Morgunblaðið - 16.11.2002, Qupperneq 44
KIRKJUSTARF
44 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
arkirkju syngur og Björg
Þórhallsdóttir syngur einsöng.
Hjálmar Sigurbjörnsson og Vil-
hjálmur Sigurðsson leika á tromp-
eta. Organisti verður Björn Steinar
Sólbergsson.
Kvenfélag kirkjunnar verður
með sinn árlega fjáröflunardag að
lokinni hátíðarmessunni. Þar verð-
ur í boði glæsilegt kaffihlaðborð og
kökubasar að ógleymdum lukku-
pökkunum vinsælu.
Kirkjudagur Fríkirkj-
unnar í Reykjavík
STOFNUN Fríkirkjunnar í Reykja-
vík fyrir 103 árum markaði djúp
spor í kirkjusögu Íslendinga á ný-
liðinni öld. Að stofnuninni stóðu ís-
lensk fjöldasamtök þar sem mest
bar á fjölskyldum verkamanna, iðn-
aðarmanna og sjómanna. Fríkirkj-
an í Reykjavík byggist nákvæmlega
á sama trúargrunni og íslensk þjóð
hefur játað um aldir. Á sínum tíma
var stofnunin andsvar við deyfð og
doða ríkiskirkjunnar. Einnig var
stofnun Fríkirkjunnar í Reykjavík
mikilvægur liður í íslenskri sjálf-
stæðisbaráttu.
Á þeim 100 árum sem liðin eru
hefur margt verið unnið innan Frí-
kirkjunnar sem fært hefur íslenskt
kirkjulíf í átt til lýðræðis og tengt
það enn frekar hversdagsveruleika
landsmanna.
Síðustu fjögur árin hefur mikill
fjöldi fólks aftur gengið til liðs við
Fríkirkjuna. Það hefur gerst þrátt
fyrir að Fríkirkjan í Reykjavík njóti
alls ekki sama fjárhagsstuðnings né
þeirra forréttinda sem ríkiskirkjan
gerir.
Fríkirkjan vill leitast við að vera
vettvangur fyrir lifandi og skap-
andi trúarlíf sem höfðar til sam-
tíðar sinnar á hverjum tíma. Hún
leitast við að hafa víðsýni og um-
burðarlyndi að leiðarljósi. Í sam-
ræmi við boðskap Jesú Krists vill
hún forðast þröngsýni, fordóma og
bókstafshyggju. Fríkirkjan leitast
við að grundvalla alla boðun og
starfsemi á lífi og boðskap Jesú
Krists, helgum ritningum, kristinni
trúarhefð og þeirri sístæðu siðbót
sem sérhverri evangelísk-lúterskri
kirkju ber að starfa samkvæmt.
Í dag trúa þúsundir íslendinga
því að Fríkirkjan í Reykjavík eigi
brýnt erindi við íslenskt samfélag
og að hún sé einkar trúverðugt
framtíðarfyrirkomulag trúmála við
upphaf nýrrar aldar.
Í hátíðarguðsþjónustunni mun
safnaðarfólk taka þátt í lestrum og
bænargjörð. Carl Möller og Anna
Sigríður Helgadóttir munu annast
tónlistarflutning ásamt Fríkirkju-
kórnum. Sungnir verða hefð-
bundnir kirkjusálmar ásamt óhefð-
bundinni trúar- og lofgjörðar-
tónlist. Hreiðar Örn Stefánsson
annast stund fyrir börnin. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
Hjörtur Magni Jóhannsson,
fríkirkjuprestur.
Hugvekja í Seltjarn-
arneskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 17. nóv-
ember, mun prófessor Pétur Pét-
ursson flytja hugvekju í messu sem
hefst í Seltjarnarneskirkju kl. 11:00
f.h. Pétur er prófessor við guð-
fræðideild Háskóla Íslands og er í
hópi fremstu núlifandi fræðimanna
á Íslandi í guðfræði.
Pétur varð stúdent frá MA árið
ÞAÐ verður mikið um dýrðir í Há-
teigskirkju í dag og á morgun í til-
efni þess að 50 ár eru liðin frá
stofnun Háteigssafnaðar.
Í dag stendur orgelsjóðsnefnd
fyrir mikilli listaveislu undir yf-
irskriftinni „opin kirkja“. Í þessari
listaveislu, þar sem fjöldi þekktra
listamanna kemur fram, er horft
fram á veginn. Áhersla er lögð á
kynningu orgelsjóðs og safn-
aðarfólk og aðrir velunnarar Há-
teigskirkju hvattir til þess að láta fé
af hendi rakna til byggingar nýs
orgels. Dagskráin, sem sam-
anstendur af stuttum atriðum, er
ekki af verri endanum. Á hálftíma
fresti bjóða listamenn upp á tónlist,
kveðskap og rímur frá 14–18.
Hr. Karl Sigurbjörnsson predik-
ar í hátíðarmessu á sunnudeginum,
sem hefst klukkan tvö, en þar munu
prestar safnaðarins þjóna fyrir alt-
ari. Að messu lokinni mun Benedikt
Gunnarsson listmálari afhenda
söfnuðinum verk sitt „Hvítasunna –
kraftbirting heilags anda“ sem var
ein af tillögum hans að kórmynd í
Háteigskirkju.
Háteigssöfnuður býður til kaffi-
samsætis í safnaðarheimilinu að
messu lokinni en þar munu for-
eldrar tíundubekkinga úr Háteigs-
skóla sjá um veisluborð. Þorvaldur
Halldórsson flytur tónlist og Ester
Kláusdóttir les upp. Tekið verður á
móti frjálsum framlögum til safn-
aðarstarfsins.
Fjölmennum og eigum saman
góða daga. Nánari upplýsingar má
finna í nýútkomnu safnaðarblaði
Háteigskirkju og á vefslóðinni ha-
teigskirkja.is.
Kvöldmessa
í Grensáskirkju
ANNAÐ kvöld, sunnud. 17. nóv.,
verður kvöldmessa í Grensáskirkju
og hefst hún kl. 20:00.
Að venju er messuformið mjög
einfalt og sungnir ljúfir söngvar við
píanóundirleik. Tækifæri gefst til
að koma á framfæri bænarefnum
og hægt er að kveikja á bænakert-
um. Töluðu máli er stillt í hóf.
Í þetta sinn syngur Stúlknakór
Grensáskirkju nokkur lög undir
stjórn Ástríðar Haraldsdóttur.
Stúlknakórinn er hópur unglings-
stúlkna sem árum saman hafa sung-
ið í barnakór kirkjunnar og eru enn
að.
Messunni lýkur fyrir kl. 21:00.
Eftir messu er kirkjukaffi, djús og
kex.
Slík samverustund hentar vel
þeim sem vilja gjarnan sækja sam-
félag kirkjunnar en finnst hefð-
bundið messuform ekki höfða til
sín. Vertu velkomin(n) í Grens-
áskirkju annað kvöld!
Vígsluafmæli
Akureyrarkirkju
AKUREYRARKIRKJA á 62 ára
vígsluafmæli næstkomandi sunnu-
dag, 17. nóvember. Þá verður mikið
um dýrðir í kirkjunni og safn-
aðarheimilinu.
Sunnudagaskólinn verður kl. 11 í
kirkjunni í umsjón sr. Svavars og
Ingunnar Bjarkar.
Hátíðarmessa verður kl. 14. Sr.
Svavar A. Jónsson og sr. Jóna Lísa
Þorsteinsdóttir messa. Ingunn
Björk Jónsdóttir djákni og Val-
gerður Valgarðsdóttir djákni að-
stoða við messugjörð. Kór Akureyr-
1970 og lauk BA-námi í almennri
þjóðfélagsfræði við Háskóla Íslands
’74. Hann stundaði nám í uppeldis-
og kennslufræði við sama skóla
1974–75 og framhaldsnám í fé-
lagsfræði við Lundarháskóla í Sví-
þjóð og lauk doktorsprófi þaðan
’83. Þá sneri hann sér að dokt-
orsnámi í trúarbragðasögu í Lundi
og lauk því 1990.
Pétur hefur skrifað mikið um fé-
lagsfræði, trúarbragðasögu og trú-
fræði. Hann hefur og getið sér gott
orð fyrir rannsóknarstörf sín á
fyrrgreindum sviðum.
Það er því mikill fengur fyrir Sel-
tjarnarnessókn að fá Pétur til að
flytja hugvekju í messunni á morg-
un og eru Nesbúar og aðrir hvattir
til að fjölmenna. Prestur verður
séra Sigurður Grétar Helgason og
organleikari Viera Manasek.
Æðruleysismessan í
Dómkirkjunni 5 ára
ÆÐRULEYSISMESSA, tileinkuð
fólki sem leitar bata eftir tólf-
sporaleiðinni, verður í Dómkirkj-
unni sunnudaginn 17. nóvember kl.
20.
Einhver mun segja þar af reynslu
sinni úr baráttunni við áfengissýk-
ina. Anna Sigríður Helgadóttir,
Hjörleifur Valsson og Birgir og
Hörður Bragasynir sjá um fjöl-
breytta tónlist.
Sr. Karl V. Matthíasson flytur
hugleiðingu. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson leiðir samkomuna og
sr. Jón Dalbú Hróbjartsson leiðir
fyrirbæn með aðstoð sr. Önnu Sig-
ríðar Pálsdóttur.
Einhver prestanna er svo í Safn-
aðarheimili Dómkirkjunnar á
þriðjudögum kl. 20 með umræðu
um sporin tólf út frá ritningunni.
Þær eru einkum ætlaðar fólki sem
hefur náð nokkrum bata en langar
að styrkja vitundarsamband sitt við
Guð.
Æðruleysismessurnar í Dóm-
kirkjunni eiga nú fimm ára afmæli
og hafa ævinlega verið sóttar af
þetta 150–200 manns. Þar hefur
ríkt glæðvær alvara og að henni
hefur laðast fastur kjarni sem hef-
ur gefið henni sitt sérstaka and-
rúmsloft. Í tilefni afmælisins er sr.
Jón Dalbú með okkur nú en auk sr.
Jakobs og sr. Karls annast nú sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir og sr.
Hjálmar Jónsson þessar messur.
Kópavogskirkja:
Heimsókn frá
Gerðubergi
GÓÐIR gestir frá félagsstarfinu í
Gerðubergi koma í heimsókn á
sunnudag og taka þátt í guðsþjón-
ustu sem hefst kl. 14. Þeir munu
lesa ritningarlestra og Gerðuberg-
skórinn syngur sérstaklega að lok-
inni prédikun en kórnum stjórnar
Kári Friðriksson. Auk gestanna
syngur kór kirkjunnar undir stjórn
Julian Hewlett organista. Séra Sig-
urjón Árni Eyjólfsson héraðs-
prestur prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sóknarpresti.
Að lokinni guðsþjónustu verður
samvera í safnaðarheimilinu Borg-
um þar sem boðið verður upp á
hressingu.
Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Hátíðarsamkoma
í Kefas
SUNNUDAGINN 17. nóvember er
hátíðarsamkoma í Fríkirkjunni Kef-
as í tilefni tíu ára afmælis hennar.
Á þessari samkomu verður farið í
fljótu bragði yfir sögu fríkirkj-
unnar Kefas, sagt frá upphafi henn-
ar, þróun og starfsemi fram til
dagsins í dag. Safnaðarmeðlimir og
aðrir taka til máls, segja frá kynn-
um sínum og tengslum við Kefas.
Einnig verða sýndar ljósmyndir frá
ýmsum atburðum og tímamótum í
starfsemi fríkirkjunnar.
Á dagskrá verða einnig tónlistar-
atriði og heimasíða Kefas verður
formlega tekin í notkun (www.-
kefas.info). Eftir samkomuna verða
kökur og kaffi til sölu.
Samkoman hefst kl. 14.00 og allir
eru hjartanlega velkomnir á þessa
hátíðarsamkomu.
Hjálpræði efnamanns
Á FRÆÐSLUMORGNI í Hallgríms-
kirkju næstkomandi sunnudag, 17.
nóvember, kl. 10.00 mun dr. Clar-
ence Glad flytja erindi um rit Klem-
ensar kirkjuföður frá Alexandríu
er nefnist Hjálpræði efnamanns, en
ritið kom nýlega út í ritröðinni
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins í
þýðingu dr. Clarensar.
Í riti þessu birtir Klemens nú-
tímalega umræðu um áhrif gild-
islægra viðhorfa til auðs og mun dr.
Clarence ræða efni ritsins með skír-
skotun til nútímans.
Að erindinu loknu, kl. 11.00, er
guðsþjónusta með þátttöku ferm-
ingarbarna, þar sem séra Sigurður
Pálsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt séra Jóni Dalbú Hró-
bjartssyni. Að lokinni messu, um kl.
12.30, er foreldrum ferming-
arbarna og öðrum sem áhuga hafa
boðið að hlýða á erindi Kolbrúnar
Baldursdóttur sálfræðings um sam-
skipti foreldra og unglinga meðan
fermingarbörnin sækja fræðslu-
stund.
Kvöldguðsþjónusta
í Seljakirkju
KVÖLDGUÐSÞJÓNUSTA með alt-
arisgöngu verður í Seljakirkju kl.
20 sunnudaginn 17. nóvember. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar. Þor-
valdur Halldórsson leiðir tónlist.
Kirkjukór Seljakirkju syngur undir
stjórn Gróu Hreinsdóttur. Verið
velkomin.
Hjónaklúbbur
Digraneskirkju
NÆSTA hjónakvöld verður sunnu-
dagskvöldið 17. nóvember kl. 20:30.
Gestur kvöldsins verður Höskuldur
Frímannsson. Efni kvöldsins verð-
ur: Tilfinningagreind.
Gamla og góða greindin sem
mælist á greindarprófum (og var
upphaflega hönnuð til að mæla lík-
ur á árangri nemenda í prófum) er
alls ekki góð vísbending um vel-
gengni í lífinu. Mæling tilfinn-
ingagreindar gefur mun betri vís-
bendingar um þá velgengni.
Með tilfinningagreind er átt við
annars vegar hversu vel maður er
sér meðvitandi um eigin tilfinn-
ingar og notar þær til að aðstoða
sig í daglegu lífi og hins vegar
hversu vel maður skynjar tilfinn-
ingar þeirra sem maður umgengst
og notar þær vísbendingar til að
eiga árangursrík samskipti við þá.
Höskuldur Frímannsson hefur
mastersgráðu á sviði stjórnunar frá
University of Bridgeport í Banda-
ríkjunum. Frá útskrift árið 1978
hefur hann unnið bæði sem ráðgjafi
fyrirtækja og með einstaklingum
að þróun þeirra og úrlausnum
vandamála.
Þetta er mjög áhugavert efni og
hefur verið töluvert í umræðunni
seinni árin. Fyrirlesturinn fer fram
í nýju kapellunni á neðri hæð.
Á eftir er stutt kyrrðarstund í
kirkjunni fyrir þá sem vilja og geta.
Dagskránni lýkur milli kl. 22 og
22.30.
Takið endilega með ykkur gesti.
Munið heimasíðu kirkjunnar,
www.digraneskirkja.is, og að alltaf
er hægt að skrá sig á póstlistann
þar eða á astin@vortex.is.
Orgelandakt
í Hjallakirkju
ORGELANDAKT nóvembermán-
aðar í Hjallakirkju, Kópavogi, verð-
ur nk. sunnudag kl. 17. Að þessu
sinni leikur dr. Douglas A. Brotchie,
organisti í Háteigskirkju í Reykja-
vík, á orgel kirkjunnar. Douglas
leikur Prelúdíu í g-moll og sálma-
forleik yfir lagið Sá vitnisburðurinn
valdi eftir Dietrich Buxtehude, Þrjá
sálmforleiki yfir skosk sálmalög eft-
ir Robin Orr, sálmforleik yfir Faðir
vor, sem á himnum ert eftir Georg
Böhm og tvo sálmaforleiki úr Neu-
meister-safninu eftir J.S. Bach sem
fannst fyrir nokkrum árum. Að end-
ingu leikur Douglas tvö verk eftir
Jean Langlais.
Tónlistarstund þessi varir í ca. 45
mínútur og eru allir hjartanlega
velkomnir.
Háteigssöfn-
uður 50 ára
Háteigskirkja í Reykjavík.
Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 533 2020
www.vatnsvirkinn.is
HAUSTTILBOÐ
20-40% afsláttur
af hreinlætistækjum, stálvöskum,
sturtuklefum, sturtuhurðum,
blöndunartækjum, baðáhöldum o.fl.
OPIÐ Í DAG KL. 10-16