Morgunblaðið - 16.11.2002, Qupperneq 55
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 55
✝ Guðjón Helga-son fæddist á
Hlíðarenda í Fljóts-
hlíð hinn 22. mars
1916. Hann lést 4.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Helgi Erlends-
son bóndi á Hlíðar-
enda, f. 7. janúar
1892, d. 4. júlí 1967,
og kona hans, Krist-
ín Eyjólfsdóttir frá
Hofi í Öræfum í
Austur-Skaftafells-
sýslu, f. 7. febrúar
1884, d. 8. apríl
1942. Guðjón ólst upp á Hlíð-
arenda ásamt systkinum sínum
en þau eru: Ingibjörg Svava, f.
31. desember 1912, fyrrverandi
húsfreyja, gift Ingvari Þórðar-
syni sem er látinn, nú búsett á
hjúkrunarheimilinu Lundi á
Hellu, og Gunnar, f. 10. apríl
1925, fyrrverandi starfsmanna-
stjóri Reykjavíkurborgar, kvænt-
ur Sigríði Pálmadóttur, þau búa í
Reykjavík.
Hinn 3. júní 1943 kvæntist Guð-
jón fyrri konu sinni, Sigríði
Björnsdóttur frá Rauðnefsstöðum
á Rangárvöllum, f. 18. mars 1920,
d. 15. júlí 1964, dóttur hjónanna
Barn þeirra: e) Pálmi, vélstjóri í
Reykjavík, f. 1948.
Seinni kona Guðjóns er Þóra
Jenný Ágústsdóttir frá Saxhóli á
Snæfellsnesi, f. 24. júlí 1932, gift
11. janúar 1969. Þóra er dóttir
hjónanna Ágústs Sigurjóns Þór-
arinssonar, hreppstjóra á Sax-
hóli, og konu hans, Sigurlaugar
Sigurgeirsdóttur húsfreyju. Þóra
býr nú á dvalarheimilinu Kirkju-
hvoli á Hvolsvelli. Þeirra börn
eru: f) Ágústa, snyrtifræðingur á
Hvolsvelli, f. 1953, gift Guðjóni
Guðmundssyni kjötiðnaðarmanni.
Börn: Ragnheiður og Þórir. g)
Ragnheiður, f. 1954, d. 1974. h)
Bergþór, vélvirki á Hvolsvelli, f.
1956, kvæntur Olgu Elísu Guð-
mundsdóttur. Börn: Harpa,
Bjarmi og Ágúst Þorri. i) Ísleifur
Helgi, húsasmíðameistari í Nor-
egi, f. 1959, kvæntur Sigrúnu
Halldórsdóttur (skilin). Börn:
Dagný Helga, Bryndís og María
Rebekka. j) Þorsteinn, bóndi á
Rauðaskriðum, f. 1961, kvæntur
Ingveldi Guðnýju Sveinsdóttur.
Börn: Guðjón, Helgi, Sveinn Vík-
ingur, Þórný og Guðný Ósk. k)
Sigurgeir, jarðverktaki í Reykja-
vík, f. 1968, kvæntur Ingibjörgu
Ragnheiði Grétarsdóttur. Börn:
Sigurlaug Lára og Gunnar Smári.
Afkomendur Guðjóns eru nú 50
talsins: 11 börn, 28 barnabörn og
11 barnabarnabörn.
Útför Guðjóns fer fram frá
Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Björns Guðmundsson-
ar, bónda á Rauðnefs-
stöðum, og Elínar
Hjartardóttur frá
Kirkjubæ á Rangár-
völlum. Þeirra börn
eru: a) Hjörtur,
starfsmaður Land-
græðslu ríkisins, bú-
settur á Hellu, f.
1943, kvæntur Sól-
veigu Stolzenwald.
Börn: Elín og Ragn-
hildur Erla. b) Örn
Helgi, rafvirki á
Hellu, f. 1945, kvænt-
ur Unni G. Kristjáns-
dóttur (skilin). Börn: María Birna
og Guðmunda Sirrý. c) Björn,
bóndi og húsasmíðameistari á
Syðri-Hömrum 2, f. 1947, kvænt-
ur Vigdísi Þorsteinsdóttur. Börn:
Sigríður, Þuríður Magnúsína,
Þorsteinn Magni og Guðjón. d)
Sigurveig, húsmóðir á Laugar-
bakka í Húnavatnssýslu, f. 1948,
gift Sigfúsi Traustasyni. Börn:
Sigríður Helga, Árni, Guðjón,
Björn og Sigurður Ellert.
Barnsmóðir Sigurveig Ólafs-
dóttir frá Syðstu-Mörk, f. 14. júní
1925, dóttir hjónanna Ólafs Ólafs-
sonar, bónda í Syðstu-Mörk, og
konu hans, Höllu Guðjónsdóttur.
Kynslóðir koma, kynslóðir fara.
Einn af öðrum hverfa einstaklingar
sem fæddir eru við upphaf síðustu
aldar. Genginn er mætur merkis-
maður, Guðjón Helgason frá Hlíð-
arenda í Fljótshlíð í Rangárþingi
eystra.
Guðjón ólst upp við hefðbundin
sveitastörf og var snemma atorku-
samur og hugmikill. Hann fór fljót-
lega að stunda aðra vinnu með bú-
störfunum til að afla heimilinu
tekna, meðal annars á vertíð til
Vestmannaeyja aðeins sextán ára
gamall.
Guðjón naut hefðbundinnar
skólamenntunar þess tíma en auk
þess stundaði hann nám við
Íþróttaskólann í Haukadal veturinn
1930 og kunni margar skemmtileg-
ar sögur þaðan.
Guðjón var mikill athafna- og
hugsjónamaður, framsækinn og
ósérhlífinn til vinnu, en þó ljúfur og
dreyminn náttúruunnandi. Hann
hafði yndi af veiðiskap og ferðum
um óbyggðir landsins, en fyrst og
fremst var hann bóndi sem ræktaði
jörðina sem hann unni. Snemma á
æviskeiðinu kom fram hæfileiki
hans til að yrkja og orti hann margt
kvæða í gegn um tíðina og hefur
gefið út tvær ljóðabækur. Ljóðin
eru hugljúf og næm og sýna glöggt
þær tilfinningar sem hann bar til
alls er lifir og til náttúrunnar. Það
var eins og ljóðin kæmu af sjálfum
sér og hann hripaði þau niður á
miða og stakk í vasa sinn eða þeirra
sem hann mætti.
Ekki fæ ég blund á brá,
bara verð að skrifa.
Það er alltaf einhver þrá
inni í mér að tifa.
Eitt sinn er Guðjón var ungur
maður á ferð á reiðhjóli neðan úr
Landeyjum lagðist hann til svefns
niðri á aurunum. Við sólarupprás
vaknaði hann á hólma þeim er
Hallshólmi nefnist og hreifst svo af
víðáttu landsins og fegurð að hann
hét því að þarna skyldi hann síðar
búa.
Guðjón hóf búskap á Hlíðarenda
1942. Árið 1945 rættist draumur
hans og hann byggði býlið Rauða-
skriður á Hallshólmanum, eftir ör-
nefni úr Njálu.
Árið 1948 flyst Guðjón ásamt
fjölskyldu sinni að Haugum í
Stafholtstungum í Borgarfirði. Á
næstu árum býr hann víða, í Staf-
holti í Borgarfirði 1949–53, Hólum í
Biskupstungum 1953–58, Hrauni í
Grímsnesi 1958–60 og Mosfelli í
Grímsnesi 1960–63. Árið 1963 flutt-
ist hann síðan aftur að Rauða-
skriðum ásamt seinni konu sinni.
Guðjón bjó myndarbúi á Rauða-
skriðum til 1983 er hann hætti bú-
skap vegna heilsubrests og fluttist
að Hellu, síðar á dvalarheimilið
Kirkjuhvol á Hvolsvelli en andaðist
á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu
þar sem hann dvaldi síðasta miss-
erið.
Guðjón var alltaf hress og kátur
eins og heilsan leyfði og sagði
skemmtilegar sögur frá fyrri tíð,
sem gaman var að hlusta á. Frá-
sagnirnar skreytti hann með vísum
og kvæðum frá sjálfum sér eða öðr-
um. Þá var hann mikill söngmaður
og hafði sterka og mikla rödd sem
hann notaði óspart og til er á hljóm-
plötu. Hann kunni ógrynni laga og
tók alltaf vel undir á mannamótum.
Við viljum kveðja Guðjón með
stöku sem hann orti sjálfur í þeirri
trú og vissu að hann syngi nú með
hinum englunum á himnunum.
Ég syng og fagna frelsis degi,
ég syng á meðan róm ég hef,
ég syng nú frjáls á sólar vegi,
ég syng á meðan lífs ég er.
Við sendum öllum aðstandendum
hlýja strauma og kveðjur í minning-
unni um afa hetju.
Ingveldur og börn.
Tengdafaðir minn, Guðjón Helga-
son, er látinn. Mig langar að senda
mína hinstu kveðju og þakkir fyrir
okkur, fjölskylduna á Syðri-Hömr-
um, með ljóði sem Guðjón orti sjálf-
ur um Fljótshlíðina sem var honum
svo kær.
Ég lít þig í anda
mín ljósgræna hlíð
með lífsangan blóma,
hve þín kvöld voru blíð
og í faðmi þér friðsælt að sofa.
Og vakna svo alsæll
við yljandi sól
allt sem að syngur
var komið á ról
og blómin með fagnandi faðma.
Þá lífið var fagurt
hver laut var mér kær,
hver laufkrónu þytur
og hásumars blær
faðmandi fósturlands lendur.
(Guðjón Helgason.)
Ég sendi innilegar samúðarkveðj-
ur til allra aðstandenda. Guð blessi
minningu Guðjóns Helgasonar.
Hvíli hann í friði.
Vigdís Þorsteinsdóttir.
Afi okkar og tengdafaðir Guðjón
Helgason er genginn. Það er mikill
söknuður í hjörtum okkar. Við
huggum okkur við, að nú líður hon-
um vel.
Guðjón var allgott skáld og gaf út
tvær ljóðabækur. Hann hafði gam-
an af söng og margar góðar sögur
kunni hann. Allt varð þetta til að
létta lund þeirra sem næstir honum
stóðu.
Oftast var grunnt á gamansem-
inni eins og margar vísur hans bera
með sér.
Að leiðarlokum viljum við senda
öllum aðstandendum samúðar-
kveðjur með þessari fallegu stöku
Guðjóns sem hann nefndi „Eilífð-
in“:
Mundu það sonur þó sólin sé sest
og söngvarnir þagni að kveldi,
þá rís hún að morgni fögur og frjáls
og fer um sitt sköpunarveldi.
Olga Elísa Guðmundsdóttir,
Harpa, Bjarmi og Ágúst Þorri
Bergþórsbörn.
Mig langar að kveðja þig með
þessum sálmi, afi minn:
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(V. Briem.)
Þín
Elín Hjartardóttir.
Við fráfall bróður míns koma upp
í huga mínum ljúfar minningar frá
liðnum dögum, er við nutum saman
allt frá æsku til efri ára. Þessar
minningar varpa birtu á lífið og trú
manna á kærleika og vináttu í
gegnum lífið.
Við ólumst upp á yndislegu heim-
ili undir handleiðslu ástríkra for-
eldra sem allt vildu fyrir okkur
gera, en það kom í hlut Guðjóns
sem eldri bróður að kynna mér
ýmsa hluti, svo sem hestamennsku,
hjólreiðar og fleira, að ég tali nú
ekki um fjallgöngur, sem við báðir
höfðum yndi af. Ég minnist ennþá
margra þessara ferða, svo sem á
Þríhyrning, Tindfjöll og Eyjafjalla-
jökul, en þangað gengum við, en ég
þá að vísu kominn af æsku skeiði.
Útsýnið þaðan jafnaðist ekki við
neitt sem ég hafði áður séð enda
veðrið dýrlegt. Það sannar manni
að til er himnaríki á jörðu.
Guðjón var sérstaklega góður
verkmaður og má segja að allt hafi
leikið í höndum hans og átti þetta
ekki síst við um þær vélar og tæki
sem hann hafði undir höndum.
Hann var einn af þeim mönnum,
sem á þessum tíma keyptu afkasta-
miklar jarðvinnsluvélar, og vann
hann á þeim víða um sýsluna.
Guðjón var sérstaklega góður
söngmaður og söng í mörgum kór-
um, bæði í kirkjum og á samkom-
um. Það var tekið eftir því er hann
var við vinnu sína við jarðvinnslu að
hann söng svo hátt og snjallt að oft
heyrðist milli bæja. Guðjón var
ljóðelskur mjög og skáld gott.
Hann og börn hans hafa gefið út
tvær ljóðabækur, sem bæði í hugs-
un og máli sýna skýra hugsun varð-
andi lífið og tilveruna og ást hans á
náttúru landsins.
Guðjón unni átthögum sínum alla
tíð og hugur hans tengdur minn-
ingum þaðan. Í kvæðabók hans er
kveðið um Fljótshlíðina og hljóðar
fyrsta erindið svo:
Ég lít þig í anda,
mín ljósgræna hlíð,
með lífsangan blóma,
hve þín kvöld voru blíð
og í faðmi þér friðsælt að sofa.
Í þann faðm verður hann nú
lagður til hinstu hvíldar. Ég og fjöl-
skylda mín sendum fjölskyldu Guð-
jóns hjartanlegar samúðarkveðjur
og biðjum Guð að blessa og styrkja
þau á ókomnum árum.
Gunnar.
GUÐJÓN
HELGASON
✝ HólmfríðurMagnúsdóttir
fæddist á Hofi í
Kirkjubólsdal við
Dýrafjörð 30. októ-
ber 1910. Hún lést á
sjúkrahúsi Stykkis-
hólms 12. nóvember
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru hjón-
in Jónína Þuríður
Benónýsdóttir, f.
31.12. 1883, d. 2.8.
1971, ættuð úr Arn-
arfirði og Magnús
Helgason, bóndi á
Hofi, f. 20.2. 1872, d.
11.8. 1921, ættaður úr Dýrafirði.
Hólmfríður var fimmta í röð 10
systkina sem nú eru öll látin. Þau
eru Helgi Jón, f. 17.9. 1904, d. 8.7.
1982; Ágústa, f. 16.8. 1906, d.
23.6. 1977; Kristín, f. 11.2. 1907,
d. 8.7. 1931; Þorvaldína, f. 3.10.
1909, d. 28.10. 1960; Hólmfríður
sem hér er minnst; Elísabet, f.
21.4. 1912, d. 18.10. 1984; Ingi-
björg, f. 7.6. 1914, d. 9.11. 1968;
Jónína Kristín, f. 14.4. 1916, d.
6.11. 1982; Evert Kristinn, f.
22.11. 1918, d. 3.6. 1946; og Ben-
óný, f. 10.1. 1921, d. 9.10. 1997.
Hólmfríður giftist
27. október 1939
Kristjáni Sigurðs-
syni vélstjóra, f.
22.11. 1907, d. 10.1.
1983. Foreldrar
hans voru þau Sig-
urður Ágúst Krist-
jánsson og Margrét
Skúladóttir ættuð úr
Breiðafjarðareyjum.
Hólmfríður og
Kristján eignuðust
þrjú börn, Sigurð
Ágúst f. 28. 12.
1941, Magnús, f.
29.9. 1943, og Láru,
f. 16.2. 1948. Barnabörnin eru 11
og barnabarnabörnin 14.
Móðir Hólmfríðar hélt búi í tæp
tvö ár eftir lát manns síns, en
flutti þá að Vegamótum á Þing-
eyri og þar bjó Hólmfríður til 15
ára aldurs er hún fluttist til
Reykjavíkur. 1938 fluttist hún til
Stykkishólms þar sem hún kynn-
ist eiginmanni sínum. Hólmfríður
og Kristján bjuggu allan sinn bú-
skap í Stykkishólmi.
Útför Hólmfríðar verður gerð
frá Stykkishólmskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Það var alltaf stutt í hláturinn
hjá Fríðu. Hún var hluti af lífi mínu
í 30 ár, eða frá því ég kynntist dótt-
ur hennar Láru, og mörg þessara
ára bjó hún hjá okkur í London og
var reyndar meira sem móðir, í
reynd álfadrottningin (The Fairy
Godmother) frekar en amma fyrir
börnin okkar. Kenndi þeim hann-
yrðir, íslensku og allt um Ísland og
vafði þau ástúð og umhyggju.
Hún var bjartsýn og gladdist yfir
litlu, við að flytja til húsgögnin og
punta var hún í sjöunda himni og
eins og ég sagði áður, það var alltaf
stutt í hláturinn og glensið.
Ég sagði alltaf að hún hefði átt
að verða skemmtikraftur því hún
hafði unun af að fara í hina ýmsu
búninga og sprella til að gleðja og
létta lundir annarra.
Hennar verður saknað meir en
orð fái lýst, en þar sem hún gaf
meir en hún tók mun hún að eilífu
lifa með okkur. Bless elsku Fríða.
Þinn tengdasonur
Duncan Gillies.
Hún Fríða amma er látin 92 ára
að aldri. Efst í huga mér er þakk-
læti fyrir það sem hún var mér og
mínum. Það var alltaf jafn gott að
koma til hennar og hlusta á hana
segjasögur frá sínum uppvaxtarár-
um og fólkinu sem hún var sam-
ferða. Svo var amma alltaf að
föndra eitthvað fallegt og alltaf
eitthvað nýtt að sjá. Það liggja eftir
hana mörg listaverk og skemmti-
legast var að hlusta á hana gera
grín að fígúrunum sem hún var bú-
in að mála á steinana, „sjáðu þenn-
an“ sagði hún og hló svo að útlitinu
á þeim. Steinarnir sem hún málaði
á og svo dúkkurnar eftir hana sem
barnabarnabörnunum finnst vera
flottari en allt annað er mikill fjár-
sjóður í okkar huga. Allt þetta
tengist minningum um elsku ömmu
mína sem var svo kát og spræk, og
gaman að sprella með og hlæja.
Amma var alltaf svo dugleg við að
ferðast og fór margoft til dóttur
sinnar sem býr erlendis og ferð-
uðust þær þá mikið saman til ann-
arra landa og hafði hún gaman af
að minnast þeirra stunda. Amma
dvaldist hjá henni í lengri og
skemmri tíma, lengst samfleytt í
tvö ár eftir andlát afa sem lést 10.
janúar 1983. Nú hefur Stjáni afi
tekið á móti ömmu og hvíla þau nú í
guðs faðmi. Minninguna um þessi
yndislegu hjón geymum við í hjört-
um okkar. Guð verndi þau og
blessi.
Gerður Hrund Sigurðardóttir.
Nú er Fríða frænka mín komin á
æðra tilverustig.
Með þessum fátæklegu línum
langar mig að votta kærri frænku
virðingu mína og þakka þá miklu
gæsku og trygglyndi sem hún
sýndi mér og fjölskyldu minni alla
tíð.
Hvíl nú í guðsfriði, gullið míns hjarta.
Gröfin þín bíður. Ég vil eigi kvarta.
Þó titrandi finnist mér taugarnar slitna
og tárin á brennandi kinnunum hitna,
það er ekki’ um of fyrir þig.
Svo kveð ég þig síðast með kossi í anda
og kærleika endurtek bandi í handa,
þakka þá blómstráðu braut, sem er gengin
og blessaðan hópinn sem laun okkar fengin,
þær stoðir, sem styrkja mig best.
(Halla Eyjólfsdóttir.)
Guð blessi minningu Hólmfríðar
Magnúsdóttur.
Kristín Finndís.
HÓLMFRÍÐUR
MAGNÚSDÓTTIR