Morgunblaðið - 17.11.2002, Side 37

Morgunblaðið - 17.11.2002, Side 37
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 37 Opið hús í dag frá kl. 14.00 til 17.00 BYGGÐARENDI 21 Suðurlandsbraut 54, við Faxafen, 108 Reykjavík. Sími 568 2444, fax 568 2446. Einstaklega vel hannað ca 260 fm einbýlishús á tveimur hæðum á frá- bærum útsýnisstað. Gott eldhús, stór stofa og 5 herbergi. Arinn, gufubað og glæsilegur 900 fm garður. Húsið er í lokuðum botnlanga. Vandað og vel viðhaldið. Ingileifur Einarsson löggiltur fasteignasali Vorum að fá á sölu þetta reisulega hús á besta stað við Flókagötuna, gegnt Kjarvalsstöðum. Um er að ræða ca 533 fm alls sem skiptast annars vegar í efri hæð ásamt risi, alls 173 fm, ásamt 36 fm bílskúr, og hins vegar neðri sérhæð, 157 fm, ásamt 95 fm samþykktri íbúð í kjallara og mjög góðum 50 fm bílskúr með stóru upphituðu bílaplani fyrir framan. Efri hæðin skiptist þannig: Sér- inngangur, hol, þrjár stórar stofur, tvö herbergi, eldhús og bað. Risið fylgir með og býður upp á mjög skemmtilega nýtingarmöguleika. Neðri hæðin er mjög glæsi- leg, mikið endurnýjuð íbúð sem skiptist þannig: Sérinngangur, forstofa, stórt hol, tvær góðar stofur og bókastofa. Glæsilegt eldhús með sólskála og glæsilegri úti- aðstöðu á stórum svölum með m.a. heitum potti, útisturtu o.fl. Vandað bað- herbergi og tvö herbergi. Innangengt er í kjallarann sem er falleg 95 fm samþykkt íbúð sem í dag er nýtt sem viðbót við neðri hæðina. HÚSIÐ ER TIL SÖLU ANNAÐ HVORT Í EINU LAGI EÐA SEM TVÆR ÍBÚÐIR. Upplýsingar veita Ólafur Blöndal s. 893 9291 eða Jason Guðmundsson hjá fasteign.is s. 899 3700. FLÓKAGATA HEIL HÚSEIGN 2-3 ÍBÚÐIR Borgartúni 22, 105 Reykjavík, sími 5-900-800. Einelti í íþrótta-og tómstunda- starfi Íþróttabandalag Hafn- arfjarðar og forvarnanefnd standa fyrir fræðslukvöldi um forvarnir gegn einelti fyrir þjálfara og leið- beinendur í íþrótta- og æskulýðs- starfi. Fræðslukvöldið fer fram í Álfafelli, íþróttahúsinu við Strand- götu, þriðjudaginn 19. nóvember og hefst kl. 18. Í samkomulagi um niðurgreiðslur á þátttökugjaldi barna 10 ára og yngri og um eflingu íþrótta-, æskulýðs- og annars forvarnastarfs í Hafnarfirði er ákvæði um að samstarfsaðilar standi saman að forvarnastarfi. Stutt erindi um leiðir til að vinna gegn einelti flytja: Guðjón Ólafsson, Sæmundur Hafsteinsson, Vanda Sigurgeirsdóttir og Stefán Karl Stefánsson. Til að vinna enn betur með efnið munu þátttakendur starfa saman í hópum og rökræða um hvað þjálfarar og leiðbeinendur geti gert í starfi sínu til að sporna við einelti. Markmiðið er síðan að nota þær hugmyndir sem fram koma í lítinn leiðbeiningarbækling. Rósa Guð- bjartsdóttir er kynnir. Afmælisfundur Beinverndar á Suðurlandi Beinvernd á Suðurlandi verður fimm ára í nóvember 2002. Af því tilefni verður haldinn fræðslu- og skemmtifundur á Hótel Selfossi þriðjudaginn 19. nóvember kl. 20. Þar flytur Ingibjörg Pálmadóttir, verndari félagsins, ávarp. Allir eru velkomnir á fundinn. Trausti Valdimarsson, sérfræðingur í lyflækningum og melting- arsjúkdómum, flytur erindið: Hvers vegna brotna beinin? Ásgerður Eir, trúbador, flytur eigið efni og ann- arra. Félagið Beinvernd á Suður- landi var stofnað í Heilsustofnun NLFÍ 20. nóvember 1997 að frum- kvæði Ólafi Ólafssonar, fyrrv. land- læknis og fyrsta formanns Bein- verndar á Íslandi. Fundur um ófrjósemi Fyrsti fræðslufundur vetrarins á vegum Tilveru verður haldinn þriðjudaginn 19. nóvember 2002. Fundarstaður er Bíósalur Hótels Loftleiða og hefst fundurinn kl. 20.00. Aðalgestur fundarins er Þórður Óskarsson, yfirlæknir tæknifrjóvg- unardeildar Landspítalans. Hann ætlar að ræða um þróun í meðferð við ófrjósemi, framtíðarhorfur tæknifrjóvgunardeildarinnar og fjallar almennt um ófrjósemi, tíðni, meðferðarmöguleika og fleira. Þá heldur María Jóhannsdóttir, lyfjafræðingur, sem starfar hjá PharmaNor, stutt erindi, þar sem hún fjallar um nýja Puregon penn- ann sem er nýbyrjað að nota í með- ferð á tæknifrjóvgunardeildinni. Að loknum erindum þeirra verður hægt að beina spurningum til Þórð- ar og Maríu. Kaffiveitingar verða og er aðgangur ókeypis. Á NÆSTUNNI BÓNUS hefur fært sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 500 þúsund króna pen- ingagjöf í tilefni af opnun verslunar Bónuss á Egilsstöðum. Jóhannes Jónsson hjá Bónus af- henti Höllu Eiríksdóttur hjúkrunar- forstjóra gjöfina og eru peningarnir hugsaðir til að bæta aðbúnað aldr- aðra á sjúkrahúsinu. Verslunin á Eg- ilsstöðum er sú nítjánda sem er opn- uð undir merkjum Bónuss en fyrirtækið var stofnað árið 1989. Gaf sjúkra- húsinu hálfa milljón Bónusverslun opnuð á Egilsstöðum alltaf á þriðjudögumHEIMILI/FASTEIGNIR Að reykja ekki … Í frétt um að snuð minnki líkur á vöggudauða í blaðinu í gær varð slæm missögn varðandi reykingar. Átti að standa að það að reykja ekki sé eftir sem áður afdrifaríkasta leið- in til að fyrirbyggja vöggudauða. LEIÐRÉTT ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.