Morgunblaðið - 17.11.2002, Blaðsíða 41
dugnaður við að vinna í sínum mál-
um hefur verið aðdáunarverður.
Við Ása sendum öllum ástvinum
Bjarna innilegar samúðarkveðjur og
biðjum góðan Guð að styrkja þau og
hugga. Góður drengur er genginn.
Blessuð sé minning hans.
Jóhann Baldurs.
Fyrir sjö og hálfu ári fluttum við
hjónin í Gullsmárann. Hér er kjör-
lendi fyrir fullorðið fólk og flest til
fyrirmyndar. En hæst ber fólkið
sjálft, góða granna, gott samfélag og
fjölbreytt félagslíf.
Þegar við fluttum í háhýsið Gull-
smára 11 vóru ein hjón þar fyrir,
fyrstu „landnemarnir“, fyrstu íbú-
arnir í Gullsmáraháhýsunum, Auður
Jónsdóttir og Guðmundur Bjarni
Guðmundsson. Þau urðu fljótlega
góðir vinir okkar sem og flestra er
síðar bættust í hópinn.
Guðmundur Bjarni, eða Bjarni,
eins og við kölluðum hann, varð
strax leiðandi um flest í litla sam-
félaginu okkar hér í Gullsmáranum.
Hann var fyrst formaður húsfélags-
ins og vann árum saman af fyrir-
hyggju og dugnaði í okkar þágu.
Hann leiddi fjölþætt félagsstarf á
okkar vegum og var formaður
Bridsdeildar FEBK í Gullsmára
þegar hann lézt. Hann var nánast
alls staðar þátttakandi: í brids, golfi,
göngum, leikfimi, pútti o.s.frv. Hann
var alltaf sami góði drengurinn.
Alltaf reiðubúinn að hlaupa undir
bagga þegar þörfin kallaði. Eftir á
veltir maður fyrir sér, hvort hann
hafi ekki síðustu misserin fórnað
meiru á altari samfélags okkar en
heilsa hans hafði gott af.
Það er skarð fyrir skildi í Gull-
smáranum. Góður drengur er geng-
inn. Ef menn uppskera svo sem þeir
hafa sáð í jarðlífinu á Guðmundur
Bjarni góðu að mæta. Íbúar hússins
Gullsmára 11 kveðja hann með virð-
ingu og þakklæti. Fyrir þeirra hönd
sendum við Auði og öðrum ástvinum
Guðmundar Bjarna innilegustu
samúðarkveðjur.
Geymi þig Guð,
Guðmundur Bjarni,
í ljósi lífs
á leiðum nýjum.
Þorgerður Sigurgeirsdóttir,
Stefán Friðbjarnarson.
Fyrrverandi samstarfsmaður
okkar Guðmundur Bjarni Guð-
mundsson er látinn. Upp í hugann
koma ýmis minningabrot frá þeim
tíma sem við unnum saman í Hlé-
garði. Bjarni hóf störf hjá Mosfells-
hreppi 1. febrúar 1971 sem bókari
og innheimtustjóri en starfaði sem
skrifstofustjóri frá júlí 1974. Þegar
Mosfellshreppur var gerður að bæ
var starfi Bjarna skipt og gert að
tveimur störfum, að starfi bæjarrit-
ara annars vegar og að starfi aðal-
bókara hins vegar. Bjarni tók þá við
starfi aðalbókara.
Bjarni var mjög vinnusamur og
gerði ríkar kröfur til samstarfs-
manna sinna um slíkt hið sama.
Bjarni var fastheldinn á venjur og
siði og sá til þess að ætíð væri haldið
upp á afmæli og aðra tyllidaga svo
sem Þorláksmessu að sumri og Góu-
þræl með viðeigandi veitingum úr
bakaríi Mosfellsbæjar. Að hans mati
voru þetta nauðsynlegar stundir til
að létta lífið í erli dagsins.
Hann lá ekki á skoðunum sínum
og voru þær ófáar rökræðurnar á
kaffistofunni um kosti og galla
þeirra breytinga sem áttu sér stað í
þjónustu bæjarsins og í þjóðfélaginu
almennt. Hann var mikill útivistar-
maður og miðlaði upplýsingum til
okkar um áhugaverðar gönguleiðir í
nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Bjarni lét af störfum árið 1995 og
hafði þá starfaði hjá bæjarfélaginu í
tæp 24 ár. Það var ánægjulegt að fá
Bjarna í heimsókn eftir að hann lét
af störfum og sjá og heyra hvað
hann naut þess að hafa frjálsan tíma
til að sinna áhugamálum sínum og
fjölskyldunni.
Eiginkonu hans og börnum er
vottuð hluttekning við fráfall hans.
Blessuð sé minning Guðmundar
Bjarna Guðmundssonar.
Samstarfsfólk á bæjarskrif-
stofum Mosfellsbæjar.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 41
Mig langar að
kveðja mætan mann,
Guðjón Helgason,
tengdaföður minn og
afa dætra minna.
Ég kynntist Guðjóni
fyrir rúmum 30 árum
og var mér vel tekið þegar ég kom í
fyrsta sinn á heimili hans og Þóru á
Rauðuskriðum.
Guðjón var alvörugefinn maður,
en alltaf var stutt í brosið.
Margar góðar stundir áttum við
yfir kaffibolla, þá var spjallað og
sögur sagðar, því hann var sögu-
GUÐJÓN
HELGASON
✝ Guðjón Helgasonfæddist á Hlíðar-
enda í Fljótshlíð hinn
22. mars 1916. Hann
lést 4. nóvember síð-
astliðinn og var útför
hans gerð frá Hlíðar-
endakirkju í Fljóts-
hlíð 16. nóvember.
maður góður. Okkar
uppáhaldsumræðuefni
var hálendi Íslands og
þá gat nú fokið ein og
ein vísa eins og Guð-
jóni var lagið, en eftir
hann liggja heil ósköp
af ljóðum og stökum,
sem alltof fáir hafa les-
ið.
Þið íslensku fjöll geymið
fegurð og frið.
Ég fagnandi lít yfir
árstíma svið.
Ég elska þau alauð í
sumarsins sól,
ég elska þau sveipuð í
drifhvítan kjól.
(Guðjón Helgason.)
Guðjón kveð ég með þakklæti fyr-
ir samfylgdina í þessari tilveru.
Þóru sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Sólveig Stolzenwald.
Elsku litli engillinn okkar,
BJÖRN HÚNI ÓLAFSSON,
Urðarvegi 54,
Ísafirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 19. nóvember kl. 11.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Félag
einstakra barna.
Hulda Lind Eyjólfsdóttir, Ólafur Sigmundsson,
Eyjólfur Karl Gunnarsson,
Kristjana Lind Ólafsdóttir,
Kristjana Júlía Jónsdóttir, Eyjólfur Karlsson,
Sigríður Jónsdóttir, Sigmundur Freysteinsson.
Ástkær eiginmaður, stjúpfaðir, tengdafaðir og
afi,
SIGURJÓN PARMESSON
múrarameistari,
sem varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnu-
daginn 10. þessa mánaðar, verður jarðsunginn
frá Húsavíkurkirkju þriðjudaginn 19. nóvember
og hefst athöfnin kl. 14.00.
Sigríður M. Arnórsdóttir,
Arnrún Sigfúsdóttir, Eiður Guðjohnsen
og afabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ANNES SVAVAR ÞORLÁKSSON
frá Veiðileysu,
Álfabergi 4,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 19. nóvember kl. 13.30.
Gréta Böðvarsdóttir,
Anna Þórný Annesdóttir, Þorgeir Pétur Svavarsson,
Svavar Þór Annesson, Hulda Sigríður Salómonsdóttir,
Gerður Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Okkar elskulega uppeldissystir og frænka,
GUÐRÚN MARGRÉT ÁRNADÓTTIR,
áður til heimilis á Laugavegi 99,
Reykjavík,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
fimmtudaginn 7. nóvember, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
19. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Ólafur Örn Árnason,
Ásta Árnadóttir,
Sigrún Árnadóttir,
Sigríður Árnadóttir.
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hringbraut 50,
Reykjavík,
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
þriðjudaginn 12. nóvember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Benóný Pétursson, Ester Axelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur, bróðir okkar og mágur,
JÓN KRISTJÁN KJARTANSSON,
Kirkjuteigi 9
og Tjaldanesi,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju
fimmtudaginn 21. nóvember kl. 15.00.
Kjartan Ingimarsson,
Þóra Kjartansdóttir, Guðmundur H. Karlsson,
Ingimar Kjartansson,
Kristinn Árni Kjartansson, Guðrún Ágústsdóttir,
Björg Vigfúsína Kjartansdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ÖNUNDARSON,
Starmýri 21,
áður Víðimýri 8,
Neskaupstað,
verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju miðvikudaginn
20. nóvember kl. 14.00.
Börn hins látna
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
FANNEY EINARSDÓTTIR LONG
kjólameistari,
Miðleiti 5,
áður Brekkugerði 10,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli
miðvikudaginn 13. nóvember, verður jarðsett
frá Fríkirkjunni í Reykjavík, miðvikudaginn 20.
nóvember kl. 15.00.
Siguroddur Magnússon,
Magnús G. Siguroddsson, Guðrún R. Þorvaldsdóttir,
Einar Long Siguroddsson, Sólveig Helga Jónasdóttir,
Pétur R. Siguroddsson, Guðný M. Magnúsdóttir,
Sólrún Ó. Siguroddsdóttir, Halldór Jónasson,
Bogi Þór Siguroddsson, Linda Ólafsdóttir,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
AFMÆLIS- og minningargreinum er hægt að skila í tölvupósti (net-
fangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur
borist), á disklingi eða í vélrituðu handriti. Ef greinin er á disklingi þarf
útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími fyrir minning-
argreinar er 569 1115. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á út-
farardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma
eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess
að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og
klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Þar sem pláss er takmark-
að getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins
tiltekna frests.
Frágangur afmælis-
og minningargreina