Morgunblaðið - 17.11.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Beinvernd á Suðurlandi fimm ára
Beinin eru
lifandi vefur
BEINVERND, bein-þynning, beinbroteru orð og hugtök
sem eru í vaxandi mæli á
vörum manna. Beinþynn-
ing er sjúkdómur og slys
gera ekki boð á undan sér.
Félagsskapurinn Bein-
vernd starfar á landsvísu
og liggur tilgangur félags-
ins greinilega í nafni þess.
Beinvernd á Suðurlandi á
fimm ára afmæli um þess-
ar mundir og í tilefni af
því verður efnt til afmæl-
isfunds sem er í líki mál-
þings. Anna Pálsdóttir,
upplýsingastjóri NLFÍ í
Hveragerði, er formaður
Beinverndar á Suðurlandi
og hefur verið það öll árin
fimm. Hún svaraði nokkr-
um spurningum Morgun-
blaðsins á dögunum.
– Hvar og hvenær verður um-
ræddur afmælisfundur?
„Afmælisfundurinn verður
haldinn á Hótel Selfossi þriðju-
daginn 19. nóvember og hefst kl.
20 um kvöldið. Félagið var stofn-
að í Heilsustofnun NLFÍ í Hvera-
gerði 20. nóvember 1997 að frum-
kvæði Ólafs Ólafssonar,
fyrrverandi landlæknis og fyrsta
formanns Beinverndar á Íslandi.“
– Hver er dagskrá fundarins og
helstu áherslur?
„Ingibjörg Pálmadóttir, fyrr-
verandi heilbrigðisráðherra og
verndari félagsins, setur fundinn
og flytur ávarp. Að því loknu mun
Trausti Valdimarsson, sem er
sérfræðingur í lyflækningum og
meltingarsjúkdómum, halda er-
indi sem nefnist: „Hvers vegna
brotna beinin?“
Trausti hefur skrifað og varið
doktorsritgerð um beinþynningu
tengda þarmasjúkdómum. Ás-
gerður Eir trúbador, sem hefur
getið sér góðan orðstír að und-
anförnu með flutningi á eigin tón-
list, mun skemmta með gítarleik
og söng. Trausti og Ásgerður eru
bæði starfsmenn í Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags Íslands í
Hveragerði.“
– Hvað þýðir hugtakið bein-
vernd?
„Árið 1994 skilgreindi Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin bein-
þynningu sem sjúkdóm, en hér á
landi verða árlega um 1.000 bein-
brot af völdum beinþynningar.
Landssamtökin Beinvernd á Ís-
landi voru stofnuð í þeim tilgangi
að fræða stjórnvöld, heilbrigðis-
stéttir og almenning um bein-
þynningu og varnir gegn henni.
Beinin eru lifandi vefur sem er í
stöðugri endurnýjun og bein-
massinn nær hámarki á 20 til 25
ára aldri. Hreyfing og hollt fæði í
æsku stuðlar að því að ná góðum
beinmassa.“
– Hvernig starfar Beinvernd
og hverjir koma að félaginu?
„Beinvernd á Suðurlandi beitir
sér fyrir fræðslu til almennings
og er í samstarfi við Landssam-
tökin við gerð fræðsluefnis.
Fræðslan er fólgin í
því að við höldum
fræðslufundi fyrir al-
menning. Þetta eru
nokkrir fundir á
hverju ári, haldnir allt
frá Hveragerði til Víkur í Mýr-
dal.“
– Nær Beinvernd áþreifanleg-
um árangri?
„Fyrir nokkrum árum hugsaði
fólk almennt ekkert sérstaklega
um beinvernd, en starfsemi Bein-
verndar hefur náð athygli því æ
fleiri leita nú upplýsinga símleiðis
eða á heimasíðunni: www.bein-
vernd.is. Beinþéttnimæling á hæl
hefur verið í boði undanfarið en
hún gefur vísbendingu um ástand
beina. Konur á Suðurlandi hafa
sótt þessar mælingar mjög vel og
er það eflaust mikið að þakka
fræðslustarfsemi Beinverndar á
Suðurlandi. Ef spurt er um tölur
þá er þetta of skammur tími,
fimm ár, en fólk er greinilega orð-
ið mun meðvitaðra um beinþynn-
ingu en áður var og það er í sjálfu
sér ávísun á árangur fræðslunnar
og forvarnarstarfsins.“
– Þú segir að konur séu dug-
legar að mæta í mælingu ... hvað
með karla, eru þeir ekki líka lík-
legir að fá beinþynningu?
„Jú, karlar fá einnig beinþynn-
ingu, en fram til sjötugs eru kon-
ur þrisvar sinnum líklegri til að fá
beinþynningu. Mest er hættan við
tíðahvörfin, þá er beintapið mest.
Frá og með sjötugu eru karlar al-
veg jafn líklegir og konur til að fá
beinþynningu. En af því ég talaði
um að konur væru duglegar að
mæta í mælingu átti ég við að
þær eru duglegri en karlar.“
– Hvaða bein brotna helst?
„Framhandleggur, mjaðma-
grind og það sem við köllum sam-
fall á hrygg. Þegar
beinþynning er komin
á skrið má stundum lít-
ið út af bregða ef ekki
á illa að fara og fólk
verður að hafa varann
á sér. Að það séu umrædd bein
segir okkur að fólki sem er komið
af léttasta skeiði er hættara en
öðru við föll af hvers kyns toga, í
hálku, í stigum o.þ.h.“
– Er fundurinn einungis fyrir
fagfólk eða er hann öllum opinn?
„Allir eru velkomnir á fundinn,
bæði ungir sem aldnir, því ým-
islegt er til ráða, en best er að
byggja beinin vel upp í æsku.“
Anna Pálsdóttir
Anna Pálsdóttir er fædd í
Reykjavík 20. maí 1947. Stúdent
frá Menntaskólanum í Reykjavík
1967. Hún er meinatæknir og
vann við rannsóknir árum sam-
an, m.a. á Landspítalnum og
Sjúkrahúsinu á Ísafirði. Var
verkefnisstjóri hjá Krabbameins-
félagi Íslands við frumkönnun á
leit að krabbameini í ristli á ár-
unum 1985-1988. Lauk námi í
stjórnun og rekstri í heilbrigð-
isþjónustu við Endurmenntunar-
stofnun Háskóla Íslands og hefur
sótt mörg námskeið í rannsókna-
og upplýsingafræðum. Frá 1995
hefur hún starfað sem upplýs-
ingafulltrúi við Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði og hefur auk
þess verið formaður Beinvernd-
ar á Suðurlandi frá stofnun.
Sambýlismaður er Einar Pálmar
Elíasson iðnrekandi og á Anna
þrjár dætur og fimm barnabörn.
Stundum
má lítið út af
bregða
Og við skulum halda áfram samanburðinum á þeim norðlensku og sunnlensku.