Morgunblaðið - 17.11.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.11.2002, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 27 KAMMERHÓPURINN Camerarct- ica kemur fram á Tíbrár tónleikum í Salnum í kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20. Camerarctia hefur starfað saman í áratug og skipa hópinn þau Hallfríður Ólafsdóttir, flautuleikari, Ármann Helgason, klarinettuleikari, Hildi- gunnur Halldórsdóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðluleikarar, Guð- mundur Kristmundsson, víóluleikari og Sigurður Halldórsson, sellóleikari. Gestur Camerarctica á þessum tón- leikum er Guðrún Þórarinsdóttir, víóluleikari. Í kvöld verða flutt verk sem spanna klassíska tímann og yfir í rómantík: Kvartett op. 19 nr. 3 fyrir flautu og strengi eftir Johann Christian Bach, Kvartett op. 7 fyrir klarinettu og strengi eftir Bernhard Crusell og Strengjakvintett í G dúr, op. 111 eftir Johannes Brahms. Johann Christian Bach er oft nefndur Lundúna-Bach til aðgrein- ingar frá bræðrum sínum og föður. Flautukvartettinn býr yfir þeim tær- leika, ljóðrænum þokka og léttleika sem einkennir verk tónskálda frá upphafi klassíska tímans. Finnlands-Svíinn Bernhard Crus- ell er eitt af þekktustu tónskáldum Norðurlanda frá þessum tíma. Hann skrifaði m.a. óperur og sönglög en fyrir klarinettu skrifaði hann bæði konserta og kvartetta. D-dúr kvart- ettinn op. 7 er eina klarinettuverk Crusells þar sem hann notast við A- klarinettuna sem hefur dýpri og dekkri tón en B-klarinettan. Johannes Brahms samdi tvo strengjakvintetta. Kvintettinn í G- dúr op.111 er saminn árið 1890 að beiðni Joseph Joachim fiðluleikara og er síðasta strengjaverk tónskáldsins. Kvartettar og einn kvintett í Salnum Morgunblaðið/Kristinn Camerarctica hefur starfað saman í áratug. LOKATÓNLEIKAR á Tónlistar- dögum Dómkirkjunnar verða í Hall- grímskirkju í dag, sunnudag, kl. 17. Þar flytur Dómkórinn, ásamt kamm- ersveit, undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, og Skólakór Kárs- ness, kantötuna Saint Nicolas eftir Benjamin Britten. Einsöngvari er tenórinn Garðar Thór Cortes. Stjórnandi Skólakórs Kársness er Þórunn Björnsdóttir. Benjamin Britten (1913–1976) lauk við kantötuna Saint Nicolas (Opus 42) árið 1948 og var hún frum- flutt á Aldeburgh-tónlistarhátíðinni 5. júní það ár. Verkið er samið í til- efni af aldarafmæli Lancing College í Sussex á Suður-Englandi sem þá var fyrir drengi á aldrinum 13–18 ára. Þótti stjórnendum hans við hæfi að panta tónverk sem styddist við söguna af verndardýrlingi barna, heilögum Nikulási. Sá sem hafði milligöngu um að fá Britten til verksins var tenórinn Peter Pears en hann var fyrrverandi nemandi við skólann og náinn vinur tónskáldsins. Hann söng líka hlutverk Nikulásar þegar verkið var frumflutt. Dómkórinn flytur Saint Nicholas ♦ ♦ ♦ Kristján Jóhannsson óperusöngvari mun halda námskeið í söng dagana 2.-14. desember. Þar mun hann fyrst og fremst vinna með ítalska óperutónlist fyrir nemendur sem lokið hafa 5. stigsprófi í söng. Námskeiðið er opið öllum sem áhuga hafa, jafnt nemendum sem atvinnusöngvurum, en fjöldi þátttakenda takmarkast við tuttugu manns. Kennt verður í Bústaðakirkju. Sameiginlegur „Master-Class“ verður laugardagana 7. og 14. des. og mun hann fara fram í Íslensku óperunni. Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari mun verða undirleikari á námskeiðinu. Námskeiðinu lýkur með stórtónleikum í Háskólabíói sunnudaginn 15. des. þar sem Kristján mun koma fram ásamt völdum þátttakendum og hefjast þeir kl. 14.00. Skráning fer fram á netinu og er slóðin www.utansviga.is. Einnig eru upplýsingar í síma 822 1990. „Master-Class“ Námskeið í óperusöng
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.