Morgunblaðið - 17.11.2002, Blaðsíða 38
MINNINGAR
38 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Laufey GuðrúnValdemarsdóttir
Snævarr fæddist á
Húsavík 31. október
1911. Hún lést á dval-
arheimilinu við Dal-
braut 9. nóvember
síðastliðinn. Hún var
dóttir hjónanna Stef-
aníu Erlendsdóttur
og Valdemars Snæv-
arrs, skólastjóra og
sálmaskálds.
Systkini Laufeyjar
eru: Árni, verkfræð-
ingur og ráðuneytis-
stjóri, f. 27.4. 1909, d.
15.8. 1979, Stefán prófastur, f.
22.3. 1914, d. 26.12. 1992, Ármann,
fyrrv. hæstaréttardómari og rekt-
or, f. 18.9. 1919, fóstursystir, Guð-
rún Guðmundsdóttir húsmóðir, f.
5.7. 1923, og tveir bræður, Gunn-
steinn og Gísli, dóu í æsku.
Hinn 6. nóvember 1933 giftist
Laufey Stefáni Péturssyni, Bót í
Hróarstungu. Hann var sonur Sig-
ríðar Eiríksdóttur og Péturs Stef-
ánssonar bónda í Bót. Börn Lauf-
arfræðingur, f. 28.9. 1950. Börn
þeirra: Snæbjörn háskólanemi, f.
25.9. 1980, Stefán Sturla háskóla-
nemi, f. 19.12. 1981, Árni Pétur
nemi, f. 26.7. 1984, og Gunnar
Helgi nemi. f. 7.7. 1987. 5) Sigríður
Ingibjörg, f. 24.11. 1953, d. 11.6.
1954.
Laufey fluttist til Norðfjarðar
rúmlega þriggja ára gömul er fað-
ir hennar varð þar skólastjóri. Ár-
ið 1931 hóf hún nám við nýstofn-
aðan húsmæðraskóla á Hallorms-
stað.
Þau Stefán hófu búskap í Bót hjá
Sigríði móður hans og bjuggu þar
til ársins 1947 er þau gerðust land-
nemar í nýju þorpi sem þá var að
myndast á Egilsstöðum. Tveimur
árum síðar byggðu þau nýbýlið
Flúðir í Bótarlandi og bjuggu þar á
árunum 1949–1953 er þau fluttust
aftur í Egilsstaðakauptún og þar
stóð heimili þeirra þangað til þau
fluttust til Reykjavíkur árið 1966.
Útför Laufeyjar verður gerð frá
Áskirkju á morgun, mánudaginn
18. nóvember, og hefst athöfnin
klukkan 15.
eyjar og Stefáns eru:
1) Birna Helga verk-
efnisstjóri, f. 13.11.
1935, maki Jón Berg-
steinsson, fyrrv. skrif-
stofustjóri, f. 28.2.
1932. Börn þeirra: Jón
Steinar heilsugæslu-
læknir og Sigríður
Laufey lögfræðingur.
2) Pétur verkfræðing-
ur, f. 23.3. 1939, maki
Hlíf Samúelsdóttir,
verslunarmaður, f.
7.8. 1939. Börn þeirra:
Stefán fjármálastjóri,
f. 1.1. 1963. Unnur
sjúkraþjálfari, f. 12.5. 1966. Sam-
úel Torfi verkfræðingur, f. 5.7.
1976. 3) Stefanía Valdís aðjúnkt
KHÍ, f. 25.5. 1942, var gift Skúla
Johnsen borgarlækni, f. 30.9. 1941,
d. 8.9. 2001. Börn þeirra: Baldur
tölvufræðingur f. 25.11. 1963,
Valdimar lögfræðingur, f. 5.12.
1968, og Guðrún hagfræðingur, f.
5.4. 1973. 4) Gunnsteinn heilsu-
gæslulæknir, f. 13.6. 1947, maki
Helga Snæbjörnsdóttir, hjúkrun-
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu’ og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir.)
Látin er í Reykjavík elskuleg og
kær tengdamóðir okkar, Laufey
Valdemarsdóttir Snævarr. Langt
er síðan hún var tilbúin að takast á
hendur ferðina löngu, en róleg og
æðrulaus beið hún síns tíma, enda
hógværð, stilling og yfirvegun að-
alsmerki í skapferli hennar.
Laufey var fríð kona, björt yf-
irlitum og frá henni stafaði mildi og
gæsku. Hún var tilfinninganæm,
hlédræg og nærgætin og mátti
ekkert aumt sjá. Hún var kona sem
skildi allt, fyrirgaf allt, umbar allt.
Við tengdabörnin fórum ekki
varhluta af gæsku hennar. Frá
fyrsta degi tók hún okkur sem sín-
um eigin börnum og umvafði okkur
kærleika sínum og ástúð. Barna-
börn og langömmubörn rötuðu
fljótt í faðm ömmu sinnar, því þessi
faðmur gat verndað gegn öllu
heimsins andstreymi, en einnig lát-
ið í ljós innilega væntumþykju.
Laufey ólst upp á Norðfirði hjá
foreldrum sínum og systkinum, uns
hún sem ung stúlka settist í Hús-
mæðraskólann á Hallormsstað,
sem að þeirra tíma hætti var ein
besta menntun fyrir ungar stúlkur.
Þetta varð örlagarík skólavist, því
þarna kynntist hún eiginmanni sín-
um, Stefáni Péturssyni frá Bót í
Hróarstungu. Í Bót bjó þá rausn-
arbúi móðir Stefáns, Sigríður Ei-
ríksdóttir, ekkja eftir Pétur Stef-
ánsson, ásamt börnum sínum þeim
Eiríki, Ingibjörgu og Stefáni. Það
munu hafa verið mikil viðbrigði fyr-
ir Laufeyju að koma úr litlu sjáv-
arþorpi inn í bændasamfélagið á
Héraði, en undir styrkri hendi Sig-
ríðar tengdamóður sinnar var unga
konan fljót að setja sig inn í stöðu
húsmóður á stóru og gestkvæmu
heimili, þar sem auk húsbænda og
hjúa dvöldu gestir og förufólk um
lengri eða skemmri tíma.
Árið 1949 byggði Stefán nýbýlið
Flúðir í Bótalandi og bjó þar í
nokkur ár. Hann var á þessum ár-
um ekki vel heilsuhraustur og
bregða þau hjón búi og setjast að á
Egilsstöðum, en þar var þá að
myndast vísir að þorpi. Stefán hóf
þar vörubílarekstur á sumrum, en
vann á skrifstofu kaupfélagsins á
vetrum. Margar gleðistundir áttum
við ásamt fjölskyldum okkar í
Birkihlíð, en það hét hús þeirra.
Gestkvæmt var þar eins og í Bót og
oft settist Stefán við orgelið og
spilaði, en heimilisfólk og gestir
sungu ættjaðrarlögin af hjartans
list. Er miður að þessi skemmtun
er því er virðist að renna sitt skeið
á enda.
Þar kemur að þau hjón flytja til
Reykjavíkur, en börnin þeirra fjög-
ur, sem öll lögðu fyrir sig lang-
skólanám, voru þá flutt suður og
höfðu hafið störf þar. Það var þeim
hjónum erfið ákvörðun að yfirgefa
Fljótsdalshérað, einkum þó Stef-
áni. Börn og barnabörn máttu sín
þó meira í þeirri togstreitu og þau
festu kaup á íbúð við Hjarðarhaga,
þar sem þau bjuggu í allmörg ár.
Stefán hóf störf hjá Kirkjugörðum
Reykjavíkur og heimilið á Hjarð-
arhaganum varð miðstöð og sam-
komustaður stórfjölskyldunnar.
Síðustu árin dvöldu þau hjón á
Dalbraut 27 hér í borg. Eftir andlát
Stefáns árið 1992 bjó Laufey í hlý-
legu og notalegu herbergi innan
um allar fjölskyldumyndirnar, en
fjölskyldan varð hennar heimur
síðustu árin. Hún fylgdist með öll-
um meðlimum hennar í leik og
starfi, hvort sem það var hérlendis
eða erlendis. Hún mundi alla merk-
isdaga og ártöl, en hún var með af-
brigðum minnug. Laufey var mjög
ættfróð, enda ættfræði eitt af aðal-
áhugamálum hennar og makalaust
hvernig hún gat tvinnað saman
ættir fólks eftir nafni og búsetu á
hinum ýmsu stöðum. Þegar leið á
ævi Laufeyjar dapraðist sjón henn-
ar mjög og fór svo, að síðustu árin
var hún næstum blind. Ekki heyrð-
ist æðruorð frá henni um þessa
fötlun sína fremur en annað, en
prjónarnir teknir fram og vettling-
ar og leistar í öllum regnbogans lit-
um litu dagsins ljós, vermandi fing-
ur og tær yngstu afkomendanna.
Góð kona er gengin. Síðustu ár
hafa verið Laufeyju nokkuð erfið,
en bjargföst trú hennar á almættið
lagði henni líkn með þraut. Við
tengdabörnin drúpum höfði í þökk
fyrir ástríki hennar og elsku alla
tíð. Veri hún guði falin.
Hlíf, Jón og Helga.
LAUFEY VALDEMARS-
DÓTTIR SNÆVARR
Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði!
FRANZ@holl.is
Hóll — Alltaf
rífandi salaAGUST@holl.is
FJÖLDI EIGNA TIL
SÖLU OG LEIGU!
Ekki hika við að hringja í
okkur félagana,
Franz, gsm 893 4284,
Ágúst gsm, 894 7230.
OPIÐ HÚS - EYRARHOLT 2 HAFNARFIRÐI
Falleg, 4-5 herb. íbúð í fjölbýlihúsi sem nýlega hefur verið tekið í
gegn að utan. Þrjú rúmgóð herb. Einstaklega rúmgóð stofa með
parketi á gólfi og útgangi út á suðursvalir. Mögulegt
er að stúka af henni herb. Þvottahús er inn af eldhúsi.
Verð 14,8 millj.
Josip sölufulltrúi RE/MAX mun sýna eignina
í dag á milli kl. 12-14.
Josip
Vercric
Gsm 698 1803
Heimilisfang: Eyrarholti 2
Stærð: 118 fm
Opið hús: Sunnudaginn
17. nóv
Kl. 12-14
Hrafnhildur
Bridde
lögg. fasteignasali
SUÐURLANDSBRAUT SÍMI 520 9300
OPIÐ HÚS - NJÁLSGATA 16
LAUS ! Björt, íbúð í kjallara ( lítið niðurgrafin) í þríbýlishúsi í
miðbænum. Sérinngangur. Svefnherb. með nýju
parketi. Rúmgott baðherb. Íbúðin er öll nýmáluð.
Húsið er bárujárnsklætt. Verð 6,5 millj. Áhv. ca 3,5
millj.
Óðinn sölufulltrúi RE/MAX mun sína eignina í dag
á milli kl. 15-17.
Óðinn S.
Ágústsson,
GSM 897-2179
Heimilisfang: Njálsgata 16
Stærð: 44 fm
Opið hús: Sunnudaginn
17. nóv
kl. 15-17
Hrafnhildur
Bridde
lögg. fasteignasali
SUÐURLANDSBRAUT Sími 520 9300
OPIÐ HÚS - NAUSTABRYGGJA 57
LAUS ! Falleg, 2-3ja herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við
sjávarkambinn. Lyfta. Íbúðin er fullbúin með fallegum innréttingum.
Rúmgóð og björt stofa með útangi út á norð-vestur-
svalir með útsýni yfir sjóinn og Esjuna. Verð 13,9
millj. Áhv. 7,2 millj.
Halldór sölufulltrúi RE/MAX mun
sýna eignina í dag á milli kl. 15-17.
Halldór G.
Meyer,
GSM 864-0108
Heimilisfang: Naustbryggja 57
Stærð: 82 fm
Opið hús: Sunnudaginn
17. nóv
kl. 15-17
Hrafnhildur
Bridde
lögg. fasteignasali
SUÐURLANDSBRAUT Sími 520 9300
OPIÐ HÚS - VESTURBRAUT 4 HAFNARFIRÐI
Laust! Einbýlihús (raðhús) á tveimur hæðum í gamla bænum sem
býður upp á mikla möguleika. Þrjú svefnherb., stofa
og borðstofa. Húsið hefur verið klætt að hluta og þak
yfirfarið. Nýlegt rafmagn, hiti og ofnlagnir.
Verð 11,5 millj.
Guðrún sölufulltrúi RE/MAX mun sýna eignina í dag
á milli kl. 15-17.
Guðrún
Antonsdóttir
GSM 867-3629
Heimilisfang: Vesturbraut 4
Stærð: 116 fm
Opið hús: Sunnudaginn
17. nóv
kl. 15-17
Hrafnhildur
Bridde
lögg. fasteignasali
SUÐURLANDSBRAUT Sími 520 9300
OPIÐ HÚS - TÚNGATA 10 REYKJANESBÆ
Til sölu eitt af fallegustu timburhúsum Reykjanesbæjar. Húsið er
einbýlishús sem skiptist í kjallara, hæð og ris og er
uppgert á mjög vandaðan hátt. Eigninni fylgir sérhús
sem nýtt er í dag undir atvinnurekstur og rúmgóðan
bílskúr.
Josip sölufulltrúi RE/MAX mun
sýna eignina í dag á milli kl. 15-17.
Josip
Veceric
GSM 698-1803
Heimilisfang: Túngata 10
Stærð húss: 167 fm
Stærð bílskúrs: 45 fm
Opið hús: Sunnudaginn
17. nóv
kl.15-17
Hrafnhildur
Bridde
lögg. fasteignasali
SUÐURLANDSBRAUT Sími 520 9300
Fallegt einbýlishús á góðum stað á Eyrarbakka. Tvö svefnherb. og
vinnustofa í risi. Rúmgott eldhús. Góð stofa með parketi á gólfi.
Skjólsæll suðurgarður. Húsið hefur nýlega verið klætt og þak yfirfar-
ið. Þetta er skemmtileg eign sem gæti nýst sem heils-
árshús eða sumarhús. Verð 7,7 millj. Áhv. ca 5 millj.
Elísabet sölufulltrúi RE/MAX mun sýna eignina
í dag á milli kl. 15-17.
OPIÐ HÚS - BJÖRGVIN 3 EYRARBAKKI
Elísabet
Agnarsdóttir
Gsm 822-0336
Heimilisfang: Hjallavegur 3
Stærð: 130 fm
Opið hús: Sunnudagur
17. nóv
kl. 15-17
Hrafnhildur
Bridde
lögg. fasteignasali
SUÐURLANDSBRAUT Sími 520 9300