Morgunblaðið - 16.11.2002, Side 54
UMRÆÐAN
54 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Prófkjör
Prófkjör stjórnmálaflokkanna vegna þingkosninganna í maímánuði
nk. fara fram í vetur. Af því tilefni birtir Morgunblaðið greinar fram-
bjóðenda og stuðningsmanna. Þær er einnig hægt að nálgast undir
liðnum prófkjör á forsíðu mbl.is.
ENGINN vafi er á því að Íslend-
ingar hafa að jafnaði verið farsælir
í ákvörðunum sínum um tengsl
þjóðarinnar við umheiminn. Sagan
sýnir að við höfum yfirleitt tekið
skynsamlegar ákvarðanir þegar
mikið hefur legið við um heill þjóð-
arinnar. Þetta á bæði við um val á
bandamönnum í öryggismálum og
efnahagsmálum. Til marks um
þetta má nefna aðildina að NATO,
EFTA og EES. Voru þessar
ákvarðanir þó mjög umdeildar á
sínum tíma.
Ísland í alþjóðlegu
umhverfi
Einnig höfum við, oft frá byrjun,
tekið þátt í störfum fjölmargra
mikilvægra alþjóðastofnana. Í því
sambandi nægir að nefna Samein-
uðu þjóðirnar, Alþjóðaviðskipta-
stofnunina og fyrirrennara hennar,
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Al-
þjóðabankann. Þessi tengsl okkar
við umheiminn og þau viðhorf
landsmanna sem liggja þeim að
baki hafa verið þjóðinni heilla-
drjúg. Tímasetningar um samstarf
og samvinnu af þessu tagi hafa
jafnframt oftast verið skynsamleg-
ar. Það er ekki nóg að taka réttar
ákvarðanir, það þarf einnig að taka
þær á réttum tíma.
Þessar ákvarðanir um tengsl við
umheiminn hafa lagt mikið af
mörkum til þess hagvaxtarárang-
urs sem náðst hefur hér á landi á
síðustu hundrað árum. Lítið opið
hagkerfi eins og hið íslenska hefði
aldrei náð að þróast frá fátækt til
velmegunar á við það sem best
þekkist annars staðar, ef ekki hefði
verið vel að málum staðið í þessum
efnum. Þessi samþætting við al-
þjóðlegt umhverfi er því ein af
mikilvægustu undirstoðum lífs-
kjara á Íslandi.
Tengslin við ESB geta
ráðið lífskjörum
Það fer ekki á milli mála að
tengslin og tilhögun samskipta við
önnur ríki munu áfram ráða miklu
um þjóðarhag. Mikilvæg verkefni
eru fram undan að því er þetta efni
varðar. Þar stendur eitt upp úr og
það er afstaðan til ESB. Enginn
velkist í vafa um að tengslin við
ESB geta ráðið miklu um hvernig
það verður að búa á Íslandi í fram-
tíðinni. Því þarf að vanda vel til
verka við undirbúning ákvarðana
um aðildarviðræður, hvort og hve-
nær þær eiga að hefjast.
Breytingarnar sem blasa við í
Evrópu með fjölgun aðildarríkja
ESB og aukinni útbreiðslu evrunn-
ar geta haft gríðarlega mikil áhrif
á Íslandi. Fyrir vikið skiptir meg-
inmáli að ákvarðanir okkar í þessu
efni verði byggðar á traustum og
vönduðum grunni, bæði að því er
varðar efni og tímasetningar. Við
þurfum því að vinna heimavinnuna
okkar betur en við höfum gert að
þessu leyti til að tryggja að
ákvarðanir okkar um að vera eða
vera ekki í Evrópusambandinu
verði jafnfarsæl og flestar stór-
ákvarðanir í utanríkismálum hafa
verið á síðustu hundrað árum.
Að vera eða vera ekki
í Evrópusambandinu
Eftir Láru Margréti
Ragnarsdóttur
„Enginn
velkist í vafa
um að
tengslin við
ESB geta
ráðið miklu um hvernig
það verður að búa á Ís-
landi í framtíðnni.“
Höfundur er alþingismaður.
MIKIL umræða hefur farið
fram um hátt verðlag hérlendis
undanfarið. Eina af orsökunum er
að finna í þeim háu tollum, vöru-
og aðflutningsgjöldum sem lögð
eru á innfluttar vörur. Tollar
leggjast á flestar nauðsynjavörur,
líkt og mat og fatnað. Gjöldin
leggjast að auki enn þyngra á
ónauðsynjar á borð við sælgæti en
með því er ríkið væntanlega að
sýna vanþóknun á sælgætisáti. Öll
þessi gjöld eiga það sameiginlegt
að vera falin hinum almenna neyt-
anda þar sem kaupandinn gerir
sér sjaldnast grein fyrir upphæð
tollsins.
Tollar eru
neyslustýringartæki
Fyrir áratug opnaðist Ísland
þannig að loks gafst tækifæri til að
stunda frjálsa verslun og viðskipti
við önnur lönd. Háir tollar eru þó
enn staðreynd en þeir leggjast á
verð varnings. Vandinn er ekki að-
eins sá að allt verður dýrara í inn-
kaupum því um leið er fólki gert
illmögulegt að skilja á milli kostn-
aðarverðs, flutningskostnaðar,
álagningar og tolla. Af þessu öllu
er reiknaður virðisaukaskattur
sem leggst ofan á allt vöruverð.
Verðskyn neytenda veikist sem
gerir samkeppni erfiðari. Tollarnir
koma svo harðast niður á þeim
sem eyða stórum hluta tekna sinn
í nauðsynjavörur.
Tollar eru neyslustýringartæki.
Annars vegar sem verndartollar
svo landsmenn kaupi innlenda
framleiðslu og er þannig lagður
30% tollur á innfluttan ost auk
magnstolls. Hins vegar eru tollar
notaðir til þess að beina okkur frá
óhollustu eins og t.d. gosdrykkjum
en þeir bera 20% toll.
Tollar eru notaðir til að fjár-
magna samneysluna, með t.d. 15%
tolli á allan fatnað og skófatnað.
Ríkið leggur líka á sérstaka tolla
sem varið er í einstök verkefni, t.d
vegagerð. Mikið framfaraspor var
stigið með auknu frelsi í innflutn-
ingi. Til þess að frelsið skili sér
þarf hins vegar að tryggja að álög-
ur séu ekki svo háar að fáir hafi
efni á vörunum.
Leggja skal af alla tolla
Tillaga mín er að allir tollar,
vöru- og aðflutningsgjöld á inn-
fluttar vörur verði lögð niður. Þótt
hér sé um að ræða nokkuð háan
tekjulið má það ekki leiða til
skattahækkunar. Í fjármálafrum-
varpi ársins 2002 kemur fram að
ríkið innheimtir rúma 18 milljarða
króna af vörum sem koma til
landsins að meðtöldum bensín-
gjöldum. Niðurfelling beinna rík-
isstyrkja til landbúnaðarmála
kæmi til móts við tekjutap rík-
issjóðs. Einnig mætti skera niður
hluta af nýfjárfestingum í vega- og
hafnargerð. Gæta verður þess að
hrinda breytingum í framkvæmd á
nokkrum árum þannig að aðlög-
unartími sé fyrir hendi. Niðurstað-
an yrði einfaldara skattkerfi og
lægri heildarskattar, sérstaklega
fyrir þá tekjulægri, en kæmi öllum
vel með lægra vöruverði.
Tollar eru tíma-
skekkja
Eftir Guðrúnu Ingu
Ingólfsdóttur
Höfundur er hagfræðingur og
býður sig fram í 9. sætið í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
„Tillaga mín
er að allir
tollar, vöru-
gjöld og að-
flutnings-
gjöld á innfluttar vörur
verði lögð niður.“
HEFÐBUNDIN stjórnmál snú-
ast alla jafna um það hvaða hlutverki
ríkisvaldið eigi að gegna í samfélag-
inu. Þeir eru til sem telja að ríkinu sá
fátt ef nokkuð óviðkomandi meðan
aðrir telja að ríkisvaldinu eigi að
vera þröngt sniðinn stakkurinn. Það
hefur verið gæfa Íslendinga að und-
anfarinn áratug eða svo hafa setið
hér við völd ríkisstjórnir undir for-
ystu Sjálfstæðisflokksins, sem frek-
ar hafa tekið mið af hugmyndum
hinna síðarnefndu. Með smáum en
öruggum skrefum hefur þjóðlífið
verið losað úr krumlu ríkisvaldsins
og einstaklingsframtakið fengið að
blómstra.
Mikilvægasta hlutverk
ríkisvaldsins
En þó að sagan og heilbrigð skyn-
semi færi mönnum heim sanninn um
nauðsyn og gagnsemi þess að rík-
isvaldið haldi sig til hlés á flestum
sviðum er ekki þar með sagt að hlut-
verk ríkisins eigi ekkert að vera.
Ríkið hefur einu mjög mikilvægu
hlutverki að gegna; að tryggja ör-
yggi borgaranna. Þetta er frum-
skylda ríkisins og tilverugrundvöllur
ríkisvaldsins sjálfs.
Refsipólitík á fullt erindi
í þjóðmálaumræðuna
Þegar ég setti fram helstu stefnu-
mál mín vegna prófkjörs sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík vakti athygli
margra að ég skyldi setja hertar
refsingar fyrir ofbeldis- og kynferð-
isglæpi á oddinn. Einhverjum kann
að þykja nýstárlegt að stjórnmála-
menn skuli hafa skoðanir á því
hvernig refsivörslunni skuli háttað,
en refsipólitík á að mínu mati fullt
erindi í þjóðmálaumræðuna. Enda
hefur komið á daginn að hvarvetna
sem ég hef sett fram mín sjónarmið í
þessu máli hafa viðbrögðin ekki látið
á sér standa.
Löggjafinn sendi
skýrari skilaboð
Vægir dómar í ofbeldis- og nauðg-
unarmálum eru ekkert náttúrulög-
mál og það er á valdi löggjafans að
leggja línurnar í þessum efnum.
Dómstólar eru njörvaðir niður í ára-
langa túlkun sína á núgildandi
ákvæðum hegningarlaga og bann við
afturvirkni refsiákvæða kemur í veg
fyrir að þeir geti hert refsingar í
þessum málum upp á eigin spýtur.
Til þess þarf löggjafinn í raun að
leysa dómstólana úr viðjum eigin
dómafordæmis og það verður ein-
ungis gert með gagngerum breyt-
ingum á viðkomandi ákvæðum í al-
mennum hegningarlögum.
Eins og að framan greinir hefur
margt verið fært til betri vegar í ís-
lensku þjóðlífi síðastliðinn áratug.
Enn er þó verk að vinna á ýmsum
sviðum og að mínu viti er hvað mest
aðkallandi að öryggi borgaranna
verði að fullu tryggt og að réttlát við-
urlög bíði ofbeldis- og kynferðis-
brotamanna.
Krafa um réttlát
viðurlög
Eftir Soffíu Kristínu
Þórðardóttur
Höfundur er hugbúnaðarsérfræð-
ingur og sækist eftir 8. sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík.
„Löggjafinn
þarf að leysa
dómstólana
úr viðjum
eigin dóma-
fordæmis.“
UNGA fólkið í Sjálfstæð-
isflokknum lætur ekki sitt eftir liggja
í kosningum. Það berst eins og ljón að
sigri flokksins. Ung-
liðahreyfingin hefur
reynst óþrjótandi
uppspretta nýrra
hugmynda og fersk-
leika og ekki að ófyr-
irsynju nefnd sam-
viska flokksins. Til að
efla okkur frekari baráttuanda og
leiða fram þau áherslumál sem fyrst
og fremst brenna á ungu fólki viljum
við sjá ungliða í öruggt sæti. Baráttan
fyrir einstaklings- og athafnafrelsi,
skattalækkunum og minni ríkisum-
svifum eru mál okkar allra. Fáum er
betur treystandi til þess að vinna
þeim framgang en kraftmikill og ung-
ur einstaklingur eins og Sigurður
Kári Kristjánsson fyrverandi formað-
ur SUS. Sigurður Kári er verðugur
fulltrúi okkar á Alþingi, ungra sem
aldinna. Hann sækist eftir stuðningi í
7. sætið í komandi prófkjöri, veitum
honum brautargengi í það sæti.
Ferska vinda um
sali Alþingis
Andrés Andrésson, stjórnarmaður í Sam-
bandi ungra sjálfstæðismanna, skrifar:
SÓLVEIG Pétursdóttir dóms-
málaráðherra sækist eftir þriðja
sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í
Reykjavík sem hald-
ið verður dagana 22.
og 23. nóvember nk.
Sólveig var vara-
þingmaður frá 1987,
en hefur setið á Al-
þingi óslitið síðan
1991. Hún var skip-
uð dómsmálaráðherra í þriðja ráðu-
neyti Davíðs Oddssonar sem tók við
völdum 1999. Sólveig er atorkumikill
stjórnmálamaður sem hefur tekið á
umfangsmiklum verkefnum ráðu-
neytis síns af festu og dugnaði. Í ráð-
herratíð hennar hefur grenndar-,
fíkniefna- og umferðarlöggæsla ver-
ið efld til mikilla muna, réttarstaða
brotaþola hefur verið bætt, refs-
ingar við fíkniefnabrotum þyngdar,
nýtt frumvarp til barnalaga hefur
verið lagt fram, aðgerðir gegn man-
sali og vændi hafa verið auknar, og
gegn kynferðisofbeldi gegn börnum.
Hér er einungis tæpt á örfáum mála-
flokkum ráðuneytis Sólveigar en
einkennandi fyrir starf hennar er
eljusemi og eftirfylgni.
Tryggjum Sólveigu þriðja sæti á
lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík!
Sólveigu í 3. sæti
Ellen Ingvadóttir, löggiltur dómtúlkur
og skjalaþýðandi, skrifar:
HANN þyrfti ekki að ætla sér
langan tíma sá maður sem hygðist
telja upp þá forystumenn sem Sjálf-
stæðisflokkurinn
hefði í sínum röðum
og tækju Birni
Bjarnasyni fram að
ágæti. Í áratug hefur
Björn verið einn at-
kvæðamesti og ráða-
bezti forystumaður
okkar reykvískra sjálfstæðismanna
og verðskuldað ríkulega það traust
sem honum hefur verið sýnt. Björn
er forystumaður af þeirri gerð sem
enginn stjórnmálaflokkur má vera
án, ef hann ætlar sér að verða til
nokkurs verulegs gagns. Hann er
vel heima í öllu því sem máli skiptir
og ódeigur að berjast fyrir sannfær-
ingu sinni án þess að horfa með öllu
fram hjá raunveruleikanum og við-
horfum annarra. Þá lætur Björn sér
ekki nægja að heyja þær orrustur
sem að honum sjálfum snúa, hann
hikar aldrei við að koma samherjum
sínum til hjálpar í baráttu dagsins
enda hefur það fyrir löngu orðið til
marks um sjaldgæfa dómgreind ís-
lenzkra vinstrimanna að Björn
Bjarnason óttast þeir og virða meira
en andstæðinga sína flesta. Í próf-
kjörinu eftir viku gefur Björn kost á
sér til þriðja sætis. Okkur sem höf-
um fylgzt með störfum hans und-
anfarin ár má vera ljúft að styðja
hann hátt og snjallt.
Forystumaður
Þorsteinn Davíðsson lögfræðingur skrifar:
ÉG kynntist Stefaníu Ósk-
arsdóttur þegar hún var 12 ára
gömul. Hún var þá þegar mikill
málsvari sjálfstæð-
isstefnunnar og tal-
aði oft af hita gegn
hvers konar hafta-
stefnu sem þá var
enn við lýði á Ís-
landi. Stefanía hefur
ekki slegið af síðan
og unnið ötullega að málefnum
flokksins. Stefanía er doktor í
stjórnmálafræði og er sérfræðingur
í að miðla um flókin stjórnmál. Ég
er ekki í vafa um að þessi kunnátta
hennar muni reynast ómetanleg í
þingstarfi.
Stefanía gefur kost á sér í 6.
sæti listans í Reykjavík. Hún hefur
sýnt í verki að hún er öflugur sjálf-
stæðismaður með því að gegna
ýmsum mikilvægum störfum í
flokknum. Helstu einkenni hennar
eru mikil ósérhlífni og sterk rétt-
lætistilfinning sem endurspeglast í
starfi hennar fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn.
Stefanía er ábyrgur kostur og
hvet ég flokksmenn til að setja
hana í öruggt sæti á framboðslista í
næstu alþingiskosningum.
Stefanía
Óskarsdóttir –
ábyrgur stjórn-
málamaður
Anna Birna Almarsdóttir, dósent við
lyfjafræðideild Háskóla Íslands, skrifar: