Morgunblaðið - 17.11.2002, Síða 11
n, máttlaus stofnun
landi eru lögreglustjórar jafnframt
sýslumenn, nema í Reykjavík. Norð-
menn hafa fækkað lögreglustjórum
mikið á undanförnum árum og um-
ræða um slíkt hefur verið áberandi í
Danmörku. Við erum nokkuð litaðir
af þessum breytingum og höfum
bent á að hugsanlega mætti næsti
áfangi í skipulagsbreytingum lög-
gæslunnar lúta að breyttu skipulagi
lögreglustjórnar. Ákvörðun um slíkt
liggur þó hjá hinu pólitíska valdi, en
ekki hjá embættismönnum.“
– Er hægt að yfirfæra norska
skipulagið óbreytt yfir á Ísland, eða
kalla aðstæður hér á aðra nálgun?
„Það er ekki víst að við getum
tekið sama skipulag upp hér. Hins
vegar tel ég alveg þess virði að hug-
leiða hvort fyrirkomulag þeirra
myndi henta hér að einhverju leyti.
Ríkislögreglustjórinn í Noregi á auð-
veldara með að stýra lögreglustjór-
um og lögregluliði sínu en hér, þar
sem fjöldi lögreglustjóra kemur að
málum og er jafnframt sýslumenn.
Aðgreining lögreglustjórnar og
sýslumannsembætta um allt land er
án efa viðkvæmt, pólitískt mál, og
sýnist sitt hverjum. En við þurfum
að fjalla um þetta á faglegum for-
sendum.“
Lögreglan og pólitíkin
– Það virðist einsýnt að fækkun
lögregluumdæma geti aukið skil-
virkni lögreglunnar, en er þetta
fyrirkomulag ekki dýrara en það
sem við höfum núna?
„Kostnaðinn þyrfti að skoða ofan
hægar er ekki eins eftir því tekið.
Ég er hins vegar ekkert viðkvæmur
fyrir umræðu um útþenslu ríkis-
stofnana. Ég hef aldrei verið varð-
hundur fyrir ríkisstofnanir, en
reynt að ganga þannig til verka að
ég þurfi ekki að skammast mín að
loknum vinnudegi.“
Úrvals starfsfólk
– Hvernig gengur að fá vel
menntað starfsfólk til starfa hjá
ríkislögreglustjóra?
„Okkur hefur gengið mjög vel að
fá hæft starfsfólk. Hér er vel mennt-
að háskólafólk á hverju strái, við
embættið er talaður fjöldi tungu-
mála, við búum að þekkingu lög-
fræðinga og sérþjálfaðra lögreglu-
manna með langa reynslu af
rannsókn sakamála. Hér starfar úr-
valsfólk. Ef við ráðum ekki yfir sér-
fræðiþekkingu á ákveðnu sviði kaup-
um við hana, frá einstaklingum,
einkafyrirtækjum eða öðrum ríkis-
stofnunum. Við leitum til dæmis til
endurskoðenda vegna rannsókna
efnahagsbrotadeildar, sem fjallar um
stærstu og viðkvæmustu fjármuna-
brotamál sem koma upp á hverjum
tíma. Við höfum einnig leitað til list-
fræðinga og innlendra og erlendra
sérfræðinga í pappírs- og efnarann-
sóknum, vegna rannsóknar á lista-
verkamálinu, sem við erum loks að
sjá fyrir endann á. Það tiltekna mál
er ákaflega þýðingarmikið fyrir lista-
verkamarkaðinn og betra að rann-
saka það ofan í kjölinn en að kasta
til höndunum. Nákvæmar rannsókn-
ir taka sinn tíma, en nú erum við að
ná landi og niðurstaða embættisins
ætti að vera ljós fyrir áramót.“
– Býr embætti ríkislögreglu-
stjóra yfir öflugri tæknideild til
rannsóknar sakamála?
„Ríkislögreglustjóri sinnir saman-
burðarrannsóknum og þáttum sem
lúta að framþróun tæknirannsókna
og leiðbeiningum til lögreglu. Tækni-
deild lögreglunnar í Reykjavík sér
um stóran hluta tæknirannsókna hér
á landi. Nú erum við að velta fyrir
okkur hvernig tæknirannsóknum
verður best háttað í framtíðinni, en
við höfum ekki lagt mikla áherslu á
að byggja upp tæknirannsóknaþátt
ríkislögreglustjóraembættisins, þar
sem lögreglustjórinn í Reykjavík
hefur sinnt þessu jafn vel og raun
ber vitni. Þetta er frekar spurning
um hvernig sé hægt að styrkja þá
deild og tæknirannsóknir almennt á
landinu öllu með miðlægum tækni-
búnaði.“
– Er ekki hægt að sækja tækni-
kunnáttu til nágrannalanda að ein-
hverju marki?
„Við höfum nýtt okkur norrænt
samstarf á þessu sviði og erum með
ágæta samstarfssamninga við hin
Norðurlöndin. Við búum hins vegar
einnig yfir mikilli reynslu sérfræð-
inga. Sem dæmi get ég nefnt ID-
nefnd embættisins, svokallaða
kennslanefnd. Þar sitja sérfræðing-
ar á heimsvísu, sem hafa m.a. starf-
að að rannsóknum á fjöldagröfum í
Kosovo.“
Engin lognmolla
Haraldur Johannessen segir að
fyrstu fimm ár ríkislögreglustjóra-
embættisins hafi verið mjög spenn-
andi og skemmtileg. „Embættið
hefur verið í mótun, sem og allt
skipulag lögreglunnar í landinu.
Lögreglan þarf í sífellu að aðlaga
sig breyttum tíma og kröfum og
embættið heldur því áreiðanlega
áfram að taka breytingum. Starf-
semi þess er mjög sveigjanleg og
þar eiga starfsmenn embættisins
mestan þátt. Án þeirra væri auðvit-
að ekkert embætti til. Undanfarin
ár hefur mætt nokkuð á starfsfólk-
inu, en viðfangsefnin hafa alltaf
verið ögrandi og gaman að mæta til
vinnu. Hér ríkir engin lognmolla,
það gustar á stundum, en allt er
það innan hóflegra marka.“
hefur verið rígur á milli og sam-
bandsleysi. Slíkt dregur frekar úr
löggæslu en hitt og ég tel hyggi-
legra að huga að þróuninni á Norð-
urlöndunum.“
Uppbygging en ekki útþensla
– Síðsumars kom fram gagnrýni
á kostnað við rekstur embættis rík-
islögreglustjóra.
„Sú gagnrýni er á misskilningi
byggð. Þegar til embættisins var
stofnað stóð aldrei til að það yrði
fámenn og máttlaus ríkisstofnun
sem héldi utan um skrifstofuhald
lögreglunnar í landinu. Lögreglu-
lagabreytingin gerði ráð fyrir að
embættið yrði leiðandi afl fyrir lög-
regluna og færi með málefni hennar
í umboði dómsmálaráðherra. Til
þess að geta sinnt þeim verkefnum
sem embættinu eru ætluð lögum
samkvæmt og til þess að geta
byggt upp verkefni frá grunni hefur
embættið fengið mikinn stuðning
ríkisstjórnarinnar og skilning. Hins
vegar vilja ýmsir rugla saman upp-
byggingarverkefnum sem ríkislög-
reglustjóraembættið hefur tekið að
sér og nýtast allri löggæslunni í
landinu, og eiginlegum rekstri emb-
ættisins sjálfs. Við höfum lagt
grunninn að fjarskiptakerfi, svo-
kölluðu Tetra-kerfi, sem vonandi
mun ná til allra lögregluliða lands-
ins. Sett var á laggirnar sérstök
fjarskiptamiðstöð lögreglunnar,
sem nú í upphafi þjónar lögreglulið-
um á suðvesturhorni landsins. Þetta
var gert til að auka samstarf lið-
anna, bæta þjónustu við almenning
og efla öryggi hans. Þetta hefur
tekist. Til að ná þessum árangri
þurfti að leggja verulega fjármuni í
verkið og starfsmenn fjarskiptamið-
stöðvarinnar teljast til starfsmanna
ríkislögreglustjóra. En þótt þessum
fjármunum sé veitt til embættis
ríkislögreglustjóra, þá er ekki mak-
legt að tala um útþenslu embættis-
ins í þessu sambandi. Þetta er ný
starfsemi, öllum til hagsbóta.
Annað dæmi um slíkt uppbygg-
ingarstarf er endurnýjun bifreiða
og búnaðar lögreglunnar í landinu.
Ríkisstjórnin veitti embættinu
verulegar fjárhæðir til að endur-
nýja bifreiðaflotann, sem var úr sér
genginn fyrir nokkrum árum. Á
skömmum tíma hefur þetta tekist.
Þessi tvö verkefni hafa auðvitað
kostað sitt, nokkur hundruð millj-
ónir króna. Embætti ríkislögreglu-
stjóra hefur verið trúað fyrir þess-
um verkefnum og ég held að
langflestir sjái að hér er ekki um
útþenslu embættisins að ræða.
Fleiri slík verkefni hafa verið á
okkar höndum, til dæmis hefur al-
þjóðaskrifstofa embættisins tekið
að sér að halda utan um upplýs-
ingakerfi Schengen hér á landi, í
samræmi við skuldbindingar Ís-
lands á því sviði. Alþjóðaskrifstofan
sinnir nú þegar samstarfi við Int-
erpol og Europol og samstarf vegna
Schengen-samkomulagsins fellur
vel að starfsemi hennar. En auðvit-
að fylgir kostnaður þessari skuld-
bindingu. Svona mætti lengi telja.“
Enn eitt dæmi um aukin verkefni
ríkislögreglustjóra er flutningur Al-
mannavarna ríkisins undir hatt
embættisins, sem gerist um næstu
áramót. „Dómsmálaráðherra ákvað
að færa almannavarnir í landinu
undir embættið og hefur kynnt
lagafrumvarp þar að lútandi. Þeir
sem að því verki hafa komið telja að
starfsemi Almannavarna ríkisins
falli vel að rekstri ríkislögreglu-
stjóra. Embættið nær til allra lög-
reglustjóra á landinu og þessi
breyting verður vonandi til þess að
bæta enn frekar öryggi borgar-
anna. Ýmis önnur verkefni hafa
verið færð undir okkar umsjón, án
þess að starfsmannafjöldi hafi vaxið
að sama skapi, þótt stundum mætti
ætla það af opinberri umræðu.
Kannski finnst ýmsum sem emb-
ættið hafi vaxið of hratt, en þegar
ríkisstofnanir eða fyrirtæki vaxa
vera þörf á sérstöku eftirliti með
þeirri starfsemi lögreglunnar sem
lýtur að innra öryggi ríkisins. „Við
þurfum að skilgreina verkefni lög-
reglunnar á þessu sviði vel, eigi
slíkt eftirlit að hafa þýðingu.“
Lögregla þarf að setja
sér skýr markmið
– Víkjum að afbrotum. Árið 1998
sendir þú lögreglustjórum bréf, þar
sem þú mæltist til að þeir settu sér
það markmið að fækka innbrotum,
þjófnuðum, líkamsárásum, ránum
og eignaspjöllum um 20%. Hvernig
næst það markmið?
„Ég hef reynt að vekja athygli
lögreglustjóra á að þeir þurfi að
setja lögregluliði sínu ákveðin, skil-
greind markmið. Eitt þeirra finnst
mér vera að fækka afbrotum í land-
inu eins og framast er kostur. Ég
tel að þar sé hægt að ná verulegum
árangri, ef lögregluliðum er vel
stýrt og af áhuga og festu. Til þess
þarf markmiðssetning að vera skýr
og leiðir að þeim markmiðum.
Þarna hefur nokkur árangur náðst,
en ekki nægjanlegur. Við getum
gert mun betur.
Þegar við fjöllum um afbrotaþró-
un þurfum við að rýna vel í tölfræð-
ina. Einn þáttur í rekstri embættis
ríkislögreglustjóra er að halda utan
um afbrotaþróun og fjölda afbrota á
landinu öllu. Áður en embættið var
sett á laggirnar var ekki hægt að
kalla fram heildstæða mynd af
ástandinu, en við höfum reynt að
byggja hana upp hægt og rólega.
Ef lögreglustjórar eiga að geta
beitt sínu liði verða þeir að vita
hver þróunin er, hvar afbrot eru
framin, hverjir fremja þau, svo
hægt sé að skipuleggja starfsemina
í samræmi við það. Ég hef reynt að
benda lögreglustjórunum á að nota
þetta stjórntæki til að fækka brot-
um og þeir eru mjög meðvitaðir um
nauðsyn þessa. Lögreglan á ekki að
bíða eftir að brotin séu framin,
heldur reyna að koma í veg fyrir
þau.“
– Hefur afbrotum fækkað frá því
að þessi markmið voru sett?
„Ég setti þessa hugmynd fram
og vissi að hún var mjög metn-
aðarfull. Þróun afbrota á landinu
öllu hefur verið mjög misjöfn eftir
brotaflokkum, ákveðnum brotum
hefur fjölgað en öðrum fækkað.
Hins vegar má fullyrða að ástandið
hefur verið nánast stöðugt á síðustu
árum og við eigum ekki við stór-
kostlegan afbrotavanda að etja,
þótt brotin séu vissulega of mörg
og Íslendingar gætu dregið þar
verulega úr. Þar gæti komið til
skoðunar hvort breytingar á skipu-
lagi lögreglunnar auðvelduðu okkur
baráttuna.“
– Þær raddir heyrast stundum að
færa ætti lögregluna aftur undir
hatt sveitarfélaganna. Hver er þín
skoðun?
„Ég er ekki sannfærður um
ágæti þess. Þeir sem hafa reynslu
frá þeim tíma telja ekki líklegt að
slík breyting myndi stuðla að auk-
inni löggæslu. Reyndar er alls óvíst
að breytingar í þá átt féllu að þeim
lögum sem lögreglan vinnur eftir í
dag, sem ríkislögregla. Þar á ég
m.a. við lög um meðferð opinberra
mála og það heildarskipulag sem er
um dóms- og refsivörslukerfið. Ég
held að það myndi rugla myndina ef
lögreglan, eða hluti hennar, færðist
frá ríki til sveitarfélaga og jafnvel
gæti slíkt skapað ákveðna réttar-
óvissu og leitt til mismunandi af-
greiðslu mála í landinu og yrði
hvorki lögreglu né borgurunum til
framdráttar. Þetta þyrfti auðvitað
að skoða rækilega, en það er hætt
við að lögregluliðin yrðu misöflug,
ef rekstur þeirra væri á hendi mis-
öflugra sveitarfélaga. Í sumum
Evrópulöndum, eins og Belgíu, sem
og í Bandaríkjunum, hefur verið
fjöldi löggæslustofnana, ýmist á
vegum ríkisins, fylkja, sveitarfélaga
eða jafnvel einstakra hreppa og þar
í kjölinn og óvíst að þetta yrði ódýr-
ara fyrir ríkið, enda ekki endilega
heppilegt að fækka sýslumönnum
um leið og sérstökum embættum
lögreglustjóra yrði komið á lagg-
irnar. Við yrðum að kynna okkur
reynslu Norðmanna vel, áður en í
þetta yrði ráðist. Ég veit hins vegar
að í Noregi telja menn sig hafa náð
meiri hagræðingu í rekstri, betri
nýtingu mannafla og skilvirkari
stjórnun. Ef svo er, þá eflist lög-
gæslan. Hér á landi hefur verið
mikil umræða um að löggæslan
þurfi að vera öflugri og kannski er
þetta ein leið að því marki. Lög-
reglan er þegar mjög öflug og get-
ur tekist á við hvaða verkefni sem
er, þótt enn megi bæta starf henn-
ar. Hún hefur leyst mikil verkefni
af hendi og gert það vel. Þar nefni
ég til dæmis löggæslu vegna
Kristnihátíðarinnar á Þingvöllum
árið 2000 og á þessu ári fund utan-
ríkisráðherra Atlantshafsbanda-
lagsins og heimsókn Jiang Zemin
Kínaforseta. Lögreglan getur verið
stolt af því hvernig til tókst, und-
irbúningur og skipulag löggæslu
tókst mjög vel, það urðu engin slys
á fólki eða áföll sem hægt var að
rekja til ónógs undirbúnings lög-
reglu. Lögreglan hefur axlað mörg
þýðingarmikil verkefni og gert það
vel.“
– En lögreglan dróst inn í póli-
tíska umræðu, sérstaklega vegna
heimsóknar Kínaforseta.
„Það virðist vera sem sumir telji að
ríkislögreglustjóri sé pólitískt emb-
ætti. Það er ekki frekar pólitískt en
embætti dómara við Hæstarétt Ís-
lands eða ríkissaksóknaraembættið.
Hins vegar eru störf lögreglunnar
mun meira áberandi og í meiri ná-
lægð við það sem er að gerast í þjóð-
félaginu á hverjum tíma en ýmis önn-
ur starfsemi hins opinbera.
Lögreglan er dregin inn í pólitíska
umræðu hver svo sem ríkisstjórnin
er. Sum verkefni, sem lögreglan þarf
að takast á við eru á jaðri þess að
vera þáttur í stefnu hverrar ríkis-
stjórnar sem fer með völd í landinu.
Lögreglan verður að halda trúverð-
ugleika sínum og halda sig frá pólitík
hverju sinni. Hún hefur starfað með
öllum ríkisstjórnum sem hér hafa set-
ið og átt trúnað þeirra. Þess vegna er
stundum sérkennilegt að fylgjast með
því þegar sumir halda því fram að
æðstu embættismenn þjóðarinnar séu
einhvers konar angi af hinu pólitíska
valdi. Þessir sömu embættismenn
starfa með ríkisstjórnum, sem oftast
eru samsteypustjórnir tveggja eða
fleiri flokka og við búum ekki við það
fyrirkomuleg, eins og þekkist í
Bandaríkjunum til dæmis, að emb-
ættismönnum sé skipt út eftir því
hver tekur við völdum í Hvíta hús-
inu.“
– Dómsmálaráðherra hefur lýst
yfir að uppi séu áform um að efla
innra öryggi ríkisins. Hvernig er
embætti ríkislögreglustjóra í stakk
búið til að leysa það verkefni og tel-
ur þú æskilegt að komið verði á fót
sérstakri, eiðsvarinni þingnefnd,
sem fylgist með þeim störfum lög-
reglu?
„Ég er því sammála að efla þurfi
þann þátt í starfi lögreglunnar sem
lýtur að innra öryggi ríkisins og
borgaranna almennt. Heimsmyndin
hefur breyst á þann veg að við bú-
um í opnara samfélagi en áður, sem
auðveldar misindismönnum að
hreiðra um sig. Lögreglan þarf að
vera á varðbergi, eigi hún að geta
tryggt öryggi borgaranna, stofnana
samfélagsins og grundvallarstarf-
semi þess. Ég hef hins vegar aldrei
viljað nota orðið leyniþjónusta um
þessa starfsemi lögreglu, enda vek-
ur það hugrenningar um kalda
stríðið og starfsemi sem tengist
hernaðarstefnu ýmissa landa. Ís-
lendingar hafa ekkert með slík hug-
tök að gera, en eftir stendur að lög-
reglan og alþingi hafa skyldum að
gegna.“
Haraldur segir að vel kunni að
Morgunblaðið/RAX
rsv@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 11