Morgunblaðið - 17.11.2002, Síða 45
BÓKASAFN KEFLAVÍKUR: Opið mán.–fös. 10–20. Opið
lau. 10–16 yfir vetrarmánuði.
BÓKASAFN KÓPAVOGS, Hamraborg 6a. S.
570 0450.Opið mán.-fim. kl.10-21; föst. kl. 11-17, lau.-
sun.kl.13-17.
BÓKASAFN SAMTAKANNA ’78, Laugavegi 3: Opið
mán.–fim. kl. 20–23.
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR, Tryggvagötu
15: Opið mán. til föst. kl. 10-16. S. 563 1770.
BYGGÐASAFN ÁRNESINGA, Húsinu á Eyrarbakka: S:
483 1504.
BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR: Sívertsen-hús,
Vesturgötu 6, 1. júní–30. ág. er opið alla daga frá kl.
13–17, s: 555 4700. Smiðjan, Strandgötu 60, 16. júní–30.
sept. er opið alla daga frá kl. 13–17, s: 565 5420, bréfs.
565 5438. Siggubær, Kirkjuvegi 10, 1. júní–30. ág. er
opið lau.–sun.. kl. 13–17. Skrifstofur safnsins verða
opnar alla v. d. kl. 9–17.
BYGGÐASAFN SUÐURNESJA, sýnir Bátaflota Gríms
Karlssonar í Duus húsum, Reykjanesbæ. Opið daglega
kl. 11-18. S. 421 3796.
FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, Loftskeytastöð-
inni v/Suðurgötu: Opið á þri., fim. og sun. frá kl. 13–17.
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi.
FRANSMENN Á ÍSLANDI: Safn á Fáskrúðsfirði um
veru franskra sjómanna á Íslandi. Opið daglega í sum-
ar kl. 10.30-17. Sími 475 1525 og 864 2728. Netfang: al-
berte@islandia.is - heimasíða: faskrudsfjordur.is/frans-
menn
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði,
s. 423 7551, bréfs. 423 7809. Opið a. d. kl. 13–17 og eftir
samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið a. d. í sumar frá
kl. 9–19.
HAFNARFJÖRÐUR:
Upplýsingamiðstöð Hafnarfjarðar, Vesturgötu 8, Hafn-
arfirði. Opið frá 16. sept. til 15. maí virka daga kl. 13-
16.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgötu 1, Hafnarfirði. Opið
frá 1. sept. til 31. maí, mán.-fimt. kl. 10-20, föstud. kl.
11-17 (laugard. kl. 11-15, 1. okt.-30. apríl).
Byggðarsafn Hafnarfjarðar. Skrifstofa Strandgötu 60.
Sími: 565 5420, bréfs. 565 5438. Netfang: museum-
@hafnarfjordur.is
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarð-
ar opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKA-
SAFN: Opið til 20. maí: Opið mán.- fimmt. kl. 8:15 til
22.00, föst. kl. 8:15 til 19:00, laug. kl. 9:00 til 17:00, sun-
nud. kl. 11:00 til 17:00. Þjóðdeild lokuð á sunnudögum
og handritadeild er lokuð á laugardögum og sunnudög-
um. S: 525 5600, bréfs: 525 5615. www.bok.hi.is
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið laugardaga og
sunnudaga kl. 14-17. Höggmyndagarðurinn við Freyju-
götu er alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað
mán. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn:
Opið alla v. d. kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–
16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á
internetinu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
fim.–þri. 10–17 mið. 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net-
fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föst.–
mið. 11–18 Fim. 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
maí–september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl.
13–16 alla daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið alla
daga nema mán. kl. 11–17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Laugarnes-
tanga 70. Safnið er opið laug og sun frá kl. 14–17.
Kaffistofan opin á sama tíma. Tekið á móti hópum
samkvæmt samkomulagi. Uppl. í s. 553 2906, fax: 581-
4553. Netfang: 1so@1so.is . og á heimasíðu: www.lso.is
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–
18. Lokað mán.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst.
kl. 10-16.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími
mán.-föst. kl. 11-19. Um helgar kl. 13-16.30. Sími 575-
7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá
1. júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskóg-
um 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–
17 til 1. september. Alla fim. í sumar kl. 13-17 verða
þjóðháttadagar, þar sem þjóðlegt handverk og hættir
verða skoðaðir. Safnbúð með minjagripum og hand-
verksmunum. Kaffi og sælgæti. S. 471 1412, netfang
minaust@eldhorn.is. www.minjasafn.is
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Frá 1. sept. - 31. maí er opið á sun. kl. 13–17.
Hægt er að panta leiðsögn á öðrum tímum í síma
567 9009 eða á netfang: rafheimar@or.is
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar
frá kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s.
422 7253.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Hamraborg 6a.
S. 570 0430. Opið mán.-fim. kl.10-21; föst. kl. 11-17,
lau.-sun. kl.13-17.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu
116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1.
júní – 1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17.
Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030,
bréfas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is – heima-
síða: hhtp://www.nordice.is.
SAFNASVÆÐIÐ AKRANESI. Steinaríki Íslands,
Íþróttasafn Íslands, Byggðasafn Akraness og nær-
sveita, Forsýning Landmælinga Íslands og Maríu-
Kaffi. Til sölu steinar, minjagripir og handverk. Opn-
unartími : 15 maí - 15 sept 10 - 18 / 16 sept - 14 maí 13-
18. S: 4315566. Fax: 4315567. www.museum.is mu-
seum@museum.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði,
er opið alla daga kl. 13-17 og ennfremur eftir sam-
komulagi fyrir skóla og aðra hópa. Sími sýningar:
565 4242. Skrifstofa, Lyngási 7, 210 Garðabær, sími
530 2200. Netfang: sjominjasafn@natmus.is.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR á Íslandi. Hand-
ritasýning verður opnuð í Þjóðmenningarhúsi v/Hverf-
isgötu 5. október. Opið daglega kl. 11-17. Aðgangseyrir
300 kr. Frítt á sunnudögum.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓNUSTA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2002 45
HUGVEKJA
HAUSTIÐ 1995 ákvaðríkisstjórn Íslands,að 16. nóvember árhvert, sem er fæð-ingardagur Jónasar
Hallgrímssonar, yrði dagur ís-
lenskrar tungu. Í framhaldi af því
hefur menntamálaráðuneytið ár-
lega beitt sér fyrir sérstöku átaki í
þágu íslensks máls og helgað
þennan dag rækt við það. Með því
beinist athygli þjóðarinnar að
stöðu tungunnar, gildi hennar fyr-
ir þjóðarvitund og alla menningu.
Og ekki vanþörf á, á tímum enskr-
ar síbylju í útvarpi og sjónvarpi
hér, með tilheyrandi íslens-
kuambögum og orðafátækt þátta-
stjórnenda. Ný íslensk orðabók
var kærkomin sending inn í það
ógnargímald, en betur má ef duga
skal.
Á miðöldum hafði kirkjan í
Vestur-Evrópu ekki áhuga á að
þýða Biblíuna á tungur þjóðanna.
Latínan var mál hennar og fæstir í
röðum almennings hvort eð er
læsir; efni ritninganna var því
bara endursagt. En evangelísk-
lútherska kirkjan, sem kom fram
á sjónarsviðið á 16. öld, leit öðru-
vísi á þetta. „Hún tók þá stefnu, að
gera almenning myndugan í and-
legum efnum og fylgdi þeirri
stefnu markvisst. Þess vegna lagði
hún áherslu á víðtæka upp-
fræðslu, lestrarkennslu og útveg-
un lestrarefnis,“ eins og Sig-
urbjörn Einarsson biskup kemst
að orði í bókinni Haustdreifar
(1992). Og þetta bar árangur. T.d.
hefur sagt verið, að Marteinn
Lúther hafi með þýðingu Bibl-
íunnar úr frummálunum, ann-
álaðri fyrir orðgnótt og ferskleika,
lagt grunn að þýsku ritmáli.
Það sama gerðist hér á landi; ís-
lenskir siðbreytingarmenn geng-
ust undir þessa köllun af fyllstu
einbeitni og þjóðlegum metnaði.
Þar riðu á vaðið Gissur Einarsson
og Oddur Gottskálksson. Lét hinn
síðarnefndi útbúa fyrir sig pall í
fjósi í Skálholti og hóf um veturinn
1536-1537 að snúa Mattheus-
arguðspjalli á „norrænu“. Ekki er
ljóst hvar næstu rit voru þýdd, en
hitt er vitað að um haustið 1539 er
Oddur staddur í Danmörku með
þýðinguna fullgerða. Eftir skoðun
lærðra manna þar bauð konungur
að verkið skyldi prentað og var
það gert í Hróarskeldu veturinn
1939-1540. Hid nya testament er
elst prentbóka á íslensku, sem um
er vitað og geymst hafa. Prentun
var lokið 12. apríl 1540.
Oddur hefur þekkt vel gamla ís-
lenska kirkjumálið og notað það,
en afrek hans er engu að síður
mikið, raunar ómetanlegt. Um
þetta leyti er íslensk tunga nefni-
lega farin að spillast, í kjölfar við-
skipta landsmanna við útlendinga,
einkum Dani og Þjóðverja, og síð-
ustu tvær aldir þar á undan hafði
lítið verið frumsamið á íslensku.
Þáttur Odds var sá, að hann bjarg-
aði arfinum dýrmæta, með því að
koma honum á prent í eitt skipti
fyrir öll. Og hvílík íslenska, þrátt
fyrir að Oddur hafi að miklu leyti
verið alinn upp í Noregi! Eða
hversu líst mönnum þessi texti úr
Fyrra Korintubréfinu, unninn fyr-
ir næstum 500 árum síðan?
Þó að eg talaði tungur mannanna og engl-
anna, en hefða ekki kærleikann, þá væri eg
sem annar hljómandi málmur eður hvellandi
bjalla. Og þó að eg hefða spádóm og vissi alla
leynda hluti og alla skynsemi og hefði alla
trú svo að eg fjöllin úr stað færði, en hefða
ekki kærleikann, þá væri eg ekkert. Og þó
að eg gæfa allar mínar eigur fátækum og eg
yfirgæfi minn líkama svo að eg brynni og
hefða ekki kærleikann, þá væri mér það eng-
in nytsemd. Kærleikurinn er þolinmóður og
góðviljaður. Kærleikurinn er eigi meinbæg-
inn. Kærleikurinn gjörir ekkert illmannlega.
Eigi blæs hann sig upp, eigi stærir hann sig.
Eigi leitar hann þess hvað hans er. Eigi
verður hann til ills egndur, hann hugsar ekki
vondslegt. Eigi fagnar hann yfir ranglætinu,
en fagnar sannleikanum. Hann umber alla
hluti, hann trúir öllu, hann vonar allt, hann
umlíður alla hluti. Kærleikurinn hann doðn-
ar aldri þótt spádómurinn hjaðni og tungu-
málunum sloti og skynseminni linni.
Því er ekki að undra, að Páll E.
Ólason haldi því fram, að víða í
þýðingu Odds séu kaflar á svo
fögru máli, að hiklaust megi
„skipa honum á bekk með þeim,
sem bezt rita íslenzku í sund-
urlausu máli um hans daga og
jafnvel þótt víðara svið sé tekið,
bæði fyrir og eftir.“
Annar maður honum ekki síðri
var Guðbrandur Þorláksson, sem
með Biblíu sinni 1584, mesta bók-
menntaafreki þjóðarinnar fyrr og
síðar, festi íslenskuna enn ramm-
legar í sessi.
Um þessa menn og aðra í fylk-
ingarbrjósti hinnar nýju kirkju-
deildar á 16. öld ritar Sigurbjörn
Einarsson í áðurnefndri bók sinni,
fullur lotningar:
Það var hamingja Íslands á örlagaríkum
tímamótum sögunnar, að kirkjan átti menn,
sem voru einráðnir í því, að hin nýja öld
gagngerra breytinga í tíðahaldi, öld prent-
aðs máls á bókum og nýrrar uppfræðslu al-
mennings, skyldi skila móðurmálinu
óskemmdu til komandi kynslóða. Ef það er
satt, að íslensk tunga og bókmenning hafi
varðveitt sérleik þjóðarinnar og skilað henni
óskaddaðri fram úr aldanna kafi og kröm, þá
er það öðrum framar þessum mönnum að
þakka.
Hér mætti til samanburðar geta
þess, að Norðmenn fengu ekki
Nýja testamenti eða Biblíu á
norsku fyrr en á 19. öld, heldur
urðu að notast við danskt orð, og
glötuðu þannig tungunni, sem þeir
áttu forðum saman með Íslend-
ingum og hefðu getað átt áfram
„ef kirkjuforusta siðbótartímans
þar í landi hefði dugað þjóð sinni
eins vel og hin íslenska dugði
sinni“, að enn séu notuð orð meist-
ara Sigurbjörns.
Fleiri kirkjunnar menn hér á
landi áttu eftir að taka upp þráð-
inn síðar og hlúa að móðurmálinu
og styrkja það, Einar Sigurðsson,
Hallgrímur Pétursson, Jón
Vídalín og enn aðrir.
En það er önnur saga.
Arfurinn
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Víða mátti sjá fána
dreginn að húni í gær.
Þar var fagnað degi ís-
lenskrar tungu, sem
haldinn var nú í 7. sinn.
Af því tilefni minnist
Sigurður Ægisson þátta
kirkjunnar manna fyrr-
um í varðveislu móð-
urmálsins, sem vógu
þungt á örlagaríkum
tímamótum.
ATVINNUHÚSNÆÐI
HÚSNÆÐI TIL LEIGU
Höfum til leigu á eftirtöldum stöðum
fullbúið skrifstofuhúsnæði
KRÓKHÁLS - 271 FM
HLÍÐASMÁRI
1. h. 184 fm, 2. h. 397 fm, 2. h. 385 fm, 2. h. 395 fm, 3. h. 440 fm, 3. h.
523 fm, 4. h. 550 fm.
HÆÐASMÁRI
1. h. 538 fm. Allar nánari upplýsingar og teikningar hjá Guðmundi og
Andrési sölumönnum. TILBOÐ. 2007
GEIRSGATA - TIL LEIGU
Höfum fengið til leigu samtals 324 fm mjög vandað skrifstofuhúsnæði á
besta stað í miðbænum á efstu hæð í lyftuhúsi. Frábært útsýni yfir höfn-
ina, næg bílastæði í nágrenninu, tölvulagnir, símkerfi, öryggiskerfi, allt á
staðnum. Góð fundaraðstaða með tengingu fyrir fjarfundarbúnað, gott
tölvuherbergi og aðgangsstýrð skjalageymsla. Allar nánari upplýsingar
hjá Guðmundi s. 821 1113, Andrés s. 821 1111 og á skrifstofu eign.is, s.
533 4030. 1919
LYNGHÁLS
Höfum fengið í sölu alhliða iðnaðarhúsnæði, sem skiptist í tvo eignarhluta,
efri hæð samtals 1,712 fm, á 2. hæð innkeyrsla frá Lynghálsi með góðri
lofthæð. Hentar vel fyrir matvælaiðnað eða heildsölu. Neðri hæð samtals
683 fm með aðkeyrslu frá Krókhálsi ásamt byggingarrétti upp á ca 2.620
fm á 3 hæðum. Grunnflötur hæðar 873 fm. Allar nánari upplýsingar og
teikningar hjá Guðmundi sölumanni. Tilboð. 1879
ÁLFABAKKI - FJÁRFESTAR
Höfum fengið í sölu þessa fasteign
sem er í útleigu að stærstum hluta
eða ca 586 fm. Leigutekjur krónur
450.000 á mán. Mjög gott geymslu-
húsnæði ca 95 fm. Teikningar og
allar nánari upplýsingar hjá Andrési
og Guðmundi. TILBOÐ. 2004
ÁLFHEIMAR - FJÁRFESTAR
Höfum fengið í sölu 237,3 fm versl-
unar- og lagerhúsnæði sem er að
miklum hluta í langtímaleigu. Leigu-
tekjur krónur 160.000 á mán. og
óleigt er ca 80 fm sem hægt væri
að innrétta sem ósamþykkta ein-
staklings- íbúð með bílskúr. Teikn-
ingar og allar nánari upplýsingar hjá
Guðmundi og Andrési. TILBOÐ. 2010
EIÐISTORG - LEIGUTEKJUR
Höfum fengið í einkasölu 109 fm skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem er í
útleigu. Góð eign fyrir þá sem vantar að kaupa fyrir áramót. Allar nánari
upplýsingar hjá Guðm. sölumanni. TILBOÐ. 1916
FJÁRFESTAR
HÚSNÆÐI TIL LEIGU
Skerjafjörður - frábært sjávarútsýni.
Opið hús á Einarsnesi 8 í dag
Guðmundur St. Ragnarsson hdl.,
löggiltur fasteignasali
Sérlega fallegt 181 fm raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum
bílskúr á þessum vinsæla stað. Fjögur svefnherbergi, rúmgott eldhús
og stórar og bjartar stofur með glæsilegu sjávarútsýni. Stórar svalir og
hellulögð verönd í garði. Laust til afhendingar fljótlega. Verð 22 millj.
Opið hús í dag milli kl. 15 og 17.
sími
530 6500
mbl.isFRÉTTIR