-
torg í Kringlunni sem selur
heilsudrykki úr ávöxtum og
skyri.
Bar félaganna nefnist
Booztbar, enda er drykkjum
þeirra ætlað að efla og
styrkja líkamann í dagsins
önn, samanber enska hugtak-
ið boost. Logi Unnarson
Jónsson, einn sexmenning-
anna, segir þá alla hafa áhuga
á heilsu og kveðst sjálfur hafa
innbyrt mikið af næringar-
drykkjum í gegnum tíðina,
sem síðan hafi orðið kveikjan
að þessari viðskiptahugmynd.
Uppistaðan í drykkjunum
er ávextir og skyr sem hrært
er upp með ísmolum og segir
Logi Booztbarinn skera sig úr er-
lendum börum með ferska drykki að
því leyti að ekki er notað jógúrt.
„Skyr er alíslensk fæða og hug-
myndin og hönnunin er íslensk líka,“
segir hann.
Félagarnir koma úr ýmsum
starfsgreinum og sjá sjálfir um
hönnun, auglýsinga- og textagerð,
fjárhagsáætlanir og þess háttar og
segir Logi á döfinni að opna þrjá
Booztbari hérlendis. Einnig stendur
til að framleiða heilsufæði undir
merkjum Boozt og selja í matvöru-
verslunum.
„Meginhugmynd okkar er að opna
matsölustaði þar sem fólki er gert
kleift að nálgast hollan skyndibita, til
mótvægis við ríkjandi skyndibita-
menningu,“ segir hann.
Á Booztbarnum er einnig hægt að
fá ferskan, nýkreistan ávaxtasafa og
smurt heilsubrauð frá Grímsbakaríi.
Á matseðlinum eru sem stendur
uppskriftir að átta skyrdrykkjum en
þeir sem vilja geta sjálfir valið hvaða
ávöxtum er blandað saman við. Hrá-
efnið er fjórar gerðir af skyri.is, fjöl-
breytt úrval ávaxta og engifer. Einn-
ig er hægt að fá kreistan safa úr
ýmsum grænmetistegundum.
„Skyrdrykkirnir eru gerðir úr
uppskriftum sem við höfum þróað
sjálfir með okkar helsta bakhjarli,
Mjólkursamsölunni, þar sem leitast
er við að tryggja mikið næringar-
gildi. Miðstærð af skyrdrykk inni-
heldur 310-320 hitaeiningar og er í
raun og veru á við fulla máltíð,“ segir
Logi Unnarson Jónsson að endingu.
„Meginhugmyndin er að opna matsölustaði
þar sem fólk getur nálgast hollan skyndi-
bita,“ segir talsmaður Booztbarsins.
Efla og styrkja með
ávöxtum og skyri
Booztbarinn opnaður í Kringlunni
Morgunblaðið/Jim Smart
AUSTURBAKKI hf. hefur í sam-
vinnu við markaðsgæsludeild
Löggildingarstofu innkallað Nike-
hlífðarhanska af
gerðinni Boarding
Mitten, þar sem
klemma getur
losnað af þeim og
valdið köfnunar-
hættu hjá yngri
börnum. Um er að
ræða dökkbláa
barnahanska með
endurskinsrönd
sem hægt er að
opna í lófanum.
Verið er, samkvæmt upplýsing-
um frá Nike-fyrirtækinu, að inn-
kalla hanska af þessari gerð úti
um allan heim, segir í tilkynningu
frá Löggildingarstofu. Tekið er
fram að engin slys hafi orðið af
notkun hanskanna.
„Nike-búðin við Laugaveg 6 í
Reykjavík seldi nokkur pör af
hönskunum á tímabilinu ágúst til
september 2002. Hanskarnir hafa
verið teknir úr sölu hérlendis og
er kaupendum vinsamlega bent á
að hafa samband við Austurbakka
í síma 563 4000 eða markaðs-
gæsludeild Löggildingarstofu í
síma 510 1100,“ segir í tilkynningu
Löggildingarstofu.
Hvetja Austurbakki hf. og Nike
kaupendur ofangreindra hanska
til þess að fjarlægja klemmuna
eða hafa samband við ofangreinda
aðila.
Klemma getur losnað af þessum hönskum og
valdið köfnunarhættu hjá yngri börnum.
Nike-hanskar
innkallaðir