Morgunblaðið - 17.11.2002, Side 2

Morgunblaðið - 17.11.2002, Side 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ PÁLL PÉTURSSON FÉLL Magnús Stefánsson verður í efsta sæti framboðslista Framsóknar- flokks í Norðvesturkjördæmi. Páll Pétursson félagsmálaráðherra, sem setið hefur á þingi frá 1974, fékk ekki nægan stuðning í fyrsta sætið í kosningu flokksins í gær og mun því ekki sitja á næsta þingi. Selja 45,8% í Búnaðarbanka Gengið var frá samkomulagi um sölu 45,8% hlut ríkisins í Búnaðar- bankanum í gær. Kaupandi er hinn svokallaði S-hópur og verðið er rúm- ir 11,9 milljarðar króna. Salan er háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Rannsókn fölsunarmálsins Rúmlega fimm ár eru liðin frá því að fyrsta kæran var lögð fram í mál- verkafölsunarmálinu. Nú er einni umfangsmestu rannsókn lögregl- unnar að ljúka, en talið er að allt að 900 fölsuð verk hafi verið seld hér og í Danmörku og listaverkamarkaður- inn er enn í sárum. Hækka eigin laun Ákveðið hefur verið að hækka laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna í Kópavogi að sameiginlegri tillögu flokkanna í bæjarstjórn. Hækkunin er á bilinu 4,8% til 104,5%. Í skugga Jiangs Zemins Hu Jintao kann að hafa tekið formlega við helstu valdaembættum í Kína á föstudag, en ljóst þykir að hann verður í skugga Jiangs Zem- ins. Þykja hástemmd umfjöllun fjöl- miðla um Jiang og hófstillt skrif um Hu bera þessu órækt vitni. 100.000 herðatré Við Skútuvog stendur 11 þúsund fermetra vörugeymsla Hýsingar þar sem á hverjum mánuði er hengt á 100 þúsund herðatré. Þau eru flutt um húsið með tölvustýrðu færi- bandakerfi á þremur hæðum, sem helst minnir á leiðakerfi strætis- vagnanna. Tilkynntu börnin veik Nýja Harry Potter-myndin var frumsýnd á föstudag í Bandaríkj- unum og á Bretlandi. Brögð voru að því að foreldrar tilkynntu börn sín veik í skólum til að þau kæmust í biðröð eftir miðum. Sunnudagur 17. nóvember 2002 atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8.182  Innlit 15.566  Flettingar 63.934  Heimild: Samræmd vefmæling Umsóknareyðublöð má nálgast á ofangreindum leikskólum, á skrifstofu Leikskóla Reykjavíkur, Tryggvagötu 17, sími 563 5800 og á vefsíðu www.leikskolar. is Deildarstjórar óskast til starfa hjá Leikskólum Reykjavíkur Stöður deildarstjóra eru lausar í eftirtöldum leikskólum: • Grandaborg, Boðagranda 9 Upplýsingar veitir Ragnheiður Júlíusdóttir leikskólastjóri í síma 562 1855. • Grænaborg, Eiríksgötu 2 Upplýsingar veitir Gerður Sif Hauksdóttir leikskólastjóri í síma 551 4470. • Klettaborg, Dyrhömrum 5 Upplýsingar veitir Lilja Eyþórsdóttir leikskólastjóri í síma 567 5970. • Lyngheimar, Mururima 2 Upplýsingar veitir Júlíana Hilmisdóttir leikskólastjóri í síma 567 0277. Starfið tilheyrir markaðsdeild fyrirtækisins. Helstu verkefni eru: hönnun auglýsinga, bæklinga, plaköt, tilboðsgerð, aðstoð við uppsetningu ráðstefna og funda. Þekking á vefhönnun væri æskilegur kostur. Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt og skipu- lega, unnið undir talsverðu álagi oft á tíðum og geta gengið í önnur störf sem tengjast markaðsmálum samhliða hönnun. Unnið er í makkaumhverfi og innsýn í prentumhverfið er nauðsynlegt. Umsóknir óskast sendar til Hagvangs merktar „Grafískur hönnuður 2942“ fyrir 22. nóvember nk. Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir. Netfang: katrin@hagvangur.is Skógarhlíð 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 Bréfasími 520 4701 • www.hagvangur.is Hefur þú næmt auga fyrir hönnun? Stórt fyrirtæki óskar að ráða grafískan hönnuð eða prentsmið sem hefur næmt auga fyrir hönnun. GT Tækni ehf. Vélvirki — vökvakerfi GT Tækni ehf. óskar eftir að ráða vélvirkja með sérþekkingu á vökvakerfum. Starfssvið/Helstu verkefni  Vinna við vökvakerfi.  Almenn vélvirkjavinna.  Ýmis verkefni tengd verksmiðjuviðhaldi. Hæfniskröfur  Starfsreynsla sem vélvirki í verksmiðjuum- hverfi æskileg.  Reynsla í bilanagreiningu vökvakerfa æski- leg.  Sjálfstæði og frumkvæði í starfi Nánari upplýsingar veitir Gylfi R. Guðmunds- son í síma 432 0195/860 6195. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til GT Tækni ehf. fyrir 22. nóvember nk. merktar: Vélvirki - vökvakerfi GT Tækni ehf., Grundartanga, 301 Akranes.                                    !  "   !             #  $  %     &  '  #  (   ) *+, -         & '  #   .*.*)/) 0 1         2                        )*           #  $ %    (   )  *+, -    333                                     ! "    #$    %&                '((                     )        #         4    4   (   Sunnudagur 17. nóvember 2002 Í nafni meistaranna Á sjötta ár er liðið frá því fyrsta kæran var lögð fram í málverka- fölsunarmálinu svo nefnda. Aðeins er búið að dæma í máli þriggja verka, en á annað hundrað myndir til við- bótar eru enn í rann- sókn. Falsanirnar eru þó mun fleiri að mati Ólafs Inga Jónssonar, for- varðar hjá Mork- inskinnu, sem segist enn í dag fullviss að um ein 900 verk sé að ræða. Anna Sigríður Ein- arsdóttir og Ragnhildur Sverrisdóttir ræddu við Ólaf Inga og kynntu sér áhrifin á markaðinn og leiðir til úrbóta. ferðalögSumardvalarstaðurinn RiminibílarHonda JazzbörnHarry PotterbíóHal Hartley Seiður lands og sagna Áfangastaðir sunnan jökla Gísli Sigurðs- son leitar uppi öndvegisjarðir, fólk og sagnir. Prentsmiðja Morgunblaðsins Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Hugvekja 45 Erlent 12 Myndasögur 46 Listir 26/31 Bréf 46/47 Af listum 26 Dagbók 48/49 Birna Anna 26 Krossgáta 51 Forystugrein 32 Leikhús 52 Reykjavíkurbréf 32 Fólk 52/61 Skoðun 34 Bíó 58/61 Minningar 38/43 Sjónvarp 50/62 Þjónusta 44/45 Veður 63 * * * Páll Magnús LANDGRÆÐSLA ríkisins afhenti í fyrradag landgræðsluverðlaunin 2002 í höfuðstöðvunum í Gunnars- holti. Verðlaunahafar eru fjórir: Ásgrímur Ásgrímsson og Árný Ragnarsdóttir á Mallandi á Skaga, Félag íslenskra atvinnuflugmanna, Landgræðslufélag Biskupstungna og Una Einarsdóttir, fiskverkakona á Breiðdalsvík. „Hlutverk landgræðsluverð- launanna er að kynna og efla enn frekar það mikla sjálfboðaliðastarf sem unnið er að víðsvegar um land- ið. Þessi verðlaun eru veitt ein- staklingum, félögum og fyrir- tækjum fyrir framúrskarandi störf í þágu landgræðslu og gróður- verndar,“ sagði Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, meðal annars við afhendinguna. Hafa grætt upp tugi hektara Ásgrímur Ásgrímsson og kona hans, Árný Ragnarsdóttir, hófu bú- skap á Mallandi á Skaga árið 1955. Þar hafa þau lengst af rekið eitt af bestu sauðfjárbúum í Skagafirði. Ásgrímur hefur borið á áburð, sáð grasfræi og ræktað lúpínu og þann- ig grætt upp tugi hektara af eyddu landi með sérlega góðum árangri, við erfiðar aðstæður. Flugmenn í Félagi íslenskra at- vinnuflugmanna hafa í 30 sumur flogið Douglas-flugvélinni Gljáfaxa endurgjaldslaust við áburðar- og frædreifingu í þágu landgræðslu. Flugmenn hafa flogið vélinni í 4.703 flugtíma í 8.815 dreifingar- ferðum og dreift 35.142 tonnum af áburði og fræi. Landgræðslufélag Biskups- tungna hefur lagt áherslu á að virkja unglinga til starfa og unnið að fræðslumálum og stuðlað að breiðri þátttöku heimamanna í landgræðslu- og kynnisferðum um afréttinn og heimalönd. Una Einarsdóttir, fiskverkakona á Breiðdalsvík, er ræktunarkona af lífi og sál og hefur unnið að hugðar- efni sínu í öllum frístundum um áratugaskeið. Á Breiðdalsvík hóf hún samstarf við hjónin Jóhönnu Sigurðardóttur og Guðjón Sveins- son frá Mánabergi. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Níels Árni Lund, frá landbúnaðarráðuneytinu, Una Einarsdóttir, Björn Guðmundsson flugstjóri, Ásgrímur Ás- grímsson og Árný Ragnarsdóttir á Mallandi, Þorfinnur Þórarinsson, formaður Landgræðslufélags Biskups- tungna, og Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri eftir verðlaunaafhendinguna í Gunnarsholti. Fjórir fá landgræðsluverðlaun Selfossi. Morgunblaðið. ÞRÍR piltar á aldrinum 15-16 ára skemmdu bifreið úr fjölskyldu eins þeirra í fyrrinótt er þeir óku henni um götur og gangstíga í Mosfellsbæ og reyndu að stinga lögregluna af. Þeir munu hafa verið undir áhrifum áfengis er þeir stálu bifreiðinni frá heimili eins þeirra til að fara í öku- ferð. Lögreglumenn sáu til ferða þeirra milli kl. 1 og 2 um nóttina og þótti ferðalagið grunsamlegt. Ökumaður- inn, 16 ára og próflaus, hlýddi ekki lögreglunni þegar honum var skipað að stöðva bílinn og hófst þá eftirför. Piltarnir tóku þá til fótanna og hugð- ust flýja á hlaupum en tveir náðust. Litið er alvarlegum augum á það er próflausir ökumenn aka, þótt ekki sé á ölvun bætandi og óhlýðni. Reyndu að flýja undan lögreglu á stolnum bíl AUKINN hallarekstur verður á framhaldsskólum landsins og svo gæti farið að fjöldi nemenda fái ekki skólavist nái fjárlagafrumvarpið fyrir 2003 óbreytt fram að ganga. Þetta er mat Elnu Katr- ínar Jónsdóttur, formanns Félags framhalds- skólakennara í grein í Morgunblaðinu í gær. „Langvarandi vanáætlun um fjárþörf til að reka framhaldsskólana hefur skapað þann vanda, sem birtist árvisst í viðvarandi og vaxandi rekstrar- halla margra framhaldsskóla,“ segir í grein Elnu. Hún segir að nokkur hundruð milljónir vanti jafnan til að endar nái saman hjá framhaldsskól- unum. Fjárframlög til þeirra þurfi að aukast um 400–600 milljónir króna, m.a. til að mæta áætlaðri nemendafjölgun, þörf sé á auknu fé til tækjakaupa og fé í rekstur. Með góðum vilja sé hins vegar ein- ungis hægt að tala um 64 milljóna króna aukningu. Í greininni bendir hún á að í endurskoðuðu reiknilíkani sé leitast við að færa fé á milli skóla þannig að þeir skólar sem hafi verið illa staddir fá meiri fjárframlög á kostnað annarra, án þess þó að rök hnígi að því að þeir séu aflögufærir. „Fjárlagafrumvarpið boðar aukinn hallarekstur og stöðnun í nýbreytnistarfi í framhaldsskólum. Sé til viðbótar því unnið með of lága áætlun um nemendafjölda hlýtur það að leiða til þess að fjöldi nemenda er leita skólavistar komi að lokuðum dyrum framhaldsskólanna,“ segir Elna. Dregið úr fjölbreytni í námi Ingibjörg Guðmundsdóttir, skólastjóri Kvenna- skólans í Reykjavík og formaður Félags íslenskra framhaldsskóla, sem eru samtök skólastjórnenda, tekur undir gagnrýni Elnu um að heildarfjárveit- ing til framhaldsskólanna sé of lítil. „Með endur- skoðuðu reiknilíkani er verið að reikna verknáms- skólum meira fé til að reka verknámsstofurnar og viðurkenna kostnaðinn við það. Hins vegar skiptir reiknilíkanið tiltekinni upphæð á milli framhalds- skólanna og þegar upphæðin í heild sinni er of lítil virkar það þannig að ef það eiga að fara meiri pen- ingar í þetta þá minnka þeir annars staðar á móti. Þannig að um leið og þetta endurskoðaða reikni- líkan er látið taka gildi þarf að veita hærri upphæð inn í skólakerfið til þess að þetta dæmi gangi upp.“ Hún segir að þetta muni koma þannig út að í sum- um skólum verði færri krónur til skiptanna en áð- ur. Ingibjörg segir það ekki gert með því að fækka nemendum einfaldlega vegna þess að þá lækki upphæðin sem því nemur. „Eina leiðin sem mér finnst vera til að draga saman er að minnka fram- boð á kennslu, sem er vafasamt. Nemendur eiga rétt á ákveðnu vali og kjörsviðum í nýju nám- skránni sem allir skólar eru búnir að taka upp og þá má kannski segja að það sé verið að brjóta á þeim. Þannig yrði dregið úr fjölbreytninni. Telja framlög þurfa að aukast um 400 til 600 milljónir króna RÍKISSTJÓRNIN staðfesti á fundi sínum fyrir helgi samkomulag þriggja ráðuneyta og Ísafjarðarbæj- ar um áframhaldandi starfsemi Gamla apóteksins á Ísafirði. Um forvarnarverkefni er að ræða þar sem að koma lögregla, félags- málayfirvöld, skólar, foreldrafélög og heilsugæsla en Gamla apótekið er menningarmiðstöð sem er sérsniðin að þörfum ungs fólks. Ráðuneytin eru heilbrigðisráðuneytið, félags- málaráðuneytið og dómsmálaráðu- eytið og mun hvert þeirra veita til verkefnisins 1,5 milljónum króna á ári í tvö ár frá og með 2003. Gamla apótekið starfar áfram STOFNFUNDUR samtakanna Regnbogabarna var haldinn í Þjóðleikhúsinu í gær þar sem kosin var undirbúningsstjórn sem á að vinna í samræmi við hugmyndir Stefáns Karls Stef- ánssonar um framtíðarstarf- semi samtakannna, en hann leggur áherslu á að réttur barna sé virtur. Hugmyndir hans ganga einnig út á sam- starf við aðra aðila, s.s. Rauða krossinn, auk þess sem hann vonast til þess að samtökin fari á fjárlög árið 2004. Stefán segir það samfélagsmál að hlúa að börnum og reyna að stöðva einelti og ofbeldi. Morgunblaðið/Jim Smart Stefán Karl Stefánsson Regn- bogabörn stofnuð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.