Morgunblaðið - 17.11.2002, Blaðsíða 34
SKOÐUN
34 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LISTSÖGUFRÆÐINGURINN
Halldór Björn Runólfsson sendir mér
undarlegar kveðjur hér í blaðinu sl.
laugardag. Las þær nýkominn til
landsins frá Lissabon og Kaup-
mannahöfn síðdegis á sunnudag.
Þótti býsn og furða og mjög í skjön
við heiðbjört og undursamleg sköp
landsins daginn þann, sem þéttings-
fast tóku í hönd ferðalangsins.
Fyrir hið fyrsta kemur mér harla
spánskt fyrir sjónir, að hinn lærði
sagnfræðingur á myndlistir skuli
nefna mig; eitt margreyndasta bendi-
prik þjóðarinnar í myndlist. Segir
mig jafnframt hafa farið heilan hring í
kringum Carnegie-sýninguna í um-
fjöllun minni, sem hann nefnir; Gagn-
rýni án umfjöllunar! Einhver blakkur
púki virðist hafa hlaupið í sagnfræð-
inginn, því hugtakið bendiprik vísar
helst til grófrar miðstýringar- og for-
ræðisáráttu, sem ég hef alla tíð forð-
ast sem heitan eld jafnt í kennslu sem
rýnisskrifum. Hlutlæg miðlun þekk-
ingar og yfirsýn hér vonandi sann-
verðugari skilgreining, þó á stundum
sé að sjálfsögðu vísað til þess sem bet-
ur má fara um verk fólks á mótunar-
skeiði. Þá taldi ég framkvæmdina
sjálfa í heild sinni veigamesta atriðið
og ósanngjarnt að fjalla um listaverk-
in á sama grunni og um væri að ræða
almenna sýningu og/eða norræna
uppstokkun. Einkum fyrir mismörg
verk þátttakenda, þekking mín á ferli
þeirra að auk mismikil, harla lítil í
sumum tilvikum, hendur mínar þann-
ig bundnar. Þannig sá ég fleiri hliðar
á verðlaunahafanum Troels Wörsel á
sýningu í listhúsi Susanne Ottesen á
Gothersgade í Kaupmannahöfn á
föstudag (8. nóv.) og þakkaði skap-
aranum fyrir að hafa ekki dregið fljót-
færnislegar ályktanir af framlagi
hans. Þótti sá gjörningur að mála á
bakhlið striga festan á blindramma
og gera að aðalatriði í sjálfu sér ekki
ýkja frumlegur eða ögrandi, enda ófá-
ir gert það í áranna rás. Einn hinn
fyrsti var sautjándu aldar málarinn
Cornelis Norbertus Gysbrechts og
leikurinn ekki óalgengur á síðustu öld
sbr. ameríska málarann Jasper Johns
og marga fleiri. Þá þekkti ég stórum
betur til listar einstakra en annarra,
hafði til að mynda fjallað um heila
sýningu Lenu Cronqist í kjallarasöl-
um Norræna hússins, og aðskiljan-
legar hvað snerti Georg Guðna og
Kristínu Gunnlaugsdóttur, hins vegar
ekki Kristínar Sigurðardóttur en
framlag hennar taldi ég naumast
skara málverkið sem er í sjálfu sér
enginn áfellisdómur, hvað þá níð!
Kannski táknrænt að Lars Nittve
staðnæmdist sýnu lengst við innsetn-
ingu hennar hvað framlag Íslend-
ingana snerti.
Mér þótti eðlilegast að kryfja fram-
kvæmdina í heild sinni fyrir þá sök að
satt að segja hefur hún sætt gagnrýni
sem hefur orðið háværari hin síðari
ár. Þetta eru verðlaun kennd við mál-
verk og án efa eyrnamerkt þeim
stefnumörkum að auka veg þess og
ris, en mörgum hefur fundist sum
verðalaunaverk hér áður eiga lítið
skylt við hugtakið. Út úr þessu hefur
Lars Nittve, frá upphafi formaður
dómnefndar, snúið sig giska fimlega
opinberlega, með því að segja nefnd-
ina leggja það í hendur listamanna
sjálfra að skilgreina verk sín! Telst þó
að sjálfsögðu einfaldlega afsal
ábyrgðar. Margur hefur tekið hann á
orðinu og skyndilega reyndust verk
sem áður voru skilgreind hreint hug-
myndafræðilegs eðlis, orðin að mál-
verki og þeim lyft á stall sem slíkum,
jafnvel verðlaunuð. Höfundarnir þó
fyrrum svarnir andstæðingar og í
framvarðsveit niðurrifsmanna mál-
verksins, jafnframt því að sumir sem
beðnir voru að tilnefna listamenn, í
ljósi meintrar þekkingar og yfirsýn-
ar, höfðu áður margsinnis lýst því yfir
að dagar málverksins væru taldir sem
númiðils, það fullkomlega út úr
myndinni! Sýnu alvarlegra að einmitt
var tekið mark á ábendingum þeirra
um leið og litið var fram hjá tilnefn-
ingum hinna sem allt sitt líf höfðu ver-
ið tengdir og vígðir málverkinu, mat
viðkomandi ómerkt og lítilsvirt. Má
vera skiljanlegt að nokkrir þeir síð-
astnefndu hafa frábeðið sér öll af-
skipti af framkvæmdinni í núverandi
formi, vilja hana gagnsærri, þar á
meðal skrifari sem seint um síðir var
kallaður til leiks, þ.e. 2001, en litið
framhjá öllum hans tilnefningum. Þá
hefur það þótt orka tvímælis að meðal
þjóða sem eiga marga frambærilega
málara skuli nokkrum einstökum
haldið endurtekið fram, einkum þeim
sem hafa áhrifamikil listhús eða fræð-
inga að bakhjarli, en gengið fram hjá
fjölda annarra. Spurn er þá hvað ver-
ið sé að mæra og verðlauna; málverk-
ið, málarana, listhúsin, fræðingana,
eða skoðanir nefndarmanna.
Einn af fyrrum yfirlýstum and-
stæðingum málverksins sem númiðils
og ratað hefur alla leið í dómnefnd, er
einmitt nefndur Halldór Björn Run-
ólfsson listsögufræðingur. Nemendur
mínir í málunardeild MHÍ hermdu
mér í óspurðum fréttum af óviður-
kvæmilegum áróðri hans gegn mál-
verkinu og málaradeild skólans í lista-
sögutímum sínum á miðjum síðasta
áratug, sem var grafarlvarlegt mál.
Þá má vísa til rýni hans á einstaka
sýningar, þar sem fræðingurinn sást
ekki fyrir í ákafa sínum að valta yfir
málverkið og einskis sveifst. Jafnvel
þótt þær væru settar upp í tilefni mik-
illa tímamóta í lífi gróinna listamanna
líkt og gerðist um gjörning Benedikts
Gunnarssonar í Gerðarsafni nokkrum
árum seinna, og verður að telja lág-
kúrulegt athæfi. Ekki orð um feril
listamannsins eða störf hans sem
kennara við MHÍ, Kennaraháskólann
og í félagsmálum myndlistarmanna,
honum einfaldlega gefin ráð (bent á)
hvernig hann gæti málað betur!
Auðvitað eru það sjálfsögð mann-
réttindi að mega skipta um skoðun,
en í þessu tilfelli er spurn hvaða for-
sendur liggja að baki sinnaskiptun-
um, og maður sem víkur að skot-
grafahernaði í grein hér í listakálfi
blaðsins laugardaginn 20. október,
ætti fyrir ofanskráð helst að líta í eig-
in barm. Í öllu falli ber allt keim af því
að forsendur skoðanaskiptanna séu
síður HBR sjálfs, mun frekar fyrr-
nefnd yfirlýsing og dagsskipan Lars
Nittves.
– Gefum okkur að söngvari nokkur
troði upp í tónlistarhúsi, en í stað þess
að hefja upp raust sína stilli hann upp
málverkum víðsvegar um sviðið.
Spyrji svo viðstaddir furðu lostnir
hvað hann meini með þessu og hver
sé tilgangurinn, lítur hann með mikilli
vandlætingu og yfirlæti niður til
þeirra og segir: Greinið þið ekki gott
fólk, að hér syngja litir og hafa sitt
glissando og furioso, línur og form
tónast í góðu samræmi um allan
myndflötinn í hverju einstaka verki.
Vitaskuld væri ekki með öllu mögu-
legt að rengja söngvarann og sama
má segja um verk hugmyndafræði-
legs eðlis sem fyrir hentisemi breytist
í málverk vegna þess að einn eða fleiri
litir eru í því. Hræddur er ég þó um að
einhverjir myndu hætta að láta sjá sig
í tónleikahöllum er hefðu slíkar, söng-
skemmtanir og aðra framnínga, helst
á dagskrá. Þetta hefur nú einmitt
gerst um listhús sem upprunalega
voru byggð yfir myndlist, einkum
málverk, sem hafa mikið til úthýst
þeim miðli en bjóða upp á myndbönd,
innsetningar, hljóðverk, hönnun,
smíðisverk, upplestur, uppákomur,
leikræn atriði, sjálfsfróanir o.fl. Þetta
er kjarni málsins og ég hafna algjör-
lega að hafa í listrýni minni verið að
níða Carnegie-verðlaunin né nokkurn
mann, einungis segja álit mitt á hlut-
unum; hreint beint og undanbragða-
laust eins og þeir komu og koma mér
fyrir sjónir …
Eftir Braga
Ásgeirsson
„Ég hafna
algjörlega
að hafa í list-
rýni minni
verið að níða
Carnegie-verðlaunin
eða nokkurn mann.“
Höfundur er listmálari og
gagnrýnandi.
VEGNA LISTSÖGU-
FRÆÐINGS
Vönduð ryðfrí húsaskilti
Fjölbreytt myndaval
HÚSASKILTI
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
18. nóvember er
síðasti pöntunar-
dagur fyrir jól
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn
GÓÐ FJÁRFESTING
VERKTAKAR - BYGGINGAMEISTARAR
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík.
Sími 568 2444, fax 568 2446.
Til sölu í smíðum 800 fm uppsteypt iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði á efri
hæð í vesturbænum í Reykjavík. Hæðin skiptist í þrjá sjálfstæða eignar-
hluta, tveir 300 fm og einn 200 fm. Áhv. 18,5 millj. á 7,75% vöxtum. Með í
kaupunum fylgir 11,0 milljóna kr. framkvæmdafé. Allar nánari upplýsingar
eingöngu á skrifstofu Ásbyrgis fasteignasölu.
Ingileifur Einarsson löggiltur fasteignasali
EINBÝLI
Stór eign í algjörum sér-
flokki á frábærum stað
Virðulegt hús, samtals um 370 fm, á
tveimur hæðum ásamt tvöföldum bílskúr
og stóru upphituðu gróðurhúsi til sölu.
Eignin stendur á opnu svæði umlukin
grónum garði með háum grenitrjám á
einum besta stað í Hafnarfirði. Glæsileg-
ar stofur, 6 svefnherb., 3 snyrtiherb. og
góðar innr. Í kjallara er góð köld
geymsla. Þetta er eign með sterkan
karakter. Staðurinn er sérstæður, skjól-
sæll með opin framtíðarsvæði á þrjá
vegu og fallegt útsýni. V. 32,4 m. 2784
4RA-6 HERB.
Hverfisgata - laus strax
4ra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli við
Hverfisgötu. Íbúðin skiptist í stofu, þrjú
svefnherbergi, eldhús og baðherbergi.
Dúkur á gólfum, eldri innr. og suðursv.
V. 8,9 m. 2845
3JA HERB.
Engihlíð - 3ja herb.
Skemmtileg 3ja herb. samþykkt risíbúð
sem skiptist í tvær saml. skiptanlegar
stofur, eitt herb., eldhús og bað. Húsið
er nýsteinað og í góðu ástandi. Hag-
stætt verð. V. 7,8 m. 2826
2JA HERB.
Trönuhjalli - útsýni
Mjög glæsileg 67 fm 2ja herbergja íbúð í
blokk með fallegu útsýni sem nýbúið er
að gera við að utan. Eignin skiptist m.a. í
hol, baðherbergi, eldhús, stofu og her-
bergi. Vandaðar innréttingar og gólfefni.
V. 9,8 m. 2828
Kötlufell - laus
Erum með í einkasölu snyrtilega og
bjarta u.þ.b. 68,7 fm íbúð á 3. hæð í
góðu fjölbýli. Húsið er klætt að utan og
getur íbúðin losnað fljótlega. V. 7,9 m.
2856
Sérlega glæsilegt 168 fm endarað-
hús með innbyggðum bílskúr á fal-
legum útsýnisstað ofarlega í
Smáranum. Eignin skiptist í for-
stofu, þrjú herbergi, sjónvarps-
stofu, eldhús, baðherbergi,
þvottahús og stofu. Garðurinn er
gróinn og fallegur með stórri
timburverönd. Parket og flísar á
gólfum og vandaðar innréttingar.
Hiti er í plani og svalargólfi. V. 22,9
m. 2857
Ekrusmári
Skólabraut - Seltjarnarnes
Rúmgott og vel skipulagt um 160 fm mikið endurnýjað parhús á 2 hæðum á
góðum stað á Nesinu. Húsið skiptist m.a. í 5 herbergi, stofu, borðstofu, 2
baðherbergi, eldhús o.fl. Fallegur og vel hirtur garður er fyrir framan húsið og
timburverönd við inng. Parket á gólfum. V. 19,9 m. 2820
Í dag verður til sýnis gullfalleg neðri
sérhæð í tvíbýli í þessu rótgróna og
vinsæla hverfi. Íbúðin er vel skipulögð,
124 fm á einni hæð ásamt 32 fm
bílskúr, sem í dag er innréttaður sem
einstaklingsíbúð. Einstaklega þægileg
íbúð með allt sér. Sérlega fallegur og
sólríkur garður í fullri rækt. Áhvílandi
húsbréf 6 millj. Verð 16,9 millj.
Ágústa tekur á móti þér og þínum í dag á milli kl. 14:00 og 17:00.
- Neðri sérhæð með aukaíbúð
Opið hús - Kambsvegur 30
Opið á skrifstofu okkar á Suðurlandsbraut 20
í dag milli kl. 14 á 16. Sími 533 6050.
www.hofdi.is
,
Ásmundur Skeggjason lögg. fasteignasali
Runólfur Gunnlaugsson viðsk. og lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS
LAUGAVEGUR 27- MIÐBÆR
Glæsilegt lítið einbýlishús sem er í dag
nýtt undir gallerý og vinnustofu. Húsið
býður upp á að hafa verslun, vinnustofu
eða heimili. Húsið er staðsett við miðjan
Laugaveg á góðum stað. Húsið er
skráð sem íbúðarhúsnæði, en í því hef-
ur ýmist verið íbúð eða þjónusta gegn-
um árin. Húsinu var töluvert breytt 1999
og er í góðu ástandi. Möguleiki að setja
húsbréf á eignina.
Verð 9,9 millj. Áhv. ca 3,8 m.
Guðbjörg tekur á móti þér og þínum í dag milli kl. 16 og 18.