Morgunblaðið - 17.11.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.11.2002, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ 17. nóvember 1945: „Það er ekki lengur hægt að lifa á því einu saman, að vera Framsóknarmaður,“ voru síðustu orð fjármálaráðherr- ans í svarræðunni til Ey- steins. Þessi látlausu orð sögðu meira en öll stóryrði Eysteins. En þau mintu óþægilega á fortíðina, þegar allt þurfti að sækja undir „náð“ hinna gerspiltu leið- toga Framsóknarflokksins. Talsmaður Sósíalistaflokks- ins hafði og þau ummæli eftir einum, sem var í „náð- inni“, að hann hefði aldrei haft meiri þjenustu af nokkru fje en því, sem hann greiddi til flokksstarfsemi Framsóknarflokksins. Hagur landsins stendur með blóma og er það mikið fagnaðarefni. Erlendar skuldir ríkissjóðs eru sem engar. Verið er að afla þjóð- inni meiri og betri tækja til framleiðslustarfa en dæmi eru til áður. Allt gefur þetta vonir um bjartari framtíð. Hrakspár stjórnarandstöð- unnar munu falla niður dauðar og ómerkar.“ . . . . . . . . . . 17. nóvember 1965: „Allar nágrannaþjóðir okkar Ís- lendinga leyfa bruggun og sölu á 4–7% öli í löndum sínum. Þrátt fyrir það er það viðurkennd staðreynd að þessar þjóðir fara yf- irleitt miklu betur með áfengi en Íslendingar. Ungt fólk byrjar þar t.d. yfirleitt síðar að neyta áfengis en tíðkast hér á landi. Þó er það höfuðmótbáran gegn öl- inu á Íslandi, að það kenni æskunni að drekka. En hér er ekkert öl, og þó drekkur íslenzk æska sér til vanza. Er ekki kominn tími til þess að lofa rökréttri hugsun að komast að í umræðum og aðgerðum í þessum mál- um?“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VELFERÐARSTEFNA OG VINSTRI MENN Steingrímur J. Sigfússon, formað-ur Vinstri hreyfingarinnar –græns framboðs, sagði á flokks- ráðsfundi flokks sín í fyrradag, að flokkurinn vildi gerbreytta stefnu í landsmálum, sem fælist í vinstri stefnu og myndun velferðarstjórnar. Hann bætti því við, að eðlilegir samherjar flokksins í baráttu fyrir gerbreyttri stjórnarstefnu væru hinir stjórnar- andstöðuflokkarnir, Samfylkingin og Frjálslyndi flokkurinn. Af þessu tilefni er ástæða til að staldra við og spyrja, hvort vinstri flokkarnir séu líklegri til að stuðla að öflugra velferðarkerfi en núverandi stjórnarflokkar. Enginn dregur í efa, að Alþýðu- flokkurinn, sem nú er hluti Samfylk- ingar, hafði frumkvæði um og forystu fyrir uppbyggingu almannatrygginga- kerfisins á Íslandi, sem hófst fyrir miðja síðustu öld. Höfundarréttur Al- þýðuflokksins að því kerfi verður ekki vefengdur. Síðan hefur margt gerzt. Það er alveg ljóst, að Sjálfstæðis- flokkurinn undir forystu Ólafs Thors tók á þeim tíma þá grundvallarákvörð- un að styðja uppbyggingu velferðar- kerfisins og næstu áratugi á eftir mátti ekki á milli sjá, hvor flokkurinn beitti sér meir í þeim efnum. Íslenzka þjóðin fór fyrst að efnast á Viðreisnaráratugnum frá 1959 til 1971. Þá gerðist tvennt: annars vegar hafði Geir Hallgrímsson, borgarstjóri Sjálf- stæðisflokks, forystu um byltingu í fé- lagslegri þjónustu á vegum borgarinn- ar, sem Þórir Kr. Þórðarson prófessor átti mikinn þátt í að móta með þáver- andi borgarstjóra. Hins vegar tók Við- reisnarstjórnin, sem Sjálfstæðisflokk- ur og Alþýðuflokkur áttu aðild að og Bjarni Benediktsson hafði þá tekið forystu fyrir, þátt í því með verkalýðs- hreyfingunni að koma á byltingu í hús- næðismálum láglaunafólks með bygg- ingu 1250 íbúða, sem efnaminna fólk gat eignazt með góðum kjörum. Þetta tvennt markaði þáttaskil í uppbygg- ingu velferðarkerfisins í kjölfarið á hinni upphaflegu ákvörðun áratugum áður um almannatryggingakerfið. Almannatryggingakerfið byggðist áratugum saman á því grundvallarat- riði að allir ættu að fá jafnar greiðslur úr því, hver svo sem efni þeirra væru eða tekjur. Rökin fyrir því voru þau, að ella mundu þeir sem tækju við greiðslum úr tryggingakerfinu líta á þær sem ölmusu. Þegar komið var fram á níunda ára- tuginn var orðið alveg ljóst, að hvorki hafði þjóðin efni á því að greiða trygg- ingabætur til þeirra, sem þurftu ekki á því að halda, né var nokkurt réttlæti í því að hinir efnaminni fengju lægri bætur af þeim sökum. Það er alveg ljóst að í þeim deilum var það Sjálfstæðisflokkurinn, sem knúði á um að dregið yrði úr eða felld- ar niður greiðslur til þeirra, sem ekki þyrftu á þeim að halda, og Alþýðu- flokkurinn, sem féllst að lokum treg- lega á það sjónarmið. Hér hafa verið nefndir fjórir meg- inþættir í uppbyggingu velferðarkerf- isins á Íslandi á síðustu sjö áratugum eða svo. Rannsóknir sagnfræðinga mundu sýna fram á þá sögulegu stað- reynd, að það eru fyrst og fremst þeir tveir stjórnmálaflokkar, sem hér hafa verið nefndir, sem við sögu hafa kom- ið. Það er þess vegna rangt hjá Stein- grími J. Sigfússyni, að „velferðar- stjórn“ byggist á því að núverandi stjórnarandstöðuflokkar taki höndum saman. Stærstu verkefnin í velferðarmálum nú eru annars vegar að bæta kjör hinna lægstlaunuðu, þ.e. öryrkja og þeirra í hópi aldraðra, sem hafa ekkert að lifa á nema tryggingabætur og tekjutryggingu úr almannatrygginga- kerfinu, og hins vegar að ná tökum á heilbrigðiskerfinu þannig að það veiti viðunandi þjónustu. Í síðarnefnda tilvikinu er enn uppi ágreiningur, sem er af svipuðum toga og sá skoðanamunur, sem var uppi um endurbætur á tryggingakerfinu fyrir áratug eða svo. Því er haldið fram að það megi ekki byggja upp einkarekinn valkost í heilbrigðismálum af því að þá sé fólki mismunað, þótt augljóst sé að það mundi hafa þveröfug áhrif, þ.e. að þjónustan mundi batna við þá, sem leituðu hennar í opinbera kerfinu. Steingrímur J. Sigfússon er hand- hafi pólitískrar arfleifðar, þ.e. hinnar sósíalísku arfleifðar, sem hefur frá upphafi til þessa dags komið lítið við sögu í uppbyggingu velferðarkerfisins á Íslandi að svo miklu leyti, sem um það hefur verið að ræða, fyrst og fremst vegna áhrifa þessara þjóð- félagsafla á sínum tíma innan verka- lýðshreyfingarinnar. Hugmyndir Steingríms J. Sigfús- sonar um velferðarstjórn á þeim for- sendum, sem hann gefur sér, ganga því ekki upp. H vað eiga kvikmyndir, popptónlist, tíska og tölvuleikir sameiginlegt? Líklega meira en flesta grunar. Þessi fyrirbæri eru ekki einungis hluti af því sem í daglegu tali er gjarnan nefnt dægur- menning heldur einnig atvinnugreinar sem velta gífurlegum fjárhæðum árlega. Atvinnugreinar sem þar að auki tengjast það sterkum böndum að skilin á milli eru stundum óljós. Kvikmyndir byggjast mikið á tónlist. Lög tónlistarmanna eru notuð til að vekja athygli á kvikmyndum og kvik- myndir til að vekja athygli á tónsmíðum. Tónlist er gjarnan uppistaða auglýsingakvikmynda. Tölvuleikir eru oft einhvers konar framlenging á þeim draumaheimi, sem kvikmyndir eru, og tíska og hönnun tengjast jafnt tónlist sem kvikmynd- um órjúfanlegum böndum. Það er hægt að hafa skiptar skoðanir á þeirri menningu sem fylgir poppi, tísku og kvikmynd- um. Deilur um hámenningu og lágmenningu munu hins vegar aldrei skila neinni einhlítri nið- urstöðu. Allt endurspeglar þetta þann veruleika sem við búum við hverju sinni. Hann er stundum yfirborðskenndur, stundum markaðsknúinn og oftar en ekki umdeilanlegur. Hjá því verður hins vegar ekki litið að Ísland er hluti af þessum veruleika og, það sem meira er, sívinsælli hluti. Fyrir fimm árum birti tíma- ritið Newsweek lista yfir tíu mest spennandi borgir heims í huga ungs fólks og var Reykjavík í hópi þeirra. Síðan hafa óteljandi greinar birst í dagblöðum og tímaritum um allan heim þar sem Ísland og Reykjavík eru dásömuð, ekki vegna náttúru landsins heldur vegna næturlífs, fjöl- breytilegs mannlífs og menningar í víðasta skiln- ingi. Raunar er staðan nú orðin sú að íslensk tón- list og kvikmyndir njóta síst minni athygli en afurðir margra mun stærri og fjölmennari ná- grannaríkja okkar í Evrópu. Hver er skýringin á þessu? Eflaust margar. Hins vegar verður ekki litið framhjá þeirri gíf- urlegu athygli sem Ísland hefur notið í tengslum við vinsældir Bjarkar Guðmundsdóttur. Björk hefur fyrir löngu skipað sér í hóp virtustu ekki síður en vinsælustu listamanna heims. Þau áhrif sem það hefur haft á áhuga á Íslandi sýna svo ekki verður um villst hversu mikill máttur felst í því að ná árangri á þessu sviði. Rétt eins og Bítl- arnir gerðu iðnaðarborgina Liverpool að nafni sem allir þekktu á sínum tíma hefur Björk komið nafni Íslands á kortið hjá hópum sem aldrei hefðu annars heyrt á landið minnst. Í kjölfar hennar hafa fjölmargir íslenskir listamenn feng- ið tækifæri sem þeir hefðu líklega ekki annars fengið. Ekki vegna þess að þeir væru þess ekki verðir heldur vegna þess að athyglin hefði ella ekki beinst að Íslandi. Nú er svo komið að þús- undir ferðamanna og blaðamanna koma hingað ár hvert í þeim tilgangi fyrst og fremst að kynn- ast þessari hlið Íslands. Ísland er ekki lengur einungis land stórbrotinnar og ósnortinnar nátt- úru heldur land sem dregur til sín ferðamenn vegna mannlífsins. Dægurtónlist og útflutningur Draumurinn um frægð og frama í fjar- lægum löndum hefur ávallt verið hluti af poppmenningunni. Hann rættist loks í upphafi síðasta áratugar er Sykurmolarnir og síðar Björk hófu sigurgöngu sína. Björk sannaði svo um munar að íslensk dægurtónlist getur átt er- indi á alþjóðlegan markað. Í kjölfarið hafa aðrir íslenskir tónlistarmenn náð athyglisverðum ár- angri. Hljómsveitin Sigur Rós gaf á dögunum út nýja plötu en þrjú ár eru síðan fyrsta plata sveit- arinnar, Ágætis byrjun, kom út. Sú plata setti sveitina á kortið, Ágætis byrjun fékk góða dóma og hlaut hljómsveitin m.a. hin bandarísku Short- list-verðlaun Virgin-hljómplötufyrirtækisins, sem ætluð eru efnilegum ungum hljómsveitum, þegar þau voru veitt í fyrsta skipti í Los Angeles fyrir einu ári. Hin nýja plata Sigur Rósar er nú á sölulista í nítján löndum og m.a. í 49. sæti breska listans og 51. sæti bandaríska Billboard-listans. Seldist platan í 250 þúsund eintökum í forsölu. Þá var um síðustu helgi greint frá að hljómsveitin Quarashi hefur selt 220 þúsund eintök af plöt- unni Jinx og rafpoppsveitin múm 75 þúsund ein- tök af nýrri plötu. Svona mætti lengi áfram telja. Söngkonan Emiliana Torrini mun syngja eitt af titillögum annarrar myndarinnar um Hringa- dróttinssögu og eitt af lögum Sigur Rósar notaði leikstjórinn Cameron Crove í myndinni Vanilla Sky. Lag íslensku hljómsveitarinnar Bang Gang er notað í auglýsingu Citroën og nefna má þann árangur sem sveitir á borð við Gus Gus og Leav- es hafa náð. Í raun er ótrúlegt hversu mikil gerj- un er á þessu sviði og hversu miklum árangri ís- lenskir tónlistarmenn hafa þegar náð. Það er ekki síður athyglisvert að þeir íslensku tónlistarmenn er náð hafa hvað mestum árangri eru einmitt þeir sem fara ótroðnar slóðir og skapa eitthvað nýtt í stað þess að eltast við eft- irlíkingar á tónlist annarra. Það er ekki síst það hversu frumleg og einstök sköpunarverk Bjark- ar og Sigur Rósar eru, sem hefur vakið athygli á þeim. Tónlist er sköpun og list en jafnframt markaðs- og söluvara. Menning og viðskipti verða ekki aðskilin. Fyrr á þessu ári var haldin ráðstefna um ís- lenska dægurtónlist sem útflutningsvöru og meðal þess sem þar kom fram er að lítil samstaða ríkir meðal tónlistarmanna og opinber stuðning- ur er lítill. Einnig var upplýst að enginn hefur fulla yfirsýn yfir það hversu miklum „útflutn- ingstekjum“ íslensk popptónlist skilar í dag. Margir eru þeirrar skoðunar að íslensk tónlist gæti orðið að einhverjum verðmætasta „útflutn- ingsiðnaði“ okkar Íslendinga. Þar er hins vegar ekkert sjálfgefið. Aftur á móti verður að spyrja þeirrar spurningar hvernig hægt sé að tryggja að íslenskir listamenn á þessu sviði nái sem mest- um árangri. Það liggur fyrir að mikill áhugi er á íslenskri tónlist. Þrátt fyrir alla upplýsingatækni nútímans erum við langt frá þeim mörkuðum sem mestu máli skipta í þessu sambandi og á ráð- stefnu Útflutningsráðs kom einmitt fram að ein helsta hindrunin í vegi frekari útrásar væru há flugfargjöld. Þá kom fram að þessir tónlistar- menn hafa lítinn sem engan aðgang að styrkjum er standa öðrum listamönnum til boða. Kjartan Sveinsson, einn meðlima Sigur Rósar, sagði að hljómsveit hans hefði árangurslaust sótt um styrki í þrjú ár en aldrei fengið krónu. Nú þegar hún hefði náð árangri vildu hins vegar allir vinna með þeim. Þessi málefni hafa verið til umræðu á vegum ríkisins um árabil. Árið 1996 var til dæmis skip- aður starfshópur á vegum iðnaðar- og viðskipta- ráðherra til að kanna hvort forsendur væru fyrir sérstöku útflutningsátaki íslenskrar tónlistar. Árið 1998 hófst starf vegna löggjafar um útflutn- ingssjóð íslenskrar tónlistar. Ekkert frumvarp hefur hins vegar enn verið lagt fram. Auðvitað liggur leiðin að árangri ekki í gegn- um ríkiskerfið fyrst og fremst. Það býr engin rík- isnefnd til aðra Björk. Hún verður heldur ekki sköpuð með lögum. Hins vegar er spurning hvort ekki sé skynsamlegt að þessi listgrein njóti sömu velvildar og aðrar, ekki síst í ljósi þess að um verulega viðskiptahagsmuni getur verið að ræða fyrir Íslendinga ef rétt er að málum staðið. Margar nágrannaþjóðir okkar hafa mótað skýra stefnu á þessu sviði og oft náð undraverð- um árangri. Má nefna Íra og Svía í því sambandi. Í Svíþjóð var stofnað fyrirtæki um útflutning tónlistar, Export Music Sweden, sem aðstoðar tónlistariðnaðinn við útflutning. Á árinu 2000 námu tekjur Svía af sölu tónlistar og búnaði tengdum tónlist til annarra landa um 4,6 millj- örðum sænskra króna. Það er mjög há upphæð en þó einungis um 0,45% af heildarútflutningi Svía. Þær fara hins vegar hratt vaxandi og má nefna að tekjurnar jukust um 24% milli áranna 1998 og 1999. Árið 1997 voru tekjur Svía af tón- list um 3,6 milljarðar sænskra króna. Raunar má færa rök fyrir því að íslenskir popptónlistarmenn hafi þegar fært þjóðinni stór- felldar tekjur í formi aukins áhuga á Íslandi og fjölda ferðamanna. Er ekki rétt að rækta sprot- ana á þessu sviði sem öðrum og reyna að tryggja að sú mikla sköpun sem á sér stað á Íslandi nái að blómstra eftir því sem kostur er? Gott dæmi um það hversu mikilvæg tónlistin er orðin er Air- waves-hátíðin, er haldin var í fjórða skipti fyrr í mánuðinum. Um 1.500 manns komu hingað til lands í tengslum við hana, þar af um 300 frá New York einvörðungu, áhugamenn um tónlist, blaða- menn og útsendarar frá hljómplötufyrirtækjum sem reglulega eru farnir að leggja leið sína hing- að til lands í þeirri von að uppgötva næstu stór- stirni. Tónlist auðgar mannlífið en hún getur jafn- framt verið mikilvægur þáttur í því að auka þjóð- artekjur. Kvikmyndir og ímynd Það voru tímamót er Börn náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðikssonar, var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir tæpum áratug. Þar með var sýnt fram á að kvikmynd er byggðist alfarið á íslenskum raunveruleika gat haft alþjóðlega skírskotun. Segja má að spreng- ing hafi orðið í íslenskri kvikmyndaframleiðslu síðastliðinn áratug og þótt engin mynd hafi náð jafnlangt og Börn náttúrunnar á sínum tíma hafa margar kvikmyndir náð góðum árangri og út-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.