Morgunblaðið - 17.11.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 17.11.2002, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ www.forval.is Rómantískur ilmur I. Kristján Þórhallsson frá Vogum í Mývatnssveit andaðist hinn 13. mars 2002. Hinn 10. mars áttum við langt símtal, þar sem hann virtist tiltölu- lega hress, þrátt fyrir langa sjúk- dómslegu. Síðustu árin höfðum við unnið saman að því verkefni að safna saman gömlum fróðleik úr Mývatns- sveit, sem ella hefði glatast. Tvö verkefni voru aðeins eftir. A) Smiðir sóttir í Rauðaborgarkofa 1938. B) Heyjað á Laufrönd (Flataskóg- arrönd) 1936 og síðar. II. Það mun hafa verið sumarið 1938, að Kristján var beðinn að sækja hóp manna, sem unnu við að reisa nýjan leitarmannakofa, þar sem heitir að Rauðuborgum. Kristján átti þá bif- reiðina Þ-23, sem var af Ford-gerð, árgerð 1929, vörubifreið með ein- földu húsi frá Ford-verksmiðjunum. Bíll þessi hét upphaflega H-10 og var keyptur nýr af Illuga Jónssyni frá Reykjahlíð (1909–1989), kallaður Skjóna. Skjóna hafði fallið niður um ís skammt frá Syðri-Höfða í landi Reykjahlíðar, en var bjargað úr vök- inni og var aldrei hressari en eftir hið ískalda bað. Enginn samfelldur veg- ur var þá kominn milli Námaskarðs og Jökulsár, enda hún óbrúuð (vígð 1948) og enn þá síður vegur af hinni gömlu þjóðleið að Rauðaborgarkofa hinum gamla, sem nú var verið að endurbyggja. Varð því að aka beint af augum, reyna að komast hjá verstu torfærunum, en allt í einu stóð Skjóna gamla rígföst, hafði skorðast milli þúfna. Nú voru góð ráð dýr. Engin skófla með í för, svo við grip- um vasahnífa okkar og skárum verstu þúfnakollana af þeim þúfum, sem hindruðu för. Ég hafði keypt minn vasahníf hjá O. Ellingsen um vorið, þetta var Fiskehnífur, einblöð- ungur og kostaði 50 aura. Svo fór þó, að algert torleiði var framundan, en langt í Rauðuborgarkofa, þangað sem förinni var heitið. Gengum við því í átt til kofans, ef vera mætti, að við gætum létt byrðar byggingar- manna, sem eðlilega höfðu með sér margvísleg tól og þung. Eftir hálf- tíma gang mættum við hópnum og var þar í forystu Jón Sigtryggsson (1903–1987) bóndi í Syðri-Neslönd- um, sem ég hefi áður gert skil í Rabbi Lesbókar Morgunblaðsins hinn 19. janúar 1985. Buðumst við Kristján til þess að létta undir með þeim og fékk Jón mér járnkarl einn langan og þungan til burðar og var síðan lagt af stað í átt að Skjónu gömlu. Tókst mér sæmilega burðurinn, en er að bílnum var komið þá fékk ég Jóni járnkarl- inn, en Jón þakkaði mér sérstaklega fyrir hjálpina svo hlýjum orðum, að þeim hefi ég aldrei gleymt. Þannig á að umgangast unglinga, en það er því miður alltof fáum gefið. Sonur Krist- jáns, Hermann (f. 1952) tók fyrir mig myndir af kofunum við Rauðuborgir, sjá einnig kort. III. Heyjað á Laufrönd (Flataskógarrönd) B) Túnin í Vogum voru ekki víð- áttumikil, þrjú eldgos höfðu þar gert mestan usla: 1) Eldgos í Lúdentsborgum fyrir 6.000 árum. 2) Eldgos úr Hverfjalli fyrir 2.000– 1.500 árum. 3) Eldgos úr Víti árið 1724, Mý- vatnseldar. Hraun hafði runnið allt fram á vatnsbakka, svo harðsótt var að afla heyja handa bústofninum, en þríbýli var í Vogum og bjuggu þar þrír bræður, þeir Jónas Hallgrímsson (1877–1945), Þórhallur Hallgrímsson (1879–1941) og Sigfús Hallgrímsson (1883–1966). Heimilin voru barn- mörg, þannig að með okkur sumar- dvalarbörnum voru 35 manns í Vog- um á sumrin, árið 1936–1941. Því Í minningu látins vinar frá Vogum í Mývatnssveit Flataskógarrönd, sér í horn Bláfjalls. eftir Leif Sveinsson                                                          ! " #       !              "#       $ %     !   "  $        %  '  ( &%%)  %%  Ljósmynd/Hermann Kristjánsson Ford-vörubíll árgerð 1929 með heimasmíðuðu tréhúsi ásamt boddýi. Engin mynd er til af Þ–23, „Skjónu“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.