Morgunblaðið - 17.11.2002, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 31
BJÖRN Thoroddsen hefur verið
einn okkar mikilvirkustu og bestu
djassgítarleikara. Ferill hans spann-
ar yfir tuttugu fimm ára sögu á mikl-
um uppgangstímum í djasssögu Ís-
lands. Á þeim tíma varð bæði mikil
almenn áhugavakning fyrir djassi
samfara auknu framboði djasstón-
leika og einnig hóf Tónlistarskóli
FÍH sína árangursríku djass-
kennslu. Í þessu öllu tók Björn Thor-
oddsen þátt, bæði sem nemandi, síð-
ar kennari og sem atkvæðamikill
djassleikari í opinberu tónleikahaldi.
Eldskírn sína hlaut hann m.a. á tón-
leikapalli með Guðmundi Ingólfssyni
píanóleikara og skipaði hljómsveit
hans sem ungi fullhuginn. Hann hef-
ur leikið inn á níu hljómplötur og þó
hefur mestum krafti hans verið varið
í að gleðja áheyrendur milliliðalaust
og ekki síst hin síðari ár í Islancio-
tríóinu. Þessi nýja hljómplata sýnir
þó aðeins eina hlið af mörgum, sem
Björn hefur sýnt með leik sínum í
gegnum árin, enda komið óhemju
víða við og sýnt að hann er jafnhent-
ur í spilamennskunni í mörgum
„ismum“ og „stefnum“.
Hljómplatan er mjög mótuð af
nærveru þeirra gömlu undrunarefna
og mörgum eftirbreytniverðu mönn-
um, þeim Django Reinhardt og
Stephane Grappelli. Sú nánd er aug-
ljós bæði hvað varðar val þriggja
laga á plötunni eftir Django og einn-
ig hljóðfæraskipunina: sólógítar,
fiðla og kontrabassi
Björn hefur samið níu lög á disk-
inum. Heiti laganna tengjast mörg
fjölda tónleikaferða Björns um heim-
inn, t.d. Americana, Santiago og
Saskatchewan. Lög Björns eru yf-
irleitt snotur og ljúf, og hann er
greinilega ekkert fyrir það að koma
manni á óvart með þeim og er jafnvel
að beina manni ákveðið á lagamiðin
sem hann reri á, sbr. fyrsta lagið
Americano, þar sem I Got Rhythm
er nærtækt. Ró-
legu ballöðurnar
hrifu mig mest og
þar er nr. 10, San-
tiago, í sérflokki.
En það aðalsmerki
verður ekki af
Dönum skafið að
miðla heiminum
frábærum djass-
leikurum. Einn
danskur gagnrýn-
andi sagði um
fiðluleikarann
Kristian Jørgen-
sen að hann væri
kominn í röð
þeirra bestu í
heiminum, enda
þótt honum þætti
aldur hans, þrjá-
tíu ár, fulllágur til
að skipa það sæti
með tilliti til Svends Åsmundsen.
En leikur Kristians á þessari plötu
er mjög góður og styrkur hans felst
bæði í frábærum einleik, en ekki síst
í þéttum og oft frumlegum stuðningi
bakraddar. Ég hefði kosið að heyra
Kristian einleika oftar á plötunni.
Jón Rafnsson er mjög öruggur og
smekkvís bassaleikari, og mætti
gjarnan koma í einleiksljósið oftar!
Nafnið á plötunni, Jazz í Reykja-
vík, sem er hið sama og á einu laga
Björns, finnst mér misvísandi, líkara
því að vera nafn á safnplötu sem væri
heimild um djass í Reykjavík eða ein
plata úr plöturöð sem sýndi það sem
væri að gerast í djassi í Reykjavík á
vissum tíma eða skeiði. Björn leikur
oft yndislega og lögin syngja í næmri
túlkun hans. Þetta einstaka næmi
fyrir lögmálum söngsins kemur fram
í því hnattsungna lagi Nuages eftir
Django, en þar lætur Björn sama
slagið tengja saman oft marga tóna
til að binda vel línuna. Reyndar
fannst mér Nuages, „skýin“, of björt
og lagið leikið heldur hægt. En þessa
birtu hafði Björn þó undirbúið með
innleikslagi, impromptu, þar sem
hann af ótrúlegri leikni málaði á
hljóðhimininn, fyrst leikandi létt
skýjaslæður síðar mikið skýjaþykkni
og óveðursblikur, sem sveipuðust
burt í hendingskasti, þegar Nuages-
tónarnir hljómuðu.
Þessi hljómdiskur er tilvalinn fyr-
ir þá sem vilja upplifa ljúfa tónlist
flutta á framúrskarandi hátt.
Málað á hljóðhimininn
TÓNLIST
Geislaplötur
Björn Thoroddsen gítarleikari, ásamt hin-
um danska fiðluleikara Kristian Jørgen-
sen og Jóni Rafnssyni á kontrabassa,
flytur lög eftir Björn Thoroddsen, Django
Reinhardt og brasilíska tónskáldið Zeq-
uinha de Abreu, lagið Tico Tico. Á disk-
inum eru alls þrettán lög. Diskurinn er
hljóðritaður í BT studio í maí 2002 undir
stjórn Björns. Gunnar Smári Helgason sá
um hljóðblöndun, Elín Soffía Pilkington
um hönnun plötukassa og Ólafur Þórð-
arson tók ljósmyndir. Vernharður Linnet
samdi kynningartexta. Diskurinn er af-
rakstur af tónleikum þeirra félaga sem
þeir héldu á Listahátíð Reykjavíkur vorið
2002.
Útgefandi Edda – miðlun & útgáfa.
JAZZ Í REYKJAVÍK
Björn Thoroddsen
Jón Hlöðver Áskelsson
Morgunblaðið/Kristinn
alltaf á föstudögum
PLUS
PLUS
ww
w.
for
va
l.is